Morgunblaðið - 25.08.1993, Page 27

Morgunblaðið - 25.08.1993, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993 27 Eysteinn Jónsson fyrrv. ráðherra Fæddur 13. nóvember 1906 Dáinn 11. ágúst 1993 Pólitíkin var allt hans líf. Tutt- ugu og sjö ára gamall var Ey- steinn Jónsson orðinn ráðherra, yngstur allra til að gegna ráð- herraembætti hér á landi. Það var árið 1933. Þá þegar hafði Eysteinn fengið meiri pólitíska þjálfun en ætla mætti, m.a. hjá dómsmála- ráðherranum Jónasi Jónssyni sem bauð honum „magurt skrifstofu- starf“ í ráðuneyti sínu á umbrota- sömum tíma. Síðar hafði hann gegnt stöðu skattstjóra í Reykja- vík. Eysteinn átti eftir að starfa í þágu flokks og þjóðar í hálfa öld, sem þingmaður, ráðherra, formað- ur Framsóknarflokksins, formaður stjórnar SÍS og formaður Náttúru- vemdarráðs svo sitthvað sé nefnt. Til að helga sig stjórnmálum ævi- langt þarf mikinn áhuga á þjóð- málum, lagni, gáfur, þekkingu, dugnað og úthald; allt þetta hafði Eysteinn Jónsson í ríkum mæli. Eysteinn Jónsson ólst upp í anda samvinnuhugsjónarinnar og var henni trúr alla ævi sem maður og stjórnmálamaður. Aldrei notaði hann aðstöðu sína í eigin þágu. Hér á vel við fræg saga af Pétri Jónssyni á Gautlöndum sem barði snjóinn af vörðunum þegar hann fór yfir heiðina til að þeir sem á eftir kæmu sæju betur leiðina. Hversu andstæð er þessi gjörð þeirri einstaklingshyggju, sam- keppnisanda og blindri markaðs- hyggju sem ræður ferð nú um stundir. Kynni okkar Eysteins hófust þegar hann var kominn undir sjö- tugt, hættur þingmennsku eftir fjögurra áratuga starf á þeim vett- vangi. Hann gegndi þá for- mennsku í Náttúruvemdarráði, kunnur fyrir störf sín að umhverf- ismálum, útilífsmaður af lífi og sál, góður skíðamaður sem m.a. fór árlega í Kerlingarfjöll á sumr- um. Hann naut virðingar sem „the grand old man“ íslenskra stjórn- mála. Við Eysteinn sátum saman í miðstjórn og framkvæmdastjórn Framsóknarflokksins um skeið. Það sem mér þótti einkenna fram- komu Eysteins var látleysi hans. Hann var meðalmaður á hæð, enn- ið hátt, augnaráðið sérkennilegt þar sem annað augað var eilítið skjálgt. Hann kom stundvíslega á fundi og sagði mér að þess þyrfti vildi maður hafa áhrif. Eg minnist þess ekki að hafa setið fund með Eysteini án þess að hann tæki til máls og gerði grein fyrir skoðun- um sjnum. Hann talaði skýrt og skipulega, var ekki langorður og hafði skoðun á sérhveiju máli. Þótt hann væri elstur að árum var hann ungur í anda. Hann hafði laumulega kímnigáfu og var þægi- legur í allri umgengni. Hann var stuðningsmaður minn í prófkjöri til borgarstjórnar og sagði mér að hann hefði svo mikla ánægju af að vera kominn í baráttu að nýju að nú svæfi hann miklu betur! Við Eysteinn unnum ásamt öðr- um að stefnumótun í málefnum fjölskyldunnar fyrir Framsóknar- flokkinn. Hann gerði sér grein fyrir því að hlutverk fjölskyldunn- ar hefur breyst, svo og hlutverk karla og kvenna og við því yrði þjóðfélagið að bregðast á skyn- samlegan hátt. í þessu máli reynd- ist hann nútímalegri og framsýnni en flestir. Við Eysteinn áttum enn- fremur sæti í stjórn Samvinnuskól- ans um skeið og_ fórum margar ferðir í Bifröst. Ég minnist sér- staklega hversu mikla áherslu hann lagði á að samvinnusaga yrði ekki vanrækt í kennslunni. Heimili Eysteins og Sólveigar t Maðurinn minn, faðir okkar, stjúpfaðir, afi og langafi, HÖSKULDUR OTTO GUÐMUNDSSON frá Randversstöðum, Breiðdal, Bjargarstíg 17, Reykjavík, lést þann 23. ágúst sl. á öldrunardeild Landakotsspítala. Útförin verður auglýst síðar. Ingibjörg Valdimarsdóttir og aðrir aðstandendur. Móðir okkar, + JÓHANNA ÁGÚSTSDÓTTIR frá Vestmannaeyjum, Boðahlein 20, Garðabæ, er látin. Guðrún Ágústa Óskarsdóttir, Haraldur Baldursson, Birna Baldursdóttir, Liija Hanna Baldursdóttir. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR I. BRYNJÓLFSDÓTTIR, lést á elliheimilinu Grund mánudaginn 23. ágúst. Ingibergur G. Helgason, Sigriður Óskarsdóttir, Sigríður Bryndís Helgadóttir, Ólafur Steinþórsson, Jósep H. Helgason, Hrönn Helgadóttir, Pétur Njarðvik, Einar Helgason, Anna I. Gunnarsdóttir, Helgi Gestsson, Guðmundur Vestmann, barnabörn og barnabarnabörn. Eyjólfsdóttur á Ásvallagötu 67, þar sem þau bjuggu lengst, ein- kenndist af gestrisni, myndarskap og látleysi. Ljóst er hversu góður og traustur lífsförunautur Sólveig var manni sínum alla tíð. Sólveig starfaði mikið í Félagi fram- sóknarkvenna í Reykjavík og Ey- steinn kom oft á fundi hjá kvenfé- laginu og í ferðir á vegum þess. Mér er minnisstæð leiðsögn um Bláfjallasvæðið á vegum kvenfé- lagsins, en Eysteinn var mikill áhugamaður um þetta útivistar- svæði og átti frumkvæði að friðun þess. Frá svo mörgu hafði Ey- steinn að segja að varla varð hlé á máli hans. Þarna naut sín vel áhugi hans og þekking, gott minni og gleði af að fræða. Fyrir tæpum sjö áratugum tók afí minn, Jónas Jónsson, Eystein Jónsson í pólitískt fóstur. Hann sá að mikið mannsefni var í svein- inum og bauð honum „magra skrifstofuvinnu" í ráðuneyti sínu, eins og áður hefur verið vikið að. Síðar átti eftir að koma til upp- gjörs og_ vinslita á milli þessara manna. Ég spurði Eystein aldrei um þessa tíma, en ekki fór hjá því að hann minntist á kynni þeirra Jónasar við mig. Var það mjög í samræmi við frásögn hans í ævi- sögu hans sem Vilhjálmur Hjálm- arsson skráði og kom út í þremur bindum á árunum 1983-85. Síðustu árin hef ég lengstum dvalist erlendis, fjarri vettvangi. Samt kom mér á óvart að heyra andlát Eysteins Jónssonar þann 11. ágúst, sama dag og óvenjuleg stjörnuhröp sáust á himni: Og mér sem fannst hann alltaf svo ungur. Á þessum tímamótum sendum við Gunnar Sólveigu og börnunum innilegustu samúðarkveðjur. Gerður Steinþórsdóttir. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR HANNESSON, fyrrverandi bifreiðastjóri frá ísafirði, til heimilis íVailargerði 34, Kópavogi, sem lést sunnudaginn 22. ágúst sl., verður jarðsunginn frá ísafjarðarkapellu mánudaginn 30. ágúst nk. kl. 14.00. Minningarathöfn verður í Kópavogskirkju föstudaginn 27: ágúst nk. kl. 13.30. Anna Málfríður Sigurðardóttir, Hafsteinn Sigurðsson, Kristín Anna Bjarkadóttir, Eiríkur Hans Sigurðsson, Sigrún Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN MAGNÚSSON, Efstasundi 6, verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtudaginn 26. ágúst kl. 13.30. Blóm vinsamlega afþökkuð. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Halldóra Einarsdóttir og fjölskylda. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HALLDÓRU ANDRÉSDÓTTUR hjúkrunarkonu, Kleppsvegi 48. Fríða Björnsdóttir, Bergsveinn Jóhannesson, Trausti Björnsson, Sigurlína Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þessi augljsing er birt í upplýsingaskyni ogfelur ekki í sér tilboð um sölu skuldabréfa. 1 S LA N D S B A N K I íslandsbanki hf. kt. 421289-5069 Kringunni 7, Reykjavík Tilkynning um skráningu skuldabréfa á Verðbréfaþingi Islands Flokkur Gjalddagi Upphæð l.fl.A1993 04.07.1996 500.000.000 l.fl.B1993 04.07.1997 500.000.000 l.fl.C1993 04.07.1998 500.000.000 l.fl.D1993 04.07.1999 500.000.000 Skuldabréfin eru verðtryggð skv. lánskjaravísitölu. Útgáfudagur var 19. apríl 1993. Grunnvísitala er 3278. Ávöxtun yfir hækkun lánskjaravísitölu nú er 7,25% Skráningarlýsing skuldabréfanna, ársreikningur og samþykktir íslandsbanka hf. liggja fyrir hjá Verðbréfamarkaði íslandsbanka hf., Áimúla 13a. VÍB VEROBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30. Myndsendir 68 15 26.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.