Morgunblaðið - 25.08.1993, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993
35
^ MRMMSl-CPíP^LJRrtNNl ^
ER ENKl RO SUÐfl UM
FI?)K60LLDR I MRTlNN, SKIP
STJÖRI. Mf^ ÉT<S TFIKO ÖVO-
SEM HELMrNöINN RF .
________flFLRNUM^
^nrŒf.l fílíi inm
VELVAKANDI
GÆLUDÝK
Högni týndur
SVARTUR,
brúnn og hvítur
mjög loðinn
högni sem er 61-
arlaus en eyma-
merktur R2211
hvarf af heimili
sínu í Tunguseli
fimmtucíaginn
19. ágúst sl.
Hann gæti hafa lokast inni í kjall-
ara einhvers staðar og er fólk
beðið um að leita í nærliggjandi
kjöllurum en hafi einhver orðið
hans var er síminn 71960.
Köttur í óskilum
FLEKKÓTT, brún, hvít og svört
kisa sem heitir Amanda hvarf frá
heimili sínu að Lækjarfit í
Garðabæ fyrir u.þ.b. viku. Hún
er eymamerkt RIH 170. Hafi ein-
hver orðið hennar var er hann
beðinn um að hafa samband í síma
658801 eða 658861.
Páfagaukur tapaðist
GULUR páfagaukur tapaðist frá
heimili sínu við Staðarsel sl.
sunnudag. Hafi einhver orðið hans
var er hann vinsamlega beðinn
um að hafa samband í síma
75370.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Taska tapaðist
BRÚN hliðartaska sem innihélt
litla snyrtibuddu, tómt seðlaveski
og húslykla, tapaðist aðfaranótt
sunnudags fyrir utan hraðbanka
Landsbankans í Breiðholti. Skilvís
finnandi hringi í síma 77422.
Gleraugu töpuðust
LÍTIL gleraugu í svartri og gylltri
ferhymdri umgjörð töpuðust á
skemmtistaðnum Ömmu Lú föstu-
daginn 23. júlí sl. Sjónglerin eru
ólík. Skilvís fínnandi hafí sam-
band við Guðrúnu í síma
93-12946.
Er áfengissýki
fjölskyldusjúkdómur?
SÁ SEM þessar línur skrifar er
náinn aðstandandi áfengissjúklings
sem hefur farið í nokkrar meðferð-
ir á síðasta sex og hálfa ári.
Hann er búinn að vera inni á
stofnun til meðferðar við áfengis-
sýki samtals um 115 daga þegar
þetta er ritað.
Það er sagt að áfengissýki 'sé
íjölskyldusjúkdómur, en af
reynslu minni dreg ég þá ályktun
að meðferðaraðilar líti ekki svo
á. Á þeim tíma sem minn sjúkling-
ur hefur verið inni á stofnun í
meðferð hefur aðeins verið haft
samband við mig einu sinni og
lögð fýrir mig spurning sem olli
mér mikilli vanlíðan.
Ég vil taka það fram að ég hef
leitað mér hjálpar eftir því sem
mér hefur fundist þörf á eftir að
minn sjúklingur fór í sína fyrstu
meðferð 1988.
Mín reynsla er sú að aðstand-
endur sitji eftir með mikil vanda-
mál og vanlíðan þegar neytandinn
fer í verndað umhverfi í meðferð.
Minn draumur er að okkur að-
standendum áfengissjúklinga
standi til boða meðferð á vernduð-
um stað en þurfum ekki að leita
okkur hjálpar á hlaupum frá vinnu
og heimili, og auk þess í stuttan
tíma í hvert skipti.
Ég tel að það sé mjög mikil-
vægt að um leið og neytandinn
er kominn í áfengismeðferð sé
haft sambannd við nánasta að-
standanda og honum bent á að
hann þurfti hjálp og hvar hann
geti fengið hana.
Enn fremur tel ég að það væri
af hinu góða fyrir meðferðaraðil-
ann að heyra sjónarmið aðstand-
andans til að nýta við meðferð
neytandans.
Mér skilst að á Vífílsstöðum fái
aðstandendur viðtal þegar neyt-
andinn er kominn í form fyrir
sameiginlegt viðtal.
Mér finnst það mjög miður að
við þurfum að bíða marga daga
eftir að fá hjálp og það getur
valdið því að aðstandandinn leiti
annað eftir hjálp sem er þá ekki
í neinum tengslum við meðferð
neytandans.
Þessu þarf að breyta ef áfengis-
sýki er viðurkennd sem fjölskyldu-
sjúkdómur.
Aðstandandi
áfengissjúklings.
Undirvinna
Frá Baldri Hafstað
A) í tilefni fréttar
Yfirvinnu undirmenna
hjá yfirvöldum snapa
og komast yfir yfirmenn
sem undirleitir gapa.
b) Fréttaskýring
Yfirvinna
undirmenn
óska sér
og yfir komast
yfirmenn.
En undirmannað
hjá yfírmönnum
orðið gæti
ef yfirmenn
undirmenn
verða vilja.
BALDUR HAFSTAÐ
Ásvallagötu 24, Reykjavík
LEIÐRÉTTINGAR
Vopn en
ekki byssur
Þeirrar ónákvæmni gætti í grein
í sunnudagsblaði Morgunblaðsins
um aðgerðir gegn glæpum í Banda-
ríkjunum að þar sagði að 23% nem-
enda í Iowa kæmu með byssur í
skólann. Hið rétta er að svo hátt
hlutfall nemenda í Iowa kemur
vopnað í skólann, skv. því sem seg-
ir í vikuritinu The Economist 24.
júlí síðastliðinn. Tölur af þessu tagi
eru byggðar á viðtölum við skóla-
fólk og sumir sérfræðingar telja
þær of háar vegna þess að æsku-
fólkið sem rætt er við gorti en.t.v.
af því að koma vopnað í skólann
þótt sú sé ekki raunin.
Bjó í Alþingis-
húsinu
Þau mistök urðu í dagskrárkynn-
ingu í þriðjudagsblaðinu að sagt var
að Halldóra Brynjólfsdóttir hefði
átt heima í kjallara Alþingishúss-
ins. Hið rétta er að hún bjó í gamla
eldhúsinu undir kringlunni í Alþing-
ishúsinu.
Athugasemd
Eiríka A. Friðriksdóttir, hagfræð-
ingur, hafði samband við Morgun-
blaðið og vildi koma með athuga-
semd vegna orðalags í fréttatil-
kynningu sem birtist í blaðinu í gær
frá framkvæmdastjórn Öryggi
barna - okkar ábyrgð. Þar segir að
Eirika hafi hlotið viðurkenningu
vegna starfs hennar að öryggismál-
um neytenda, en hún vildi að það
kæmi fram að starf hennar tengd-
ist öryggismálum allra landsmanna.
Hjartans þakkir sendi ég öllum þeim, sem
glöddu mig meÖ heimsóknum og gjöfum d
100 ára afmœlisdegi mínum.
Guð blessi ykkur öll.
Kristjón Ólafsson,
húsgagnasmíðameistarí.
Við leggjum áherslu á vandað nám sem sniðið er að
kröfum vinnumarkaðarins og nýtist þér í atvinnuleit.
• Bókfærsla
• Ritvinnsla
• Tölvubókhald
• Töflureiknir
• Verslunarreikningur
• Gagnagrunnur
• Toliskýrslugerð
• Windows og stýrikerfi
7 ifrir adHhs A/. .5000 0 moiiufi
Tölvuskóli íslands
sími 67 14 66 • opið til kl. 22
Spennandi markaðstorg um hverja helgi
Hauststemmning
í Kolaportinu
- góð kaup og enginn samdráttur
Það er enginn samdráttur hjá
sölufólki í Kolaportinu um þessar
mundir, enda verðlagið á mark-
aðstorginu oftast mun lægra en
þekkist í hefðbundnum verslun-
um og kannski ekki nema eðlilegt
að fólk leiti þangað þar sem það
fær meira fyrir krónumar sínar.
í Kolaportinu er nokkur hópur
seljenda sem er þar hverja helgi
og hefur jafnvel sitt lifibrauö af
sölustarfseminni og það er kunn
staðreynd að þangað sækja sæl-
kerar hið ágætasta úrval matvæla
á borð við síldina frá Fáskrúðs-
firði, hákarlinn frá Bjamarhöfn,
reyktan lax, harðfisk, alls konar
bakkelsi og að sjálfsögðu nýja,
íslenska grænmetið, sem Magnea
og aðrir framleiðendur bjóða upp
á við miklar vinsældir.
Alltaf hægt að gera góð kaup
En stærstur hluti seljenda er nýr
um hverja helgi eða er þar
kannski i nokkrar helgar í röð og
þeim fer áberandi fjölgandi nú
með haustinu. „Það er ekki síst
þessi ásókn nýrra seljenda sem
gerir Kolaportið svo spennandi,"
segir Jens Ingólfsson, fram-
kvæmdastjóri markaðstorgsins.
„Maður hlakkar til hverrar helgar
í Kolaportinu, því það kemur allt-
af eitthvað á óvart og þar er allt-
af hægt að gera góð kaup. Á venju-
legum markaðsdegi eru um 100
seljendur í Kolaportinu en við
getum fjölgað sölubásum upp í
160 og erum því vel í stakk búin
til að taka við nýjum seljendum.“
Kompudagur á sunnudaginn
Kompudót er líka alltaf jafn vin-
sælt í Kolaportinu og þar má jafn-
an finna talsverðan fjölda slíkra
sölubása. Stundum er efnt til sér-
stakra „kompudaga" og er þá
boðinn sérstakur afsláttur af
verði sölubása með slíkan varn-
ing. Nú á sunnudaginn verður
einmitt slíkur „kompudagur" og
væntanlega sá síðasti á þessu ári.
Kolaportið er opiö á laugardög-
um kl. 10-16 og sunnudögum
kl. 11-17.
AUGLÝSING