Morgunblaðið - 16.09.1993, Side 1

Morgunblaðið - 16.09.1993, Side 1
72 SIÐURB/C STOFNAÐ 1913 209. tbl. 81.árg. FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sameina sendiráð Canberra. Reuter. ÁSTRALIR og Kanadamenn hafa ákveðið að sameina sendiráð sín víða um heim og er ein ástæðan að draga úr kostnaði við utanríkisþjón- ustuna, að sögn talsmanns áströlsku stjórnarinnar. Sameining sendiráðanna kemur til framkvæmda frá og með næst- komandi áramótum. í fyrstu verða sendiráð í löndum í Karíbahafi, Austur-Evrópu og Afríku sameinuð svo og nokkur sendiráð í Asíu og á Kyrrahafs- svæðinu. Talsmaður áströlsku stjórnar- innar sagði að með þessu ynnist tvennt, samstarf ríkjanna á sviði utanríkismála yrði eflt og styrkt til muna og fjárhagslegur spamað- ur í utanríkisþjónustunni yrði að veruleika. -„Hagsmunir ríkjanna á sviði utanríkismála fara saman, bæði eru þau í breska samveldinu, tungumálið er hið sama, embætti- skerfín eru keimlík og einnig stjórnsýslan,“ sagði fulltrúi ástr- ölsku stjómarinnar. Gáfust upp íNoregi ÞRÍR múslimar, sem rændu Tupolev-134 farþega- þotu á leið frá Bakú í Azerbajdzhan til rússnesku borgarinnar Perm í Úralfjöllum og neyddu flugmenn- ina til að fljúga til Noregs, gáfust upp fyrir norsku lögreglunni í gærkvöldi. Þeir fá að dveljast í Noregi meðan fjallað verður um umsókn þeirra um pólitískt hæli; Lenti þotan á Gardermoen-flugvellinum norðan við Ósló og má sjá einn ræningjanna í dymm þotunn- ar. Áður en ræningjamir gáfust upp höfðu þeir sleppt 17 konum og bömum sem voru meðal 44 farþega þotunnar. Sérsveitir norsku lögreglunnar umkringdu þotuna eftir lendingu. Ræningjamir óttuðust að ver- ið væri að gabba þá og tóku því ekki sem vísu að þeir væm í Noregi fyrr en einn þeirra hafði farið upp í flugturn í fylgd lögreglu til að ganga úr skugga um hvar þeir væru. Rabin vænir Sýrlend- inga um tvöfalt siðgæöi Jerúsalem, Damaskus. Reuter. YITZHAK Rabin forsætisráðherra ísraels sagði í útvarps- ávarpi til ísraelsku þjóðarinnar í gær að Sýrlendingar ættu enn eftir að sýna fram á að þeir væru fúsir til að semja um frið í Miðausturlöndum. Lítt hefur miðað í samningaviðræðum ísraela og araba um frið í Miðausturlöndum undanfarið, eink- um vegna ágreinings ísraela og Sýrlendinga um Gólan-hæðir og veru sýrlenskra hersveita I Líbanon. PLO og væntanlegra samninga ísraela og Jórdana yrði enginn friður í Miðausturlöndum án aðild- Við komuna til ísraels í gær frá athöfn í Washington, þar sem ísra- elar undirrituðu friðarsáttmála við PLO, sakaði Rabin Sýrlendinga um tvöfalt siðgæði. Hann sagði hryðjuverkasamtök og skæruliða- hópa, sem andsnúnir væra friði í Miðausturlöndum, eiga griðland í Sýrlandi. Meðan svo væri bæm Sýrlendingar kápuna á báðum herðum. Rabin sagði að sú afstaða Sýr- lendinga að koma í veg fyrir að stjórnarher Líbanons sendi nægi- legt lið til suðurhluta landsins til að halda þar aftur af hizbollah- skæmliðum kæmi í veg fyrir að ísraelar semdu um frið við Líbani. Forsenda samninga við Líbani væri að þeir fengju að senda her- lið að öryggissvæði ísraela í suður- hlutanum og einangra skæmliða frá því að gera árás á Israel. Ef það gengi eftir myndu ísraelar hverfa frá suðurhlutanum hálfu ári seinna. Stjómarerindrekar sögðu í gær að þrátt fyrir samninga Israela og ar Sýrlendinga að samningum af því tagi. Þeir hafa þótt ósveigjan- legir í samningaviðræðum ísraela og araba sem hófust í Madríd fyr- ir tveimur árum. Er það sögð meginástæða harðrar andstöðu margra samtaka Palestínumanna gegn nýgerðum friðarsáttmála Israela og PLO. Sögðu erlendir sendifulltrúar að andstaðan hefði engin orðið ef Hafez al-Assad Sýrlandsforseti hefði lýst sam- þykki við sáttmálann. Bill Clinton Bandaríkjaforseti ræddi við Assad í síma í gær og sagði eftir það að Sýriandsforseti væri reiðubúinn að lýsa stuðningi við samkomulag ísraela og PLO. Sjá „Fyrirheit um afsal svæða og hvers kyns . . .“ á bls. 24. Hefja her- ferð gegn gagnslaus- um lyfjum Amsterdam. Reuter. ALÞJÓÐLEGT samband 150 neytenda- og heilbrigðissam- taka í 70 ríkjum, HAI, hóf í gær herferð gegn svokölluð- um gagnslausum og jafnvel hættulegum lyfjum sem not- uð eru við lækningar. Nýtur sambandið fulltingis Alþjóða- heilbrigðisstofnunarinnar (WHO) sem heldur því fram að 70% af lyfjum sem í boði eru á heimsmarkaði séu óþörf eða beinlínis óæskileg. Samkvæmt upplýsingum Al- þjóðabankans era um 100.000 lækningalyf fáanleg í heiminum. Að sögn WHO em aðeins 270 þeirra nauðsynleg og segir stofn- unin að innan við helmingur jarð- arbúa hafi aðgang að þessum lyfj- um. Lítiil ávinningur Alls nam lyfjasala í heiminum 186 milljörðum dollara, jafnvirði 13.020 milljarða króna, árið 1990 og er áætlað að upphæðin nemi 330 milljörðum dollara um alda- mótin. Að mati Matvæla- og lyfjaeftir- lits Bandaríkjanna var læknis- fræðilegur ávinningur af einungis 3% nýrra lyfja, sem fram komu á áranum 1981-1988. Kveflyf gagnslaus? Að sögn talsmanns HAI em hverskyns kvef- og hóstameðul algengust i flokki gagnslausra lyfy'a. Rúmlega 80% kvef- og hósta- lyijja em gagnslaus, að sögn HAI, en láta mun nærri að sala lyfja við kvillum af því tagi hafí numið 7,3 milljörðuni dollara í heiminum, jafnvirði 510 milljarða króna, árið 1990. Sérfræðingar spá að með sama áframhaldi muni sala slíkra lyQa nema 9,5 milljörðum dollara á aldamótaárinu. Studningsmenn Gamsakhurdia efna til átaka í vesturhluta Georgíu Níu létust í átökum við stjómarherinn Tbilisi. Reuter. ÞING Georgíu samþykkti í gær að gera tveggja mánaða hlé á störf- um sínum til að koma til móts við kröfu Edúards Shevardnadze, leiðtoga landsins. Var þinghléð skilyrði þess að hann endurskoðaði ákvörðun sína um að segja af sér. Á sama tíma og þingið ákvað að taka sér hlé frá 20. september og gera Shevardnadze kleift að stjórna með neyðarlögum, blossuðu upp átök í vesturhluta landsins. Létust að minnsta kosti níu manns í átök- um stuðningsmanna Zviads Gams- akhurdia, fyrmm forseta landsins, og stjórnarhersins. Stuðningsmenn Gamsakhurdia lokuðu umferð um höfnina í Poti en hún er mikilvæg vegna aðgangs að Svartahafínu. Staða Gamsakhurdia er sterkust í vesturhéruðum Georgíu. Hefur hann hvatt landsmenn til að snúast gegn stjórn Shevardnadze. Reuter Viðbúnaður í Tbilisi LÖGREGLUMENN vopnaðir vélbyssu gæta þess að allt sé með friði og spekt á götum Tbilisi, höfuðborgar Georgíu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.