Morgunblaðið - 16.09.1993, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 16.09.1993, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1993 41 £ vXv. > Formaður íslendingafélagsins í Washington D.C., Jóhanna Johnston, afhendir sendiherrahjónunum árit- aða silfurskál. MANNFAGNAÐUR Sendiherrahjónin kvödd Islendingafélagið í Washington hélt kveðjuhóf í lok ágúst fyrir Tómas Tómasson og Hjördísi Gunn- arsdóttur, en þau eru á förum til New York. Þau hafa verið fulltrúar íslensku þjóðarinnar í höfuðborg Bandaríkjanna í tæp þrjú ár. Samkoman var haldin í svokölluðu „Gúttó“, litlu samkomuhúsi í Virg- iníufylki. Jóhanna Johnston formað- ur íslendingafélagsins þakkaði sendiherrahjónunum gott samstarf undanfarin ár um leið og hún af- henti þeim áritaða silfurskál frá fé- laginu. Sendiherrann þakkaði gjöf- ina og talaði um hve vel kveðjustað- urinn væri valinn. Sendiherrafjöl- skyldan ætti margar hlýjar end- urminningar, m.a. frá jólaböllum undanfarinna ára. Hann minntist ennfremur á að erfitt væri að kveðja, því þeim hefði liðið vel í Washington. Washington er borg mikilla um- skipta með öllum sínum sendiráð- um, alþjóðastofnunum og þinginu. Fólk ætti því að vera orðið vant breytingum. En kannski er ekki úr vegi að taka undir með konunni í kveðjuhófinu sem sagði: „Mér fannst ég varla vera farin að kynn- ast sendiherranum og nú er hann á förum.“ STJÖRNUR Leikarinn með ómót- stæðilega brosið Leikarinn Joe Lando var fyrr á þessu ári valinn einn af 50 fallegasta fólkinu í heimi af banda- ríska tímaritinu People. Geta ís- lendingar borið hann augum á Stöð 2 í þáttunum Dr. Quinn, en þar leikur Joe hinn sterka og þögla Sully. Joe, sem nú er 31 árs, hefur nefbrotnað fimm sinnum ýmist í slagsmálum eða mótorhjólaslysum. Þá hafa allir fingur hans brotnað, svo og úlnliður, haka og kjálkabein. Jane Seymour hrifin Hann vekur mikla athygli hjá kvenþjóðinni og lýsir mótleikari hans, Jane Seymour, honum sem „guðdómlegum", enda voru þau saman skamman tíma áður en Jane hitti núverandi eiginmann sinn. Framleiðandi þáttanna, Beth Sulliv- an, tekur í sama streng og segir að bros hans sé ómótstæðilegt sem og blá augun. Þegar þau ummæli eru borin upp við hann að hann búi yfir miklum kynþokka mælir hann ekki gegn því og segir að það sé partur af hlutverkinu. Taki maður þau um- mæli hins vegar of hátíðlega eigi maður ekki gott í vændum. Hann kveðst ekki enn vera tilbúinn að festa ráð sitt en segir að þegar þar að komi vilji hann að konan sé ver- aldarvanari en hann sjálfur og hafi betri menntun. Kvennagullið Joe Lando. JUVENANCE. ÞAÐ ER EINFALT AÐ við Umferðarmiðstððina, slmar 19800 og 13072. ALPINA vandaðir gönguskór fyrir meiri og minni háttar gönguferðir. Frábærverð írá kr. 5.500,- VERÐA Æ FEGURRI MEÐ ÁRUNUM JUVENA OF SWITZERLAND. THE ESSENCE OF BEAUTY. í HARÐVIÐARVAL HARÐVIÐARVAL HF. KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010 Þú svalar lestrarþörf dagsins ~ SÍöum Moggans!_ SERPANTANIR Borgartúni 29 Litríkur tónlistarvetur i 'SSSSSSs ^ZZr^ioaWeOer. GRÆNT KORT í grxnni rwf,i‘‘7afmí’Í“‘sí,rirSa aukatónleikar íSJ-sÆr-- Áskrifendur fá allt að 25% afslátt af miðaverði sem jafngildir því að fá fjórðu hverja tónleika frítt! OPNUNARTÓNLEIKAR VERÐA í HÁSKÓLABÍÓI 23. SEPTEMBER einsöngvarar verða Sólrún Bragadóttir og Jóhann Sigurðarson Sala áskriftarskírteina er hafin * * SINFONIUHLJOMSVEIT ISLANDS SÍMI: 62 22 55

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.