Morgunblaðið - 16.09.1993, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.09.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1993 19 Ályktun stjórnar Landssambands smábátaeigenda Stjómvöld að leggja smábátaútgerð í rúst STJÓRN Landssambands ís- lenskra smábátaeigenda hefur sent frá sér ályktun, þar sem stjónvöld eru sökuð um að ætla að nota kvótakerfið til að koma smábátaútgerð á kné. í ályktuninni segir, að á ellefu- hundruð ár hafí íslenskum smábáta- eigendum tekist að standa af sér stórviðrin við strendur landsins. Á aðeins 32 mánuðum sé valdamönn- um að takast að leggja þessa at- vinnugrein í rúst. „Slíkt brýtur í bága við alla siðferðis- og réttlætis- kennd. Réttur þessara aðila verður sóttur af fullri hörku,“segir í álykt- uninni. Þar kemur fram, að sú fyrirætlan valdamanna, að nota kvótakerfið í sjávarútvegi til að koma smábátaút- gerðinni á kné hafi endanlega orðið opinber með úthlutun veiðiheimilda fyrir næsta fiskveiðiár. Svo augijós sé þessi fyrirætlan orðin að formað- ur Landssambands íslenskra útvegs- manna hiki ekki við að koma fram fyrir alþjóð og segja berum orðum við fjölda sinna skjólstæðinga að þeim sé best að hypja sig úr grein- inni. Nauðsyn brýtur lög „Smábátaeigendur hafa í lengstu lög vonað að misrétti það er þeir hafa verið beittir, og þá hvort heldur er úthlutun veiðiheimilda á fjár- magnsmarkaði eða á öðrum þeim sviðum er þeir hafa farið halloka á, yrði leiðrétt af stjómvöldum og starfsumhverfí þeirra gert ásættan- legt. Þá hafa smábátaeigendur þrauk- að í þeirri von að með þeim hrika- legu skerðingum sem þeir væru að taka á sig væru þeir í rauninni að taka þátt í að búa í. haginn fyrir framtíðina. Allar slíkar vonir hafa reynst tálsýnir einar. En nú er mælirinn fullur. Orða- gjálfur þeirra sem tala um jafnar leikreglur í fiskveiðistjórnunarkerf- inu gagnast ekkert þeim hundmðum heimila útgerðaraðila smábáta og minni skipa sem fyrirsjáanlega og nú þegar hafa verið svipt rekstr- argrundvelli sínum. Stjórn Landssambands smábáta- eigenda hefur fulla ástæðu til að óttast að fjöldi félagsmanna þess séu komnir í svo þrönga stöðu að þeir muni telja nauðsyn brjóta lög. Stjórn Landssambands smábáta- eigenda sér ekki ástæðu til að hafa um þessa hluti langa töLu. Alþingi kemur saman í byijun október og gerir stjórnin þá skýlausu kröfu til þess að lögum um stjórn fiskveiða verði breytt á þann veg að hlutur þessara aðila verði bættur," segir síðan í ályktuninni. Með ályktuninni fylgdu eftirfar- andi töflur: Fjöldi Afla- Hlut- báta mark deild 1. jan ’91 1.041 24.351 12,91% l.sept’93 544 8.041 7,39% Taflan sýnir þá þróun sem orðið hefur hjá smábátum á aflamarki tímabilið 1. janúar 1991 til 1. sept- ember 1993, aflamark er í slægðum þorski. Við úthlutun aflamarks á smábáta 1. janúar 1991 voru 87,17% úthlut- aðra þorskígilda þorskur. Dæmið hér að neðan sýnir þróun aflamarks hjá smábát sem hefur allar sínar afla- heimildir í þorski. Báturinn er 9 brl. að stærð og voru árin ’88 og ’89 lögð til grundvallar þegar kvóti var reiknaður. Meðaltalsafli áranna voru 70 tonn af slægðum þorski. Fastir kostnaðarliðir hjá smábát með þilfari: Húftrygging 500.000 Slysatrygging 58.748 Skoðun báts 17.000 Skoðun gúmb. 25.000 Skoðunarstofa 5.000 Úthlutun Skerðing milli ára frá viðmiðun 1991 51.237 -26,80% -26,80% ’91/’92 42.121 -17,79% -39,83% ’92/’93 30.133 -28,46% -56,95% ’93/’94 22.458 -25,47% -67,92% Atvinnuréttur þessa aðila hefur því verður skertur um 67,92% frá því að á hann var settur kvóti. fram fyrirspurn um litprentaðan bækling sem dreift hefur verið til skólabama í Reykjavík. Spurt var um heildarkostnað við gerð bækl- ingsins og dreifingu, hvað hann hafi verið prentaður í mörgum eintökum og hveijir hafi fengið hann. Af hvaða tilefni hafi verið ráðist í gerð hans þegar upplýsingar um sjálfa tilhögun heilsdagsskólans er af skornum skammti í ritinu og loks hvort von sé á fleiri kynningarritum og þá hvaða. í svari Árna segir að skólamálaráð hafi samþykkt samhljóða að gefa út umrætt kynningarrit. Ritið hafi verið prentað í 14 þús. eintökum og kostnaður var samtals 1.409.000 krónur. Hvert rit kosti því tæplega 100 krónur. Ritinu er dreift til heim- ilanna af skólabörnum. Þá segir að þetta sé í fyrsta sinn sem slíkur upplýsingabæklingur er gefinn út Lyfjakista Ijarskiptaeftirlit V eiðieftirlitsgj ald Vinnsluleyfi Bryggjugjald Hafnargjald Félagsgjald Lífeyrissjóður ís- og vatnsgjald Kranagjald Hleðsla slökkvit. Hífing á land Stilling komp. Samtals 1.500 3.000 14.100 5.000 23.585 20.000 10.000 96.000 4.500 5.000 3.900 10.000 3.000 805.333 Úthlutað aflamark til þessa báts eru 31 tonn af þorski. Aflaverðmæti 1.984.000. Afgangur til að greiða laun, veið- arfæri, olíu o.s.frv. 1.178.667. Augljóst er að útgerð þessa báts gengur aldrei upp. Morgunblaðið/Björn Blöndal Niðurlægðir Frá árlegri busavígslu í Fjöl- brautaskóla Suðurnesja, busun- um hefur verið safnað saman fyrir utan skólann þar sem þeir máttu sætta sig við ýmsa niður- lægingu af hálfu „aðalsins". Hert á hús- aga í FS Keflavík. NEMENDUR Fjölbrautaskóla Suðurnesja héldu sína árlegu busavígslu á föstudaginn en í haust hófu liðlega 200 nýnemar nám við skólann. Að sögn Hjálmars Árnasonar skólameistara verða um 700 nem- endur á haustönn sem er metþátt- taka og væri skólinn fullsetinn. Sú ákvörðun hefði verið tekin að herða nokkuð húsaga og í haust hefði 30-40 nemendum verið synj- að um skólasetu vegna lélegrar ástundunar, en þeir hefðu verið búnir að fá gula spjaldið áður. Hjálmar sagði að 50 kennarar myndu kenna við skólann í vetur sem yrði rekinn með svipuðu sniði og á undanförnum árum. Nú færi öll kennsla fram undir sama þakinu og hefði hin nýja viðbygging sem tekin var í notkun á síðasta hausti gerbreytt allri aðstöðu i skólahald- inu. - BB Heilsdagsskóli ræddur í borgarráði Rúmlega 1,4 millj. fyrir kynningarrit KYNNINGARRIT um heilsdagsskóla í Reykjavík hefur verið prentað í 14 þús. eintökum og er kostnaður rúmlega 1,4 millj. eða tæplega 100 krónur fyrir hvert eintak. Þetta kom framí svari Árna Sigfús- sonar formanns skólamálaráðs við fyrirspurn Ólínu Þorvarðardótt- ur, áheyrnarfulltrúa Nýs vettvangs í borgarráði. Á fundi borgarráðs lagði Ólína um grunnskóla Reykjavíkur. Hlið- stæð rit um sumarstarf hafa árlega verið gefin út af íþrótta- og tóm- stundaráði. Bæklingar af svipuðum toga hafa verið gefnir út í öðrum sveitarfélögum, t.d. í Hafnarfirði. Stefna ber að því að slíkt kynningar- rit um grunnskóla verði árleg útgáfa á vegum Skólaskrifstofu. Jafnframt kemur fram að mjög líklega sé von á fleiri ritum. Ólína bókaði, að athyglisvert væri að í svari formanns skólamálaráðs kæmi frara að engin eftirsjá væri af kostnaði við bæklinginn. Sjálf hefði hún kosið að fá ítarlegar, hag- nýtar upplýsingar um heilsdags- skólaverkefnið eitt og sér og teldi að þær upplýsingar hefði mátt gefa með mun minni tilkostnaði. „Sú yfir- borðslega umíjöllun sem gefur að líta í umræddu riti stendur vart und- ir nafni sem „kynning" enda þótt umbúðirnar séu glæsilegar." P á Sjávarútvegssýningunni CP FOOD MACHINERY A/s LAXAHNIFAR Frá CP-FOOD kynnum við nýja gerð laxaskurðarhnífa, sem sneiða reyktan lax við - 4 til + 6 C°. Hnífamir eru eingöngu rafdrifnir, án þrýstilofts, sem er mikill kostur. Við þrif er auðvelt að taka úr hnífnum alla hluti, sem em í beinni snertingu við flökin. CP-FOOD framleiðir þrjár stærðir hnífa með afköst frá 30 - 120 sneiðar á mínútu. Frank Nielscn frá CP-FOOD verður hjá okkur dagana 15.-19. september. HOWDEN FOOD EQUIPMENT LOFTTÆMIVÉLAR Frá HOWDEN FOOD kynnum við HENCOVAC vacuumpökkunarvélar. Við kynnum loftskipta pökkun, sem eykur geymsluþol matvæla og treystir sölu á fjarlæga markaði. Hans von Neienhof frá HÓWDEN FOOD verður hjá okkur dagana 14.-17. september. Hann er matreiðslumeistari og kynnir „vacuum eldun“. Matreitt við hitastigið 70-90 C° í lofttæmdum pokum. Þannig aukast bragðgæði verulega. FORMATIC FORMUNARVÉLAR Frá DEIGHTON sýnum við FORMATIC formunarvél, sem gerir t.d. fiskstauta, fiskborgara o.s.ffv. Þessi vél er mjög auðveld í notkun og fljótlegt að skipta um mót í henni. Við vélina er hægt að tengja deig-, brauðmylnslu- eða þurrsteikingar- vél. Peter Hicks frá DEIGHTON verður hjá okkur dagana 16.-19. september. ZEBRA Frá ZEBRA kynnum við hitaprentara. UULMA PÖKKUNARLÍNA Frá ULMA sýnum við pökkunar- vél, sem pakkar frystum fiskflökum og bitum í plastfilmu. 2 SJALFVIRK MERKING Frá ESPERA sýnum við tölvuvog ES600 með færibandi og sjálfvirkri miða- álímingu. Heinz Pluta frá Espera verður hjá okkur dagana 15.-16. september og svarar fyrirspumum um vogakerfi fyrir matvælaiðnað. EXTEiD’ Á LAGERINN Frá EXTEND sýnum við kassabindi- vélar og brettavafningsvélar. BOTEK BRETTAVOGIR Frá BOTEK kynnum við hand- lyftara með innbyggðri vog. WDOEELQE? SPRAUTUPRENTARAR Frá VIDEOJET kynnum við nýja gerð bleksprautuprentara Videojet 37e, sem er einfaldari í notkun og ódýrari en eldri gerðir sömu prentara. Mjög góð reynsla er af Videojet prenturum á Islandi og má m.a. nefna fyrirtækin Lýsi hf., Osta- og smjörsöluna, ORA, Mjólkurbú Flóamanna, Ölgerð Egils Skallagrímssonar, EMMESS, Vffilfell, íslenskt Bergvatn o.fl. ofl. sem nota VIDEOJET. ‘MM VIDEX Frá VIDEX kynnum við strikamerki og hnappalesara. Við val á tækjum leggjum við áherslu á gæði, hagstætt verð og góða þjónustu og bjóðum nú heildarlausnir fyrir margskonar framleiðslu. Við erum þekkt fyrir góð tæki, hagstætt verð og góða þjónustu ! Það borgar sig að koma við hjá okkur.. l>DaDS[taDS Krókhálsi 6 110 Reykjavik Síml 67 1 900- FAX671901

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.