Morgunblaðið - 16.09.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR Ij6. SEPTEMBER 1993
21
F uglakjöt er góð
tilbreyting frá öðru kjöti
Skotveiðitíminn svokallaði hófst föstudaginn 20. ágiist og
hafa þá eflaust margir hugsað sér gott til glóðarinnar.
Fuglakjöt er herramannsmatur og oft nýnæmi frá öðru
kjötmeti.
í Kjötbúri Péturs á Laugavegin-
um fengust þær upplýsingar að
lundi hefði verið á sama verði í
þrjú ár, hamflettur á 100 krónur
stykkið og reyktur á 170 kr. Sömu-
leiðis kostaði hamflettur svartfugl
170 krónur. Reytt og sviðin villi-
gæs kostaði í fyrra 1.490 kr. stykk-
ið og átti verslunarstjórinn ekki
von á mikilli hækkun í ár.
Meðferð fuglakjöts kann ef til
vill að vefjast fyrir sumum, en hún
þarf síður en svo að vera vanda-
söm. Villta fugla skal hengja upp
á hálsinum og láta hanga í nokkra
daga fyrir matreiðslu. Það fer eft-
ir veðráttu hve lengi þeir mega
hanga, tveir til sjö dagar eru hæfi-
legir ef veður er milt, en að vetrar-
lagi hér á landi mega fuglar hanga
í nokkrar vikur, t.d. ijúpur. Ef
hægj; er að losa auðveldlega eina
stélfjöðrina er fuglinn hæfilega
hanginn, segir m.a. í Handbók
heimilisins.
Áður en fugl er hamflettur er
oft gott að dýfa honum í sjóðandi
vatn, það losar um fjaðrimar.
Villta fugla, sem hangið hafa of
lengi, er oft betra að nota í pott-
rétti, því þeir geta verið mjög
bragðsterkir. Fugla, sem eru af-
frystir, skal matreiða strax meðan
Þegar auglýstur er svartfugl til
sölu í verslunum, er ýmist átt við
langvíu, stuttnefju eða álku. Og
þó lundi sé í daglegu tali kallað
ur lundi, telst hann einnig til
svai-tfuglsættar. Langvía og
stuttnefja lifa hlið við hlið víða
á íslandi, hér eru þær í fugia-
bjargi á Langanesi.
þeir eru enn kaldir, það kemur í
veg fyrir að safi renni úr þeim og
hindrar fjölgun gerla sem hugsan-
lega eru í fuglunum. Gott er að
fylla fugla með ávaxtafyllingu, það
gerir kjötið meyrara.
Uppskriftin, sem fylgir hér að
neðan, er bæði auðveld og góð í
meðförum og gefur beijasósan
réttinum sérstakan og ljúffengan
keim.
Svartfugl
í bláberjasósu
4 svartfulgar
8 beikonsneiðar
1/2 tsk. pipar
_________1/2 lárviðarlauf_____
4 msk. bláberja- eða rifsberjasulta
1 peli rjómi
salt eftir smekk
Raufar skornar í fuglana eftir endi
löngu sitt hvoru megin við bringubein.
Beikonsneiðar settar í raufarnar.
Fuglarnir grillaðir í ofni í 25 mínútur.
Síðan settir í pott ásamt einum og
hálfum lítra af vatni. Saltað eftir
smekk. Hálf teskeið pipar og hálft
lárviðarlauf sett út í pottinn. Soðið í
einn til einn og hálfan klukkutíma.
Fuglarnir teknir upp úr pottinum og
sósan búin til úr soðinu. Bláberja: eða
rifsbeijasultu hrært saman við soðið
og að lokum ijómanum. Hrært vel í
þar til suðan kemur upp. Borið fram
með kartöflum og salati; ■
JI
„Einnota"
gleraugnalinsur
EINNOTA er e.t.v. ekki alveg
rétta orðið yfir gleraugnalins-
urnar „Acuvue“ frá Johnson
& Johnson, sem Austurbakki
hf. hefur nýverið fengið
einkaumboð á. Linsurnar
duga alla jafna í eina til tvær
vikur og þykja hentugar fyrir
börn, íþróttafólk og þá sem
eru mikið á ferðinni.
Pakki með þremur pörum kost-
ar um 4.000 kr. Notendur þurfa
lítið fyrir þessum linsum að hafa
að öðru leyti en því að geyma þær
í geymsluvökva, gæta fyllsta
hreinlætis við meðhöndlun og
skipta um linsur um eftir þörfum.
Hreinsivökvi er óþarfur.
Framleiðendur segja ofnæmi
vegna linsanna fátítt og þær hindri
ekki súrefnisflæði til augnanna.
Hönnuður
leiðbeinir
viðskiptavinum
FORS V ARSMENN Borgar-
ljósa hf. bjóða viðskiptavin-
um sínum að láta lýsingar-
hönnuð leiðbeina með lýs-
ingu og lampaval.
Þjónustan nær sérstaklega
til þeirra sem eru að byggja
eða breyta en einnig til þeirra
sem eru með skrifstofu- eða
verslunarhúsnæði. Það er
Hannes Siggason, lýsingar-
hönnuður og rafmagnstækni-
fræðingur, sem sér um þessa
þjónustu Borgarljósa hf. sem
er veitt án endurgjalds. ■
Schiesser®
N
Það besta næst pér!
■0MK
VORUHUS KA
Selfossi
TILBOÐ
VIKUNNAEÍ
PERUR
hollenskar
. . , , AÐUR
I pr- '«•
hollenskt
JÖKLASALAT
ÁÐUR
99
pr.
stk.
ÁJÁXÉX^S^
RÚÐUUÐl
500 ml
13
KJARNAFÆÐI
BjVUÐVÍNSLEG®
LAMBALÆRI
695.-5
HAGKAUP
allt í einni ferb