Morgunblaðið - 16.09.1993, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1993
25
Solzhenítsyn boðar sið-
gæði og sjálfsafneitun
Schaan. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
ALEXANDER Solzhenítsyn, sem var þekktastur andófsmanna
Sovétríkjanna sálugu, hafði viðkomu á þriðjudag í Liechten-
stein á leið sinni til Rússlands eftir 19 ára útlegð í Bandaríkjun-
um. Solzhenítsyn, sem er 75 ára, hélt ræðu í Heimspekiakadem-
íunni (IAP) í Schaan og gerði að umtalsefni mikilvægi siðgæð-
is og sjálfsafneitunar í framhaldi af hruni kommúnismans og
endalokum kalda stríðsins.
Solzhenítsyn sagði mannkynið
hafa glatað skilningi á tilgangi lífs-
ins í hinu hamslausa framfara- og
lífsgæðakapphlaupi. Hættan á
kjamorkustyrjöld væri ekki hin
sama og áður en umhverfinu staf-
aði nú ógn af of- og misnotkun
gjafa jarðar. Solzhenítsyn lét í ljós
efasemdir um að kommúnisminn
væri í raun liðinn undir lok í Sovét-
ríkjunum sálugu. Víða væru valda-
rásirnar í þjóðfélaginu óbreyttar og
enn einkenndi kommúnískur hugs-
unarháttur viðhorf embættismanna
sem almennings. Hann ítrekaði
gagnrýni sína á oftrú manna á gildi
óheftrar íjármagnshyggju og lýsti
yfir áhyggjum sínum vegna upp-
gangs slíkra afla í Rússlandi. Eftir-
litslaus tilfærsla á þjóðarauðnum
hefði nú þegar leitt til efasemda
um gildi þeirra umbreytinga sem
átt hefðu sér stað í heimalandi hans.
Rússar væru á ný teknir að þrá
.jafnrétti hinna allslausu".
Yermolal Solzhenítsyn, sonur
Nóbelsverðlaunahafans, þýddi ræð-
un fyrir föður sinn og flutti hana
á magnþrunginn hátt með honum.
Hann lauk prófi frá Harvard-
háskóla í vor og hyggst leita sér
að starfi í Taivan eða Kína en hann
lagði stund á kínversku og Asíu-
fræði í Bandaríkjunum.
Solzhenítsyn var veitt heiðurs-
doktorsnafnbót Akademíunnar í
Liechtenstein. Hann hefur haft
tengsl við smáríkið frá því hann var
sendur í útlegð frá Sovétríkjunum
árið 1974. Þá gerði hann sér ferð
til höfuðborgarinnar til að þakka
Reuter
Solzhenítsyn heiðraður
Rússneski rithöfundurinn Alexander Solzhenítsyn var heiðraður í
heimspekiakademíunni í Schaan í Lieehtenstein á þriðjudag.
Franz Jósef II, þáverandi fursta, manna sem höfðu barist gegn Stal-
fyrir velvilja hans og þjóðarinnar ín og leituðu hælis í Liechtenstein
allrar í garð 500 rússneskra her- í lok seinni heimsstyijaldarinnar.
Þrettán ára drengur höfðar einkamál
Michael Jackson
stefnt fyrir rétt
Los Angeles, Moskvu. Reuter
DRENGURINN, sem poppsöngvarinn Michael Jackson hefur
verið ásakaður um að hafa misnotað kynferðislega, hefur
höfðað einkamál á hendur söngvaranum. Ekki fundust nægar
sannanir til að hægt væri að höfða opinbert mál þegar áskan-
irnar komu fram. Er búist við að réttarhöldin taki að minnsta
kosti mánuð og krafist verði tugmilljóna króna í skaðabætur.
Drengurinn, sem er þrettán ára,
ásakar Jackson fyrir kynferðislegt
ofbeldi, misþyrmingar, flekun, vís-
vitandi áreitni og tilfinningalegt
álag af ásettu ráði, svik og van-
rækslu. Fulltrúar Jackson sögðu
málshöfðunina fáránlega en ekki
koma á óvart. Drengurinn og að-
standendur hans reyndu að ná
peningum á löglegan hátt eftir að
mistekist að kúga fé út úr söngv-
aranum. Sjálfur hefur Jackson
ekki látið hafa neitt eftir sér en
hann hélt tónleika í Moskvu í
gærkvöldi. Skyggðu hellirigning,
málshöfðunin og hálftómir áhorf-
endabekkir á tónleikana. Skömmu
fyrir tónleikana hafði ekki tekist
að selja nema helming miðanna
vegna þess hversu dýrir þeir voru.
Verð þeirra samsvarar um tveggja
mánaða launum. A tímum glæsi-
legra hersýninga Sovétmanna sá
varnarmálaráðuneytið til þess að
ekki rigndi á mestu hátíðisdögun-
um, en ráðuneytið bjó yfir tækjum
sem gátu sundrað skýjum. Sá bún-
aður er ekki lengur fyrir hendi í
höfuðborginni, eins og hellirign-
ingin í gær bar vott um.
Yngsti formaður
Radikale venstre
FLOKKURINN Radikale
venstre í Danmörku eða Radík-
alar kusu sér fyrir skömmu
nýjan Iandsformann í stað Gret-
he Erichsen. Fyrir valinu varð
25 ára gömul kona, Margrethe
Vestager Hansen, fulltrúi í fjár-
málaráðuneytinu og hlaut hún
öflugan meirihluta á landsfundi
flokksins, að sögn Berlingske
Tidende..
Vestager er yngsti formaður í
sögu flokksins er varð til um alda-
mótin þegar hópur manna klauf
sig út úr bændaflokki landsins,
Venstre. Fyrstu áratugina voru
fijáls samkeppni og barátta gegn
útgjöldum til varnarmála helstu
mál Radíkala; síðari árin hefur
hann verið talinn miðjuflokkur er
höfðar mjög til menntamanna.
Eftir sem áður er ljóst að raun-
verulegir leiðtogar flokksins verða
áfram um sinn þau Marianne
Jelved efnahagsmálaráðherra og
Niels Helveg Petersen utanríkis-
ráðherra. Vestager fær því nokk-
urt ráðrúm til að þjálfa sig í leið-
togastörfum. Vestager er
prestsdóttir frá 01god á Vestur-
Jótlandi, ógift og barnlaus en í
sambúð með heimspekinema. Hún
þykir bráðgáfuð og er vel mennt-
Ungrir formaður
MARGRETHE Vestager Hansen
uð, málsnjöll og kemur vel út á
sjónvarpsskjánum, er sögð efni í
mikinn skörung. Vestager þykir
líkleg til að hleypa nýju lífi í flokk-
inn og hefur þegar bryddað upp á
nýjungum, m.a. vill hún að flokks-
menn endurskoði þá stefnu að taka
aldrei við fjárframlögum frá fyrir-
tækjum.
WRQ
The world «
Ilútcl Loftlciðum briðiiidaR^MP^Pk'Dtcmhcr ki. MiOd.til 17:00
^illV TTV/JLlVi
Reflection X
Reflecúon fyrir HP tölvur %
Reflection fyrir DEC tölvur 1
Reflection fyrir IBM tölvur
Reflection fyrir UNIX tölvur
Reflection fyrir Macintosh tölvw
Reflection skapar tölvusamvirkni
5250
Ethemet/LAN DS
AppleT alk
1 CKfiM
Framsögumenn:
Gopal RajGuru, WRQ Evrój.
Ólafur Gíslason, RARIK,
Einar Reynis, Pósti og sín
fi
Hafliði Magnússon, tölvudeilda
Reykjavík, mun kynna Rejlection jÍfyrir ráðstefnugestummeð dœmum.
Ráðstefnunni lýkur met
gestum gefst kostur á að vinna með Reflection.
Þátttaka tilkynnist sem
fyrst í síma 612061