Morgunblaðið - 16.09.1993, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞROTTIR FIMMTUDAGUR 16.
SEPTEMBER 1993
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI MEISTARALIÐA
51-
I
I
I
Skagamenn fóru á kostum gegn Feyenoord á Laugardalsvellinum
Hverjir eru bestir?
Morgunblaðið/Bjami
SKAGAMENN fögnuðu enn einu stórafrekinu á knattspyrnuvellinum í sumar, með því að leggja Feyenoord að velli. Þeir höfðu svo sannarlega ástæðu til að fagna eftir leikinn og hér taka þeir
sigurhróp sitt — “Hvetjir eru bestir?“. Á myndinni eru frá vinstri Þórður Guðjónsson, Lúkas Kostic, Sigurður Jónsson, Ólafur Þórðarson, Mihajlo Bibercic og Haraldur Ingólfsson.
Ólafur Þórðarson í hlut
verki töframannsins
— þegar hann skoraði stórglæsilegt skallamark, sem tiyggði Skagamönnum slgur,
1:0. Meistarar Feyenoord mátti þola sinntyrsta ósigurá keppnistímabilinu
ÓLAFUR Þórðarson var hetja Skagamanna — þegar hann kórón-
aði stórglæsilegan leik þeirra, með því að skora frábært skalla-
mark á 74. mín. er hann hamraði knöttinn í netið með skalla,
eftir fyrirgjöf frá Mihajlo Bibercic. Þar með rak hann smiðshögg-
ið á stórleik Skagamanna, sem sýndu hollensku meisturunum
enga minnimáttarkennd. Þeir léku oft á tíðum eins og þeir sem
valdið hafa og mátti Feyenoord þola sitt fyrsta tap, 0:1, á keppn-
istímabilinu. Stemmningin var ólýsanleg í leikslok, þegar ung-
verski dómarinn flautaði til leiksloka — áhorfendur fögnuðu fræki-
legri framgöngu Skagaiiðsins, sem lék einn albesta leik sem
lengi hefur sést á Laugardalsvellinum. Mesta afrek íslendinga í
Evrópukeppninni var staðreynd.
„Eitt það fallegasta
og mikilvægasta“
um miðjuna — leikurinn var strax
mikill baráttuleikur,
Sigmundur Ó. Þar sem ekkert var
Steinarsson gefið eftir. Fá mark-
skrifar tækifæri sem sköp-
uðust og var eins og
leikmenn liðanna hafí beðið eftir
réttu augnabliki, til að snúa leiknum
sér í hag — og það voru Skaga-
menn sem fengu það færi, eftir að
leikmenn Feyenoord höfðu sótt að
marki þeirra með nokkrum þunga,
án þess þó að skapa sér verulegt
tækifæri.
Töframaðurinn
Mark Skagamanna var virkilega
glæsilegt — eftir frábæran samleik
Bibercic, Sigursteins og Haraldar
út á vinstri kantinum, en sá sam-
leikur endaði með stórgóðri fyrir-
gjöf fyrir mark Feyenoord frá Bi-
bercic. Þar var Ólafur Þórðarson á
réttum stað — í mjög slæmri að-
stöðu til að vinna rétt á knettinum,
en hann sýndi tilþrif töframannsins
er hann kastaði sér fram með bol-
sveiflu, náði að skalla knöttinn og
stýra honum niður í markið, út við
stöng, óverjandi fýrir De Geoey,
markvörð. Þar með voru Skaga-
menn búnir að ná yfirhöndinni —
og það á þeim tíma, sem þeir kunna
best að halda á spilunum. Þeir hefðu
með smá heppni getað bætt við
öðru marki.
Skagamenn yfirvegaðír
Skagamenn sýndu mjög sterka
liðsheild á Laugardalsvellinum, þar
sem leikmenn voru ákveðnir að
gera sitt besta — og þeir létu knött-
inn ganga manna á milli og voru
óragir við að leika eins og þeim
hentaði best. Atvinnumennirnir hjá
Feyenoord voru þá oft í hlutverki
lærisveinsins.
Vamarleikur Skagamanna var
traustur með Kristján Finnbogason
vel á verði í markinu. Lúkas Kostic
og Ólafur Adolfsson, sem var kon-
ungurinn í loftinu, voru yfirvegaðir
og einnig bakverðimir Sturlaugur
Haraldsson og Sigursteinn Gísla-
son, sem átti stórleik — ósérhlífinn;
þó að hann hafi nýlega farið úr
axlarliði og lék með hlíf um öxlina.
Sigurður Jónsson átti sórleik á miðj-
unni og þá sérstaklega varnarlega,
en hann gaf ekki tommu eftir. Alex-
ander Högnason og Haraldur Ing-
ólfsson skiluðu sínum hlutverkum
vel, en Ólafur Þórðarson hefur oft
leikið betur, en hann bætti það upp
með glæsilegu marki sínu. Bibercic
og Þórður Guðjónsson voru hreyf-
anlegir og ógnandi, en ekki er hægt
að segja að þeir hafi vaðið í mark-
tækifærunum eins og svo oft áður
í sumar, þegar þessir markahrókar
hafa stýrt knettinum í netið af
stakri snilld.
Þetta var aðeins fyrri hálfleikur-
inn — Skagamann eiga eftir að fara
til Rotterdam. Það verður án efa
erfíður róður, en Skagamenn em
vanir sjósókn í hvaða veðrum sem
er. Þeir geta náð hagstæðum úrslit-
um í Rotterdam, þó svo að þeir leiki
gegn meistaraliði sem hefur fullt
hús stiga. Með yfirveguðum og
taktföstum leik, eins og á Laugar-
dalsvellinum, er allt hægt.
að flaug í gegnum hugann þeg-
ar sendinginn kom frá Bi-
bercic, að setja hann í homið. Ég
smeygði mér framhjá vamarmann-
inum og hitti boltann vel og það
var gaman að sjá hann hafna í
netinu. Þetta er án efa eitt falleg-
asta og mikilvægasta markið á ferl-
inum, sagði Ólafur Þórðarson.
„Leikurinn var erfíður enda mót-
hetjarnir engin lömb að leika sér
við. Síðari leikurinn verður öragg-
lega enn erfiðari. Þá verða þeir að
sækja og við notum þá væntanlega
landsliðs leikaðferðina að verjast
og dúndra fram og treysta á skyndi-
sóknir," sagði Ólafur.
Lúkas Kostic, fyrirliði ÍA, sagði
að leikurinn hafi ekki verið svo erf-
iður fyrir sig í vörninni. „Ég hafði
það allan tímann á tilfinningunni
að við værum betri. Baráttan var
mikil í liðinu og þeir náðu sjaldan
• að skapa sér færi,“ sagði fyrirliðinn.
Höfðum kjark og sjálfstraust
„Við lékum okkar bolta og bárum
enga virðingu fyrir þeim. Það þarf
kjark og sjálfstraust í svona leik
og við höfðum það,“ sagði Guðjón
Þórðarson, þjálfari Skagamanna,
kampakátur eftir leikinn.
Guðjón sagði að leikurinn hefði
spilast eins og hann hefði búist við.
„Þeir era með góða og tekniska
leikmenn sem erfitt er að ráða við
en allir gáfu sig hundrað prósent í
verkefnið. Síðari leikurinn verður
erfiður en þeir þurfa að skora tvö
mörk til að komast áfram og það
gefur okkur óneitanlega meiri
möguleika," sagði Guðjón.
Toppurinn á tímabilinu
„Þetta var alveg stórkoslegt. Við
erum búnir að standa okkur vel í
bikarkeppninni og deildinni en þetta
er toppurinn á tímabilinu," sagði
Sigurður Jónsson. „Við lékum veÞ
í fyrri hálfleik og létum þá boltann
ganga en það gekk ekki alveg eins
vel í þeim seinni, eða þar til þetta
líka mark kom - þvílíkt mark frá
minnsta leikmanninum á vellinum.
Annars er Óli búinn að vera að
gera þetta á æfingum svo þetta kom
ekkert á óvart,“ sagði Sigurður og
hló.