Morgunblaðið - 16.09.1993, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 16.09.1993, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1993 Halldóra Björnsdóttir, Sigurður Siguijónsson, Baltasar Kormákur og Edda Arnljótsdóttir í hlutverkum sínum. Þjóðleikhúsið Ferðalok á Smíðaverkstæðinu Fyrsta frumsýning vetrarins í Þjóðleikhúsinu Arkitektúr Fimm norrænir meist- arar á Kjarvalsstöðum FYRSTA frumsýning vetrarins í Þjóðleikhúsinu verður laugar- daginn 18. september. Þá hefjast sýningar á „Ferðalokum", nýju leikriti Steinunnar Jóhannesdótt- ur. Leikendur eru Halldóra Björns- dóttir, Sigurður Siguijónsson, Am- ar Jónsson, Edda Amljótsdóttir, Baltasar Kormákur og Árni Tryggvason. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðs- son, Grétar Reynisson gerir leik- mynd og búninga, en Björn Berg- steinn Guðmundsson annast lýs- ingu. Tónlistin í sýningunni er eftir Hróðmar Sigurbjömsson og er flutt á hljóðbandi af Hamrahlíðarkórnum undir stjóm Þorgerðar Ingólfsdótt- ur. Hróðmar hefur samið sönglög við nokkur þekkt kvæði Jónasar Hallgrímssonar fyrir þessa sýningu. Í fréttatilkynningu segir: Það em nú liðin tólf ár síðan Þjóðleikhúsið sýndi leikritið „Dans á rósum“ eftir Steinunni Jóhannesdóttur, sem vakti verðskuldaða athygli og umtal á sínum tíma, en á undanförnum ámm hefur Steinunn einkum samið sögur og leikrit fyrir böm og ungl- inga. í nýja leikritinu, „Ferðalok- um“, segir frá viðureign ungrar konu við skáldið 'Jónas og manninn Jónas, þar er ijallað um ástina sem yrkisefni annars vegar og hins veg- ar sem viðfangsefni í lífinu. Aðal- persóna leiksins er Þóra sem les bókmenntafræði við Háskóla ís- lands. Hún fer til Kaupmannahafn- ar til þess að skrifa lokaritgerð um Jónas Hallgrímsson og seinasta veturinn í lífí hans. Þar hittir hún fyrir æskuást sína, Jónas, sem dval- ið hefur langdvölum í borginni. Þau taka upp fyrra samband sitt, sem þó er engan veginn auðvelt, bæði vegna ólíkra viðhorfa þeirra og eins vegna þess að fleiri persónur koma við sögu og þau em bæði bundin öðmm tilfínningaböndum. Að lok- um dregur til uppgjörs milli þeirra. Atburðarás leiksins fer þannig fram í nútímanum en þó er þar fólgin sterk skírskotun til sögunnar og kvæðis Jónasar Hallgrímssonar, „Ferðaloka". Það er Halldóra Bjömsdóttir sem leikur Þóra, ungu leitandi menntakonuna, en Halldóra hefur á síðastliðnum tveimur árum skipað sér í röð fremstu leikkvenna af yngri kynslóð, m.a. fyrir leik sinn í „Stræti“ í fyrra, í hlutverki ungu stúlkunnar í „Kæm Jelenu" og Júl- íu í „Rómeó og Júlíu“. Sigurður Siguijónsson leikur Jónas, manninn sem ekki er hægt annað en að elska, þótt ómögulegt sé að elska hann. Onnur sýning er sunnudaginn 19. september. Á Kjarvalsstöðum opnar á laug- ardaginn 18. september kl. 16 sýningin Fimm norrænir meist- arar. Á sýningunni eru kynnt verk eftir fimm norræna arki- tekta. Um er að ræða farandsýn- ingu sem unnin er af Arkitekta- safni Finnlands í Helsinki. Til- gangurinn með sýningu þessari er að kynna, gegnum verk fimm arkitekta, hið besta í hefð og sjálfstæðri sköpun í norrænni byggingarlist á síðari hluta þess- arar aldar. Þátttakendur eru einn frá hveiju Norðurlandanna og spanna verkin á sýningunni rúma tvjo áratugi af starfsferli þeirra. Akritektarnir sem valdir hafa verið á sýningu þessa eru Peter Celsing frá Svíþjóð, Sverre Fehn frá Noregi, Knud Holscher frá Danmörku, Aarno Ruusuvu- ori frá Finnlandi og Högna Sig- urðardóttir frá íslandi. Flestir þessara arkitekta vom við nám í upphafí sjötta áratugarins og sumir komust einig í persónuleg kynni við frumheija módemismans í norrænni byggingarlist. Líta má á aðalkennara Aarno Ruusuvuoris, þá Aulis Blomstedt og Olli Pöyry, sem hið raunsæja mótvægi við ein- staklingshyggju Alvars Aaltos í finnskri byggingarlist. Sjálfur hefur Ruusuvuori útfært fáguð smáatriði að hætti Aaltos í eigin verkum og á sinn persónulega hátt. Sverre Fehn var nemandi norska fúnk- sjónalistans, Aame Korsmo. Knud Holscher var nemandi danska arki- tektsins Arne Jacobsen og vann síð- ar á stofu hans. Peter Celsing starf- aði með Sigurd Lewerentz. Nám Högnu Sigurðardóttur í París var hefðbundið en reyndist þó vera haldgóður undirbúningur fyrir hina nútímalegu hönnun. Með kennslu hafa arkitektarnir miðlað reynslu sinni og hugmyndum til yngri kyn- slóðar arkitekta. Fulltrúi íslands á sýningunni, Högna Sigurðardóttir er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og stundaði nám í byggingarlist við Fagurlistaskólann (Ecole de Beaux- Arts) í París á árunum 1949 til 1960. Á árunum 1962-68 teiknaði hún fjögur einbýlishús á Reykjavík- ursvæðinu, sem eru tímamótaverk í íslenskri byggingarlist. Högna hefur lengst af verið búsett í París, þar sem hún hefur rekið teikni- stofu, ýmist ein eða í samvinnu við franska arkitekta. Hún hefur unnið til fyrstu verðlauna í fjölmörgum samkeppnum arkitekta, m.a. um nýtt háskólasvæði í París árið 1967; tækniskóla í Noisiel, útborg París- ar, árið 1978 og framhaldsskóla í Evry 1987. Sýningin á Kjarvalsstöðum stendur til sunnudagsins 17. októ- ber og er opin daglega frá kl. 10-18. Sýningin er styrkt af Norræna Menningarsjóðnum. ------»■-»-■»--- Málfræði og bókmenntir MÍMIR, blað Félags stúdenta í íslenskum fræðiun, er nýkomið út. Þetta er 40. tölublað, 31. ár- gangur. Meðal efnis eru greinar um málfræði og bókmenntir ásamt sögum og ljóðum eftir nem- endur. Margrét Guðmundsdóttir og Svandls Svavarsdóttir eiga ritgerð- ina Lengd hljóða og skynjun henn- ar, Kolbrún Bergþórsdóttir spjallar við Guðmund Andra Thorsson, Aðal- heiður Guðmundsdóttir skrifar um lýsingar íslenskra helgisagnaritara á helvíti, Guðlaug Gísladóttir hugleiðir þróun bamabóka hér á landi og Ármann Jakobsson birtir athuga- semd um Njáls sögu. í ritnefnd Mímis em Guðlaug Gísladóttir og Kolbrún Bergþórs- dóttir. Blaðið er 58 síður, unnið hjá prentstofu G. Ben. STORMURINN Tónlist Jón Ásgeirsson Óvenjulegir kvikmyndatónleikar vora haidnir sl. þriðjudag I Há- skólabíói, en aðstandendur þessa atburðar vom Hreyfímyndafélagið og Sinfóníuhljómsveit íslands. Kvikmynd Sjöströms, Stormurinn, er kvikmyndadrama frá tímum þöglu myndanna og var að þessu sinni sýnd með undirleik tónlistar eftir Carl Davis. Höfundurinn stjómaði SÍ og var auðheyrt að hann er góður fagmaður. Flutningurinn var í alla staði vel útfærður og myndaði tónlistin sterkt samspil við kvikmyndina, gerði hana sérlega lifandi, svo að á köflum var ekki fundið tiltakan- lega fyrir talþögninni. Líklega er ekki eins góð skemmtan í því sjá myndina og heyra tónlistina af upptöku og að hafa hljómsveitina viðstadda, en einmitt það skapaði sömu stemmningu og í leikhúsi. Sagt er að góð kvikmyndatónlist eigi ekki að „heyrast", heldur vera óijúfanlegur hluti af hveiju mynd- skeiði. Um tónlist við mynd eins og Storminn gegnir öðm máli, því hún á að segja frá því sem annars er gert með orðum, undirstrika til- fínningar og atburði og jafnvel það sem ekki er hægt að segja með orðum eða í mynd. Allt þetta gat að heyra í tónlistinni en samt sem áður reyndi Davis ekki nema að mjög litlu leyti að herma eftir og þannig urðu sum myndskeiðin „undirleikur" við tónlistina, líkt og á sér stað í óperu eða ballett. Þrátt fyrir að hér sé verið að leita eftir því uppmnalega, er hugs- anlegt að þögul kvikmynd í sam- spili tónlistar gæti orðið nýtt list- form. Textinn í mörgm ágætum kvikmyndum er oft ekki ýkja marg- brotinn og vel hugsanlegt að mynd ( sé byggð upp án texta. I stað hljóð- eftirlíkinga og taltexta væri þá notuð leikrænt túlkandi tónlist, sem ekki mætti „fela“ inni í myndskeið- inu eða nota aðeins sem undirstrik- un, heldur sem raunverulegan ger- anda í framvindu myndverksins, eins og Carli Davis tókst oft að gera og Sinfóníuhljómsveitin skil- aði á áhrifamikinn máta. Vindurinn eftir Sjöström Kvikmyndir Amaldur Indriðason Vindurinn („The Wind“). Sýnd í Háskólabíói við undirleik Sin- fóníuhljómsveitar íslands undir stjóm Carl Davis. Tónlist: Carl Davis. Leikstjóri: Victor Sjöström. Handrit: Frances Marion upp úr sögu Dorothy Scarborough. Aðalhlutverk: LiII- ian Gish, Lars Hanson og Montagu Love. Bandaríkin, 1928. Það er ekki oft sem kvikmynda- húsagestum er boðið upp á að sjá tónlistina flutta við bíómynd um leið og horft er á hana en það gerðist í Háskólabíói sl. þriðjudags- kvöld. Þá stjómaði Bretinn Carl Davis 37 meðlimum Sinfóníuhljóm- sveitar íslands er lék tónlist sem hann hefur samið við þöglu bíó- myndina Vindinn eða „The Wind“, eina frægustu mynd sænska leik- stjórans Victors Sjöströms. Fyrir þessum gjörningi stóð kvikmynda- klúbburinn Hreyfímyndafélagið og Sinfóníuhljómsveitin og áhrifin vom glimrandi. Stóðu áhorfendur upp í lokin og hylltu stjómandann. Flutningur kvikmyndaþónlistar er nokkuð sem maður horfir ekki á þegar maður fer í bíó heldur fínn- ur yfírleitt ósjálfrátt. Hún er svo sjálfsagður partur af bíómynd að sjaldnast er henni veitt nokkur at- hygli en viðburðurinn í Háskólabíói var einkar skemmtileg upplifun og minnti eftirminnilega á þátt tónlist- arinnar í bíómyndum. Hún er ómissandi þáttur kvikmyndagerð- arinnar og virkar best þegar hún ýtir undir tilfínningar sem bærast á tjaldinu. Stundum getur hún skapað andrúmsloft mynda ein og sér eins og tónlist Nino Rota við Guðföðurmyndimar sýna. Vindurinn eftir Sjöström kallar á tilþrifamikla og fjölbreytilega tón- list. Hún er eitt af síðustu stórverk- um þögla skeiðsins, gerð 1928, og segir frá örlögum óspjallaðrar meyjar frá Virginíu sem heldur út I afskekkt bændasamfélag þar sem vindurinn gnauðar í sífellu og sjaldnast sér úr augum fyrir sand- byl. Þar er hún neydd til að velja á milli tveggja bóndadurga og þeg- ar hún byijar að búa með öðrum er henni nauðgað af ferðalangi sem á leið um. En hún hefnir sín, yfir- vinnur ótta sinn við bæði karlmenn og vindinn sem Sjöström setur í Iíki villts fola svo meiningin fari ekki fram hjá neinum. Þetta er ein frægasta mynd Lillian Gish, sem er stórkostleg í hlutverki hinnar veikbyggðu konu, en hún lést í hárri elli fyrr á þessu ári. Carl Davis hefur samið tónlist við fleiri myndir þögla skeiðsins og vinnur sitt verk af innlifun, þekk- ingu og fagmennsku góðri ef marka má þessa sýningu. Stundum var tónlistin yfírþyrmandi en sýndi vel hvemig góð kvikmyndatónlist getur aukið á áhrifamátt kvikmyndar og undirstrikað atburði sögunnar og ekki síst tilfínningar persónanna, ótta, gleði, kómík eða bara tekið undir með eilífum sandbylnum. Þöglu myndimar einkennast m.a. af ýktum leikstíl og mikilli drama- tík og var tónlistin í takt við þau stílbrögð og féll einkar vel að mynd- inni. Að horfa á hljómsveit spila undir sýningu myndar er nokkuð sem ekki býðst á hverjum degi og ber að þakka þetta skemmtilega fram- tak og nýmeti í bíósýningum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.