Morgunblaðið - 16.09.1993, Side 11

Morgunblaðið - 16.09.1993, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1993 11 MENNING/LISTIR Myndlist Þorvaldur sýnir á Mokka Opnuð hefur verið sýning á Mokka á verkum eftir Þorvald Þorsteinsson; „Svipmyndir úr safni ímyndaðrar heildar". Hér er um að ræða sýnis- hom úr nýjum flokki Ijósmyndaverka sem Þorvaldur hefur unnið að síðan á miðju síðasta ári og var fyrst sýnd- ur í Riga í Lettlandi í maí sl. Þorvaldur Þorsteinsson útskrifað- ist úr nýlistadeild MHÍ árið 1987 og úr Jan van Eyck Akademie í Ma- astricht 1990. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga hér heima og eriendis og tekið þátt í samsýningum víða um lönd. Sýningin á Mokka stendur til 10. október. „Púðar og klukku- strengir“ í galleríinu Hjá þeim Frá 15. september til 2. október sýnir Ingibjörg Hauksdóttir mynd- verk sitt „Púðar og klukkustrengir" í galleríinu' Hjá þeim á Skólavörðu- stíg 6b. Opnunartími er kl. 12-18 mánud. til föstud. og kl. 10-14 laug- ard. Tónlist Niflungahringurinn Sýningar á Nilfungahringnum eftir Robert Wagner verða í september og október sem hér segir: Laugardagur 19. sept. kl. 15-19: Rínargullið og kynning. Sunnudagur 20. sept. kl. 15-20: Valkyijan. Þriðju- dagur 21. sept. kl. 19-24: Siegfried. Fimmtudagur 23. sept. kl. 19-24: Ragnarök. Sunnudagur 25. sept. kl. 15-19: Rínargullið og kynning. Þriðjudagur 27. sept. kl. 19-24: Val- kyijan. Fimmtudagur 29. sept. kl. 19-24: Siegfried. Laugardagur 1. október kl. 15-20: Ragnarök. Um er að ræða upptökur á hinni frægu uppfærslu Patrice Chereau og Pierre Boulez („Hringur aldarinnar") sem frumsýnd var í Bayreuth 1976. Sýnt verður af mynddiskum (Laserdiskum) sem tryggja hámarks- gæði hljóðs og myndar með enskum skjátextum. Þeir sem hafa áhuga á að sjá þess- ar sýningar láti vita í síma 17292 (Árni eða Selma), en sýnt verður á Vesturgötu 36b. Keltar á LA Café og Sólon íslandus Fimmtudagskvöldin 16. og 23. september mun þjóðlagasveitin Kelt- ar leika á LA Café, á horni Lauga- vegs og Frakkastígs. Sunnudaginn 19. september munu Keltar halda tónleika á efri hæð Sólon íslandus. Tónleikamir hefjast kl. 21. Keltar er hópur tónlistarmanna sem leikur kelt- nesk (írsk og skosk) þjóðlög með heðfbundinni hljóðfæraskipan. I fréttatilkynningu segir: „Vegna tónlistarstarfa sinna á erlendri grundu era tveir meðlimir upphaflegu Kelta, þeir Valur Pálsson og Jóhann Egill Jóhannsson, illa fjarri góðu gamni að þessu sinni. í þeirra stað hefur hópnum bæst liðsauki ekki síðri listamanna eða þeirra Sean Bradley frá Dublin sem leikur á fiðlu og Ein- ars Kr. Einarssonar gítarleikara. Af meðlimum uppranalegu Kelta sem nú koma fram eru þeir Eggert Páls- son sem leikur á mandólu, banjó og trommu og Guðni Franzson sem leik- ur á flautur. Allir taka þeir svo lagið þegar við á. A efnisskrá Kelta eru margvíslegir keltnesir dansar leiknir á hljóðfærin, ballöður sem sungnar eru með eða án undirleiks og gömlu góðu sönglög- in þar sem allir geta tekið undir af lífs og sálar kröftum. „Úr safni ímyndaðrar heildar" 1992-93. Banvæn söguefni Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Mario Vargas Llosa: Hver myrti Móleró? Sigrún Astríður Eiríks- dóttir þýddi. Almenna bókafélag- ið 1993. Friedrich Diirrenmatt: Ban- væn kvöð. Valgerður Bragadótt- ir þýddi. Almenna bókafélagið 1993. Mario Vargas Llosa, rithöfundur frá Perú, er á slóðum spennusagna í Hver myrti Móleró?, en einnig má líta á söguna sem lýsingu eða krufn- ingu á ástandinu í rómönsku Amer- íku og þá sérstaklega í heimalandi hans. Vargas Llosa sóttist eftir for- setaembætti í Perú 1990 og tap- aði, en var nálægt því að hljóta kosningu. Hann verður því að beita sér áfram fyrir þjóðfélagsumbótum með skáldsagnagerð. Óvenjulega ruddafengið morð ungs söngvara og gítarleikara fær lögreglumennina Silva lautinant og Lítúma þjóðvarðliða til að freista þess að finna lausn málsins. Þeir ganga lengra en þeim er ætlað í rannsókninni og með því afhjúpast ýmislegt sem ætti að liggja í þagn- argildi. Háttsettir menn eru flæktir í málið. Hvort eru það persónulegar ástæður eða aðrar og veigameiri sem ráða? Umhverfi skáldsögunnar, það samfélag sem hún er sprottin úr, er vægast sagt framandlegt. Lands- byggð og þorp Perú virðast ekki aðlaðandi, minna helst á ameríska Vestrið. En þetta eru ákjósanlegir staðir fyrir skáldsögur, enda tekst Vargas Llosa að gera sér mat úr þeim. Frásögnin er yfirleitt hæg og afar nákvæm. Framvinda sögunnar á sér ekki síst stað í hugum þeirra Friedrich Diirrenmatt Silva og Lítúma. Vargas Llosa beit- ir því bragði skemmtilega að láta til dæmis hugarburð Lítúma verða á köflum þungamiðju frásagnarinn- ar. í þessari skáldsögu um glæp notfærir Vargas Llosa sér aðferðir prakkarasögunnar sem á sér fijóa hefð í bókmenntum spænskumæl- andi þjóða. Litríkar persónur og æsilegur söguþráður eru ómissandi í sagnagerð af þessu tagi. Sakamálasagan gegn sjálfri sér Svisslendingurinn Friedrich Dúrrenmatt var fyrst og fremst leikritahöfundur, en samdi líka skáldsögur um sakamál, þótt vafa- samt sé að kalla þær venjulegar sakamálasögur. Banvæn kvöð er í raun um tak- markanir sakamálasögunnar (og lögreglunnar), gagnrýni á vinnu- brögð þar sem boðið er upp á ein- faldar lausnir. Mario Vargas Llosa Lögregluforingi tekur upp á því að sanna fyrir sakamálahöfundi hve sakamálasögur ná skammt. Það gerir hann með því að leiða höfund- inn inn á vettvang morðs, kynferðis- glæps gegn lítilli telpu. Lögreglumaðurinn Matthái gerir afdrifarík mistök við rannsókn morðsins. Hann á úr vöndu að ráða gagnvart trylltum múg sem heimtar refsingu án tafar. Persónur Dúrrenmatts eru dregnar skýrum dráttum og um- hverfislýsingar hans eru mjög lif- andi. Þótt hann virðist á köflum leggja of mikla áherslu á smáatriði er sú árátta beygð undir lögmál skáldsögunnar. Honum auðnast með listrænum hætti (eins og bestu sakamálahöfundum) að fara þá leið sem gæðir söguna dýpt og æskilegu margræði. Lesandinn fær eitthvað til að glíma við sjálfur og honum er sífelldlega komið á óvart. Þýðendur Hver myrti Móleró? og Banvænnar kvaðar hafa þegar á heildina er litið unnið sín verk vel. Kjarvalsstaðir Sýning á ljóðum eft- ir Hannes Pétursson SÝNING á ljóðum eftir Hannes Pétursson verður opnuð á Kjarv- alsstöðum laugardaginn 18. sept- ember kl. 14. Hannes Pétursson vakti fyrst athygli með skáldskap sínum í Ljóðum ungra skálda 1954 og ári síðar kom úr-fyrsta ljóðabók hans, Kvæðabók. Hannes hefur gefið út átta ljóðabækur, en auk þess hefur hann samið smásögur, ferðabækur og fjallað um þjóðleg fræði og þýtt sögur og Ijóð. Hannes lauk prófí í íslenskum fræðum frá Háskóla ís- lands 1959 og hefur ritað mikið um íslenskar bókmenntir, m.a. bækur um skáldskap Steingríms Thor- steinssonar og Jónasar Hallgríms- sonar. í fréttatilkynningu segir: Yrkis- efni Hannesar eru flest tengd ís- lenskri náttúru í margbreytilegum myndum. Hann sækir einnig yrkis- efni í sagnaarf og menningu fyrri alda. d Form ljóða hans er margbreyti- legt, allt frá rímnaháttum til prósa- ljóða. Oftast notar hann ljóðstafí en sjaldan rím í ljóðum sínum. Hugb- lærinn einkennist af æðruleysi og nærfærinni náttúruskynjun sem stundum er næsta rómantísk. Ljóðasýningar Kjarvalsstaða sem unnar eru í samvinu við Ríkisútvarp- ið-Rás 1, hafa verið fastir liðir á dagskrá safnsins síðan 1991. Með þeim hafa opnast nýir möguleikar fyrir íslensk skáld í rými sem áður var helgað myndlistinni, en jafn- framt vekja sýningamar spurningar um stöðu ljóðlistarinnar í dag. Sýningin á Kjarvalsstöðum stend- ur til sunnudagsins 17. október og er opin daglega frá kl. 10-18. ( AÐ FARA I STRIÐ VIÐ^MATAUMA^ER p . ushi I JAMES BELUSHI IVHIVII ROGERS 1 TRACES OF REO WEOLOCK Ungur stjórnmálamaður sem bíður sig fram til borg- arstjóra sker upp herör gegn eiturlyfjasölu í New York. í brúðkaupsferð til Palermo er hann leiddur í gildru af mafíunni og er sakaður um morð. Mafían gerir honum tilboð þar sem hann yrði laus allra mála gegn ákveðinni aðstoð. HÖRKU SPENNUMYND III iT 111 HASKOLABIO SÍMI611212 Sprenghlægileg gamanmynd um fimm leigubílstjóra í fimm stórborgum. Þar koma fyrir þrúgaður umboðsmaður í Hollywood, orðljótur New York búi, þrír blindfullir Finnar og snaróður ítalskur leigu- bilstjóri sem játar fyrir presti kynferðislegt samband við grænmeti og sauðfé. SANNKÖLLUÐ FRUMLEGHEIT KBMUR UT11AG Nj mjndbönd á næstu leigu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.