Morgunblaðið - 16.09.1993, Side 14

Morgunblaðið - 16.09.1993, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1993 MEÐAL ANNARRA ORÐA Er menning munaður? eftir Njörð P. Njarðvík Eitt helsta einkenni samtíðar okkar er sú mikla áhersla sem lögð er á tækni, viðskipti og verklegar framkvæmdir. Fyrirferð þessara þátta er svo mikil, að hún hefur ýtt listum, menningu og hugvísind- um til hliðar, rétt eins og slík mann- leg viðleitni sé svona aukreitis í tilverunni, eins konar gagnslítið dundur og munaður. Þessi mikla áhersla kom skýrt fram, þegar for- ystumenn í Háskóla íslands bjuggu sér til slagorðið „rannsóknir í þágu atvinnuveganna" að því er virtist til að réttlæta tilvist æðstu mennta- stofnunar þjóðarinnar. Ekki er ólík- legt að þeir hafi ályktað sem svo, að stjórnmálamenn hefðu ögn betri skilning á fjárbónum Háskólans undir þvílíku slagorði. Það gekk auðvitað ekki eftir; því að íslenskir stjórnmálamenn hafa síst af öllu skilning á menntun og menningu. Hugmyndaleysi A bak við slíkt slagorð felst sú hugsun (og krafa) að menntun skuli leiða til umsvifalausrar og sýnilegrar hagnýtingar. Svo á auð- vitað að vera um fræðslustofanir, sem annast beina starfsmenntun, en um háskóla gegnir allt öðru máli. Krafan um skjóta hagnýtingu er reist á skammsýni í þeirri merk- ingu orðsins, að horft er til skyndi- lausna. En það er einmitt einkenni á íslensku þjóðfélagi um þessar mundir. Stjórnmálamenn okkar virðast ekki geta horft nema fáein- ar vikur fram í tímann þegar best lætur. Athafnir þeirra einkennast af endalausum bráðabirgðalausn- um, sem sýnast fengnar á hlaupum í svo hugsunarlitlu tímahraki, að ekki sé ljóst hvað felst í ákvörðun- um, þegar til framkvæmda kemur. Háskólamenntun á að beinast að hinu gagnstæða. Hún á að ein- kennast af frjálsri þekkingarleit, sem kallar á frumlega skapandi hugsun, sem er öguð við skilgrein- andi kröfur vísinda, fræða og lista. í slíkri hugsun búa framtíðarlausn- ir. Aftur á móti verður bein starfs- menntun í háskóla til þess að laga menn að ríkjandi aðstæðum og í raun að sætta þá við það sljóa hugmyndaleysi sem tröllríður ís- lensku þjóðfélagi. Yfirsýn og hugmyndaflug Lisbeth Lindeborg segir í grein í Dagens Nyheter 14. ágúst sl., að þýskir athafnamenn hafi nýverið efnt til ráðstefnu og boðið sérstak- lega forystumönnum háskóla. Ástæðan var óánægja með mennta- stefnu háskólanna og spurt var, hvers vegna útskrifaðir væru „an- passlingar" eins og það er svo skemmtilega orðað á sænsku. Það er að segja menn sem væru þjálfað- ir í að lúta ríkjandi aðstæðum, í stað þess að leggja áherslu á skap- andi og gagnrýna hugsun. Það var talið skaðlegt að mennta sérfræð- inga á afmörkuðum sviðum, því að þá skorti bæði yfirsýn og hug- myndaflug. Lýst var eftir fjöl- breytilegri menntun, sem gjarnan mætti snerta ólík fræðasvið. Var nýlega haft eftir Tyll Neckar, for- manni þýskra iðrekenda, að at- vinnulífið þarfnaðist umfram allt víðsýnna manna með húmaníska menntun. Það er sérstaklega athyglisvert, að beðið sé um húmaníska mennt- un, menntun á sviði hugvísinda og fræða. Það er í slíkri menntun sem þessir þýsku athafnamenn telja, að skapist forsendur fyrir skapandi, gagnrýnni hugsun. Hroðaleg afglöp Með þessi viðhorf í huga, má vera ljóst, að einhver hroðalegustu afglöp núverandi ríkisstjórnar á íslandi er afstaða hennar og stefna í menntamálum. Sú stefna er í raun fólgin í því að draga úr menntun þjóðarinnar, og gera hana í senn torveldari, einhæfari og dýrari fyr- ir þá, sem vilja mennta sig. Hver einstaklingur á að borga meira fyrir verri menntun. Þetta er eins og bóndi sem sker bestu mjólkurk- úna og étur hana. Sé horft til nágrannaþjóða, þá kemur í ljós að Svíar létu almennan samdrátt ekki bitna á háskóla- menntun og Finnar hættu við að leggja innritunargjald á háskóla- nemendur. Að baki því liggur sú einfalda og skynsamlega hugsun, að vönduð háskólamenntun sé ein- hver arðbærasta fjárfesting sem völ er á. í stað þess að draga úr menntun á efnahagslegum þrengingartímum á þvert á móti að auka hana. Það gerir hvort tveggja í senn: dregur úr atvinnuleysi og leggur nýjan grundvöll að framtíðarsókn þjóðar- innar. En ríkisstjóm, sem í skammsýni og hugmyndaleysi ræðst gegn menntun þjóðarinnar og bætir svo gráu ofan á svart með því að leggja virðisaukaskatt á bækur, blöð og tímarit, hún gerist sek um afglöp sem seint verða fyrirgefin. Menn- ing er nefnilega ekki munaður, heldur lífsnauðsyn. Höfundur er rithöfundur og dósent í íslenskum bókmenntum við Háskóla Islands. Wilhelm Norðfjörð Hugo Þórisson Nú er að hefjast námskeið þar sem foreldrum gefst kostur á að kynnast og tileinka sér ákveðnar hugmyndir og aðferðir í samskiptum foreldra og bama þar verður m.a. fjallað um hvað foreldrar geta gert til að: •aðstoða börn sín við þeirra vandamál. •að leysa úr ágreiningi án þess að beita valdi. •byggja uppjákvæð samskipti innan fjölskyldunnar. fttngsiiiHfifeifr MetsöluUað á hverjum degi! Fjósamennska í myndlist eftir Leif Sveinsson i. Korpúlfsstaðageggjunin Einu sinni reisti danskur maður, Thor Jensen að nafni, fjós að Korp- úlfsstöðum í Mosfellssveit. Nú er fjós þetta ónýtt og ber að jafna það við jörðu. Þannig enda all- ar byggingar sem runnið hafa sitt skeið. Ohæf borgarstjórn hefur samt ályktað að breyta húsi þessu í lista- safn fyrir veggfóðurframleiðanda í París, Erró að/iafni. Áætlaður kostn- aður við breytinguna 2 milljarðar. Þessu leyfi ég mér að mótmæla harðlega og tala þar fyrir munn þús- unda kjósenda í Reykjavík, sem ekki vilja láta bjóða sér þessa geggjun. II. Alvörulistasafn í Reykjavík Tvö listasöfn eru í Reykjavík. Annars vegar er tilfallandi bruna-> rúst, sem breytt var í Listasafn ís- lands við Fríkirkjuveg. Hús þetta rúmar ekki einu sinni yfírlitssýningar okkar bestu listamanna, salirnir allt- of litlir. Hins vegar eru Kjarvalsstað- ir á Miklatúni í eigu Reykjavíkur- borgar. Þar er lýsing með þeim hætti að listaverk njóta sín engan veginn. Breyting á lýsingu hefur ekki feng- Leifur Sveinsson ist, því húseigendur eru fangar arki- tektsins Hannesar Davíðssonar. Hann neitar öllum breytingum og við það situr. Rökheldir menn taka ekki sönsum. Enn vantar því alvöru- listasafn í Reykjavík. III. Hættum að kanonisera Ástæðan fyrir Korpúlfsstaða- geggjuninni er sú árátta síðustu ára, „Þessu leyfi ég mér að mótmæla harðlega og tala þar fyrir munn þúsunda kjósenda í Reykjavík, sem ekki vilja láta bjóða sér þessa geggjun.“ að taka menn í heilagra manna tölu (kanonisera). Fyrstur var Jónas frá Hriflu, hann varð 100 ára 1. maí 1985. Reistur var minnisvarði við Arnarhvál, ein bók eftir aðra gefin út um þennan misheppnaða stjórn- málamann. . Nú er röðin komin að Thor Jen- sen. Endurreisa á fjós honum til dýrðar, þótt 95% af því sé ónýtt. Þegar hefur verið reist minnismerki um Thor í Hallargarðinum og ætti það að duga. Jónas frá Hriflu og Thor Jensen voru miklum kostum búnir, en einnig miklum göllum eins og við erum öll. Þeim er enginn greiði gerður með því að hampa aðeins kostunum, en hilma yfir gallana. Að lokum skora ég á Borgarstjórn Reykjavíkur að skila aftur Errógjöf- inni. Höfundur er lögfræðingur. Um næstu helgi sýnum vib nýjar gerðir ^ Volkswcxgen sem þú veribur db s|u. Verðfe mun koma þér ánægjulega á óvarf! HEKLA Laugavegi 170 -174 • Sími 69 55 00 Volkswagen VERND

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.