Morgunblaðið - 16.09.1993, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1993
Gjaldskylda á 112 bflastæðum í miðbænum eftir morgundaginn
Morgunblaðið/Golli
Stöðumælarnir
MIÐAMÆLAR verða teknir í notkun á tveimur bílastæðum í miðbæ
Akureyrar, sunnan við Bautann, þar sem þessi mynd er tekin og
austan Skipagötu, á móti pósthúsi og við það verður fjöldi gjald-
skyldra stæða í miðbænum 112 alls.
Níræður skoskur ferðamaður við Mývatn
Synirnir hvöttu
til ferðarinnar
Bjðrk. Mývatnssveit.
SKOSKUR ferðamaður, Mr. Hood, sem er 90 ára að aldri, er á ferð
um Mývatnssveit um þessar mundir. Við hittum hann sem snöggvast
í Hótel Reynihlíð þar sem hann gisti síðastliðna nótt (fyrrinótt)
skömmu áður en hann var að stíga upp í áætlunarbílinn til Akur-
eyrar.
Mr. Hood er vel em og talar
mikið. Hann kom með flugvél frá
Glasgow til Reykjavíkur, síðan til
Akureyrar og gisti þar. Hann ætlar
að dvelja í einu viku á Islandi og
er einn síns liðs. Hann segist hafa
verið heilsuhraustur alla ævi, vann
við tannsmíðar og rak jafnframt
eigin verslun. Hætti þegar hann
varð áttræður. Kvæntist þegar
hann var fimmtugur og eignaðist
tvo syni. Eiginkonan andaðist fyrir
fjórum árum. Synir hans hvöttu
hann til að fara í ferðalag til að
eyða peningunum sínum.
Kuldinn þægilegur
Hann segir að sig hafi alltaf
langað til að ferðast til íslands og
þess vegna hafi hann ákveðið að
koma hingað. Hann segist ekki
vera hrifínn af miklum hitum og
fínnst kuldinn hér þægilegur og
þá segist hann vera hrifinn af landi
og þjóð og ef hann komi aftur til
íslandi muni hann ekki ferðast
einn.
Kristján
Afrétt Mývetninga
lítur óvenju vel út
Miðaniælai'
á tvö stæði
GJALDSKYLDA verður sett á
bifreiðastæðið sunnan Hafnar-
strætis 92 og á hluta bifreiða-
stæðis austan Skipagötu á móts
við pósthús. Við þetta verður
fjöldi gjaldskyldra stæða í mið-
bænum orðinn alls 112. Þessi
gjaldskylda verður sett á föstu-
daginn 17. september.
Á þessum stöðum verður sett upp
ný gerð af stöðumælum, miðamæl-
ar, þar sem aðeins einn mælir er
fyrir mörg stæði. Upphæð gjaldsins
er hin sama og á núverandi stæðum
eða 10 krónur á.hverjar byrjaðar
15 mínútur og tími gjaldskyldu er
einnig sá sami, eða frá kl. 10 til
17.30 alla virka daga. Enginn há-
marksstöðutími verður á stæðum
með miðamælum.
Þegar lagt hefur verið I stæði
með miðamæli þarf að fara að
mælinum og greiða þar fyrir þann
tíma sem ætlað er að nota. Hægt
er að greiða með 5, 10 og 50 króna
mynt en lágmarksgreiðsla er þó 10
krónur. Miðamælirinn skilar þá
kvittun til baka sem á stendur þau
tímamörk sem greiðslan nær til.
Þennan miða skal síðan leggja bíl-
stjóramegin á mælaborð bifreiðar-
innar þannig að auðvelt sé fyrir
stöðuverði að lesa á hann.
Flyst yfir á næsta dag
Ekki er hægt að greiða í miða-
mæli eftir að gjaldskyldu lýkur en
ef greitt er fyrir lok gjaldskyldu til
lengri tíma en gjaldskylda er, fær-
ist viðbótartíminn yfir á næsta dag,
þannig að ef keypt er hálftíma staða
kl. 17.10 færast þær 10 mínútur
sem eftir verða kl. 17.30 yfír á
næsta daga og kvittunin sýnir nýja
dagsetningu og tímann 10.10. Á
morgnana er hægt að greiða í
mælinn frá kl. 7.00 þó hann byrji
ekki að mæla tímann fyrr en frá
kl. 10, þannig að ef greitt er fyrir
2 klukkutíma einhvern tíma á tíma-
bilinu frá kl. 7 til 10 sýnir kvittun-
in að greitt hafi verið til kl. 12.
(Fréttatilkynning.)
Björk, Mývatnssveit.
NU ER fyrstu göngum og réttum
lokið hér í Mývatnssveit. Fé er
talið sérlega vænt.
Samkvæmt upplýsingum frá
gangnamönnum lítur afréttin mjög
vel út og hefur sjaldan eða aldrei
verið jafn vel gróin og nú. Þá vekur
það líka sérstaka athygli hvað land-
ið virðist lítið bitið. Hugsanlega
gæti ástæðan verið mun færra fé,
styttri beitartími en áður, eða tveir
og hálfur til þrír mánuðir, og enn-
fremur óvenjulegt veðurfar í sum-
ar. Gróður kom frekar seint í vor
og einnig var spretta hæg fram
eftir sumri þar til fór að hlýna um
miðjan ágúst, en síðan hefur verið .
mjög hagstæð sþrettutíð og ber
afréttin þess ótvíræð merki. Von-
andi þarf því ekki að óttast ofbeit ,
eða uppblástur á afréttum Mývetn-
inga á þessu sumri. Kristján
Breytingar á fyrirkomulagí fiskverkunar í Grímsey í vændum
Leitað að leiðum til að lækka
kostnaðinn við fískmóttökuna
Grímsey.
FYRIRKOMULAG á fiskverkun KEA í Grímsey í framtíðinni var til
umræðu á fundi sem fulltrúar Kaupfélags Eyfirðinga boðuðu til
með sjómönnum í Grímsey í vikunni. Verið er að leita leiða til að
lækka kostnað við fiskmóttökuna í eynni. Nú nýlega var fulltrúi
Fiskmiðlunar Norðurlands á Dalvík á fundi með sjómönnum hér til
að ræða við útgerðarmenn um möguleika á að landa á fiskmarkaðn-
um á Dalvík.
vegna leigu á húsnæði og flutnings
aflans. Asgeir sagðist vera sann-
færður um að Grímseyingar fengju
toppverð fyrir sinn fisk yrði honum
landað á markaðnum, því þeir væru
með ferskan fisk. Hann sagði að
fisk vantaði á markaðinn og væri
verið að leita hófanna víðar, en
enginn vafí væri á að fyrirtækið
gæti tekið á móti öllum afla Gríms-
eyinga.
HSH
Kjarabótá
Akureyri
ÞRJÚ fyrirtæki á Akureyri
taka þátt í Kjarabót Morgun-
biaðsins í dag, fimmtudaginn
16. september, en kjarabót-
armiðarnir eru á blaðsíðu 22.
Þeir sem taka þátt í kjarabót-
inni eru Halldór Ólafsson úr-
smiður, sem býður 20% afslátt
af vekjaraklukkum gegn fram-
vísun kjarabótarmiða sem er í
blaðinu í dag, Tölvutæki-Bókval )
býður 12% afslátt af símum og
símkerfum og Bautinn býður
25% afslátt af hádegisverð- |
arhlaðborði.
Fulltrúar KEA, Jón Þór Gunnars-
son og Ari Þorsteinsson, voru á
fundinum með sjómönnum úr
Grímsey, en um var að ræða ein-
hvers konar undirbúningsfund
vegna nýs fískverðs. Sjómenn í
Grímsey leggja upp afla hér í eynni
og er hann síðan fluttur til vinnslu
í Hrísey eða Dalvík.
Dýr fiskur
Magnús Gauti Gautason kaupfé-
lagsstjóri sagði að verið væri að
skoða breytingar á fyrirkomulagi
með það í huga að lækka kostnað.
Félagið ræki fiskmóttöku í Grímsey
og hefði starfsfólk í vinnu við það,
en aflinn væri síðan fluttur annað
til vinnslu. Þegar fiskurinn væru
kominn til vinnslu í Hrísey eða
Dalvík hefði hlaðist á hann kostnað-
ur þannig að hann væri orðinn dýr
fyrir fiskvinnsluna. Meginatriðið
væri að reyna að lækka þennan
kostnað og vissi hann ekki annað
en menn myndu halda áfram að
tala saman um það mál.
Einn fundarmanna sagði að
fundurinn hefði ekki verið góður
fyrir sjómenn í Grímsey, KEA-menn
vildu hafa einn starfsmann í fisk-
móttökunni í eyjunni, fískurinn yrði
að berast þangað slægður, þveginn
og ísaður í kör. Þeir vildu fá hann
á ákveðnu verði sem sennilega yrði
það sama og nú gilti og ef sjómenn
ekki samþykktu myndu þeir vænt-
anlega hætta að taka á móti fiski
í Grímsey, þeir gætu fengið hann
annars staðar frá með minni til-
kostnaði.
Unglingar úr Grímsey verða
í Húsabakkaskóla í vetur
Grímsey.
TÍU unglingar frá Grímsey héldu nýlega til náms við Húsabakka-
skóla í Svarfaðardal þar sem þeir verða í heimavist í vetur. Krakk-
arnir eru á aldrinum 13 til 15 ára, en 12 ára börn eru þau elstu
sem sækja grunnskólann hér í eynni.
300manns
winA It'TTAt
Postulínsnámskeiö
Námskeið í postulínsmálun hefjast
í byrjun október.
Upplýsingar alla virka daga
frá kl. 18—20 í síma 96-21150.
Iðunn íflústsdómr, myndlístakona.
Vantar fisk á markaðinn
Ásgeir Arngrímsson frá Fisk-
miðlun Norðurlands var á dögunum
á ferðinni í Grímsey til að ræða við
útgerðarmenn hér um möguleika á
að landa afla á fiskmarkaði félags-
ins á Dalvík. Hann sagði að sjó-
menn yrðu að bera kostnað m.a.
Þetta er í fyrsta skipti sem börn
úr Grímsey eru send í Húsabakka-
skóla en á síðasta vetri dvöldu þau
á Dalvík. Almenn ánægja ríkir
meðal foreldra þeirra og virðast
samskipti milli þeirra og skólans
þegar í upphafi vera jákvæð og
góð. Guðrún Gísladóttir póst-
meistari og foreldri sagði að börn-
unum hefði verið vel tekið og allir
væru ánægðir með nýja skólann
og það að komast inn á góða
heimavist. Hún sagði að hugsað
væri um börnin um helgar og
fengju þau mat á vistinni, þá hefði
8. bekkur með höndum rekstur
lítillar verslunar þar sem nauðsyn-
legustu hlutir til skólahaldsins
væru fáanlegir og loks nefndi hún
að herbergi Grímseyinganna væru
nýupptekin og hin vistlegustu.
Tvisvar heim
Foreldrar hafa óskað eftir að
börnin fái að fara heim yfír helgi
tvisvar sinnum fram að jólum, auk
þess að heimsækja ættingja sína
í landi tvívegis, en að öðru leyti
verða krakkarnir í Húsabakka-
skóla.
300manns
með kvef
UM þrjú hundruð manns leit-
uðu læknis vegna umgangsk-
villa, kvefs og hálsbólgu, í
liðnum mánuði, að því er fram
kemur í skýrslu um smitsjúk-
dóma frá Heilsugæslustöðinni
á Akureyri.
Þá komu 50 manns á heilsu-
gæsiustöðina með magakveisu í
síðasta mánuði, 13 voru skráðir
með rauða hunda, 4 með hlaupa-
bólu, 5 fengu lungnabólgu og
19 manns leituðu sér lækninga
vegna streptókokkahálsbólgu.