Morgunblaðið - 16.09.1993, Page 24

Morgunblaðið - 16.09.1993, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998 Efasemdir í Evrópu um aukið hlutverk NATO Brussel. Reuter. SKIPTAR skoðanir eru meðal aðildarríkja Atlantshafsbanda- lagsins, NATO, um nýjar tillög- ur, sem ganga út á að bandalag- ið fái aukið frelsi til að beita hervaldi, án þess að til þurfi sam- þykki Sameinuðu þjóðanna, ef SÞ geti ekki eða vilji ekki grípa til aðgerða þegar hættuástand skapast. Þessar tillögur er að finna í leynilegri skýrslu, sem samin var í höfuðstöðvum banda- lagsins. Bandaríkjamenn hafa verið öflugustu stuðningsmenn þessarar hugmyndar og telja þeir hættu á að NATO kunni að riða til falls taki bandalagið ekki á sig aukna ábyrgð umfram það að veija öryggi aðildarríkjanna. Bandaríkjamenn hafa ekki síst áhyggjur af þeirrr vandamálum sem komið hafa upp vegna hemaðaraf- skipta SÞ í jafnt Bosníu sem Sómal- íu og vilja að herstjórn NATO komi meira við sögu í slíkum aðgerðum, en þar ráða þeir ríkjum. Mörg önn- ur aðildarríkjanna eru hins vegar þeirrar skoðunar að það verði að vera Sameinuðu þjóðirnar sem taki ákvörðun um hvenær og hvort grípa beri til aðgerða. „Ólíkt' Bandaríkjamönnum telja flest Evrópuríki að nú sé ekki rétti tíminn til að vera með efasemdir um hlutverk og getu SÞ einmitt vegna þess að samtökin eiga við svo mörg vandamál að stríða,“ sagði stjórnarerindreki í Brussel, sem ekki vildi láta nafns síns getið. Manfred Wörner, framkvæmda- stjóri NATO, hefur einnig lýst því yfir að hann telji að útvíkka beri valdsvið bandalagsins. í ræðu, sem hann hélt í síðustu viku, sagði Wörner að hann teldi að trúverðug- leiki bandalagsins hefði beðið hnekki vegna þess hvernig Samein- uðu þjóðimar hafa haldið á málum í fyrrverandi Júgóslavíu en að NATO hefði ekki hug á að ganga inn á valdssvið SÞ. Það væri þó ljóst að bandalagið yrði að halda opnum þeim möguleika að grípa til aðgerða upp á eigin spýtur. Manfréd Worner Dönum ofbýður bruðlið hjá Evrópubandalaginu Kaupmannahöfn. Reuter. MARIANNE Jelved, efnahagsmálaherra Danmerkur hefur lýst því yfir að bruðlið hjá embættismönnum Evrópubandalagsins (EB) sé yfirgengilegt og há laun þeirra hafi hrikaleg áhrif á ímynd banda- lagsins. „Verst er að EB heldur fast við þá stefnu að hækka launin árlega," sagði ráðherrann í samtali við Reuters-fréttastofuna í gær. Sem dæmi um bruðlið nefndi Jelved að deildarstjóri hjá EB væri með um það bil 840.000 kr. íslensk- ar á mánuði, forstjóri væri með rúma milljón og ritari um 280.000 kr. Tii samanburðar nefndi hún laun danska forsætisráðherrans sem eru um 630.000 kr. á mánuði, en helmingur þeirra fer í skatt. Hann hefði því litlu meira til skiptanna en ritari hjá EB. „Ég efast ekki um að starfsfólk Evr- ópubandalagsins leggur hart að sér, en það á ekki síður við um þá sem starfa hjá stjómarráði hvers lands.“ Danskir starfsmenn EB vörðu laun sín og sögðu þau tryggja að hæfír stjómendur fengjust til starfa. Er Jelved bar málið upp í Ráðherranefnd Efnahags- og fjármálaráðherra EB (Ecofin) síðasta mánudag voru undir- tektir dræmar að hennar sögn, þó að nokkrir hefðu sýnt því skilning. Danir og Bretar segjast einir aðild- arþjóða halda uppi gangrýni á laun innan embættismannakerfis EB. Jelved ætlar ekki að gefast upp enda vilja dönsk yfirvöld bæta ímynd bandalagsins í huga þeirra fjölmörgu Dana sem telja Bmssel vera leikvöll fyrir valdasjúk möppudýr. * Samkomulag Israela og Jórdana var nær frágengið þegar í fyrra FVrirheit um afsal svæða og hvers kyns samstarf Amman, Washington. Reuter. STÆRSTI stjórnmálaflokkur heittrúarmanna í Jórdaníu hefur lýst andúð sinni á þeim grundvelli að friðarsamningi við ísrael sem nú hefur verið gerður opinber og samþykktur var á mánu- dag. Flokkurinn vill engin tengsl við ríki gyðinga, ekki heldur leyfa ferðalög milli landanna. „Við viljum ekki að komið verði á fót neinu samstarfi í samgöngumálum eða við framleiðslufyrir- tæki sm myndu nota Jórdaniu eins og brú til að styrkja efnahag ísraels," sagði formaður flokksins, Ishaq Farhan í gær. Þrátt fyrir þetta bendir flest til þess að friðarsamningar muni takast milli ríkjanna og er ljóst að fulltrúar ríkisstjórnar Husseins kon- ungs og sljórnvalda í Jerúsalem náðu þegar í fyrra samkomulagi um öll helstu atriði viðtæks samstarfs. Jórdanir munu hafa beðið eftir því að einhver árangur yrði í við- ræðum ísraela og Palestínumanna, fyrr töldu þeir ekki þorandi að skýra frá samningsdrögunum. Þótt samningamenn segi að enn sé eftir að útfæra samninginn í smáatrið- um bendir margt til að hann sé í reynd kominn lengra á leið en ný- gerður samningur við Palestínu- menn um takmarkaða sjálfstjóm á hemumdu svæðunum. Fjölmargt í hinum síðarnefnda er svo óljóst að erfítt er að henda á því reiður. í viðræðugrundvellinum frá því á mánudag eru tilgreind væntanleg ákvæði um að ísraelar dragi herlið sitt á brott frá tveim litlum jórd- önskum Iandsvæðum sem þeir lögðu undir sig í Sexdagastríðinu 1967. Reynt verði að semja um endanlegan frið sem byggist á ályktunum Sameinuðu þjóðanna er kveða á um brottflutning ísraelska herliðsins gegn því að arabar viður- kenni ísrael. Raktar eru ýmsar ráðstafanir sem gera þurfí og skil- yrði sem þurfí að uppfylla áður en loks verði sest niður til að semja um endanlegan frið milli ríkjanna. •Deiluaðilar heita því að aðhafast ekkert sem ógni öryggi hins eða geti stofnað árangri viðræðnanna í hættu, tekið er fram að ríkin muni forðast að hóta hvort öðru hemaðaraðgerðum. Rætt verður um aðgerðir gegn hryðjuverkum. Báðir aðilar heita að vinna sameig- inlega að því að allar tegundir ge- reyðingarvopna verði bannaðar í Mið-Austurlöndum. Gripið verður til sérstakra ráðstafana til að efla gagnkvæmt traust. • Samið verður um samstarf við nýtingu vatns á réttlátum grund- velli og kannaðar leiðir til að bæta úr vatnskorti. Málefni flóttafólks • Fjallað verður um málefni flótta- manna. Reynt verður að ná sam- komulagi sem byggist á alþjóðalög- um um réttindi slíks fólks. •Landamæri og landsvæði. Samið verður um landamæri ríkjanna og gengið út frá þeim mörkum sem ákveðin voru er Bretar tóku við stjóm Palestínu eftir 1918. Ekki verður tekið tillit til landvinninga ísraela í stríðinu 1967. •Kannaðir verða möguleikar á svæðisbundnu samstarfí á nokkr- um sviðum í framtíðinni. Nefnt er sérstaklega að fjallað verði um vatnsbúskap, orkumál og umhverf- ismál, búsetu- og mannfjöldaþróun, atvinnumál, heilbrigðismál, mennt- un og baráttu gegn fíkniefnum. Framtíð Jerúsalem Yasser Arafat, leiðtogi Frelsis- samtaka Palestínu, PLO, var gest- ur á fundi í félagi fréttamanna í Washington á þriðjudag og var spurður spjörunum úr. Stefna PLO hefur um árabil verið sú að Jerúsal- em eigi að vera þeirra eign. ísrael- ar tóku vesturhluta borgarinnar Mótmæla samkomulagi Reuter STÆRSTI stjórnmálaflokkur heittrúarmanna í Jórdaníu lýsti andúð sinni á þeim grundvellli að friðarsamningi sem Israelar og Jórdanir skrifuðu undir á þriðjudag. Ziad abu-Khaniewh fursti og Bassam al-Amoush, fulltrúar flokksins á fréttamannafundi í og hemámu síðan austurhlut- er framtíð Jerúsalem yrði ákveðin, ann 1967. Þeir hafa þráfaldlega hafnað öllum tillögum um að gefa yfírráð sín þar upp á bátinn. Upp- haflega var það ætlun Sameinuðu þjóðanna að borgin yrði undir al- þjóðlegri stjóm. Arafat lýsti þeirri skoðun sinni að taka bæri tillit til óska araba, gyðinga og kristna minnihlutans þótt hann ítrekaði að austurhlutinn væri arabískur. Hann var spurður hvort hann myndi sætta sig við alþjóðlega stjórn borgarinnar. ySpyijið Rabin [forsætisráðherra Israels] hvort hann myndi sætta sig við alþjóðlega stjóm í Jerúsal- em. Sjálfur tel ég að þetta komi til greina," svaraði Arafat. Norðmenn ljúka hval- veiðum NORÐMENN hafa hætt hval- veiðum í ár. Veiddust 157 dýr af 160 dýra kvóta. Hafði tals- maður sjávarútvegsráðuneytis- ins norska ekki skýringu á þessu en áður en veiðitímabilið hófst höfðu hvalveiðimenn sagt kvótann allt of lítinn. Norð- menn munu þó halda áfram að veiða hrefnu í vísindaskyni og er gert ráð fyrir að 77 dýr verði veidd í ár. Tveir létust í brotlendingu STAÐFEST var í gær að tveir hefðu látist er vél þýska flugfé- lagsins Lufthansa brotlenti í Varsjá á þriðjudagskvöld. Ann- ar hinna látnu var flugmaður, hinn farþegi í vélinni. Orsök slyssins er enn óljós. Air Franee fækkar fólki FRANSKA flugfélagið Air France tilkynnti í gær að um 4.000 starfsmönnum fyrirtæk- isins yrði sagt upp til að mæta tapi í rekstri fyrirtækisins. Mið- ast uppsagnirnar við að fækka um 4.000 manns fyrir árslok 1994. Tap félagsins á þessu ári nemur um 47 milljörðum kr. Kjólum Monroe stolið KJÓLUM kvikmyndaleikkon- unnar Marilyn Monroe hefur verið stolið úr vöruhúsi í New York þar sem þeir voru geymd- ir. Upp komst um ránið fyrr í vikunni. Þar á meðal er kjóllinn sem leikkonan klæddist í frægu atriði þar sem hún stígur á göturist og kjóllinn þyrlast upp. Einnig hvarf kjóll sá sem Monroe klæddist er hún söng afmælissöng fyrir John F. Kennedy forseta. Þingið leyst upp HANS Adam, prins af Liec- htenstein hefur leyst þing landsins upp og boðað til kosn- inga í annað skipti á árinu. Fulltrúar á þingi Liechtenstein eru 25 og hefur stjórnarsam- starf sömu flokkana staðið frá árinu 1939. Því samstarfí er nú ógnað. Prinsinn leysti þingið upp eftir að það hafði neytt forsætisráðherra landsins, Markus Buechel segja af sér. Kennaraverk- fall í Albaníu ALBANSKIR kennarar fóru í verkfall í gær til að krefjast hærri launa. Tókst kennara- sambandinu, sem fullyrðir að félagsmenn séu um 30.000, að semja samdægurs við yfirvöld. Launahækkunin sem samið var um, nemur 5%, og hækka mán- aðarlaun kennara því í 1.890 kr. íslenskar. Milljón Azera áflótta Ein milljón azerskra flótta- manna er nú í Azerbajdzhan vegna stríðsins við nágranna- lýðvelið Armeníu, að sögn Ha- ydar Alijev, starfandi forseta landsins. Armenskur her hefur náð á sitt vald stórum land- svæðum í Azerbajdzhan við Irönsku landamærin. Lýsti Alijev áhyggjum sínum þar sem vetur væri í nánd og lítið sem ekkert skjól fyrir flóttamennina að hafa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.