Morgunblaðið - 16.09.1993, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1993
39
Pálína Ágústa Sveins-
dóttir — Minning
Fædd 1. mars 1920
Dáin 12. september 1993
Ég vil nú þegar hin jarðnesku
bönd eru brostin, minnast elskulegr-
ar föðursystur minnar, Pálínu Ag-
ústu Sveinsdðttur.
Afí Sveinn og amma Lína keyptu
húsið í Miðtúni 3 þegar ég var rúm-
lega eins árs og reiknuðu með hús-
rými fyrir bæði börnin sín þegar
kaupin voru gerð. En áður höfðum
við búið öll sex inni á Laugateig 17,
þar sem þau höfðu byggt með aðstoð
föður míns, áður en hann siasaðist.
Bræður mínir, Viðar, Ómar og
Sveinn, fæddust svo með stuttu milli-
bili, stuttu eftir að við fluttumst í
Miðtúnið og var ekki amalegt fyrir
okkur að eiga þau að, Gústu frænku,
afa og ömmu.
Strákamir voru alltaf í kaffi og
ristuðu brauði hjá afa og ömmu en
ég var skríðandi undir rúmum og á
kafi inni í skápum og vildi fá að
læra á allt og skoða, fikta og lesa.
Og þá kom hinn góði eiginleiki Gústu,
þolinmæðin, sér vel og kenndi hun
mér að spila kínaskák, leggja kapla
og teikna. En Gústa frænka var í
myndlistarnámi þegar hún var ung
og lagði mikla áherslu á að mynd-
byggingin væri rétt og litanotkun
góð. Við eigum eftir að hafa mikla
ánægju af myndunum hennar og
skímarkortum sem hún bjó til handa
hveiju okkar. Gústa óf líka gardínur
og fieira, kniplaði og hnýtti flugur á
sínum yngri árum, en seinni árin sat
hún oftast í ruggustólnum sínum við
gluggann og heklaði eða las. Ég leit
alltaf upp í gluggann til að veifa
henni þegar ég kom að húsinu og
fékk fallega brosið hennar til baka.
Svo komu brandararnir þegar inn
var komið.
Hún las fyrir mig hina spennandi
bók Dísu ljósálf og var áskrifandi
að bamablaðinu Æskunni fyrir okk-
ur. Einnig kynnti hún okkur fyrir
starfsemi KFUM & K, þar með talið
Vindáshlíð og Vatnaskógi. Fyrsta
minning mín um samveru okkar er
þegar hún fór með mig inn í KFUM
& K á Kirkjuteig þriggja ára og ég
velti flaggstönginni. Gústa tók mig
Minning
Þrúður Hjartardóttir,
Teigabóli, Fellum
Mann setur hljóðan þegar fólk á
besta aldri er allt í einu kvatt burt
af þessum heimi. Maður skilur ekki
tilgang lífsins og dauðans. Því þarf
að kalla burt suma sem era í blóma
lífsins, þegar aðrir aldnir og löngu
út úr þessum heimi lifa við andleg
og líkamleg örkuml fá ekki hvíldina?
Þessu verður ekki svarað.
Þegar hringt var í mig og mér
sagt að Þrúður væri dáin setti mig
hljóða. Við höfðum talast við í síma
tveim dögum áður og var hún að
heyra hress í tali og ætlaði ég að
heimsækja hana einhvern næsta dag,
en ég varð of sein fyrir.
Við vorum búnar að vinna saman
í mörg ár í mötuneyti Menntaskólans
á Egilsstöðum og var það mjög
ánægjulegur tími. Þrúður var létt-
lynd og skemmtileg, sérstaklega góð-
ur vinnukraftur. Það var alveg sama
hvað hún var að gera, allt var jafn-
vel gert, það lék allt í höndunum á
henni. Hún var líka alltaf svo fín,
það var sama hvort hún var í vinnu-
fatnaði eða að fara út, alltaf var hún
eins og klippt út úr tískublaði. Þetta
var henni svo eðlilegt að hún tók
held ég ekki eftir þessu sjálf.' Meira
að segja var bíllinn hennar alltaf fínn,
líka þótt hún þyrfti að aka langan
veg í vinnu.
I veisluvinnu var hún alveg frá-
bær, kökurnar liennar voru ekkert
slor, bæði góðar og fallegar, oft bein-
línis listrænar og blómaskreytingarn-
ar ekki síðri.
Okkur sem með Þrúði höfum unn-
ið þótti hún að mörgu leyti sérstakur
persónuleiki, hún vildi hafa allt fal-
legt í kringum sig. Blóm og gróður
var hennar hjartans áhugamál. Ég^
minnist hennar þegar barnabörnin
hennar litu inn, hvílíkt sælubros
geislaði af andliti hennar.
Hún lifði fyrir velgengni fjölskyldu
sinnar. Þegar ófært var og hún komst
ekki heim, þá var hugsunin hvernig
hafa þeir það, Guðsteinn og Einar,
það er best að hringja aðeins í þá.
Og þegar hún vissi að þeim leið vel
þá var hún áhyggjulaus.
Krabbameinið er óvæginn sjúk-
dómur, sem of marga leggur að velli
á besta aldri. Þrúður var frá vinnu
annað slagið síðasta vetur og var
síðast í vinnu í byijun maí, eftir það
dvaldi hún mest á sjúkrahúsi, en kom
svo heim og dó heima.
Þrúður var fædd 1. október 1945
á Akureyri. Foreldrar hennar voru
Þóra Haraidsdóttir og Hjörtur
Björnsson frá Klyppsstað. Hún gift-
ist uijg Frímanni Hallgrímssyni frá
Dalvík. Þau áttu þijá syni, Hjört
matreiðslumeistara, Jón Heiðar lag-
ermann og Hallgrím sjómann. Þrúður
og Frímann skildu.
Síðari maður Þrúðar var Guð-
steinn Hallgrímsson frá Droplaugar-
stöðum í Fljótsdal. Sonur þeirra eru
Einar Orn. Barnabörn Þrúðar eru
orðjn fjögur.
Ég og samstarfskonur mínar frá
ME vottum öllum ættingjum Þrúðar
innilega samúð.
Guðrún Aðalsteinsdóttir.
ekki með þangað í mörg ár á eftir.
Ekki gleymi ég því heldur þegar
hún kom að sækja mig á Amtmanns-
stíginn, nýkomna úr Vindáshlíð, á
Volkswagen-bjöllunni sinni. Ég skildi
nú ekkert í því þá hvernig hún hafði
getað lært á bíl, svona eldgömul
kona, orðin 46 ára. Gústa fór alltaf
einstaklega vel með bílana sína og
var það mikil skemmtun fyrir son
minn að fá að hjálpa henni að þvo
og bóna bílinn. En Gústa reyndist
honum einstaklega vel, passaði hann
oft á kvöldin heima hjá mér frá því
hann var eins árs og síðar þegar
hann var í 7 og 8 ára bekk fór hann
til hennar á hveijum degi eftir skóla
og gerði heimavinnuna og svo spiluðu
þau þegar henni var lokið.
Gústa var alltaf svo ljúf og hafði
svo góð áhrif á aðra að sonur minn
var eins og engill í hennar návist en
breyttist í hálfgerðan leðurblöku-
strák þegar hann fór niður. Aúk
þessa alls hjálpaði hún mér fjárhags-
lega þegar Andri Örvar byijaði í
Miðskólanum, henni fannst hann
þurfa meira á peningum að halda
en hún.
Gústa var kletturinn okkar og
söknum við hennar mikið. En góðar
eru minningarnar og blessaðar era
þær. Með þakklæti fyrir samfylgd-
ina.
Ágústa Edda.
í dag fer fram útför Ágústu
Sveinsdóttur, sem bjó í Miðtúni 3
hér í borg. Um ætterni Ágústu er
mér ekki mikið kunnugt, en veit þó
að hún var fædd 1. mars 1920 í
Múla við Suðurlandsbraut. Faðir
hennar var Sveinn Jónsson frá
Kirkjulæk í Fljótshlíð, en móðir Sig-
urlína Ágúta Sigurðardóttir, fædd í
Litlabæ, Vatnsleysustrandarhreppi.
Ágústa réðst till ýmissa af-
greiðslustarfa og símavörslu á Mál-
flutningsskrifstofu Einars B. Guð-
mundssonar og Guðlaugs Þorláks-
sonar skömmu fyrir 1950, en ég
hafði þá nokkram árum áður gerst
fulltrúi og_ síðar meðeigandi á skrif-
stofunni. Ágústa starfaði síðan óslit-
ið á þessari sömu skrifstofu þar til
á árinu 1990, að hún hætti störfum
fyrir aldurs sakir. Hafði hún þá
veikst af þeim sjúkdómi sem varð
henni að aldurtila 12. þessa mánað-
an Við Ágústa störfuðum þannig
saman í nálega 40 ár og eram við
fá eftir á lífi af upphaflegu sam-
starfsfólki hennar á málflutnings-
' skrifstofunni.
Það sem mér fannst ávallt ein-
kenna Ágústu var sérstök hógværð
og prúðmennska í allri framkomu
og umgengni við fólk. Aldrei varð
ég var við að hún brygði skapi hvað
sem á gekk, og eftir að hún tók við
bókhalds- og gjaldkerastörfum, við
andlát Egils Sandholt, sem starfað
með okkur um áratugaskeið, fór hún
aldrei heim ur vinnunni fyrr en dag-
legt sjóðsuppgjör stemmdi. Hún var
þannig gerð, að hún frestaði engum
störfum til morguns, sem hægt var
að ljúka samdægurs, þótt komið
væri langt fram yfír venjulegan vin-
nutíma. Það má fullyrða, að Ágústa
vann þessu litla firma af trúmennsku
og dyggð þorrann af sínum starfs-
aldri. Eru henni færðar þakkir að
leiðarlokum fyrir hennar vönduðu
störf.
Frístundum sínum veit ég að Ág-
ústa eyddi nánast öllum við ýmis
störf í KFUK enda mun hún hafa
verið mjög trúrækin. Aldrei heyrði
ég blótsyrði af vörum hennar öll þau
ár sem við störfuðum saman. Vænt-
anlega mun hennar að góðu getið
af samstarfsfólki í KFUK.
Undirritaður ásamt öllu sam-
starfsfólki hinnar látnu hér á skrif-
stofunni sendir ættingjum Ágústu
heitinnar innilegar samúðarkveðjur.
Guðmundur Pétursson hrl.,
Málflutningsskrifstofunni
Suðurlandsbraut 4A.
Lokað
Skrifstofa okkar verður lokuð frá kl. 14 í dag
fimmtudaginn 16. september vegna útfarar
ÁGÚSTU SVEINSDÓTTUR.
Málflutningsskrifstofa Guðmundar
Péturssonar, Péturs Guðmundarsonar,
Hákonar Árnasonar og Jakobs R. Möller,
Suðurlandsbraut 4a.
t
Elskulegur eiginmaður minn, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
MARTEINN MARKÚSSON
trésmfðameistari,
Dalbraut 23,
verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 17. september
kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, láti líknarfélög njóta þess.
Elísabet Jóna Sigurðardóttir,
Inga S. Þorsteinsdóttir, Júlíus Gíslason,
Marteinn H. Hreinsson, Ásgerður Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir,
ÓTTAR PROPPÉ,
Hrauntungu 39,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstudaginn-
17. september kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim, sem vildu minnast hans
er vinsamlegast bent á Krabbameinsfélagið.
Guðný Ásólf sdóttir,
Hrafnkell Proppé, Anna Margrét Sveinsdóttir,
Kolbeinn Óttarsson Proppé.
t
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
SVAVA JENSEN,
áður til heimilis á Tómasarhaga 42,
verður jarðsungin frá Neskirkju föstudaginn 17. september
kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
ÞórirJensen, Helga Valsdóttir,
íris Jensen, Claus Weidemann,
Svava Kristín Jensen, Ólafur Kjartansson,
Helga Vala Jensen,
Pétur Vilhelm Jensen
og barnabarnabörn.
t
innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför
JÓNS TRAUSTA KRISTJÁNSSONAR,
Flúðabakka 3,
Blönduósi.
Starfsfólki Héraðssjúkrahússins á Blönduósi færum við sérstaka
þökk fyrir hlýhug og hjúkrun síðustu ár hans. Guð blessi ykkur.
Anna G. Jónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
LEIFS ÞORBERGSSONAR
skipstjóra,
Fjarðargötu 10,
Þingeyri.
Áslaug Árnadóttir,
Ásrún S. Leifsdóttir, Einar G. Gunnarsson,
Þorbergur S. Leifsson, Auðbjörg N. Ingvarsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar og systur,
RAGNHEIÐAR MAGNÚSDÓTTUR,
Austurbrún 6.
Jens Sigurðsson,
Ottó Sigurðsson
og systkini.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför okkar ástkæru eigin-
konu, móður, dóttur, systur, mágkonu
og frænku,
VALGERÐAR GÍSLADÓTTUR,
Fögrubrekku 31,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við
Fáksfélögum.
Gylfi Sigurður Geirsson, Gísli Geir Gylfason,
Gísli Steinar Jóhannesson, Sigríður Skúladóttir,
Helga Gisladóttir, Eiríkur Sigurðsson,
Gísli Steinar Gísiason, Sif Sigtryggsdóttir,
Matthías, Eirfkur Valur og Sigurður Gfsli Eirikssynir.