Morgunblaðið - 17.10.1993, Page 25
!l 2£
Flugumferð o g geimskip
Frá Jóhanni Guðmundssyni:
Mikið gengur á vegna væntan-
legrar lendingar geimfara á Snæ-
fellsjökli, enda mikið gert í því að
upplýsa vantrúaða um hvílíkt undur
sé framundan.
CIA, NASA, bandaríski herinn,
lögréglan í Bretlandi ásamt öðru
fólki, munu koma til þess að verða
vitni að þessum heimssögulega við-
burði.
Stórt hlutverk bíður íslenskra
flugumferðarstjóra!
Eg ber fullt traust til þeirra, veit
að þeim mun takast að halda uppi
reglu og skipulagi umferðar á flug-
stjórnarsvæði sínu, eins og þeim
ber, en vitaskuld verða þeir að fá
flugáætlanir og upplýsingar um
tíðnisvið og annað sem skylt er að
gefa í flugáætlun, þ.m.t. fjölda far-
þega.
Eg minnist þegar ég var við vinnu
mína í flugturni Keflavíkur að hringt
var og ég var beðinn að kanna hve
margir farþegar væru um borð í
flugvél sem var á leið inn til lending-
ar. Flugstjórinn svaraði: „990“. Eg
bað hann um að endurtaka fjöldann
þar sem um Skymaster-vél var að
ræða og útilokað að slíkur fjöldi
væri um borð. Við nánari athugun
sagði hann: „Það eru 7 í áhöfn og
983 apakettir.“
Þetta sýnir hve nauðsynlegt er
að geta haft beint talsamband við
geimförin til þess að vinna úr upplýs-
ingum eins eg lög og reglur um flug-
umferð gefa fyrirmæli um, t.d. varð-
andi aðskilnað geimfara og flugvéla,
og hvort þörf sé á læknisaðstoð. Það
gæti verið nauðsynlegt ef geimver-
urnar kæmu ekki saman höfðum
jarðarbúa, eins og þegar þeir opnuðu
höfuð Guðrúnar Hjörleifsdóttur spá-
konu skv. frásögn hennar í DV.
Ófyrirsjáanlegir erfiðleikar koma
upp ef aðskilnaður flugvéla er innan
þeirra marka sem flugreglur segja
til um.
Upp geta komið málaferli, ef
kærur berast frá farþegaþotum í
yfirflugi, sem telja of nálægt sér
flogið af geimfeijum eða geimverum!
Michael Dillon hefur að sögn DV
haft samband við geimverur sl. 15
ár og Guðrún Hjörleifsdóttir, spá-
kona, segir í DV 25.8. 1993 að hún
hafi séð geimverur og flogið með
þeim yfir Islandi.
Ég vil benda henni og geimverum
á að slíkt yfirflug er tvímælalaust
brot á flugreglum! Því er mjög áríð-
andi að þau tvö komi á fund með
geimverum, samgöngumálaráðherra
og flugmálastjóra til þess að málin
verði í réttum farvegi 5. nóv. nk.
Ég efast ekki um að þau vilja
gera allt sem í þeirra valdi stendur
til þess að koma í veg fyrir hættur,
sem geta skapast vegna þessarar
geimflugumferðar.
Vonandi gætir Ari Trausti þess
að Urðarmánar trufli ekki selskap-
inn!
Ég vendi nú kvæði mínu í kross
og kem að öðru máli, hvernig þeir,
sem tengdir eru NýJdarhreyfmg-
unni fara létt með að skipta um
starfsheiti og hve mörg þau eru, vil
ég nefna þijú dæmi því til sönnunar.
14. janúar 1993 er skýrt frá dag-
skrá Nýaldarhreyfingarinnar, og að
á vegum samtakanna starfi Bíbí
Ólafsdóttir, læknamiðill.
í nýlega útkomnu fréttabréfi Spí-
ritistafélagsins er kynnt starfsemi
komandi vetrar. Þ.á m. að Bíbí Ól-
afsdóttir, spámiðill, lesi í Sybille og
Tarotspil.
í Mbl. 7. október ’93 er Bíbí Ólafs-
dóttir huglæknir. Ég kynnti mér
hvað viðtal kostaði og fékk þær
upplýsingar að um væri að ræða kr.
2.500 á klst.
Læknamiðill, spámiðill, huglæknir
auk spilaúrlestra. Hvaða háskóli út-
skrifaði lækninn?
Sagan um nýju fötin keisarans fer
um hugann, hún stenst sífellt tímans
tönn, hvílík saga.
Nýaldarsamtökin voru með frétta-
tilkynningu um að kl. 11, 11. janúar
væri von á miklu orkuflæði um allan-
heim. Þ.á m. íslandi.
Þar sem ég hef ekki séð neitt um
orkumálin getið í fjölmiðlum langar
mig til að spyija:
Mistókst orkuflæðið?
Ég trúi því að 6. nóvember nk.
verði dagur eymdar og vesældar í
lífí Nýaldarmanna og annarra þeirra
sem mest láta í dag um lendingu
geimfara og geimvera á Snæfells-
jökli 5. nóv. nk.
Fegurð jökulsins og mikilleiki mun
áfram vekja með okkur stolt og gleði
þess að vera íslendingar, hann er
tákn um mikilleik Drottins okkar,
skapara himins og jarðar, engum
má líðast að veikja þá trú, sem hef-
ur borið íslendinga gegnum aldirnar
með því að vera í bullukolluleik á
Snæfellsnesi.
Megi orðin í spádómsbók Jeremía:
„Ó land, land, land, heyr orð Drott-
ins“ verða bæn þeirra, sem ísland
byggja og á Drottin Guð trúa, á
þeim viðsjálverðu tímum sem við nú
lifum.
JÓHANN GUÐMUNDSSON,
fyrrverandi flugumferðarstjóri.
Dagbók Háskóla
íslands
VIKUNA 17. til 23. október verða eftirtald-
ir fundir, fyrirlestrar eða aðrar samkomu
haldnar á vegum Háskóla Islands. Nánari
upplýsingar um samkomumar má fá í síma
694371. Upplýsingar um námskeið Endur-
menntunarstofnunar má fá í síma 694923.
Mánudagur, 18. október: Kl. 8.30. Tækni-
garður. Námskeið hefst á vegum Endur-
menntunarstofnunar. Efni: Windows NT-
yfirlit: Windows NT-stýrikerfið kynnt.
Umsjón: Vilhjálmur Þorsteinsson hjá ís-
lenskri forritaþróun. Kl. 12.15. Stofa 6a,
1. hæð, Eirbergi, Eiríksgötu 34. Opinn há-
degisfundur á vegum námsbrautar í hjúkr-
unarfræði. Efni: Samtök um kvennaat-
hvarf. Frummælandi: Guðrún Ágöstsdðttir
fræðslufulltnii. Ailir velkomnir. Kl. 17.15
Stofa 158 f VR-Il, Hjarðarhaga 2-6.'Fyrir-
lestur á vegum verkfræði- og raunvísinda-
deilda Háskðla íslands um umhverfísmál.
Efni: Hafið, umhverfi, mengun. Fyrirlesari:
Davíð Egilsson, deildarstjóri mengunar-
varnadeildar Siglingamálastofnunar. Fyrir-
lesturinn er hluti af námskeiði, en öllum
er heimilt að sitja fyrirlestrana. Kl. 17.15
Stofa 157, VR-II, Hjarðarhaga 2-6. Opin-
ber fyrirlestur á vegum Raunvfsindadeiídar
HÍ. Efni: „Some Chemical Features of the
Oceanic Flow of C0„.“ Fyrirlesari: David
Dyrssen, prðfessor við Gautaborgarháskóla
í Svfþjðð. Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og er öllum opinn. Kl. 20.15 Tækni-
garður. Námskeið hefst á vegum Endur-
menntunarstofnunar. Efni: París - háborg
heimsmenningarinnar 1880-1950: Bók-
menntir og listir í deiglu sögunnar. Leið-
beinandi: Torfi H. Tulinius, dósent við HÍ.
VELVAKANDI
UNGLINGAR OG
HEILSUKORTIN
KRISTÍN hringdi og var með
fyrirspurn til heilbrigðisráð-
herra varðandi heilsukortin.
Á heimili hennar eru fimm
manns, þar af þrír fílhraustir
unglingar, sem allir eru í
menntaskóla.
Útgjöld heimilisins vegna
þessara heilsukorta væru þá tíu
þúsund, og getur margan mun-
að um minna. Á sumrin hafa
þeir unnið þá vinnu sem boðist
hefur, en ekki náð svo háum
launum að þeir hafi þurft að
borga skatt af þeim. Nú er
henni spurn hvemig eigi að
innheimta þessi heilsukort hjá
þeim unglingum, séu þau ekki
greidd eða endursend, sem búa
í foreldrahúsum og eru eigna-
lausir.
Heilbrigðisráðherra segir að
þessi kort verði innheimt með
lögtaksaðgerðum eins og hver
önnur skattaskuld. Hvað gerist
ef unglingarnir borga ekki
kortin. Hvað verður innheimt
hjá þeim? Rúmin þeirra?
GÓÐAR PIZZUR
BEDDÝ vildi koma á framfæri
þakklæti til Pizzastaðarins,
Seljabraut 54, fyrir frábæra
þjónustu og ódýrar og göðar
pizzur. Hún segist vera búin
að eiga viðskipti við Pizzastað-
inn nokkuð lengi og er alveg
sannfærð um að bæði verð og
þjónusta eigi sér ekki hliðstæðu
í Reykjavík.
FYRIRSPURN TIL
VÍKVERJA
VÍKVERJI gerir að umtalsefni
sínu fimmudaginn 7. október
að hann hafi séð unglinga á
skólalóð hrekja á undan sér
dreng með höggum, spörkum
og fúkyrðum. Mér er forvitni á
að vita hvort hann hafi eitthvað
gert í málinu eða látið sem
hann sæi það ekki.
Þorbjörg
Y
Rjúpnaveiði bðnnuð
í landi Stóra-Kropps,
Guónabakka og Selhaga.
NAMSAÐSTOÐ
við þásemvtíjanáíengraískóUi
• grunnskóla
• framhaldsskóla
• háskóla
Við bjóðum einnig:
• fullorðinsfræðslu
• námsráðgjöf
• flestar námsgreinar
• stutt námskeið -
misserisnámskeið
• litlir hópar - einkakennsla
• reyndir kennarar
Innritun í Síma: 79233
kl. 14.30-18.30
Nemendafrjónustun sf.
Pangbakka 10, Mjódd.
Námskeið
TIL 30 TONNA
RÉTTINDA
hefst mánudaginn
25. okt. og lýkur 17. des.
Kennt mánudaga og
miðvikudaga frá
kl. 19.00-23.00.
Kennt er eftir námsskrá
menntamálaráðuneytisins. Námsgreinar
eru: Siglingafræði, siglingareglur,
stöðugleiki skipa, siglingartæki, eldvarnir
og öryggisbúnaður, vélin, skyndihjálp,
veður og fjarskipti.
Upplýsingar f símum 689885 og 673092.
SIGUNGASKÓUNN Lágmúia7
- meðlimurr í Alþjóöasambandi siglingaskóla (ISSA)
-&
Áhugafólk um heilnæma húsagerð og byggingalist!
Námskeið!
100% ttáwiikgar og dEajHaDsar
oo
m
Hjónin Rosi B. og Freddy Carlsen halda náraskeið um heilnæra húsakynni og
eiginleika náttúruefaa frá Livos, laugardagtan 23. okt. að Hótel LoWeiðum kl. 11 til 17.
Livos var stofaað fyrir 20 árum undir áhrifuni frá mannspeki RudolfSteiner til að
tryggja aðgang að algerlega náttúnilegum og skaðlausum yfirborðsefaum. -Bæta má
gróðurtnold með málningarafgöngum.
Skráning á námskeiðið fer fram í síma: 628484.
Innifafið: gögn, hádegisverðarhlaðborð og miðdegiskaffi. Verð kr 4.500,-.
Viöarbútur með venjulegu viðariakki
frá efnaiðnaðinum. Freein spíra illa.
Þessi mynd var máluð af indíánum þar
sem nú er Argentína með hreinum og
skaðlausum jurtalitum fyrir meira en
10.000 árum.
Ævafom tækni sem við getum notið
góðs af um ókomna framtíð.
Glært viðariakk frá Uvos er búið til úr
150 þekktum og hættulausum efnum.
Fraeinspíiavel
IBIill
í flestum skóium, vinnustöðum og heimilum eru veggir og gólf idædd plasti í einni mynd
eða annarri. Þessi efiii losna smá saman út í loftið sern við öndum að okkur. Á síðustu
áratugum hefur astma og ofiiaanistilfeilum íjölgað mjög mikið. Er Livos lausnin?
Allar upplýsinaar gefur:
Hnmcfutl í síma: 628484
Laugavegi 84,3ja hæð, fax: 628414
Náttúrulegtfyrir nýja tíma!
k VJ