Morgunblaðið - 17.10.1993, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 17.10.1993, Qupperneq 25
 !l 2£ Flugumferð o g geimskip Frá Jóhanni Guðmundssyni: Mikið gengur á vegna væntan- legrar lendingar geimfara á Snæ- fellsjökli, enda mikið gert í því að upplýsa vantrúaða um hvílíkt undur sé framundan. CIA, NASA, bandaríski herinn, lögréglan í Bretlandi ásamt öðru fólki, munu koma til þess að verða vitni að þessum heimssögulega við- burði. Stórt hlutverk bíður íslenskra flugumferðarstjóra! Eg ber fullt traust til þeirra, veit að þeim mun takast að halda uppi reglu og skipulagi umferðar á flug- stjórnarsvæði sínu, eins og þeim ber, en vitaskuld verða þeir að fá flugáætlanir og upplýsingar um tíðnisvið og annað sem skylt er að gefa í flugáætlun, þ.m.t. fjölda far- þega. Eg minnist þegar ég var við vinnu mína í flugturni Keflavíkur að hringt var og ég var beðinn að kanna hve margir farþegar væru um borð í flugvél sem var á leið inn til lending- ar. Flugstjórinn svaraði: „990“. Eg bað hann um að endurtaka fjöldann þar sem um Skymaster-vél var að ræða og útilokað að slíkur fjöldi væri um borð. Við nánari athugun sagði hann: „Það eru 7 í áhöfn og 983 apakettir.“ Þetta sýnir hve nauðsynlegt er að geta haft beint talsamband við geimförin til þess að vinna úr upplýs- ingum eins eg lög og reglur um flug- umferð gefa fyrirmæli um, t.d. varð- andi aðskilnað geimfara og flugvéla, og hvort þörf sé á læknisaðstoð. Það gæti verið nauðsynlegt ef geimver- urnar kæmu ekki saman höfðum jarðarbúa, eins og þegar þeir opnuðu höfuð Guðrúnar Hjörleifsdóttur spá- konu skv. frásögn hennar í DV. Ófyrirsjáanlegir erfiðleikar koma upp ef aðskilnaður flugvéla er innan þeirra marka sem flugreglur segja til um. Upp geta komið málaferli, ef kærur berast frá farþegaþotum í yfirflugi, sem telja of nálægt sér flogið af geimfeijum eða geimverum! Michael Dillon hefur að sögn DV haft samband við geimverur sl. 15 ár og Guðrún Hjörleifsdóttir, spá- kona, segir í DV 25.8. 1993 að hún hafi séð geimverur og flogið með þeim yfir Islandi. Ég vil benda henni og geimverum á að slíkt yfirflug er tvímælalaust brot á flugreglum! Því er mjög áríð- andi að þau tvö komi á fund með geimverum, samgöngumálaráðherra og flugmálastjóra til þess að málin verði í réttum farvegi 5. nóv. nk. Ég efast ekki um að þau vilja gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að koma í veg fyrir hættur, sem geta skapast vegna þessarar geimflugumferðar. Vonandi gætir Ari Trausti þess að Urðarmánar trufli ekki selskap- inn! Ég vendi nú kvæði mínu í kross og kem að öðru máli, hvernig þeir, sem tengdir eru NýJdarhreyfmg- unni fara létt með að skipta um starfsheiti og hve mörg þau eru, vil ég nefna þijú dæmi því til sönnunar. 14. janúar 1993 er skýrt frá dag- skrá Nýaldarhreyfingarinnar, og að á vegum samtakanna starfi Bíbí Ólafsdóttir, læknamiðill. í nýlega útkomnu fréttabréfi Spí- ritistafélagsins er kynnt starfsemi komandi vetrar. Þ.á m. að Bíbí Ól- afsdóttir, spámiðill, lesi í Sybille og Tarotspil. í Mbl. 7. október ’93 er Bíbí Ólafs- dóttir huglæknir. Ég kynnti mér hvað viðtal kostaði og fékk þær upplýsingar að um væri að ræða kr. 2.500 á klst. Læknamiðill, spámiðill, huglæknir auk spilaúrlestra. Hvaða háskóli út- skrifaði lækninn? Sagan um nýju fötin keisarans fer um hugann, hún stenst sífellt tímans tönn, hvílík saga. Nýaldarsamtökin voru með frétta- tilkynningu um að kl. 11, 11. janúar væri von á miklu orkuflæði um allan- heim. Þ.á m. íslandi. Þar sem ég hef ekki séð neitt um orkumálin getið í fjölmiðlum langar mig til að spyija: Mistókst orkuflæðið? Ég trúi því að 6. nóvember nk. verði dagur eymdar og vesældar í lífí Nýaldarmanna og annarra þeirra sem mest láta í dag um lendingu geimfara og geimvera á Snæfells- jökli 5. nóv. nk. Fegurð jökulsins og mikilleiki mun áfram vekja með okkur stolt og gleði þess að vera íslendingar, hann er tákn um mikilleik Drottins okkar, skapara himins og jarðar, engum má líðast að veikja þá trú, sem hef- ur borið íslendinga gegnum aldirnar með því að vera í bullukolluleik á Snæfellsnesi. Megi orðin í spádómsbók Jeremía: „Ó land, land, land, heyr orð Drott- ins“ verða bæn þeirra, sem ísland byggja og á Drottin Guð trúa, á þeim viðsjálverðu tímum sem við nú lifum. JÓHANN GUÐMUNDSSON, fyrrverandi flugumferðarstjóri. Dagbók Háskóla íslands VIKUNA 17. til 23. október verða eftirtald- ir fundir, fyrirlestrar eða aðrar samkomu haldnar á vegum Háskóla Islands. Nánari upplýsingar um samkomumar má fá í síma 694371. Upplýsingar um námskeið Endur- menntunarstofnunar má fá í síma 694923. Mánudagur, 18. október: Kl. 8.30. Tækni- garður. Námskeið hefst á vegum Endur- menntunarstofnunar. Efni: Windows NT- yfirlit: Windows NT-stýrikerfið kynnt. Umsjón: Vilhjálmur Þorsteinsson hjá ís- lenskri forritaþróun. Kl. 12.15. Stofa 6a, 1. hæð, Eirbergi, Eiríksgötu 34. Opinn há- degisfundur á vegum námsbrautar í hjúkr- unarfræði. Efni: Samtök um kvennaat- hvarf. Frummælandi: Guðrún Ágöstsdðttir fræðslufulltnii. Ailir velkomnir. Kl. 17.15 Stofa 158 f VR-Il, Hjarðarhaga 2-6.'Fyrir- lestur á vegum verkfræði- og raunvísinda- deilda Háskðla íslands um umhverfísmál. Efni: Hafið, umhverfi, mengun. Fyrirlesari: Davíð Egilsson, deildarstjóri mengunar- varnadeildar Siglingamálastofnunar. Fyrir- lesturinn er hluti af námskeiði, en öllum er heimilt að sitja fyrirlestrana. Kl. 17.15 Stofa 157, VR-II, Hjarðarhaga 2-6. Opin- ber fyrirlestur á vegum Raunvfsindadeiídar HÍ. Efni: „Some Chemical Features of the Oceanic Flow of C0„.“ Fyrirlesari: David Dyrssen, prðfessor við Gautaborgarháskóla í Svfþjðð. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og er öllum opinn. Kl. 20.15 Tækni- garður. Námskeið hefst á vegum Endur- menntunarstofnunar. Efni: París - háborg heimsmenningarinnar 1880-1950: Bók- menntir og listir í deiglu sögunnar. Leið- beinandi: Torfi H. Tulinius, dósent við HÍ. VELVAKANDI UNGLINGAR OG HEILSUKORTIN KRISTÍN hringdi og var með fyrirspurn til heilbrigðisráð- herra varðandi heilsukortin. Á heimili hennar eru fimm manns, þar af þrír fílhraustir unglingar, sem allir eru í menntaskóla. Útgjöld heimilisins vegna þessara heilsukorta væru þá tíu þúsund, og getur margan mun- að um minna. Á sumrin hafa þeir unnið þá vinnu sem boðist hefur, en ekki náð svo háum launum að þeir hafi þurft að borga skatt af þeim. Nú er henni spurn hvemig eigi að innheimta þessi heilsukort hjá þeim unglingum, séu þau ekki greidd eða endursend, sem búa í foreldrahúsum og eru eigna- lausir. Heilbrigðisráðherra segir að þessi kort verði innheimt með lögtaksaðgerðum eins og hver önnur skattaskuld. Hvað gerist ef unglingarnir borga ekki kortin. Hvað verður innheimt hjá þeim? Rúmin þeirra? GÓÐAR PIZZUR BEDDÝ vildi koma á framfæri þakklæti til Pizzastaðarins, Seljabraut 54, fyrir frábæra þjónustu og ódýrar og göðar pizzur. Hún segist vera búin að eiga viðskipti við Pizzastað- inn nokkuð lengi og er alveg sannfærð um að bæði verð og þjónusta eigi sér ekki hliðstæðu í Reykjavík. FYRIRSPURN TIL VÍKVERJA VÍKVERJI gerir að umtalsefni sínu fimmudaginn 7. október að hann hafi séð unglinga á skólalóð hrekja á undan sér dreng með höggum, spörkum og fúkyrðum. Mér er forvitni á að vita hvort hann hafi eitthvað gert í málinu eða látið sem hann sæi það ekki. Þorbjörg Y Rjúpnaveiði bðnnuð í landi Stóra-Kropps, Guónabakka og Selhaga. NAMSAÐSTOÐ við þásemvtíjanáíengraískóUi • grunnskóla • framhaldsskóla • háskóla Við bjóðum einnig: • fullorðinsfræðslu • námsráðgjöf • flestar námsgreinar • stutt námskeið - misserisnámskeið • litlir hópar - einkakennsla • reyndir kennarar Innritun í Síma: 79233 kl. 14.30-18.30 Nemendafrjónustun sf. Pangbakka 10, Mjódd. Námskeið TIL 30 TONNA RÉTTINDA hefst mánudaginn 25. okt. og lýkur 17. des. Kennt mánudaga og miðvikudaga frá kl. 19.00-23.00. Kennt er eftir námsskrá menntamálaráðuneytisins. Námsgreinar eru: Siglingafræði, siglingareglur, stöðugleiki skipa, siglingartæki, eldvarnir og öryggisbúnaður, vélin, skyndihjálp, veður og fjarskipti. Upplýsingar f símum 689885 og 673092. SIGUNGASKÓUNN Lágmúia7 - meðlimurr í Alþjóöasambandi siglingaskóla (ISSA) -& Áhugafólk um heilnæma húsagerð og byggingalist! Námskeið! 100% ttáwiikgar og dEajHaDsar oo m Hjónin Rosi B. og Freddy Carlsen halda náraskeið um heilnæra húsakynni og eiginleika náttúruefaa frá Livos, laugardagtan 23. okt. að Hótel LoWeiðum kl. 11 til 17. Livos var stofaað fyrir 20 árum undir áhrifuni frá mannspeki RudolfSteiner til að tryggja aðgang að algerlega náttúnilegum og skaðlausum yfirborðsefaum. -Bæta má gróðurtnold með málningarafgöngum. Skráning á námskeiðið fer fram í síma: 628484. Innifafið: gögn, hádegisverðarhlaðborð og miðdegiskaffi. Verð kr 4.500,-. Viöarbútur með venjulegu viðariakki frá efnaiðnaðinum. Freein spíra illa. Þessi mynd var máluð af indíánum þar sem nú er Argentína með hreinum og skaðlausum jurtalitum fyrir meira en 10.000 árum. Ævafom tækni sem við getum notið góðs af um ókomna framtíð. Glært viðariakk frá Uvos er búið til úr 150 þekktum og hættulausum efnum. Fraeinspíiavel IBIill í flestum skóium, vinnustöðum og heimilum eru veggir og gólf idædd plasti í einni mynd eða annarri. Þessi efiii losna smá saman út í loftið sern við öndum að okkur. Á síðustu áratugum hefur astma og ofiiaanistilfeilum íjölgað mjög mikið. Er Livos lausnin? Allar upplýsinaar gefur: Hnmcfutl í síma: 628484 Laugavegi 84,3ja hæð, fax: 628414 Náttúrulegtfyrir nýja tíma! k VJ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.