Morgunblaðið - 27.10.1993, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 27.10.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1993 3 Trillukarlar illir vegna breytinga á stjóm veiða Tólf tonn á hveija tríllu að meðaltali TRILLUKARLAR eru æfareiðir vegna þess að frumvarp um breytta stjórn fiskveiða gerir ráð fyrir að aflaheimildir smábáta verði skorn- ar niður um 50%. Falur Þorkelsson á Bolungarvík segir að valko- stirnir sem gefnir eru í frumvarpinu um veiðileyfi með aflahlutdeild eða krókaleyfi með viðmiðunarbanndögum þýði ekki annað en að þeir geti valið hvort þeir verði hengdir eða skotnir. Örnólfur Ás- mundsson á Siglufirði segir að frumvarpið sé ekki annað en dauða- dómur yfir trilluútgerð á Norðurlandi. Árni Jón Sigurðsson á Seyðis- firði segir frumvarpið bera þess merki að þeir sem sömdu það þekki ekki til sjómennsku. „Mér líst alls ekki á þetta frum- varp og tel það tómt rugl,“ segir Falur og nefnir sem dæmi að ef þeim 12.500 þorskígildistonnum (þíg.) sem ætluð eru smábátum er deilt á milli þeirra koma tæplega 12 tonn í hlut hvers þeirra. „Til að eiga bara fyrir tryggingum á bátn- um mínum þarf ég að veiða um 8 tonn þannig að það sér hver heil- vita maður að dæmið gengur ekki upp,“ segir Falur. „Ég fæ ekki séð annað en að þetta frumvarp hafi verið búið til eingöngu fyrir Kristján Ragnarsson. Allavega mun ég ekki geta séð mér og minni fjölskyldu farboða ef þetta verður samþykkt óbreytt." Dauðadómur Örnólfur Ásmundsson segir að sér lítist mjög illa á frumvarpið og verði það samþykkt muni það kippa grundvellinum undan atvinnu sinni. „Raunar fæ ég ekki séð annað en þetta frumvarp þýði dauðadóm yfir trilluútgerð á Norðurlandi því afli þeirra hefur dregist svo mikið sam- an,“ segir Örnólfur. „Ég mun hugsa minn gang í þessu máli og jafnvel huga að annarri atvinnu." Bardagi um kvótann „Þetta er brjálæði og nær ekki nokkurri átt,“ sagði Árni Jón Sig- urðsson á Seyðisfirði. „Menn eru bæði á kvóta og sóknarmarki í þessu kerfi, nema það verður bar- dagi um kvótann.“ Árni sagði að frumvarpið liti vafalaust ágætlega út í augum manna sem alltaf sætu inni í stofu, en þeir sem þekktu til mála sæju að þetta gæti ekki geng- ið. Bein áhrif fyrir trillusjómenn á Austijörðum sagði hann þau sömu Hla farið með íslensk hross FJÓRUM íslenskum hestum hefur verið bjargað frá því að svelta til bana í Haidershofen í Neðra-Aust- urríki eftir ítrekaðar kvartanir dýraverndarfélaga. Frá þessu var greint í austurríska dagblaðinu Neue Kronen Zeitung í gær. Eigandi dýranna, skuldum vafinn hallarerfingi, hafði svelt dýrin þannig að þau voru orðin grindhoruð. Yfir- völd gátu þó ekki látið til skarar skríða fyrr en eftir að einn hestanna drapst. Lögreglumenn sóttu hina hestana ijóra og fluttu þá í Haag- dýragarðinn sem stendur straum af kostnaði við fóðrun og umhirðu þeirra. ------»44-------- og um allt land, meðal annars að í ógæftum á svæðinu yrði allur kvóti tímabilsins veiddur annars staðar við landið. Morgunblaðið/Kristinn Skemmdarvargar ata frauðplasti ÓFÖGUR sjón blasti við árrisul- um íbúum Sporhamra 6 í Grafar- vogi þegar þeir ætluðu til vinnu sinnar snemma í gærmorgun. Höfðu óboðnir næturgestir eða gestur farið um anddyrið og sprautað frauðplasti í tvo póst- kassa, á dyrasíma, dyrapumpu og í fals útidyranna þannig að erfitt reyndist að opna dyrnar. Eflaust er um umtalsvert tjón að ræða fyrir íbúana. Einn þeirra, Laufey Á. Lúðvíksdóttir, stendur hér við póstkassann sinn sem fylltur _ hefur verið með frauðplasti. Á handleggnum er hún með barnabarn sitt, Alex- öndru E. Kristjánsdóttur. Enn á gjör- gæslu eftir líkamsárás FIMMTÁN ára gömul stúlka, sem ráðist var á í miðbæ Reykjavíkur 2. október, liggur enn á gjör- gæsludeild Borgarspítalans í Reykjavík. Stúlkan var að sögn Ólafs Ólafs- sonar, læknis, tekin úr öndunarvél fyrir nokkrum dögum. Hún er hins vegar enn meðvitundarlaus. Tvær stúlkur, 16 og 14 ára, réð- ust á stúlkuna að tilefnislausu í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt 2. október sl. m s eru mjög sparneytin auk þess að vera sterk ogfalleg. AEG Þvottavél Lavamat 508-w Vinding: 800 sn/mín Tekur 5 kg. Stiglaus hitarofi 16 þvottakerfi Verð áður: Kr.82.082,- __________Tilboð: Kr. 67.970,-s,gr AEG Uppþvottavél Favorít 575 U-w 5 þvottakerfi. AQUA system Fyrir 12 manns Verð áður: Kr.74.964,- Tilboð:___________ Kr.61.970#-S,gr AEG Þurrkari Lavatherm 530-w 8 þurrkkerfi. Tekur 5 kg. Þéttir gufuna lengin barki) 2 hitastig Verð áður: Kr.92.661,- Tilboð:___________ Kr.74.970,-^ : AEG I ® Eldavel Competence 500 F-w Blástursofn Geymsluskúffa Blástursgrill Grill Verð áður: Kr.66.743,- __________Tilboð: Kr.54.970,-Stgr Norfiurland: Kf. Steingrímsfjaröar.Hólmavík Kf. V-hún., Hvammstanga Kf. Húnvetninga, Blönduósi Rafsjá, Sauðárkróki KEA, Akureyri KEA, Dalvík Bókabúö, Rannveigar, Laugum Sel.Mývatnssveit Hf. Þingeyinga, Húsavík Urö, Raufarhöfn Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröi Stál, Seyöisfiröi Verslunin V(k, Neskaupsstaö Hjalti Sigurösson, Eskifiröi Rafnet, Reyöarfiröi Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi KASK, Höfn Suöurland: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli Mosfell, Hellu Árvirkinn, Selfossi Rás, Þorlákshöfn Brimnes, Vestmannaeyjum Reykjanes: Stapafell, Keflavík Rafborg, Grindavík. Um land allt! AEG Kæliskápur Santo 2500 KG Hæð: 148 sm. Breidd: 55 sm. Kælir: 161 Itr. Frystir 59 Itr. Verð áður: Kr.67.719,- Tilboð: Kr.54.970,-S,gr AEG Heimilistæki og handverkfæri ^índesíf Heimilistæki Heimilistæki ismet VELDU ÞER TÆKI SEAA ENDAST ! Hjá Brædrunum Ormsson bjóðast þér góð heimilistæki á sérstöku tilboðsverði riUSOÐ fiLSOP THSOO TILEOO TILBCHD Heimilistæki ZWILLING J.A. HENCKELS I Hnífar %BOSCH Bílavarahlutir - dieselhlutir B R Æ Ð U R N I R ŒMSSONHF Lágmúla 8, Sími 38820 Umboðsmenn um land allt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.