Morgunblaðið - 27.10.1993, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1993
Breytingartillaga þingmanna Alþýðubandalagsins
Eiiga aukafjái’vcitingii
vegua Hæstaréttar
Fjármálaráðherra gerir ráð fyrir að stjórn-
arþingmenn felli tillögu Alþýðubandalagsins
ÞRÍR þingmenn Alþýðubandalagsins hafa lagt fram breytíngartil-
lögu við frumvarp tíl fjáraukalaga fyrir árið 1993 sem er nú tíl
afgreiðslu á Alþingi. Lagt er tíl að fellt verði niður 13 milljóna
króna framlag tíl Hæstaréttar íslands vegna yfirvinnu dómar-
anna. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra segist, gera ráð fyrir
að stjórnarflokkarnir standi að tillögunni í fjáraukalögunum og
því verði breytingartillaga þingmanna Alþýðubandalagsins felld.
Tillaga
Markúsar
var felld
52-26
VILLA var í fyrirsögn á frétt
um atkvæðagreiðslu í sjávar-
útvegsnefnd landsfundar
Sjálfstæðisflokksins um til-
lögu frá Markúsi Möller um
jafnan rétt allra íslendinga
til arðsins af fískistofnunum.
Tillagan var felld með 52
atkvæðum gegn 26, eins og
sagði í fréttinni sjálfri, en
ekki 56-26 líkt og sagði í
fyrirsögn.
Fulltrúar. Alþýðubandalagsins í
fjárlaganefnd, Guðrún Ilelgadóttir
og Margrét Frímannsdóttir, hafa
ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni for-
manni Alþýðubandalagsins lagt fram
breytingartillögu við frumvarp til
fjáraukalaga fyrir árið 1993. í
fjáraukalagafrumvarpinu er farið
fram á viðbótarframlag að fjárhæð
13 milljónir króna vegna yfirvinnu,
en Hæstiréttur ákvað fyrir nokkru
að dómarar við réttinn fengju vegna
vaxandi vinnuálags greidda yfírvinnu
sem næmi 48 stundum tíu mánuði
ársins.
Á blaðamannafundi í gær vitnaði
Ólafur Ragnar Grímsson til þess að
hæstaréttardómaramir hefðu í at-
hugasemd sem birst hefði í Morg-
unblaðinu 13. október lýst því yfir
að löggjafarvaldið ætti lokaorð um
þessar sem aðrar fjárveitingar úr
ríkissjóði.
Formaður Alþýðubandalagsins
benti á að Alþingismenn kvæðu upp
sinn úrskurð um ákvörðun Hæsta-
réttar þegar þeir greiddu atkvæði
um fjáraukalagafrumvarpið. Alþýðu-
bandalagsmenn flyttu tillögu strax
við fyrstu umræðu breytingartillögu
um að þessi liður í 3. gr. frumvarps-
ins væri felldur niður. „Og þar með
komið í veg fyrir að rétturinn geti
haldið áfram þessari sjálftöku," sagði
formaður Alþýðubandalagsins. Hann
lét þess getið að með því að flytja
sérstaka breytingartillögu væri knúið
á um að skýr meirihluti kæmi fram
í málinu. Ólafur Ragnar benti á að
„ef eingöngu væru greidd atkvæði
um liðinn sjálfan gætu ýmsir skotið
sér á bak við það að sitja hjá“.
Guðrún Helgadóttir nefndarmaður
í fjárlaganefnd vildi benda á afleið-
ingar þess ef launaákvörðun Hæsta-
réttar yrði ekki afnumin. „Það myndi
æra óstöðugan ef fleiri stofnanir
tækju slíkar ákvarðanir í trausti þess
að Alþingi samþykkti slíkar ákvarð-
anir á íjáraukaiögum."
Tillagan verður felld
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra sagði í samtali við Morgun-
blaðið að Hæstiréttur teldi sig vera
að greiða hæstaréttardómurum fyrir
aukið vinnuálag sem varð til á síðasta
ári og ríkisstjómin gerði tillögu um
að þessar greiðslur komi úr ríkissjóði
með fyrirliggjandi
fjáraukalagafrumvarpi.
„Öll ríkisstjómin stendur að því,
og við gemm ráð fyrir því að stjóm-
arflokkamir styðji þá tillögu sem er
í fjáraukalögum. Þannig munum við
að sjálfsögðu fella þessa breytingart-
illögu. Ég vil hins vegar riíja það upp
að hæstaréttardómarar hafa sagt það
í opinberri tilkynningu að Alþingi eigi
síðasta orðið,“ sagði Friðrik.
Ekið á konu
EKIÐ var á tæplega fertuga konu á gangbraut móts við sjónvarpshús-
ið við Laugaveg síðdegis í gær. Hún var flutt á sjúkrahús, meidd á
höfði og fæti en ekki alvarlega slösuð að sögn lögreglu.
Seðlabankinn á
193 listaverk
Tryggingamatsverð þeirra 54,7 milljónir
ALLS eru 193 listaverk í eigu Seðlabanka íslands, og er trygginga-
matsverð þeirra 54,7 milljónir króna. Á listaverkaskrá bankans kem-
ur ekki fram kaupverð listaverka, af hverjum þau hafa verið keypt
og hvenær, en um þetta eru þó tíl heimildir í bókhaldsgögnum bank-
ans sem ekki hefur verið unnið úr. Þessar upplýsingar komu fram
á alþingi í gær í svari viðskiptaráðherra við fyrirspum Guðrúnar
Helgadóttur alþingismanns um listaverkaeign Seðlabankans.
í svari viðskiptaráðherra kemur
fram að Seðlabanki íslands á 101
olíumálverk, 33 vatnslitamyndir, 8
Fyrsta tap Rússa var gegn Islandi
Skák
Bragi Kristjánsson
ÍSLENSKA landsliðið í skák
vann það frækilega afrek að
sigra heims- og ólympíumeist-
ara Rússa í þriðju umferð
heimsmeistaramótsins í Luzera
í Sviss í fyrradag. Þetta er
fyrsta tap Rússa siðan þeir fóra
að tefla sjálfstætt eftir að Sov-
étríkjunum var skipt upp. Rúss-
ar eru bæði Ólympíumeistarar
og Evrópumeistarar. Jóhann
Hjartarson gerði jafntefli við
Alexander Khalifman, Margeir
Pétursson yið Sergei Dolmatov,
og Helgi Ólafsson við Alexei
Drejev, en Hannes Hlífar Stef-
ánsson tryggði sigurinn með
því að leggja Alexei Vyzmana-
vin að velli. íslendingar fengu
boð um þátttöku einungis
nokkrum klukkustundum áður
en mótið byrjaði, og urðu þess
vegna að fá keppninni við
Úkraínu í fyrstu umferð frest-
að. í 2. umferð töpuðu þeir fyr-
ir Úsbekum, IVj-21/?, Jóhann,
Margeir og Helgi gerðu jafn-
tefli, en Hannes Hlífar tapaði
slysalega.
Úrslit í mótinu tíl þessa:
1. umferð:
Bandaríkin - Kúba 2V2-IV2
Úkraína - ísland frestað
Úsbekistan - Kína 1-3
Rússland - Sviss 3-1
Armenía - Lettland V/2-2V2
2. umferð:
Kúba - Lettland 1-3
Sviss - Armenía 2-2
Kína - Rússland l'/2-2'/2
ísland - Úsbekistan 1V2-2V2
Bandaríkin - Úkraína 2-2
3. umferð:
Úkraína - Kúba 3-1
Úsbekistan - Bandaríkin V2-2V2
+ biðskák
Rússland - ísland 1 Vt-2 V2
Armenía - Kína 1 Vj-2 V2
Lettland - Sviss 2-2
Staðan eftir 3. umferð (af 9):
1. Lettland, 7 V2 v.
2. Bandaríkin, 7 v. + bið-
skák.
3. -4. Kína og Rússland, 7 v.
5. Úkraína, 5 v. + 4 frestað-
ar skákir.
6. -7. Sviss og Armenía, 5 v.
8. ísland, 4 v. + 4 frestaðar
skákir.
9. Úsbekistan, 4 v. + bið-
skák.
10. Kúba, 3Vj.
Við skulum nú sjá allar fjórar
skákimar í sögulegum sigri ís-
lendinga á Rússum, en þetta er í
fyrsta skiptið, sem ísland vinnur
Rússland í sveitakeppni í skák,
en áður náðist best jafntefli á
ólympíuskákmótinu í Dubai 1986.
Til að gefa skákáhugamönnum
hugmynd um styrk rússnesku
sveitarinnar, þá má benda á, að
andstæðingur Hannesar, sem
vafalaust er lítt þekktur á ís-
landi, er mjög sterkur íjtórmeist-
ari með svipuð alþjóðleg skákstig
og Jóhann Hjartarson!
1. borð:
Hvítt: Khalifmann. Svart:
Jóhann.
Spænskur leikur.
1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3.
Bb5 - a6, 4. Ba4 - Rf6, 5. 0-0
- Rxe4, 6. d4 - b5, 7. Bb3 -
d5, 8. dxe5 - Be6, 9. c3 - Be7,
10. Be3 - Dd7, 11. Rdb2 -
Hd8, 12. Hel - 0-0, 13. Bc2 -
f5, 14. exf6 - ep Rxf6, 15. Rg5
- Bf5, 16. Bf4 - Bc5, 17. Rb3
- Bxf2+, 18. Kxf2 - Bxc2, 19.
Dxc2 - Re4+, 20. Rxe4 -
Hxf4+, 21. Kgl - dxe4, 22.
Hxe4 - Df5, 23. He2 - Dxc2,
jafntefli.
2. borð:
Hvítt: Margeir. Svart: Dol-
matov.
Kóngsindversk vöm.
1. d4, - Rf6, 2. c4 - g6, 3.
Rc3 - Bg7, 4. e4 - d6, 5. Be2
- 0-0, 6. Bg5” - Ra6, 7. Dd2 -
e5, 8. d5 - c6, 9. f3 - cxd5, 10.
cxd5 - Bd7, 11. Bb5 - Bxb5,
12. Rxd5 - Db6, 13. Rc3 -
Rc5, 14. b3 - Rh5, 15. Be3 -
Rf4, 16. g3 - Rfd3+, 17. Kfl -
Da6, 18. Kg2 - b5, 19. Rh3 -
b4, 20. Rdl - f5, 21. Rdf2 -
fxe4, 22. Rxe4 - Rxe4, 23. fxe4
- Hac8, 24. Hhfl - Hc3, 25.
Hxf8+ - Bxf8, 26. Hfl - Dc8,
27. Ddl - Rc5, 28. Bxc5 -
Dxc5, 29. Dg4 - Dc8, 30. Dh4
- Hc2+, 31. Hf2 - Hxf2+, 32.
Rxf2 - Dc2, 33. Df6 - Dxa2,
34. De6+ - Kg7, 35. Dd7+ -
Kg8, 36. De6+ - Kg7, 37. Dd7+
- Kg8, jafntefli.
3. borð:
Hvítt: Drejev. Svart: Helgi.
Drottningarindversk vöm.
1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3.
Rf3 - b6, 4. Rc3 - Bb4, 5. Db3
- c5, 6. Bf4 - Re4, 7. e3 -
Bb7, 8. Bd3 - d5, 9. 0-0 - 0-0,
10. Hfdl - Bxc3, 11. bxc3 -
dxc4, 12. Bxc4 - Rd7, 13. a4 -
Bd5, 14. a5 - Rdf6, 15. dxc5 -
Rxc5, jafntefli.
4. borð:
Hvítt: Hannes Hlífar Stefáns-
son. Svart: Alexei Vyzmanavin.
Caro-Kann.
1. e4 - c6, 2. d4 - d5, 3. Rd2
- dxe4, 4. Rxe4 - Rd7, 5. Bc4
- Rgf6, 6. Rg5 - e6, 7. De2 -
Rb6, 8. Bd3 - h6.
Ekki gengur 8. - Dxd4?, 9.
Rlf3 - Dd5, 10. Re5! - Dxg2,
11. Hfl - Be7, 12. Ref3 - Dg4,
13. Rxf7! og hvítur á vinnings-
stöðu (Jón L. Ámason - Hel-
mers, Reykjavík 1982).
9. R5f3 - c5, 10. dxc5 - Bxc5,
11. Re5 - Rbd7, 12. Rgf3 -
Dc7, 13. Bf4 - Bd6?!
Best hefur verið talið að leika
hér 13. - Bb4+!, t.d. 14. Kfl -
Bd6, 15. Bg3 - 0-0, 16. Hdl -
Rxe5, 17. Rxe5 - Hd8!, 18. Rc4
- Bxg3, 19. hxg3 - Bd7 með
góðu tafli fyrir svart (Timman -
Karpov, Amsterdam 1988).
14. Bg3 - 0-0, 15. 0-0 - Rc5,
16. Kbl - Hd8, 17. Bh4 - Be7,
18. g4 -
Möguleikar Hannesar liggja á
kóngsvæng, og þess vegna opnar
hann sér línur til sóknar þar.
18. - Rd5, 19. Bxe7 - Dxe7,
20. Bc4 - Bd7, 21. Rxd7 -
Hvítur græðir ekkert á 21. Bxd5
- exd5, 22. Hxd5 - Bxg4 o.s.frv.
21. - Dxd7, 22. g5 - hxg5,
23. Rxg5 - De7, 24. h4 - Df6,
25. Bxd5! - exd5, 26. Hh3 -
Dg6, 27. Hgl - He8, 28. Ddl -
Had8, 29. Hf3 - Re4, 30. a3 -
Eftir 30. Rxf7? - Re2+, 31.
Kcl - Dxgl!, 32. Dxgl - Rxf3,
33. Dhl - Hd7, 34. Dxf3 - Hxf7,
35. Dxd5 - Hel+, 36. Kd2 -
He2+ ásamt 37. - Hexf2 ætti
svartur að halda sínu.
30. - Dh5, 31. Dd3 - f6?!
Eftir þennan leik fær svartur
tapað tafl á þvingaðan hátt, en
hann á úr vöndu að ráða, því að
hvítur hótar að fara í riddarakaup
og tvöfalda hrókana á g-línunni,
t.d. 31. - Rxg5, 32. hxg5 - Dg6,
33. Dd2 og svartur getur ekkert
gert við hótun hvíts um að tvö-
falda hrókana á h-línunni.
32. Rxe4 - dxe4, 33. Db3+ -
Df7, 34. Hfg3! - Dxb3, 35.
Hxg7+ - Kh8, 36. cxb3
og svartur gafst upp, því að
staða hans er töpuð, t.d. 36. -
Hd2, 37. Hg6 með hótununum
38. Hh6+ mát og 38. Hcf6.
teikningar, 10 grafíkverk, 21
skúlptúrverk og 20 önnur verk.
Verkin eru staðsett í Seðlabanka-
húsinu, skjala-, bóka- og myntsafni
bankans í Einholti 4 og í gestaíbúð
bankans á Ægisíðu 54. Trygginga-
matsverð er 54,7 milljónir, en í svar-
inu kemur fram að það byggist á
mati frá árinu 1987, og miðað við
gangverð á listaverkum í dag megi
ætla að það sé 10-15% of hátt.
Fram kemur að síðastliðin sex ár
hafí að meðaltali verið keypt lista-
verk fyrir 3,6 milljónir á ári, en í
ár verði sú fjárhæð helmingi lægri.
♦ ♦ ♦
Dæmdur
fyrir að mis-
nota börn
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt 25 ára gamlan fatlað-
an mann í 6 mánaða fangelsi skil-
orðsbundið til þriggja ára fyrir
kynferðisbrot sem framin voru í
eitt skipti sumarið 1992 gegn pilt
og stúlku sem þá voru á fimmta
ári. Maðurinn var einnig dæmdur
til að greiða telpunni 250 þúsund
króna miskabætur.
Maðurinn bjó í sama fjölbýlishúsi
og börnin. Brotin áttu sér stað í íbúð
hans. Hann sýndi þeim myndir af
fólki og lék telpan þær eftir ásamt
manninum en drengurinn neitaði.
í vitnistburði foreldra bamanna
kom fram að móðir stúlkunnar téldi
atburði þessa hafa haft þau áhrif á
hana að hún þyrfti sálfræðiaðstoðar
við auk þess sem almenn vitneskja
barna í hverfi hennar um atburðinn
valdi henni erfiðleikum. Hún sæki
ekki skóla í heimahverfi til að forð-
ast einelti.
í niðurstöðum Júlíusar Georgsson-
ar, setts héraðsdómara, kemur fram
að maðurinn hafi í meginatriðum
játað sakargiftir og skýrt hreinskiln-
islega frá málavöxtum. Hann hafí
notfært sér þroskaleysi barnanna á
ámælisverðan hátt og það að fötlun
hans vakti forvitni og sérstakan
áhuga bamanna á honum. Við
ákvörðun refsingar var einnig litið
til þess að brotavilji hans var ekki
ekki styrkur né einbeittur og refsing
talin h æfíleg fangelsi í sex mánuði
skilorðsbundið til 3 ára.