Morgunblaðið - 27.10.1993, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1993
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir og afi,
MAGNÚS SIGURGEIRSSON,
Efstasundi 34,
lést á heimili sínu 25. október.
Elín Ágústsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Útför
GÍSLA ALBERTSSONAR
frá Hesti,
sem lést 21. þ.m. verður gerð frá Fossvogskapellu fimmtudaginn
28. þ.m. kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda.
Friðrik Eiríksson.
t
Ástkær móðir okkar,
ÞURÍÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR,
Álfheimum 46,
andaðist í Landspítalanum aðfaranótt mánudagsins 25. október.
Hulda Yngvadóttir,
Sigurjón Svavar Yngvason,
Margrét Yngvadóttir.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞÓRUNN GÍSLADÓTTIR,
Norðurgötu 21,
Sandgerði,
lést í sjúkrahúsi Keflavíkur aðfararnótt 25. október.
Henry Francis Oldfield,
Edward Oldfield, Marilyn Oldfield,
Janet Oldfield,
Rikharður Hinriksson, Ólafia Sigurpálsdóttir
og barnabörn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR SIGFÚSDÓTTIR,
Álfheimum 26,
lést í Borgarspítalanum 15. október.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Tómas Bjarnason,
Anna María Tómasdóttir,
Ingibjörg Tómasdóttir,
Bjarni Tómasson,
Inga Tómasdóttir,
Sigfús Tómasson,
Ásgeir Tómasson,
Karl Sigurjónsson,
Haraldur Haraldsson,
Helge Lyckberg,
Sigrfður Sigursteinsdóttir,
Elín Albertsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur fósturfaðir, tengdafaðir, afi, langafi og mágur,
KETILL ÓLAFSSON
frá Kalmannstjörn,
Höfnum,
lést í Garðvangi 23. október síðastliðinn.
Jarðarförin auglýst síðar.
Lúlla Krístín Nikulásdóttir, Jósef Borgarsson,
Elín Sigríður Jósefsdóttir, Snæbjörn Guðbjörnsson,
Ketill Guðjón Jósefsson, Karen Valdimarsdóttir,
Jenný Þuriður Jósefsdóttir, Alan Matske,
Baldur Jósef Jósefsson, Ásta Huld Jónsdóttir,
barnabarnabörn,
Ragnheiður Jóhannesdóttir.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÓLÁFUR BJÖRN ÞORSTEINSSON,
Njálsgötu 17,
andaðist á hjartadeild Landspítalans að
kvöldi 21. október.
Maria Ólafsdóttir,
Sigurður Ólafsson,
Ingibjörg Ólafsdóttir,
Kristfn Olafsdóttir,
Ester Óiafsdóttir,
Anna Ólafsdóttir,
Unnur Ólafsdóttir,
Hanna Ólafsdóttir,
barnabörn og
Siguður Ásgeirsson,
Kristi'n Þorvaldsdóttir,
Vilhjálmur Hendriksson,
Sigurður Guðjónsson,
Karl Steingrímsson,
Arnar H. Gestsson,
Sigurmundur Einarsson,
Matthías Ægisson,
barnabarnabörn.
Minning
*
Pétur Oli Lárusson
verkamaður, heiðurs-
félagi Dagsbrúnar
Fæddur 21. júní 1911
Dáinn 17. október 1993
Hann var borinn og barnfæddur
Reykvíkingur, var fæddur að Berg-
staðastræti 17. Og hann ólst upp
á Bergstaðastræti. Foreldrar hans
voru Lárus Jónsson og Guðríður
Pálsdóttir. Þau slitu samvistum er
Pétur var innan við fermingu. Þau
systkinin voru fimm börn að berj-
ast áfram á þeim tíma. Enda byij-
aði Pétur komungur að vinna hin
ýmsu verkamannastörf sem til
féllu. Hann þurfti ekki að lesa í
neinum bókum um erfið kjör verka-
mannafiölskyldna. Hann reyndi það
allt sjálfur.
Hann gekk í Verkamannafélagið
Dagsbrún árið 1929. Og vann hann
þá við að reisa loftskeytastengurn-
ar á Vatnsenda. Pétur kvongaðist
um 1940 Sigríði Einarsdóttur og
áttu þau saman fimm böm. Þau
em Valgerður, Guðmar, Einar,
Guðríður og yngst var Jóhanna er
lést fyrir röskum tveim ámm. En
konu sína missti Pétur árið 1977.
Fyrir utan almenna verka-
mannavinnu var Pétur töluvert til
sjós, dagmaður í vél á varðskipum
og togurum. Um tíma eftir stríð
vann Pétur í verksmiðju. Á ámnum
1946 og 1947 var hann formaður
Iðju félags verksmiðjufólks og sýn-
ir það hvílíkt traust hann hafði, að
vera valinn formaður í starfsgrein
sem hann hafði aðeins stuttan tíma
unnið við. Frá um 1950 og þar til
hann lét af störfum sjötugur vann
hann við höfnina, nær eingöngu
hjá Eimskip. En þar hafði hann
unnið af og til frá unglingsárum.
Hann var fljótlega valinn trúnað-
armaður Dagsbrúnar hjá Eimskip
og í fjölmörg trúnaðarstörf fyrir
félagið, þar á meðal sat hann í ell-
efu ár í stjórn Dagsbrúnar.
Þetta er aðeins upptalning á ytra
lífí Péturs. Líf hans var að ýmsu
leyti erfítt. Kona hans barðist við
ólæknandi blóðsjúkdóm yfír tutt-
ugu ár og dvaldi um lengri og
skemmri tíma á sjúkrahúsum, en
þegar hún var heima og ekki rúm-
föst reyndi hún eins og hægt var
að annast heimilisstörf. En því
miður kom það í hlut Péturs og
eldri barnanna að annast heimilið
þó eiginkonan hafí sýnt frábæran
dugnað. Vinnutími verkamanna við
höfnina var oft langur og óreglu-
legur og gerði það allar aðstæður
Péturs erfiðari.
Um 1950 byijaði Pétur að reisa
hús fyrir fjölskylduna að Melgerði
20 í Smáíbúðahverfinu. Stóran
hluta af þeirri byggingu held ég
að Pétur hafí reist sjálfur á kvöldin
og um helgar. Þetta var snoturt
járnklætt timburhús - ég held að
fjölskyldan hafi flutt í húsið þegar
það var sæmilega fokhelt, en bið
varð á lofuðum húsnæðismálalán-
um. Og næstu ár fóru í að innrétta
það. Og nú er kennt í skólum og
af hagfræðingum að þessum mönn-
um hafi verið gefín húsin.
Pétur var ákaflega áhrifamikill
félagsmaður í Dagsbrún og naut
mikils trausts vinnufélaga sinna og
hann þekkti svo vel allar aðstæður
fátæks fólks að engum þótti vel
ráðið nema hans umsagnar væri
leitað. Þótt Pétur þyrfti oft vegna
starfa síns sem trúnaðarmaður að
lenda í útistöðum við atvinnurek-
endur sína, þá sóttust þeir eftir að
hann væri í skrifara- eða teljara-
störfum, þar sem þýðingarmikið
var að nákvæmni og samviskusemi
væri gætt. Enda var maðurinn svo
gegnheiðarlegur og vandaður að
leitun var að slíkum.
Þessi látni félagi minn var mér
ákaflega kær - ég Ieitaðist við að
fá umsögn hans um vandasöm
mál. Og kannske ekki síður hitt
þegar hann gagnrýndi mig fyrir
eitt og annað sem hann taldi að
hefði miður farið, þá var gagnrýnin
sett fram af heilum hug og af ein-
lægni og var mér dýrmætur skóli.
Pétur hafði til að bera ákaflega
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
EINAR BJARNASON,
fyrrv. aðalvarðstjóri,
Mávahlfð 25,
Reykjavík,
sem andaðist 18. október á heimili sínu,
verður jarðsunginn föstudaginn 29.
október kl. 13.30 frá Háteigskirkju.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökk-
uð en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á minningasjóð
Heimastoðar, sími 601300.
Sigrún Karin Holdahl,
Rannveig Einarsdóttir, Einar Karl Kristjánsson,
Kristinn Stefán Einarsson, Guðlaug Hrönn Pétursdóttir,
Skafti Paul Bjarnason, Christina Annette Bjarnason,
Sunneva Pétursdóttir,
Steinunn Pétursdóttir, Friðrik Valgeir Guðmundsson,
Klara Kristín Einarsdóttir, Guðlaugur Kristinsson,
Sigurður Holdahl Einarsson
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR STEINSSON
frá Kirkjulæk,
verður jarðsunginn frá Breiðabólsstaðarkirkju, Fljótshlíð, fimmtu-
daginn 28. október kl. 14.00.
Maria Jónsdóttir,
Halldóra Ólafsdóttir, Svavar Ólafsson,
Steinn Ólafsson,
Sigurbjörg Ólafsdóttir,
Jón Ólafsson,
Hjálmar Ólafsson,
Kristín Ólafsdóttir,
Álfheiður Ólafsdóttir,
Grétar Markússon,
Ingibjörg Sigurðardóttir,
Vigdís Guðjónsdóttir,
Valdimar Guðjónsson,
Þrándur Arnþórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
heilbrigt lífsviðhorf. Hann var unn-
andi jafnréttis og réttlætis og
verkalýðshyggja hans var ósvikin
og tær. Hann fagnaði því alltaf
mjög ef hægt var að hækka barna-
bætur, ellilífeyri og örorkubætur -
og reyndar almannatryggingar all-
ar. Og hann bar ekki mikla virð-
ingu fyrir þeim hópum sem hugs-
uðu eingöngu um sín sérmál. Fyrir
þessum málefnum barðist hann
stöðugt og taldi ekki eftir tímann
sem í það fór, þrátt fyrir hans erf-
iðu aðstæður.
Þegar Pétur varð sjötugur var
honum sagt upp störfum hjá Eim-
skip sem og öðrum sjötugum. Ég
var svo sár að missa þennan félags-
mann af Dagsbrúnarsvæðinu og
bað Pétur um leyfí til að fara fram
á við Eimskip að hann yrði eitthvað
lengur hjá þeim í starfí. Pétur harð-
neitaði því hann vildi engin sérrétt-
indi fyrir sig, en í einlægu samtali
okkar á milli áttaði ég mig á því
að Pétur var orðinn gjörslitinn
maður, sem nánast hafði hvorki
heilsu né þrek til að vinna. En það
hafði hann aldrei rætt.
Skömmu eftir 1980 seldi Pétur
húsið við Melgerði til að greiða
bömum sínum móðurarf þeirra og
þá flutti þessi heiðursmaður í fyrsta
sinn úr bænum og keypti sér litla
íbúð í Mosfellsbæ og hann átti líka
þokkalegan Skodabíl. Ekki hafði
hann búið þar nema tæpt ár, þegar
yngsta dóttir hans kom til hans,
sjúk af sama sjúkdómi og móðir
hennar, og lést röskum fjórum
árum síðar. Þetta var Pétri þungt
áfall. *
Síðustu æviárin var Pétur sjúkur
og dvaldi töluvert á sjúkrahúsum,
lengst af á Reykjalundi við frábæra
umhyggju starfsfólks. Hann lést á
Borgarspítala 17. þessa mánaðar.
Á áttatíu ára afmæli Dagsbrúnar
var Pétur Lárusson gerður að heið-
ursfélaga Dagsbrúnar og það kom
í minn hlut að festa gullmerkið í
barm hans og ávarpa hann nokkr-
um orðum, þá viknaði Pétur, vegna
minninga um störf að þeim málum
sem honum voru svo hjartfólgin,
þau störf að rétta hag fátæks fólks
í landinu.
Dagsbrún kveður þennan félaga
'sinn með hlýju og virðingu.
Guðm. J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar.
Erfidrykkjnr
(ilæsilejí kafli-
hlaðlíorð faUegir
sídir og injög
g(KÍ |)j(')lULStiL
Dpplýsingar
ísíma22322
FLUGLEIDIR
liUL LIFTLEIIIK