Morgunblaðið - 30.10.1993, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993
5
Læknir greiði 700 þús.
í sekt vegna skattsvika
SEXTÍU og tveggja ára gömlum lækni var í gær gert í Héraðs-
dómi Reykjaness að greiða 700 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs
innan fjögurra vikna en sæta ella varðhaldi í tvo mánuði vegna
skattsvika. Maðurinn játaði að hafa ekki talið fram rúmlega tveggja
milljóna króna tekjur sem hann fékk fyrir örorkumat sem hann
sinnti á vegum tryggingafélags.
Ekki var um eiginlegan dóm að
ræða heldur svonefnda viðurlaga-
ákvörðun, ígildi þess sem hét dóm-
sátt til 1. júlí 1992. Maðurinn ját-
aði fyrrgreint brot sitt og féllst
ákæruvaldið á að málinu yrði lokið
með þessum hætti. Sömu málalok
hefur áður fengið mál 66 ára gam-
als tryggingalæknis sem féllst á að
greiða 1.300 þúsund króna sekt
vegna samskonar brota.
Mál tveggja annarra lækna,
tryggingayf'riæknis og læknis sem
sinnti örorkumati fyrir tryggingafé-
lag, hafa hins vegar ekki hlotið
afgreiðslu hjá skattayfirvöldum og
ákæruvaldi. Þar leikur grunur á að
um meiri sakir sé að ræða, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
„Lengi býr að fýrsta banka"
Halldór V. Sigurðsson fv.
ríkisendurskoðandi látinn
Leikslok
Laxinn dýri kominn á land.
Myndin er frá Laxá í Kjós á síð-
ustu vertíð.
Laxá á Asum
Veiðileyfi
hækka um-
talsvert
Ljóst er, að verðbreytingar
verða á laxveiðileyfum fyrir
næstu vertíð og þvert ofan í
þróun tveggja síðustu sumra,
eru nú aftur komin dæmi um
verðhækkanir. Umtalsverðasta
hækkunin verður í Laxá á
Asum, sem hafði lækkað áa
mest síðustu árin. Dýrustu
stangardagarnir þar síðasta
sumar voru seldir á um 100.000
krónur og höfðu lækkað úr allt
að 170.000 krónum frá sumrinu
1991. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er nú farið
fram á allt að 115.000 til 120.000
fyrir stangardag á besta tíma
og dagar um eða eftir miðjan
ágúst, sem voru falir á um
30.000 krónur á liðnu sumri
verða nú seldir á allt að 60.000
til 70.000 krónur.
Síðasta sumar veiddust tæplega
1500 laxar í Laxá á Ásum á tvær
stangir, eða tæplega 8 laxar á
stangardag sem er það mesta sem
vitað er um í heiminum. Verðfall-
inu frá 1991 olli nokkur aflabrest-
ur og minnkandi eftirspurn, en nú
hækkar verðið aftur í kjölfar mik-
illar veiði og einnig hefur erlend
sókn í Laxá aukist, sérstaklega frá
Bandaríkjunum.
Víða á eftir að verðleggja, en
annað dæmi um hækkun er í
Svartá, á sem hefur gefið mjög
góða veiði tvö síðustu sumur.
Hækkunin er hins vegar fremur
lítil og leggst helst á daga snemma
og seint á veiðitíma. Þannig kosta
nú síðustu dagarnir 11.000 í stað
9.500 áður.
Sem dæmi um lækkun má nefna
Leirvogsá sem er í hópi bestu veið-
iáa landsins. Þar lækkar gjald-
skráin í heild um 15 prósent og
er helst gengið á dýrasta tímann.
Hann lækkar nú úr 36.800 á
stangardag í 31.300. Norðurá
hækkar lítillega, en aðeins dýrasti
tíminn í júlí, að sögn Jóns Gunn-
ars Borgþórssonar framkvæmda-
stjóra SVFR. Félagið þurfti að
greiða 5 prósent hærri leigu held-
ur en í fyrra.
HALLDÓR V. Sigurðsson fyrr-
verandi ríkisendurskoðandi varð
bráðkvaddur í Brussel í Belgíu
þann 27. október, 69 ára að aldri.
Halldór fæddist á Akranesi 13.
júlí 1924, sonur Sigurðar Símonar-
sonar múrarameistara og Valgerðar
Guðrúnar Halldórsdóttur húsmóð-
ur. Hann lauk verslunarprófi frá
Verzlunarskóla íslands 1946 og
fékk löggildingu til endurskoðunar-
starfa 1954.
Halldór starfaði á Endurskoðun-
arskrifstofu Björns Steffensens &
Ara Ó. Torlaciusar 1951 til 1954
og stundaði skrifstofustörf hjá
Kauphöllinni 1954 til 1964. Hann
rak eigin endurskoðunarskrifstofu
1964 til 1969 og var ríkisendur-
skoðandi frá 1969 til 1992 þegar
hann var kjörinn í stjórnarnefnd
endurskoðunardeildar Átlantshafs-
bandalagsins í Brussel. Því starfi
sinnti hann síðan.
Eftirlifandi eiginkona Halldórs
er Kristrún Jóhannsdóttir. Þau
eignuðust fimm börn.
Gjafohref
er gott veganesti!
Nú gefst œttingjum og öörum
velunnurum kostur ó oð
leggja grunn
oð sparnaöi
barna og ung-
menna á mjög
viöeigandi hátt,
meö gjafabréfi frá
íslandsbanka.
Þau geta ýmist veriö skírnargjafabréf eöa gjafabréf sem
tengjast einhverju ööru tilefni s.s. afmœlis-, brúökaups- eöa útskriftargjöf.
Gjafabréf frá íslandsbanka er skemmtilegur möguleiki ef þú vilt gefa gjöf
meö vöxtum.
Halldór V. Sigurðsson