Morgunblaðið - 30.10.1993, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993
9
Stuttir samkvæmiskjólar
og blússur frá Bill Blass
TESS
v NE
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
S. 622230.
Opið virka daga
kl. 9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
Mf sending
Dömu- og herrasloppar, verð frá kr. 3.990.
Einnig velúrgallar, húfur, slæður, gjafa-
og snyrtivörur í miklu úrvali.
Sendum í póstkröfu.
Cjrtcllb'TCÍ'y Nóatúni 17, sími 624217.
ELDHÚSHÚSGÖGN
Borð + 4 stólar Saphir beyki, kr. 38.200 stgr.
Borð + 4 stólar beyki, kr. 46.600 stgr.
Visa - Euro raógreióslur
0PHiDAGTIIKl.lt
□HHHEE3
HÚSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66, HAFNARFIRÐI, SÍMI 654 100
Hömlulítill svartur
markaður
„Heimaslátrun og sala sláturafurða er
hætt að vera opinbert leyndarmál og er
sönnu nær að tala um að þau viðskipti
fari fram fyrir opnum tjöldum. Bænda-
fundur í Borgarnesi fjallar um sölu á kjöti
fram hjá kvóta eins og sjálfsagðan hlut
og aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra
segir þessi viðskipti vera orðin hömlulít-
il.“ Þannig hefst leiðari Tímans sl.
fimmtudag, sem Staksteinartíunda í dag.
*
„Urelt þing -
ónýt stjómun-
artæki“
Tíminn segir í forystu-
grein:
„Búmark og fram-
leiðslukvóti sem ekki er
tekið mark á eru úrelt
þing og ónýt stjómunar-
tæki. Sagt er að þeir
bændur sem seþ'a fram-
hjá kvóta og eftirliti skaði
sjálfa sig sé litið til fram-
tiðar. Hitt ef og Vjóst að
þeir bændur sem hlíta
opinberum ákvörðumnn
um stærð búa og tak-
mörkun á framleiðslu í
einu og öUu skaða einnig
sjáifa sig með því að taka
ekki þátt í kvótasvindli
og heimaslátrun.
Hér er komið í óefni
sem illt er að sjá hvemig
greiða má úr svo öllum
líki. Búvöruframleiðslan
er of mikil, sérstaklega á
kindakjöti, en afurðimar
em of dýrar þrátt fyrir
niðurgreiðslur svo neyt-
endur spara við sig þann
munað að neyta dilka-
kjöts nema endmm og
eins.
Heimaslátrun og kjöt-
kaup á svörtum markaði
er lausn sem kemur fram-
leiðendum framhjá kvóta
og neytendum sem hafa
aðgang að svona við-
skiptaháttum vel. Fram-
hjá því verður ekki horft
hvað sem öllum stéttar-
samböndum, framleiðslu-
ráðum og sjömanna-
nefndum líður.“
„Ríkisrekinn
kotbúskapur“
ekki lausnin
Tímimi kemst að eftir-
farandi leiðaraniður-
stöðu:
„Aldrei virðist nokkr-
um manni detta í hug að
offramleiðsla á kindakjöti
stafar ekki sízt af því hve
dýrt það er. Ef hægt væri
að koma kostnaði við
framleiðslu, slátrmi og
milliliði í viðunandi horf
og sejja þá góðu vöru sem
íslenzkt dilkakjöt er á
verði sem almenningur í
Iandinu ræður við mundi
salan aukast svo um mun-
aði.
Bændur sem slátra
heima og viðskiptavinir
þeirra sýna að það er
engin Qarstæða að hægt
sé að lækka verðið og
auka neyzluna.
Sóðaskapur og sýking-
arhætta sem á að fylgja
heimaslátrun umfram
það sem gerist í slátur-
húsum er fyrirsláttur
þeirra sem viðhalda vilja
miðstýrðum áætlanabú-
skap í landbúnaði.
Einu gildir hvort menn
eru hlynntir eða á móti
inngöngu íslands í EES
eða þátttöku í GATT, að
þegar hvorutveggja hlýt-
ur gUdi munu hömlur á
innflutningi landbúnað-
arvara hverfa að mestu
og þá er eins gott að
bændur og sölusamtök
þeirra dagi ekki uppi eins
og nátttröU en séu þess
umkomin að keppa við
innflutning á jafnrétt-
isgrundvelli.
Ríkisrekinn kotbúskap-
ur er ekki líklegur til að
standast þá raun. En
sjálfstæðir bændur og
skypsamlega rekin sölu-
samtök eiga að geta átt
í fuUu tré við innflutning
með því að auka fram-
leiðni í stað þess að draga
úr henni og lækka verð
og stækka markað.
Hafa ber í huga að það
er ekki aðeins innflutn-
ingur sem viðskiptafrels-
ið nær til heldur einnig
útflutningur. Það getur
orðið erfitt að keppa við
danska skinku á EES-
markaði, en Danskurinn
getur áreiðanlega ekki
keppt við Islendinga um
gæðj dilkakjöts."
„Oðru vísi mér áður
brá“ er orðtak sem er
viðhaft þegar eitthvað
kemur mönnum gjörsam-
lega á óvart. Trúlegt er
að þessi orð hafi hrotið
af vörum ýmissa gamaUa
kaupenda Tímans þegar
þeir börðu þennan leiðara
blaðsins augum. Hér
kveður enda við nýjan tón
í þessu gamalgróna
„bændablaði". Samasem-
merki sett á miUi mið-
stýrðs áætlunarbúskapar
og þess að daga uppi eins
og nátttröU í nýjum við-
skiptaháttum í veröldinni.
Fullyrt að „rikisrekinn
kotbúskapur" sé ekki
kjörvegur til að rétta af
samkeppnisstöðu land-
búnaðarins, sem veikzt
hefur sígandi síðustu tutt-
ugu tU þijátíu árin, held-
ur hið gagnstæða.
Ódýrir
dáfear
I
HARÐVtÐARVAL
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010
Metsöliiblad á hverjum degi!
Hönnun og útgáfa
Námskeiðfyrir þá sem sjá um útgáfu fyéttabréfa,
bæklmga, námsgagna og álíka prentgripa
*Á þessu námskeiði munt þú öðlast skilning á útlits-
hönnun og hvernig þú nærð best athygli lesenda
þinna og heldur henni, jafnframt því sem kennd
verða grundvallaratriði QuarkXPress tölvuumbrots.
Góð námsgögn fylgja. Námskeiðið kostar 20.000 kr.
Tími: 3.-6. nóvember k). 13—18, samtals 20 klst.
Skráningar og nánari upplýsingar hjá
Prenttæknistofnun
Háaleitisbraut 58-60, sími 680740, fax 688238
Skáldsagan Vinarþel ólcunnugra segir frá hjónum sem hyggjast eiga rólegá daga
t sumarleyfi sínu í Feneyjum. Þar kynnast þau afar sérstökum og dularfullum manni og i
Ijós kemur aS þaS er síSur en svo saklaus vinátta sem býr aS baki vinarþeli þessa
ókunnuga manns.
- ,11 i -
Hinn breski höfundur, McEwan,
smám saman fetað sig
áfram til heimsfrægðar og er nú í
röð viðurkenndustu höfunda
Breta. Einar Már Guðmundsson
íslenskaði bókina.
ALMENNA BOKAFELAGIÐ H F