Morgunblaðið - 30.10.1993, Síða 10

Morgunblaðið - 30.10.1993, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993 Stíeinþór Matthíasson í hlutverki sínu í Hinum helgu véum. LITLIYÍKINGURINN Kvikmyndir Sæbjöm Valdimarsson Regnboginn Hin helgu vé Leikstjóri Hrafn Gunnlaugs- son. Handrit Hrafn Gunnlaugs- son, Bo Jonsson. Kvikmynda- tökustjóri Per Kallberg. Tónlist Hilmar Örn Hilmarsson. Aðal- leikendur Steinþór Matthías- son, Tinna Finnbogadóttir, Alda Sigurðardóttir, Helgi Skúlason, Valdimar Flygering, Edda Björgvinsdóttir, o.fl. Ísland/Svíþjóð 1993. Hann slær á mun léttari strengi, leikstjórinn Hrafn Gunn- laugsson, í Hinum helgu véum en í síðustu myndum sínum. Um- hverfið víðs fjarri drunga víkinga- aldar og persónumar geðþekkari því nýjasta mynd hans fjallar um sumardvöl ungs Reykjavíkur- drengs í sveit og gerist í samtím- anum. Blóðhefndir, ættarvíg og ofbeldi víkja fyrir öllu saklausari atburðarás, fyrstu kynnum ungs drengs af ástinni. Og náttúran að vakna. Það þarf enginn að velkjast í vafa um hvert Hrafn sækir efnisþráðinn; sveinninn ungi er listfengur mjög, drátthag- ur, músíkalskur og dreymir um að gera víkingamyndir þegar hann er orðinn stór ... Þegar móðirin (Edda Björg- vinsdóttir), klassískur píanóleik- ari, leggur uppí tónleikaferð til útlanda er Gestur sonur hennar (Steinþór Matthíasson) sendur vestur í Breiðafjarðareyjar til sumardvalar. Á eyjabýlinu eru tvær heimasætur auk bóndans og á sú eldri (Alda Sigurðardóttir) eftir að koma róti á hugarfar drengsins. Hann er í sárum vegna fjarvista móður sinnar og fyllir Álda hennar skarð og gott betur því þótt ungur sé tekur að vakna með sveininum ást til hennar. í nekt hennar og blíðuhótum gerist lífsgaldurinn mikli, Gestur upp- götvar stúlkuna sem kynveru, hvolpavitið krælir á sér. Á túninu er fornmannahaugur sem hinn smávaxni ofurhugi tek- ur sem áskorun. Hann hyggst sanna stúlkunni ást sína með því að rjúfa hauginn og færa henni gersemarnar sem þar eru fólgnar. Atriði úr Hinum helgu véum. Jafnvel þó að hann kalli bölvun yfír bæinn sem samkvæmt þjóð- sögunni á þá að brenna til kaldra kola. Með vopnum garpsins hyggst hann vinna á eljara sínum (Valdimar Flygenring). Allir hafa verið ástfangnir í fyrsta sinn og eiga vonandi þær ljúfsáru minningar einhvers stað- ar innra með sér. Ósjaldan hafa ástsjúk umgmenni rekið sig um leið á bannsett kynslóðabilið, lent í því óefni að hrífast af fullþroska útliti stálpaðra stúlkna. Orðið að lúffa fyrir sér eldri mönnum og bullandi afbrýðisemin komið til skjalanna. Þessi reynsla hefur orðið kvikmyndagerðarmönnum eins og Lasse Hallström (Mit liv som en hund) og Jean-Loup Hub- ert (Le grand chemirí) að yrkis- efni. Hrafni tekst á köflum Iag- lega að draga upp hugarheim drengsins, Iýsa bæði ytri og innri aðstæðum hans þetta örlagaríka sumar. Laðar fram frábæran leik hjá hinum unga Steinþóri í aðal- hlutverkinu sem er bæði stórt og krefjandi. Blandar hugvitssam- lega saman sagnahefðinni, þjóð- trúnni og tölvuleikjum samtímans en tilfínningamálin eru vitaskuld efst á baugi. Þar er erótíkin snar þáttur en því miður bærir hún ekki mikið á sér. Mestu ræður að eitt lykilatriðanna, er Alda laugar sig í sjávarlóni, er lítið ertandi. Hún sprangar kviknakin um hleinarnar, ekki vantar það, en þessi mikla nekt er óvænt og fjar- læg. Það vantar eitthvað ögrandi og leyndardómsfullt til að hún verði sú uppsprettulind sem hún á að vera og þó að ekki sé við fallegan vöxt leikkonunar að sak- ast þá er dvalist við hann um of. Amorsbrögð í útihúsi eru hinsveg- ar áhrifameiri, allavega vel til þess fallin að vekja vanmáttar- kennd með sveininum. Það er stiklað á stóru, textinn knappur, oft mætti hanga meira kjöt á beininu. Hann rís hæst í einföldum spurningum drengsins um lífið og tilveruna og hvat- skeyttnum stríðnistón jafnöldru hans, sem leikin er með miklum tilþrifum af Tinnu Finnbogadótt- ur, öðrum bráðefnilegum nýliða. Hún lífgar mikið uppá Hin helgu vé, eldhress og fyndin. Þriðji nýl- iðinn, Helga Sigurðardóttir, fer með erfítt hlutverk blómarósar- innar sem fær hjörtu þeirra Dags og Valdimars til að slá hraðar. Hún smellur í það hvað útlit og gjörvileika snertir og kemst furðu vel frá sínu þegar haft er í huga hversu krefjandi það er. Hins veg- ar leynir framsögnin stöku sinn- um ekki byijandabragnum. Lítið mæðir á Helga, Eddu og Valdimar, hinum sjóuðu leikurum myndarinnar. Sem standa sig vel, líkt og þeirra er von og vísa. Tón- list Hilmars Arnar og Beethovens er vel viðeigandi og útlit myndar- innar fagmannlegt í alla staði. Hrafn fléttar saman, eins og oft áður, ægifögrum tökustöðum; Dýrafírði, Breiðafjarðareyjum, Arnarstapa undir Jökli. Yfir öllu gnæfír svo vitinn í Gróttu í allri sinni reisn og fellur listilega að myndarefninu. Hér fær áhorfand- inn að sjá nýja hlið á Hrafni, mildari og ljúfari en við eigum að venjast. Skilar sinni fyrstu „barna- og fjölskyldumynd" oft vel og af einlægni. Hún á þó sjálf- sagt eftir að hrella einhvetjar við- kvæmar sálir sem draga nokkuð djarfa ástarsenu Valdimars og Öldu í hlöðunni handan velsæmis- markanna. Enda um nýlundu að ræða í slíkri afþreyingu. Einar Gausel efstur á Hellismótinu __________Skák_____________ . Bragi Kristjánsson NORSKI alþjóðameistarinn Ein- ar Gausel er efstur á alþjóðlega Hellismótinu í Gerðubergi, þeg- ar þijár umferðir eru ótefldar. Norðmaðurinn vann McNab í sjöttu umferð, og Stefnir virðist líklegur til að tryggja sér stór- meistaratitil á mótinu. Þröstur Þórhallsson lagði þýska stór- meistarann Klaus Bischoff að velli í stuttri skák, og er í 2.-4. sæti. Andri Áss Grétarsson, sem fram að þessu hefur staðið sig best íslendinga, tapaði fyrir Stangl. Ágúst Sindri Karlsson, sem hefur staðið sig mjög vel á mótinu, vann Jónas Garðar Við- arsson. HARÐVIÐARVAL HF. KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010 Hellismönnum hefur tekist mjög vel upp í þessari frumraun sinni í að halda alþjóðlegt skákmót. Val keppenda hefur tekist vel, og tafl- mennskan verið fjörug og spenn- andi. Aðstaðan í Menningarmið- stöðinni Gerðubergi er góð, og þjónusta við áhorfendur og frétta- menn eins og best verður á kosið. Skákunnendur ættu að fylgjast með tveimur síðustu umferðunum, sem tefldar verða í dag, laugardag, og á morgun kl. 14-20 báða dag- ana. Staðan er þessi eftir 6 umferð- ir af 9: 1. Gausel, 5 vinningar. 2.-5. Þröstur Þórhallsson, McNab (Skotlandi), Stangl (Þýskalandi) og Kristensen (Danmörku), 4 v. hver. 6.-8. Andri Áss Grétarsson, Ágúst Sindri Karlsson og van Mil (Hollandi), 3'/2 v. hver. 9.-10. Schlosser og Bischoff (báðir Þýskalandi), 3 v. hvor. 11.-16. Jón Garðar Viðarsson, Guð- mundur Gíslason, Helgi Áss Grétarsson, Björgvin Jónsson, Snorri Bergsson, Asanov (Kaz- akhstan), 2Vi v. hver. 17.-19. Halldór Grétar Einarsson, Sig- urður Daði Sigfússon, Pliester (Hollandi), 2. v. hver. 20. Dan Hansson, IV2 v. Við skulum að lokum sjá vinn- ingsskák Þrastar gegn þýska stór- meistaranum Klaus Bischoff. 6. umferð: Hvítt: Þröstur Þórhallsson. Svart: Klaus Bischoff (Þýskalandi). Sikileyjarvörn. 1. e4 - c5, 2. Rf3 - e6, 3. d4 - cxd4, 4. Rxd4 - Rf6, 5. Rc3 - d6, 6. g4!? - Þröstur er í vígaham og bregður þess vegna fyrir sig Keres-árás- inni. Rólegri menn leika hér 6. Be2, 6. g3 eða 6. f4. 6. - Be7 Önnur leið er hér 6. - h6, 7. h4 - Rc6, 8. Hgl - d5I? (eða jafnvel 8. - h5I?) o.s.frv. 7. g5 - Rfd7, 8. h4 - 0-0, 9. Be3 - Rc6, 10. Dd2 - a6, 11. 0-0-0 - Rxd4, 12. Bxd4 - b5, 13. Kbl - He8, 14. Bh3 - Re5, 15. f4 - Rf3, 16. Df2 - Rxd4, 17. Dxd4 - Dc7, 18. f5 - Dc5, 19. Dd3 - De5!? Drottningin stendur vel á e5, en spurningin er, hvort ekki hefði ver- ið betra að nota tímann til að leika 19. - Bd7 eða 18. - Bf8. 20. Hhfl - Bb7? Afleikur, sem kostar dýrmætan tíma. Betra var að leika 20. - Bf8, 21. fxe6 - fxe6, 22. a3 - Ha7, og hvítur á betra tafl, þótt ekki sé auðvelt að benda á þvingaða leið, sem gefur honum vinningsstöðu. 21. fxe6 - fxe6, 22. Dd4 - Bc8 Erfið ákvörðun, en ekki er skemmtilegt fyrir svart að leyfa framhaldið 23. — Bf8, 24. Dxe5 — dxe5, 25. Hd7 með yfirburðastöðu fyrir hvít. 23. Db6 - Hd8 Hvítur hótaði 24. Dc6. 24. Re2 - Dxe4!? Hvítur hótar 25. Rd4 (eða f4), og Bischoff líkar ekki 24. - Dc5, 25. Dxc5 - dxc5, 26. Hxd8+ - Bxd8, 27. Rf4 af eðlilegum ástæðum. 25. Rf4 - 25. - e5?? Með þessum leik styttir Bischoff þjáningar sínar, en hann getur ekk- ert skynsamlegt gert við hótuninni 26. Hdel ásamt 27. Bxe6+ o.s.frv. 26. Bg2 og svartur gafst upp. Siðbótardag- urinn í Hall- grímskirkju í HALLGRÍMSKIRKJU verður siðbótardagsins minnst sunnudaginn 31. október með því að kl. 10 f.h. verður flutt erindi með myndasýningu í safnaðar- heimilinu um Martein Lút- her og siðbótina. Erindi flyt- ur sr. Sigurður Pálsson. Að erindinu loknu verður gengið til guðsþjónustu í kirkj- unni. Við guðsþjónustuna verða sungnir sálmar eftir Lút- her og leikin tónlist tengd sið- bótinni. Prestur verður sr. Sig- urður Pálsson en Hörður Áskelsson organisti annast tónlistarflutning. Hinn 31. október 1517 markar þáttaskil í kirkjusög- unni. Þann dag festi Marteinn Lúther mótmælagreinar sínar á dyr hallarkirkjunnar í Witt- enberg. Sú athöfn telst upphaf siðbótarinnar. Lútherska kirkj- an helgar siðbótinni síðasta sunnudag í október.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.