Morgunblaðið - 30.10.1993, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993
17
Nýja kirkjan á ísafirði.
Kirkjuklukkum
hringt á Isafirði
I SEX ár, allt frá kirkjubrunanum semt í júlí 1987, hefur ómur
kirkjuklukkna ekki heyrst á Isafirði. Nú er í smíðum ný kirkja á
gamla staðnum, og má heita að hún sé fokheld. Gömlu kirkjuklukk-
urnar þijár hafa verið settar upp í turn hinnar nýju kirkju. Nk.
sunnudag, 31. október, kl. 14, er ætlunin að halda stutta helgi-
stund inni í hinni nýju byggingu eins og hún nú er. Þá verður
kirkjuklukkunum hringt og Isfirðingum og gestum gefinn kostur
a að skoða hina nýju byggmgu
sóknarnefndar og starfsmanna
Allir fjármunir safnaðarins, sem
tiltækir hafa verið vegna fram-
kvæmdanna, eru nú uppumir, og
raunar hefur nokkurt fé þegar
verið tekið að láni, svo að ljúka
mætti í haust við þann byggingará-
fanga sem um var samið. Óbæri-
lega þung lán hafa þó ekki verið
tekin.
Tekið skal fram, að orgelsjóðn-
um er haldið aðgreindum frá öðru
byggingarfé, en í þann sjóð hafa
borist afar veglegar gjafir.
í fokheldu astandi undir leiðsögn
kirkjunnar.
Rætt hefur verið um að leiða
hita í kirkjuskipið og múra og
pússa veggi þess að innan í vetur.
Þetta verður þó ekki unnt að gera
nema fyrir söfnunarfé. Víðtækt
söfnunarátak er nú fram undan
og er í tilefni af því byrjað að
ganga í hús á ísafirði. Hægt er
að láta framlög í té með því að
leggja þau inn á giróreikning nr.
156-26-10115 í Landsbanka ís-
lands eða nr. 556-26-1103 í ís-
landsbanka.
Bóndinn í Kolviðarnesi við Haffjarðará
Hefur ekki tek-
ið ákvörðun um
veiðiréttindi
„MER finnst í rauninni alveg sjálfsagt að ná hlunnindum jarðarinn-
ar ef það er hægt. En hvort ég legg í það, með kannski 10 ára
baráttu, er annað mál,“ sagði Oddur Sigurðsson, bóndi í Kolviðar-
nesi við Haffjarðará í Hnappadalssýslu, þegar hann var spurður
að því hvort hann myndi sækjast eftir veiðiréttindum í ánni í fram-
haldi af niðurstöðu Hæstaréttar vegna sölu á jörðinni.
Oddi var boðið að neyta for-
kaupsréttar síns á jörðinni þegar
átti að selja hana og lýsti hann
yfir áhuga sínum til þess. Hann
var hins vegar ekki ánægður með
söluverðið jarðarinnar, 6 milljónir,
og lét meta hana upp á nýtt. Kom-
ust matsmenn að þeirri niðurstöðu
að matsverðið skyldi vera 2,2 millj-
ónir því ella væri bóndinn að greiða
fyrir veiðirétt á landi jarðarinnar
án þess að eignast hann. Töldust
veiðiréttindi í eigu þeirra sem
keypt höfðu jörðina þegar Oddur
tók ákvörðun um að láta meta
hana upp á nýtt. Sjálfur hefur
Oddur, samkvæmt nýlegum dómi
Hæstaréttar, rétt til að festa kaup
á jörðinni fyrir áðurgreint mats-
verð, 2,2 milljónir.
Leiðinlegur tími
Þegar rætt var við Odd sagðist
hann skilja dóm Hæstaréttar á
þann veg að hann hefði möguleika
til að ná til sín veiðirétti í ánni.
Hann væri þó ekki viss um hvort
hann myndi láta reyna á þennan
hluta hans. Annars kvaðst hann
ánægður með dóm Hæstaréttar og
vona að málinu væri lokið í bili.
„Þetta hefur tekið langan og leiðin-
legan tíma. Það er leiðinlegt að
standa í stímabraki við fólk,“ sagði
hann.
Forseti
Namibíu í
heimsókn
Dr. Sam Nujoma, forseti Nam-
ibíu, kemur í heimsókn til íslands
í boði Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðherra 4. nóvember nk. og verð-
ur hér á landi til 6. nóvember en
um þessar mundir er forsetinn í
heimsókn á Norðurlöndum.
Tyrkneska forræðismálið
Dómur fallinn vegna skóla-
göngu Dagbjartar og Rúnu
HALIM Al, fyrrum eiginmaður Sophiu Hansen, á yfir höfði sér eins
árs fangelsisdóm sendi hann ekki dætur þeirra Sophiu í almennan
tyrkneskan grunnskóla á næstu dögum. Dómur þessa efnis var kveð-
inn upp í Istanbúl í Tyrklandi á föstudag.
Stúlkumar vom teknar úr hverf-
isskóla sínum í Bakirköy í Istanbúl
18. maí 1992 og tilkynnti faðir þeirra
að þær myndu sækja skóla í borginni
Sivas, ekki fjarri fæðingarbæ sínum
í Austur-Tyrklandi. Skólastjórinn í
skólanum þar hefur staðfest að beðið
hafí verið um skólavist fyrir stúlkum-
ar í skólanum en þangað komu þær
aldrei til að sækja skóla. Halim A1
hefur hins vegar að sögn Sigurðar
Péturs Harðarssonar, stuðnings-
manns Sophiu, framvísað fölsuðum
göngnum frá háttsettum embættis-
manni í Sivas þess efnis að stúlkurn-
ar stundi skóla þar. Að þessu hafa
borgaryfirvöld í Sivas komist og lagt
fram kæra á hendur Halim A1 vegna
málsins. Kæran, ásamt kæram vegna
brota á umgengnisrétti Sophiu verður
tekin fyrir af tyrkneskum dómsstól-
um 29. nóvember.
Kóraninn utanbókar
Eftir því sem segir í umfjöllun
tyrkneska dagblaðsins Aktiiel frá
því í febrúar hafa systurnar, Dag-
björt og Rúna, stundað nám í
íslömskum fræðiím í vetur. Faðir
þeirra fer með þær þangað sem
fræðslan fer fram kl. 7.30 á morgn-
anna og kemur aftur með þær heim
kl. 19.30. Blaðamaður Aktul náði
tali af einum kennara systranna og
sagði hann að þeirri eldri gengi mun
betur en þeirri yngri að læra Kóran-
inn utanbókar.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
Vill að lögreglumennimir
í Breiðholti sitji þar áfram
BÖÐVAR Bragason lögreglustjóri í Reykjavík kveðst hafa áhuga á
að sömu lögreglumenn og nú sitja í Breiðholtsstöð verði þar áfram, en
í Morgunblaðinu í gær kom fram að þeir hyggjast hætta þar vegna
bágra launakjara. Hann kveðst skilja vel að menn leiti í þann hluta
lögreglustarfsins sem gefi þeim hæstu tekjurnar, en telji ekki kominn
tími á þá sem þar eru nú.
„Hverfalögreglustöðir byggjast á
þeirri hugmynd að þar vinni stað-
kunnir menn, þess vegna eru of tíð-
ar breytingar óæskilegar. Vandinn
er sá að við eram með ákveðið kerfi
varðandi laun lögreglumanna sem
að koma ekki undir neinar ákvarð-
anir af minni hálfu, þetta er málefni
ráðuneyta dómsmála og fjármála
hvernig kjarasamningar eru gerðir.
Við munum samt reýna að finna
lausn á þessu með einhverjum
hætti.“
Góð áhrif á unglingana
Þórunn Óskarsdóttir, forstöðu-
maður Unglingaathvarfsins Keilu-
felli kveðst vita að lögreglumennirn-
ir í Breiðholtsstöð hafi unnið mjög
gott starf og þeir hafi fylgt afar
mannúðlegri og ánægjulegri stefnu
gagnvart unglingunum í hverfinu.
„Það hafa verið unglingar hérna í
athvarfinu sem hafa verið eins og
gráir kettir hjá þeim, fengið kakó-
bolla og slíkt. Það var til dæmis
strákur hérna hjá okkur fyrir nokkr-
um áram sem stóð í smáhnupli og
skemmdaverkum og hafði fengið á
sig kærur fyrir slíkt. Hann komst í
mjög gott samband við þessa menn
og það hafði góð áhrif á hann og
dró úr því sem hann hafði löngun til
að gera á þessu sviði,“ segir Þórann.
50%
Rýmum fyrir jólavörunum.
í dag og á morgun
mikið magn af pottaplöntum
20-50% afslætti.
Nð «r takilarlð.
Opið alla daga til kl. 21