Morgunblaðið - 30.10.1993, Side 20

Morgunblaðið - 30.10.1993, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993 Verkfalli hjá Air France lokið HLAÐMENN hjá franska flug- félaginu Air France samþykktu í gær að fresta verkfalli sem staðið hefur í 10 daga. Hlað- menn hófu verkfallið og voru síðustu starfsmennirnir til að ljúka því. Starfsmenn Air France hyggja þó á mótmæli á þriðjudag, er viðræður stjóm- enda og fulltrúa starfsmanna um endurskipulagningu hefj- ast. Talsmaður Air France seg- ir að nokkrir dagar líði áður en starfsemi á Roissy-Charles de Gaulle- og Orlyflugvelli komist í eðlilegt horf. Bordanes fórstíBar- entshafi EINN maður fórst og átta er saknað eftir að norskur línubát- ur, Bordanes, sökk í Barents- hafi í fyrrinótt. Skipstjórinn, sem er norskur, og tveir fær- eyskir hásetar komust í björg- unarbát. Óveður var á þeim slóðum sem Bordanes fórst og gafst skipveijum ekki tími til að fara í björgunarbúninga. Meðal þeirra skipa sem þátt tóku í leitinni að mönnunum var Solo, skip Grænfriðunga, en skip tollgæslunnar hafði það í togi á nálægum slóðum. Gratsjev ekki úr embætti TALSMAÐUR Borísar Jeltsíns, forseta Rússlands, vísaði í gær á bug fréttum þess efnis að víkja ætti varnarmálaráðherr- anum, Pavel Gratsjov, úr emb- ætti. Ásakaði talsmaðurinn pólitíska andstæðinga forset- ans um að reyna að draga her- inn inn í rússnesk stjómmál og að kljúfa samstöðu hers og for- seta. Sakaður um að selja óskimað blóð ÞÝSKA lögreglan færði í gær framkvæmdastjóra stórs lyfja- fyrirtækis til yfirheyrslu en hann er sakaður um að hafa selt óskimað blóð til spítala í Þýskalandi og Austurríki. Er fyrirtækið sakað um vítaverð vinnubrögð, þar sem allt að 373 alnæmistilfelli eru talin tengj- ast því að óskimað blóð var gefið sjúklingum. Juhantalo dæmdur fyrir mútur FINNSKUR landsréttur dæmdi í gær fyrrum iðnaðarráðherra Finna, Kauku Juhantalo, sekan um að þiggja mútur. Var Ju- hantalo dæmdur í eins árs skil- orðsbundið fangelsi fyrir að hafa á boðið banka einum að- stoð ríksisins, lánaði hann illa stæðum fyrirtækjum Juhanta- los. Bannað að aug- lýsa Adams HÆSTIRÉTTUR á írlandi hef- ur bannað að smásögur eftir Gerry Adams, leiðtoga stjóm- málaarms írska lýðveldishers- ins, verði auglýstar í útvarpi. Segir í dómnum að hætta væri á að slíkar auglýsingar væru kynning á stefnumálum flokks hans. Reuter Orvinglan UNG kona starir vonleysislega fram fyrir sig í neyðarskýli sem Rauði krossinn hefur komið upp fyrir þá' sem flúið hafa heimili sín. Um 650 hús hafa brunnið í skógareldunum í Suður-Kaliforníu „ Við erum við öllu búin ef Iiaini hvessir“ - segir Guðjón Gunnarsson, tölvu- fræðinemi í Rancho Santa Margarita „ÞAÐ HEFUR tekist að slökkva alla eldana nema einn en hann gæti náð hingað ef hvessir að nýju eins og spáð er. Við erum því við öllu búin,“ sagði Guðjón Gunnarsson, sem búsettur er í Ranc- ho Santa Margarita við Los Angeles. Það er um 10 km frá því svæði sem brann fyrst. Um 650 hús hafa brunnið í miklum skógar- eldum sem geisað hafa i Suður-Kaliforníu frá því á miðvikudag. Þúsundir slökkviliðsmanna berjast nú við eldinn. Guðjón og kona hans, Rann- veig, hafa ekki pakkað helstu nauðsynjum ofan í ferðatöskur en þau eru þó í viðbragðsstöðu. Sagði Guðjón að spáð hefði verið að Santa Ana-eyðimerkurvindamir myndu blása upp að nýju með kvöldinu. „Utandyra er mikil brunalykt og reykjarmökkur sést héðan. Hér var ókyrrð í gær, fólk hafði áhyggjur af eignum sínum en mér sýnist það vera rólegra núna. Sjálfum líður okkur ekkert of vel að vita af eldunum, því við eigum hús hér sem er ótryggt. Clinton forseti lýsti því þó yfír að þeir sem misstu hús sín í eldinum, fengju bætur og hagstæð lán.“ Mikið til efnafólk sem misst hefur hús sín Lognið seinnihluta fímmtudags og fyrrihluta gærdagsins gaf slökkviliðsmönnum færi á að hefta nokkuð útbreiðslu eldsins. Hann náði þó að rífa sig upp í Santa Monica í gær og ógnaði um tíma heimilum stórstjama á borð við Barbra Streisand og Larry Hagman. Margir þeirra sem misst hafa heimili sín eru vel stætt fólk og hús þeirra tugmilljóna króna virði. Um 46.500 hektarar lands hafa bmnnið en enginn hefur lát- ist í eldsvoðunum. Um 30.000 manns hafa flúið heimili sín vegna eldanna. Tjónið er gríðarlegt og í gær og fyrradag birtu sjónvarps- stöðvamar myndir af tárfellandi fólki sem misst hafði allt sitt. Bílar mikið skemmdir Guðjón er við nám í tölvufræði og segist hafa sótt skólann það sem af sé vikunnar. Þeim hluta Laguna Beach, þar sem mest tjón hefur orðið, hefur hins vegar ver- ið lokað. íbúar geta fengið leyfí til að vitja húsa sinna en umferð inn á svæðið er takmörkuð til að koma í veg fyrir gripdeildir. Guð- jón sagði ekki mikið tjón hafa orðið á húsum vegna reyks og ösku en ljóst væri að margir bílar væm mikið skemmdir eftir ösku- fallið. Skammt að bíða sig- urs stjórn- arhersins Tblisi. Reuter. STJÓRNARHERINN í Georgíu náði í gær á sitt vald tveimur af síðustu hindrununum á leið til bæjarins Zugdidi í vesturhluta landsins þar sem Zviad Gamsak- hurdia og liðsmenn hans hafa haft höfuðstöðvar sínar. Segja erlendir sendifulltrúar að þess sé skammt að bíða að stjórnarherinn sigri sveitir Gamsakhurdia. Á fimmtudag komu rússneskar her- sveitir sér fyrir ásamt sveitum stjórnarhersins við mikilvæga járnbrautarlínu sem liggur frá Svartahafi, í gegnum Georgíu og til Kaspíahafs. í frétt Itar-Tass sagði að Pavel Gratsjov, vamarmálaráðherra Rúss- lands hefði gefíð sveitunum skipun um að veija leiðina gegn uppreisnar- mönnum. Hafa hermennirnir fengið §kipun um að skjóta hvern þann sem gerir tilraun til að hindra flutninga um járnbrautarlínuna. Stjórnvöld setja úrslitakosti Sigur stjómarhersins í gær var annar sigur þeirra á tveimur dögum en uppreisnarmenn náðu bænum Khobi á sitt vald í gær, aðeins sólar- hring eftir að stjórnarherinn í Georg- íu tók bæinn. Edúard Shevardnadze, forseti Georgíu flaug í gær til bæjar- ins Kutaisi til að kynna sér stöðu mála. Ekki er vitað hvar Gamsakhurdia er niðurkominn. Liðsmenn hans sögðu hann vera nálægt Zugdidi en Gamsakhurdia sást þar síðast á þriðjudag. Ekki er útilokað að hann hafi komist undan í flugvél sem sást taka á loft á þriðjudag frá nálægum bæ. Uppreisnarmenn segja Rússa aðstoða stjórnarherinn Blaðafulltrúar Shevardnadze sögðu í gær að abkhasískir upp- reisnarmenn styddu liðsmenn Gamsakhurdia. Þeir fullyrða hins vegar að Rússar styðji stjómarher- inn í Georgíu. „Við hefðum unnið þetta stríð, hefði rússneski herinn ekki aðstoðað herforingjastjórn Shervardnadze," sagði háttsettur liðsmaður Gamsakhurdia. Hótuðu stuðningsmenn hans skæruhernaði, tækist þeim ekki að veija Zugdidi. Haft var eftir embættismönnum í Georgíu að Rússar hefðu afhent stjómarhernum um fímmtíu þunga- vopn, þar á meðal skriðdreka. Rúss- ar neita þessu. Major á við andbyr að stríða Horfið frá umbót- um í lögreglumáhim London. Reuter. STJÓRN íhaldsflokksins í Bretlandi býr sig nú undir að hverfa að verulegu leyti frá umdeildum hugmyndum er gera ráð fyrir róttækum skipulagsbreytingum og auknu aðhaldi í launamálum lögreglunnar. Nýlega beygði stjórnin sig í öðru máli er snertir einkavæðingu rikisjárnbrautanna. Nokkrir stjórnarþingmenn knúðu þessar stefnubreytingar þingi er aðeins 17 atkvæði. Talsmenn Verkamannaflokks- ins, sem er í stjómarandstöðu, gagnrýndu stjómina harðlega fyr- ir hringlandahátt og stefnuleysi. „Ríkisstjómin hefur engan siðferð- islegan myndugleika til að sitja áfram“, sagði John Smith, leiðtogi flokksins á fímmtudag. John Maj- or forsætisráðherra hefur átt í vaxandi erfíðleikum með að halda aga á stjórnarflokknum og er skemmst að minnast atkvæða- greiðslunnar um Maastricht-sam- inginn en þá snerust allmargir íhaldsþingmenn á sveif með stjórn- arandstöðunni. Á miðvikudag sögðust 14 þingmenn íhalds- gegn en meinhluti flokksins á flokksins ekki myndu styðja vænt- anlegar tillögur fjármálaráðuneyt- isins um frekari niðurskurð á framlögum til landvama. Búist er við að stjórnin sam- þykki að gerbreyta tillögum sem kaupsýslumaðurinn Patrick Shee- hy vann fyrir stjómvöld og hafa að markmiði að bæta störf lögregl- unnar. Sheehy vill að laun lög- gæslumanna verði tengd afköstum og árangri í starfí sem hvort- tveggja verði metið af þar til bær- um mönnum, einnig vill hann af- nema æviráðningu. Geysihörð andstaða hefur verið við tillögurn- ar meðal lögreglumanna. Reuter * A atkvæðaveiðum RUSSNESK kona hvetur aldinn íbúa smáþorps um að kjósa óflokksbund- inn frambjóðanda í kosningunum sem fram fara þann 12. desember nk. I skoðanakönnun sem gerð var í landinu um miðjan mánuðinn sögðust aðeins 29% aðspurðra hlynnt því að Jeltsín bjóði sig fram að nýju þrátt fyrir að helmingur segðist ánægður með störf hans í embætti. Þá kom einnig fram að 34% aðspurðra töldu mögulegt að halda lýðræðislegar kosningar en 49% voru á öndverðum meiði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.