Morgunblaðið - 30.10.1993, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 30.10.1993, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993 27 Leikskólar sjúkrahús- anna lúta öðrum reglum eftir Ástu Möller í síðustu viku varpaði heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra bombu inn á um 700 heimili á Reylq'avíku- svæðinu er hann tilkynnti að ríkis- valdið myndi framvegis ekki taka þátt í kostnaði við rekstur leikskóla á vegum sjúkrahúsanna. Jafnframt bauð hann stjórnum sjúkrahúsanna að gera viðeigandi ráðstafanir, þ.e. segja upp starfsmönnum leikskól- anna og leikskólaplássum viðkom- andi barna. Foreldrar gera að öllu jöfnu ráð- stafanir að hausti hvernig barna- gæslu skuli háttað um veturinn. Tilkynning ráðherra heilbrigðis- og tryggingamála kollvarpaði öllum áætlunum viðkomandi foreldra og . barna, skapaði þeim mikið óöryggi og óvissu um hvað framundan er. Örugg barnagæsla — forréttindi? í umræðunni síðustu daga hefur l nokkuð verið fjallað um svokölluð forréttindi heilbrigðisstétta í tengsl- um við leikskólamál. Ef þannig er litið á, þá er örugg barnapössun fyrir forréttindahópa hin almenna regla hér í borginni, þar sem ein- stæðir foreldrar, námsfólk og fóstr- ur hafa í dag forgang að plássi í . leikskólum borgarinnar. Er það umhugsunarefni að örugg barna- pössun skuli teljast til forréttinda í dag. Lýsir þessi umræða betur ástandi leikskólamála í höfuðborg- inni en nokkuð annað. Ríkisspítalar og Borgarspítalinn hófu rekstur leikskóla fyrir starfs- menn sína fyrir um aldarfjórðungi. Astæðan var ónógt framboð á leik- skólaplássum hjá sveitarfélögum og skortur á faglærðu starfsfólki. Þessar ástæður eru jafngildar í dag og þær voru þá. Þarfir sjúklinganna ganga | fyrir Starfsemi sjúkrahúsa byggist á þjónustu við sjúklinginn allan sólar- hringinn, allan ársins hring og á vaktavinnukerfi, þar sem lítill möguleiki er á styttri vöktum en 8 tímum í senn. Varla þarf að taka það fram að leikskólar sjúkrahús- anna geta ekki lokað 5 vikur á sumri eins og aðrir leikskólar. Þá krefst starfsemi sjúkrahúsa þess að starfsfólk geti sveigt sig að þörf- um sjúklinganna með skömmum fyrirvara s.s. við bráðaveikindi, skurðaðgerðir og hópslys. Þannig eru til að mynda starfsmenn leik- skólanna jafn mikilvægur hluti af hópslysaviðbúnaði sjúkrahúsanna og heilbrigðisstéttirnar sem kallað- „Ríkisspítalar og Borg- arspítalinn hófu rekst- ur leikskóla fyrir starfsmenn sína fyrir um aldarfjórðungi. Astæðan var ónógt framboð á leikskóla- plássum hjá sveitarfé- lögum og skortur á fag- lærðu starfsfólki. Þess- ar ástæður eru jafngild- ar í dag og þær voru þá.“ ar eru til starfa. M.a. af framan- greindum ástæðum hafa sjúkra- stofnanir sett eigin reglur um notk- un heimilanna og um opnunartíma. Þessar reglur eru ekki hliðstæðar reglum sveitarfélaga. eftir Oddnýju S. Gestsdóttur Fóstrur leikskólans Sunnuhvols við Vífilsstaðaspítala gagnrýna harðlega þau vinnubrögð er heil- brigðisráðherra hefur viðhaft varð- andi uppsagnir starfsfólks og bama á leikskólum og skóladagheimilum sjúkrahúsanna. Vinnubrögð sem þessi eru til vansæmdar. Fóstmr vilja benda ráðherra á að starfsár leikskóla og skóladagheim- ila er frá 1. september til 31. ágúst. Næsta skólaár hefur því þegar verið skipulagt og koma uppsagnir sem taka gildi 1. janúar 1994 á versta tíma, þ.e. á miðju starfsári. Vinnu- brögð ráðherra lýsa því virðingar- leysi hans gagnvart fóstmm, börn- um á leikskólunum og skóladag- heimilum og því starfi sem þar fer fram. Heilbrigðisráðherra segir í bréfi til starfsfólks sjúkrahúsa, dagsettu 30. september 1993: „Viðræður um þessi mál munu væntanlega fara í gang nú þegar milli forsvarsmanna viðkomandi sveitarfélaga, stjórnenda sjúkrahús- anna og fulltrúa frá heilbrigðisráðu- neytinu um fyrirkomulag þessara mála í næstu og um lengri framtíð. Þess verður gætt að samráð verði Aðrar reglur í leikskólum sjúkrahúsa í reglum leikskóla sjúkrahúsanna kemur m.a. fram að starfstéttir sem mestur er skortur á á hveijum tíma ganga fyrir þegar ákvörðun er tek- in um hver fái leikskólapláss. Þá hefur barn starfsmanns í fullu starfi forgang um dvöl í leikskóla. For- eldramir hafa ekki aðgang að leik- skólum sjúkrahúsanna í barnsburð- arleyfum, í lengri veikindaleyfum og takmarkaðan aðgang í náms- leyfum. Þá hefur leikskólapláss fyr- ir barn starfsmanns oft verið bund- ið skilyrði um ráðningu á ákveðna deild þar sem skortur er á ákveð- inni starfstétt. Af þessu má sjá að foreldrar barna í leikskólum sjúkra- húsanna þurfa að sæta ýmsum kostum til að hljóta aðgengi fyrir börn sín. Sjúkrahúsin nota á þennan hátt leikskólana sem stjórntæki og hefur þeim tekist að nýta leikskól- ana til fullnustu. Enda hafa tölur sýnt að kostnaður við rekstur leik- „Viðræður hefðu þurft að fara fram milli nú- verandi rekstraraðila, væntanlegra rekstrar- aðila og starfsfólks áð- ur en til uppsagna kom.“ haft við fulltrúa starfsfólks um gang viðræðna og frekari upplýsingum miðlað jafn fljótt og tilefni er til.“ Það er nú að verða hálfur mánuð- ur frá því að allt starfsfólk leikskóla og skóladagheimila fékk uppsagnar- bréf og enn er ekki farið að bóla á neinum viðræðum um áframhald- andi störf okkar. Ef ráðherra heldur að það gangi að senda okkur bréf á síðasta degi uppsagnarfrests og tilkynna okkur hvort og þá með hvaða hætti rekstri leikskólans Sunnuhvols verði haldið áfram, er það misskilningur. Hvorki ráðherra né hugsanlegir nýir rekstr- araðilar geta gengið að því sem vísu að fóstrur sem hér starfa, muni verða til taks á fyrsta starfsdegi næsta árs ef ekki verður á næstu dögum greitt úr þeim hnút sem leik- skólamál sjúkrahúsanna hafa verið sett í. Ásta Möller skóla sjúkrahúsanna er síst meiri en hjá Davist barna í Reykjavík. Foreldrar barna á leikskólum sjúkrahúsanna greiða í dag sama gjald og hjá Dagvist barna í Reykja- vík. Heildarviðverutími barns for- eldris sem vinnur fulla vinnu á vökt- um er í hverri viku jafnvel styttri en barns sem er í reglulegri 4-6 tíma vistun á dag hjá Dagvist barna. Mál er snertir alla landsmenn Sjúkrahúsin í Reykjavík þjóna í okkar huga er það mjög alvar- legt mál að fá uppsagnarbréf, ekki síst fyrir þá sem unnið hafa í mörg ár hjá sömu stofnun og reynt hafa að rækja starf sitt af kostgæfni. Okkur þykir vænt um börnin sem við störfum með, samstarf við for- eldra hefur verið mjög gott og vinnu- staðurinn okkur því kær. Uppsögn kom því sem reiðarslag. Við fóstrur teljum að ef öðruvísi hefði verið að málum staðið, hefði mátt komast hjá miklum sárindum og þeirri upplausn sem nú ríkir á leikskólum og skóladagheimilum sjúkrahúsanna. Að okkar mati hefði þurft að gefa jafn umfangsmiklum rekstrarbreytingum og ráðgerðar eru mun lengri undirbúningstíma svo vel mætti takast. Viðræður hefðu þurft að fara fram milli núverandi rekstraraðila, væntanlegra rekstra- raðila og starfsfólks áður en til upp- sagna kom. Þær viðræður hefðu væntanlega getað skýrt út að fyrir börnin væri heppilegra að rekstrar- breyting sem þessi kæmi til fram- kvæmda á öðrum árstíma, þ.e. í lok skólaárs við upphaf sumarfrís barna og starfsfólks. -Almennt atvinnu- ástand er nú með þeim hætti, að a.m.k. þeir sem hafa fyrir fjölskyld- um að sjá, geta ekki beðið aðgerða- lausir á meðan uppsagnarfresturinn líður og ekkert gerist. Uppsagnir fóstra! sjúklingum af öllu landinu. Starfs- menn sjúkrahúsanna eru úr öllum nágrannasveitarfélögum Reykja- víkur. T.d. er þriðjungur barna á Borgarspítalanum með lögheimili utan Reykjavíkur. Þannig eru mál- efni leikskóla sjúkrahúsanna ekki eingöngu mál Reykjavíkurborgar heldur allra landsmanna. Af framangreindu má sjá að sér- staða sjúkrahúsanna hlýtur að kalla á sérstaka lausn á málefnum leik- skóla þeirra. Orð heilbrigðisráð- herra um að hann muni gæta þess að „sem minnst röskun verði á hög- un starfsfólks Ieikskólanna og þeirra barna sem þar njóta nú vist- ar“ vekja vonir. Hins vegar vænta foreldrar barna á leikskólum sjúkrahúsanna þess að viðrögð ráð- herrans verði skjót og úrræðin var- ^ anleg. Heilbrigðisráðherra ber ábyrgð á heilbrigðisþjónustu í landinu. Hætti heilbrigðisstarfsfólk, foreldrar um 700 barna á leikskólum sjúkrahús- anna í Reykjavík, störfum um næstu áramót verður ástand á sjúkrastofnunum verra en í nokkru verkfalli eða uppsögnum sömu starfstétta undanfarinna ára. Höfundur er formaður Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga. Oddný S. Gestsdóttir Við erum í þeirri stöðu að okkur hefur verið sagt upp störfum viðleik- skólann frá áramótum og ekkert bendir ennþá til þess að nýr rekstrar- aðili fáist frá þeim tíma. Við verðum því að leita okkur að öðru starfi en til þess þurfum við tíma. Við fóstrur á leikskólanum Sunnuhvoli, Vífilsstöðum, krefjumst3 því þess að eigi síðar en 1. nóvem- ber 1993 liggi ljóst fyrir hvað um leikskólann verður. Fyrir hönd fóstra leikskólans Sunnuhvols, Vffilsstöðum. Höfundur er leikskólastjóri leikskólans Sunnuhvols. 8 + i Utvarpsráð sammála um að allir séu sammála eftir Ara Gísla Bragason Það hefur verið spennandi að fylgjast með sjónvarpinu (þessu rík- isrekna) undanfarna mánuði. Hver nýbreytnin á fætur annarri. Innlenda dagskrárgerðin og framkvæmda- stjórn sjónvarpsins hafa látið hendur standa fram úr ermum og reynt að lífga stofnunina við. Ekki veitti af. Ein af nýjum starfsaðferðum sjón- varpsins hefur verið að gefa ungu fólki tækifæri til að spreyta sig við stjórn svonefndrar „þriðjudagsum- ræðu“ og hefur þetta jákvæða fram- tak vakið þjóðarathygli. Útkoman hefur verið tvenns konar, glæst eða döpur. Þeir glæstu sigra en þeir döpru læra af mistökunum. Þessi nýbreytni sjónvarpsins og aukin inn- lend dagskrárgerð, sem að hluta byggist á nálægð við fólkið í landinu okkar, hefur haft þær afleiðingar að horfun hefur aukist til muna. Þess vegna vakti það mikla athygli mína þegar ég var staddur á lands- fundi Sjálfstæðisflokksins og sá eft- irfarandi bókun útvarpsráðs borna upp af fulltrúa Sjálfstæðisflokksins tveim dögum fyrir formannskosn- ingu: „Samkvæmt 15. gr. útvarps- laga skal Ríkisútvarpið halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og mannréttindi og frelsi til orðs og skoðana. Það skal og gæta fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð. A liðnum vikum og mánuðum hefur Sjónvarpið sent út viðræðu- þætti, bæði í svokallaðri þriðjudags- umræðu og nú síðast í síðdegisum- ræðu á sunnudögum, þar sem þátt- takendur hafa nær eingöngu verið karlkyns með áþekk stjómmálavið- horf. Þættir þessir hafa flestir verið unnir á vegum skrifstofu fram- kvæmdastjóra Sjónvarps. Útvarps- ráð hefur ítrekað fundið að þessari framkvæmd Sjónvarpsins án þess að breyting hafi orðið á. Útvarpsráð átelur harðlega að Sjónvarpið skuli ekki við fram- kvæmd viðræðuþátta þessara taka mið af fyrmefndum ákvæðum út- varpslaga og felur útvarpsstjóra að sjá til þess að grundvallarreglur þessar séu í heiðri hafðar.“ Hvað hvatir liggja að baki slíkrar ályktunar? Útvarpsráð heldur því fram að þátttakendurnir hafi verið með áþekk stjórnmálaviðhorf. Ja hérna! Það er gott til þess að vita að Benedikt Davíðsson, Jón Steinar Gunnlaugsson, Ögmundur Jónasson, Óli Björn Kárason, Jón Baldvin, Mörður Ámason, Björn Bjarnasön, Kristrún Heimisdóttir, Helga Krist- Ari Gísli Bragason jánsdóttir, Gunnlaugur Júlíusson, Albert Jónsson, Guðmundur Hálf- danarson, Drífa Hjartardóttir, Már Guðmundsson, Hörður H. Helgason og Flosi Eiríksson, svo nokkrir þátt- takenda séu nefndir, séu með áþekk- ar stjórnmálaskoðanir eins og segir í ályktuninni. Ríkisútvarpið er meira sameiningarafl en ég hugði. Þeir sem til þekkja hafa tjáð mér að erfiðara sé að fá konur í umræðu- þætti í sjónvarpi en karla. Þá er það leiðinleg staðreynd að karlar gegna enn sem komið er fleiri ábyrgðar- stöðum í þjóðfélaginu en konur og því ekki óeðlilegt þótt karlar séu meira áberandi { þjóðfélagsumræð- unni. Það vakti furðu mína og viðmæl- enda minna hvaða hugur, hvaða ástæður lægju á bak við slíka bók- un. Er þetta samstaðan sem sjálf- stæðismenn í útvarpsráði, Davið Stefánsson, Dögg Pálsdóttir og Hall- dóra Rafnar, sýna þegar jafn um- deildur og úthúðaður listamaður að nafni Hrafn Gunnlaugsson er að beijast fyrir jákvæðri nýbreytni inn- an stofnunar? Ríkisstofnunar sem var að lognast útaf en er nú lifnuð við svo um munar. Það er athyglisvert að þegar út- varpseftirlit flokkanna fer að ger(P" þátttakendum í umræðuþáttum Rík- isútvarpsins upp stjórnmálaskoðanir með þessum hætti, skuli vera byijað á þeim sjónvarpsþáttum sem skrif- stofa framkvæmdastjóra sér um. Taka ritskoðunarsinnarnir næst fyr- ir Dagskrá Rásar 2 eða fréttastofu útvarpsins? Höfundur er sagnfræðinemi og fæst við ritstörf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.