Morgunblaðið - 30.10.1993, Síða 40

Morgunblaðið - 30.10.1993, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993 /,Mér þykzir Leitt meá cdLan. kdi/CÚa, hr. Jórvxs. 7-Lann er fcom'mn, hingCiS maétir/'nn sem fann. upp áita - ■fóicp sjóni/arp/á'.'' i______________ii T T »21 II Rósa, við verðum að hætta að hittast svona. Konan mín er farin að undrast af hverju ég- sel aldrei eina einustu blöðru HÖGNI HREKKVÍSI Ást er ... að missa matarlyst þegar hann er fjarri. TM Reg, U.S Pat Oft. — all rights reserved ° 1993 Los Angeles Times Syndicate Með morgunkaffinu Af hverju ertu alltaf svona öfugsnúin? BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 „Mannsmynd var á þeim“ Frá Einari Ingva Magnússyni: NÚ FER AÐ líða að hinni alþjóð- legu ráðstefnu um fljúgandi furðu- hluti, sem haldin verður hér á landi 4.-6. nóvember 1993. Mér þykir því bæði rétt og skylt, og ekki síður ljúft, að mega minna fólk á nokkur orð, sem staðið hafa í Biblíunni í aldaraðir. Þess ber að geta að hugmyndir manna um líf víðar en hér á þess- ari jörð eru alls ekki nýjar af nál- inni. Arfsagnir indíánanna í Amer- íku tala um „anda“ frá stjörnunum og forfeður sem fóru á milli stjarn- anna. Á 15. öld skrifar Englend- ingur um það hversu fáránlegt það sé að ætla að eingöngu þessi eina pláneta, sem við byggjum í hinum víðáttumikla geimi, sé byggð lífi. Hingað til hafa menn á okkar skeiði túlkað fornar arfsagnir þjóða, þ. á m. Israelsmanna og gyðinga á dögum Krists, um „fljúgandi furðuhluti" sem sýnir eða jafnvel Ijóðrænar frásagnir, sem eingöngu séu runnar úr hug- arelfi skálda. Tæknivæðing okkar tímaskeiðs hefur þó opnað augu margra manna fyrir áþreifanlegri mögu- leika, en það sem prófessorar og aðrir lærdómsmenn í guðfræði nefna ljóðmál. Hernaðaryfirvöld hafa orðið vör við fyrirbærin á mælitækjum sínum, og ekki ein- ungis séð þau með eigin augum, sem almenningur verður þó oftast að láta sér nægja. Margar áreiðan- legar heimildir eru fyrir því að fólk hafi komist í náin kynni við þessar geimverur, eins og hinar fornu sagnir greina frá. I spádómsbók Daníels segir um hina síðustu daga: „... Daníel, halt þú þessum orðum leyndum og innsigla bókina, þar til að enda- lokunum líður. Margir munu rann- saka hana og þekkingin mun auk- ast.“ (Daníel 12:4.) Svo er sagt um þann sem við Daníel talaði, að „líkami hans var sem krýsolít, ásjóna hans sem leiftur, augu hans sem eldblys, armleggir hans og fætur sem skyggður eir og hljóm- urinn af orðum hans eins og mik- ill gnýr“. (Daníel 10:6.) Augu okkar eru að ljúkast up fyrir staðreyndum, sem gamlir fræðimenn okkar tíma hafa hingað til kallað ljóðmæli. Þegar kvikmyndaiðnaðurinn hefur fært okkur myndir af geim- verum hafa þær verið ólíkar mönn- um í útliti, en þó einhver manns- mynd á þeim. Það er líka alveg hárrétt. Þegar Esekíel komst í náin kynni við geimverur segir svo frá í Gamla testamentinu: „Storm- vindur kom úr norðri og ský mik- ið, sem hnykklaðist saman og stóð af því bjarmi umhverfis, og út úr honum sást eitthvað sem glóði eins og lýsigull. Út úr honum sáust myndir af fjórum verum. Og þetta var útlit þeirra: Mannsmynd var á þeim.“ (Esekíel 1:4-5.) Mörgum öldum seinna segir í Opinberun Jóhannesar í Nýja testamentinu: „Ég sneri mér við til að sjá hvers raust það væri sem við mig talaði. Og ég sneri mér við og sá sjö gullljósastikur og milli ljósastikanna einhvern líkan mannsyni ... og augu hans voru eins og eldslogi.“ (Opinb. 1:12-16.) Raust hans var sem niður mikilla vatna. í 2. kapítula, versi 18., segir svo: „Þetta segir sonur Guðs, sem augun hefur eins og eldsloga og fætur hans eru líkir glómálmi.“ Það er því alls ekki ólíklegt að ætla að allar þessar frásagnir greini frá Jesú Kristi. Enda hafa margir borið því vitni að hafa hitt Hann sjálfan, þegar þeir hafa ver- ið teknir um borð í „fljúgandi furðuhlut", eða m.ö.o. Dýrð Drott- ins. En í Lúkasarguðspjalli segir: „... meðan Hann var að blessa þá, skildist Hann frá þeim og var upp numinn til himins.“ (Lúkas 24:51.) Kristur gaf það fýrirheit ásamt fjölda annarra fyrirheita að koma aftur. Fylgst hefur verið með mannkyninu frá upphafi vega, og þó að Kristur hafi farið til himna er hann enn á meðal okkar. Bibl- ían segir svo frá. En nú er komið áð enn merkari tímamótum, sem eru endurkoma Krists. Kannski á sá atburður, þegar geimverur hafa boðað komu sína við Snæfellsjökul 5. nóvem- ber, eftir að varpa skírara ljósi á þann atburð sem endurkoma Krists er, hvenær sem það verður. Eitt er þó víst að hún er eigi langt undan. Að lokum má kannski geta þess, hvar bréf þetta er fært í letur. Það er skrifað í tímamótatákni hinna miklu viðburða sem í vændum eru, Perlunni á Öskjuhlíð. Hún er merkileg að útliti, og ekki síst fyrir þau áhrif að hún geislar frá sér á stjörnubjörtu kvöldi. Minnir hún á margt um dýrð Drottins og hver veit nema einhver kosmísk áhrif hafí staðið á bak við hönnun þessa mikla mannvirkis með tilliti til hinnar komandi alþjóðlegu ráð- stefnu sem haldin verður hér á landi um geimverur. EINARI INGVI MAGNÚSSON, Heiðargerði 35, Reykjavík. Víkverji skrifar Nýlokið er landsfundi Sjálfstæð- isflokksins og virðist svo sem fundurinn hafi gengið vel og sjálf- stæðismenn séu ánægðir með lyktir mála á fundinum. Bráðsnjallt var að sjónvarpa umræðum á fundinum á sjónvarpsstöðinni Sýn, þannig að þeir, sem áhuga höfðu á, gætu horft og hlýtt á það sem fram fór. Á sviðinu, þar sem háborð fund- arins var, hafði verið komið fyrir einkunnarorðum fundarins og þar hékk einnig merki flokksins, fálkinn góði með þanda vængi. Fálkinn var einnig á ræðustól flokksins, útskor- inn og gylltur og mun ræðustóll þessi hafa verið í gamla sjálfstæðis- húsinu við Austurvöll á sínum tíma, a.m.k. man Víkveiji fyrst eftir hon- um þar. Þessi fálki er mjög glæsi- legur og sómir sér vel sem merki flokksins. En það vakti athygli Víkverja, að nú hefur verið gert nýtt merki, fálkinn góði endurhannaður og gerður upp á nýjan móð. Nokkur ár munu siðan þessi iiýja gerð fálk- ans sá dagsins ljós og er hún í raun ekki illa gerð, þótt gamli fálkinn sé að mati Víkvetja miklu betri og raunar svo góður að ástæðulaust hafi verið fyrir flokkinn að leggja peninga í endurhönnun hans. Einn ljóður er þó sýnu verstur á nýja fálkanum. Hann snýr öfugt, snýr sér til vinstri á meðan sá gamli snýr sér til hægri. Kannski er þetta tímanna tákn fyrir Sjálfstæðis- flokkinn, en flokkur sem vill kenna sig við íhald á ekki að láta snúa út úr merki sínu með þessum hætti. xxx Kunningi Víkveija lenti í því um daginn, að fara með bifreið sonar síns í skoðun og þar sem bif- reiðaskatturinn var gjaldfallinn byrjaði kunninginn á þvi að fara í Landsbankann ogs greiða skattinn. Því næst fór hann í Bifreiðaskoðun- ina og ætlaði að fá skoðun, en þá var hann gerður afturreka þar, þar sem Landsbankipn hafði ekki til- kynnt að greiðsla hefði verið innt af hendi. Ekkert mark var tekið á því, þótt framvísað væri gíróseðli með stimpli Landsbankans. Um það bil hálfum mánuði síðar og þá löngu eftir skoðun bílsins kom svo lögregl- an heim til bíleigandans til þess að gera lögtak í bílnum fyrir ógreidd- um skatti. Hvað er um tölvuboðleið- ir hins opinbera? Víkvetji var svo skyni skroppinn að halda að um leið og greitt væri i banka myndi vera unnt að senda boð til viðkom- andi innheimtuaðila um greiðslu og það gæti ekki hent að hálfum mán- uði síðar gerði hann lögtak til lúkn- ingar löngu greiddra skulda. Og svo er spurning, hvers vegna Bifreiða- skoðunin virðir stimpla Landsbank- ans að vettugi. Fréttir herma að fjöldi ótryggðra bíla sé í umferð á landinu. Ástæðan sé sú að tryggingafélögin segi upp skyldutryggingunni við bifreiðaeigandann, þegar nokkur tími er liðinn frá því er hann átti að greiða iðgjaldið, sé það ógreitt. Sendir þá tryggingafélagið tilkynn- ingu til lögreglunnar og óskar eftir því að bifreiðin sé tekin úr umferð. Fæsta bílana mun svo lögreglan finna, svo að þeir halda áfram að aka um götur ótryggðir. Þessi lýsing, sem gefin hefur verið, stenzt alls ekki. Um er að ræða skyldutryggingu og sé iðgjald ekki greitt verður tryggingafélagið að sjá til þess, að bifreiðin sé tekin úr umferð. Ekki er unnt að varpa ábyrgðinni yfir á lögregluna eða hvað? Á þá bíleigandi, sem lendir í árekstri við ótryggðan bíl, endur- kröfu á lögregluna, sem stendur sig ekki í því að taka bifreiðina úr umferð? Þetta er lagaleg spurning, sem áhugavert gæti verið að fá svar við. Hvernig getur svo tryggingafé- lagið sagt upp skyldutryggingu við aðila, sem næst ekki í? Það hlýtur að vera grundvallaratriði að við- komandi viðskiptavini sé tilkynnt uppsögnin. Þetta er spurning, sem einnig ber að hafa í huga og hvort víst sé að tryggingafélagið sé laust allra mála, fyrr en tryggt er að bifreiðin sé ekki lengur í umferð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.