Morgunblaðið - 30.10.1993, Side 43

Morgunblaðið - 30.10.1993, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993 43 E m m aftur til 1 *ór? Guðmundur Steins- son íviðræðum við Þórsara Bjarni Sveinbjörnsson, framheiji ÍBV, er samkvæmt heimildum Morgunblaðsins á leið til Þórs á Akureyri. Bjarni gekk til liðs við Eyjamenn fyrir síðasta tímabil frá Þór og er því á heimleið aftur. Bjarni gerði fimm mörk fyrir ÍBV i sumar. Guðmundur Steinsson, sem hefur leikið þrjú síðustu ári með Víkirtg- um, var á Akureyri í gær og ræddi þar við forráðamenn Þórs. Guð- mundur hefur áhuga á að leika áfram í 1. deild, en hann hefur einn- ig verið orðaður við Fram og Breiðablik. FOLX ■ MANCHESTER City keypti í gær miðheijann Carl Griffiths frá Shrewsbury á 500 þús. pund. Griffiths, sem er 22 ára, hefur skorað 53 mörk í 171 leik. ■ KEVIN Keegan fundaði með Andy Cole í gær, eftir að fréttir voru uppi um að hann væri með heimþrá — vildi aftur til London, en Cole er uppalinn hjá Arsenal, sem er á höttum eftir markaskor- ara. „Ég átti góða stund með Cole, sem ætlar að vera hér næstu þijú árin eins og ég,“ sagði Keegan. ■ CHELSEA hefur fengið Mark Stein, miðheija Stoke til liðs við sig. Kaupverðir er 1,5 millj. pund. ■ PHIL Neal, framkvæmdastjóri Coventry, keypti sinn fyrsta leik- mann til félagsins í gær — borgaði Rotherham 85 þús. pund fyrir varnarmanninn Ally Pickering. I NOTTINGHAM Forest hefur hug á að kaupa norska landsliðs- manninn Lars Bohinen frá Lil- leström, sem hefur verið þar í láni frá svissneska félaginu Yo- ung Boys. Bohine er 24 ára mil- vallarspilari og er kaupverð hans 450 þús. pund. ■ TIM Flowers, markvörður So- uthampton, sem á einn landsleik að baki fyrir England, virðist á leiðinni til Blackburn. Líklegt kaupverð eru 2 milljónir punda, andvirði 210 milljóna króna, sem er helmingi meira en nokkum tíma hefur verið greitt fyrir markvörð í Englandi. ■ LIVERPOOL er einnig á hött- unum eftir Flowers, og hefur Gra- eme Souness, stjóri liðsins, boðið David James, markvörð landsliðs 21 árs og yngri, í skiptum og reiðufé að auki, en Southampton líst betur á að fá einungis beinharða peninga. Sigurður áfram með Skagamönnum Skrifaði undir þriggja ára samning við ÍA í gærkvöldi Sigurflur J, Sigurður Jónsson verður áfram í herbúðum íslandsmeistara Akra- ness, en hann hætti við að fara til Svíþjóðar í gær, til að ræða við forráða- menn Hácken, eins og hann ætlaði sér. Sigurður skrifaði í gærkvöldi undir þriggja ára samning við ÍA og mun hann jafnframt því að leika, vera starfs- maður knattspymufélagsins — sjá um ungiingaþjálfun. „Það er vissu fargi af mér létt, að Sigurður hafí ákveðið að vera áfram heima,“ sagði Gunnar Sigurðsson, for- maður knattspymufélagsins, eftir að Sigurður hafði tekið ákvörðun sína og skrifað undir samninginn. Sigurður sagði að það hafí verið tími til komin að festa rótum — hætta að hugsa um flakk. „Ég ætia mér að vera með i baráttunni næstu þijú árin og það í meistarabaráttu. Við eigum titil að veija og það kaupir hann ekkert félag af okkur, sem nú em að safna liði, af okkur. Framtíðin er björt á Akranesi, eins og áður — það em marg- ir ungir og stórefnilegir leikmenn sem koma til með að banka á dymar hjá meistaraflokki á næstu áram,“ sagði Sigurður Jónsson. HANDKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Kristinn Aleksandr Tutschkin, sem hefur skorað yfir 50 mörk í sex leikjum, og markvörðurinn sterki Stefan Hecker á æfíngu í Kaplakrika í gærkvöldi. Essen-liðið æfði fyrir luktum dymm. Verða að keyra á fullu - ef FHingar ætla að leggja Essen að velli," segir Héðin Gilsson „ESSEN-liðið getur verið brot- hætt og þá sérstaklega á úti- völlum, en FH-ingar verða að ná góðum leik til að brjóta leik- menn liðsins á bak aftur,“ sagði Héðinn Gilsson, lands- liðsmaður hjá Dússeldorf, þeg- ar hann spáði í möguleika FH í Evrópuleiknum gegn Essen í Kaplakrika í dag. Það em tveir leikmenn sem hafa borið liðið uppi að undanförnu — Rússinn Aleksandr Tutsckin og markvörðurinn Stefan Hacken, sem hafa leikið mjög vel. Essen-liðið er þó ekki eins sterkt og í fyrravetur — og þá hefur það einkennt leik liðsins, að leikmennirnir hafa ekki náð sér á strik á útivöllum. Flfying- ar verða að vinna Essen með fimm til sex marka mun til að eiga mögu- leika á að komast áfram. Essen tapaði fyrir Hameln í vikunni með átta marka mun á útivelli og sýndi lélegan leik. Ég sá félagið leika gegn Grosswallstad á dögunum og var Essen þá yfír, 12:8, í leikhléi og Tutschkin þá búinn að skora sex mörk. í seinni hálfleik var hann tekinn úr umferð og undir lokin var Essen heppið að sleppa með jafn- tefli. Möguleikar FH-liðsins byggjast á því að leikmenn liðsins verða að keyra á fullu allan leikinn — þeir verða að ráða hraðanum, en ekki detta niður á of yfirvegaðan leik. Já, FH-ingar verða að ná mjög góðum leik til að vinna Essen, en leikmenn liðsins eru ekki góðir þeg- ar illa gengur — þá fara þeir oft að þrasa í hvor öðrum,“ sagði Héð- inn Gilsson. Rennum biint í sjóinn - segir Einar Þorvarðarson, þjálfari Selfoss Einar Þorvarðarson, þjáifari Selfyssinga, segir að þeir renni blint í sjóinn þegar þeir mæta RV „Itu“ Unan í Króatíu í Evrópukeppni bikarhafa í kvöld. „Við vitum ekkert um liðið, en reiknum með að það leiki dæmigerðan handknattleik, eins og hann hefur verið þekktur í Júgóslavíu í mörg ár — 3-2-1 vöm og léttleikandi sóknarleik. Við reynd- um að stjóma hraða leiksins og ætlum okkur að ná hagstæðum úrslit- um fyrir heimaleik okkar á Selfossi," sagði Einar. Selfyssingar komu til Króatíu í fyrrinótt, eftir flug til Mílanó, með millilendingu í Amsterdam. Frá Mílanó fóru þeir í langferðabíl til Krótatíu og tók sú ferð sex kiukkustundir. Það fer nyög vel um leik- menn í tíu þúsund manna ferðamannabæ við Adríahafíð. Páll á sjó frá Eyjum og með flugi til baka Páll Ólafsson var heldur betur á faraldsfæti í gær, en í gærmorgun kom hann með Heijólfi frá Eyjum — fór síðan aftur með flugi til Eyja. Ástæðan fyrir þessu var að Páli fór snemma á miðvikudag til Eyja, því að hann þurfti að sinna erindum vegna vinnu sinna. Ófært var til Eyja síðar um daginn, þannig að félagar hans úr Haukum komust ekki til að leika — og heldur ekki á fímmtudaginn; og Páll enn í Eyjum. Þegar Páll sá að ófært var í gærmorgun, var honum hætt að lítast á blikuna og fór því með Heijólfi til lands — til Þorlákshafnar. Hann var vart stiginn upp úr bátnum, þegar fært var til Eyja. Varð hann að hafa hraðann á — koma sér til Reyjkavíkur, slást í för með félögum sínum og fljúga til Eyja. Páll náði sér aldrei á strik í leiknum — skoraði eitt mark. Þjálfara- skipti hjáÞór Erlendur Hermanns- son er hættur og Jan Larsentekurvið FYRSTU deildarlið Þórs á Akur- eyri hefur skipt um þjálfara. Daninn Jan Larsen, sem þjálf- aði liðið m.a. ífyrra, hefur tek- ið við af Erlendi Hermannssyni. Stjóm handknattleiksdeildar Þórs ákvað á fundi sínum á fimmtudag að skipta um þjálfara. „Það var ákveðið að Erlendur léti af störfum og Jan Larsen tæki við,“ sagði Árni Gunnarsson, formaður handknattleikdeildar. Larsen var þjálfari liðsins í 1. deild í fyrra og tvö ár þar á undan í 2. deild. Hann er búsettur á Akureyri og hefur verið starfandi unglingaþjálfari hjá félaginu í vetur. Ámi sagði að samhliða þjálfara- skiptunum var gerður samningur við alla leikmenn liðsins um að þeir_ skuldbindi sig til að vera áfram hjá félaginu til vorsins 1995. Óvæntí Eyjum Eg er ánægður — þetta sýnir að við getum gert góða hluti. Að- eins spuming um hugarfar og von- andi liggur leiðin nú uppávið,“ sagði Sig- bjöm Óskarsson, þjálfari EyjamannST sem urðu fyrstir til að taka stig af Haukum, með því að gera jafntefli 27:27 í Eyjum i gær- kvöldi. „Þetta var þessi erfíði leikur, sem við vissum að kæmi fyrr en síðar. Það setti óneitanlega strik i reikning- inn að leiknum var frestað í tvígang og við vissum því aldrei hvort við væram að fara, æfa eða leika. Við vorum klaufar að tapa unnum leik niður í jafntefli,“ sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari Hauka. Það sást fljótt í leiknum, að Eyja- menn ætluðu ekki að gefa eftir. Þeh- léku framarlega í vörninni, þil að stöðva sóknarlotur Hauka í fæðingu, Eyjamenn höfðu aðeins einu sinni yfir í leiknum, í byijun, en þeir gáf- ust ekki upp og jöfnuðu, 27:27, þeg- ar ein og hálf mín. var til leiksloka. Haukar sóttu undir lokin, en þegar átján sek. voru til leiksloka, var dæmdur ruðningur á þá. Þar mi voru þeir ekki lengur með fullt hús stiga. Sigfús G. Guðmundsson skrífar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.