Morgunblaðið - 30.10.1993, Page 44
símG691WotsÍMBRÉFNG9ít81, ’pÓSTHÓLF^toio'/ AKVREYRI; HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Samræmdar aðgerðir ríkisstjórnar og Seðlabanka íslands til lækkunar vaxta
Raunvaxtastig ríkisbréfa
lækki í 5% á næstu vikum
Verðtryggð skuldabréf fyrir nokkuð á annan milljarð króna voru seld í gær
MEÐ samræmdum aðgerðum stefnir ríkisstjórn Davíðs Oddssonar
að því að raunvextir lækki hér hratt og örugglega, þannig að vextir
1 af verðtryggðum ríkisskuldabréfum verði á bilinu 5% til 5,5% þegar
líða tekur að áramótum. Helsta tæki sem stjórnvöld munu beita á
fjármagnsmarkaðinum til þess að ná þessum árangri er sú ákvörðun
að selja ekki ríkisskuldabréf á innlendum markaði, nema fjárfestar
r ——síetti sig við 5% vexti á verðtryggðum bréfum. Að öðrum kosti mun
ríkissjóður leita í auknum mæli á erlendan lánamarkað. Auk þess
mun Seðlabankinn beita sér með öflugum hætti á eftirmarkaði fyrir
spariskirteini. Nái markmið ríkisstjórnarinnar um vaxtalækkanir
fram að ganga má gera ráð fyrir að t.d. meðalvextir af verðtryggð-
um bankalánum lækki úr 9,4% í 7,4% og vextir af verðtryggðum
húsnæðissparnaðarreikningum lækki úr 6,6% í 4,6%. Samsvarandi
2% lækkun ætti að verða á vöxtum óverðtryggðra bankalána.
Mikil eftirspurn myndaðist á
verðbréfamarkaði eftir verðtryggð-
um skuldabréfum strax í gærmorg-
un og seldust bréf fyrir nokkuð á
annan milljarð í gær. Þar af seld-
ust ríkisskuldabréf á Verðbréfa-
þingi fyrir um 700 milljónir fyrir
hádegi þegar Seðlabankinn dró til
baka sölutilboð sín.
Samræmdar aðgerðir stjórnvalda
og Seðlabanka voru kynntar á
fréttamannafundi í gær, þar sem
Davíð Oddsson forsætisráðherra,
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra, Sighvatur Björgvinsson við-
skiptaráðherra, Jóhanna Sigurðar-
dóttir félagsmálaráðherra og Jón
Sigurðsson seðlabankastjóri sátu
fyrir svörum.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði m.a. í gær: „Markmiðið með
þessum aðgerðum er að tryggja að
raunvextir lækki hér úr rúmlega
7% niður í 5% og lækkun verði jafn-
framt á nafnvöxtum."
Verulegar vaxtalækkanir fyrir
11. nóvember
Fyrstu viðbrögð viðskiptabank-
anna við samræmdum aðgerðum
ríkisstjómarinnar eru mjög jákvæð
og gefa til kynna að raunvaxta-
lækkun muni verða umtalsverð á
næstunni. Sverrir Hermannsson
bankastjóri Landsbankans, sagði
m.a. í samtali við Morgunblaðið í
gær: „Ég tel þetta vera fyrstu al-
vörutilraunina til þess að hafa áhrif
á vaxtastig með markaðsaðgerðum,
en ekki handafli."
Stjórnvöld og Seðlabanki íslands
gerðu sér vonir um að viðskipta-
bankarnir myndu þegar í stað
ákveða vaxtalækkanir á verð-
tryggðum innlánsreikningum sín-
um, í kjölfar þess að ríkisstjómin
kynnti í gær samræmdar aðgerðir
til þess að lækka vexti, sem sam-
þykktar voru á fundi ríkisstjórnar-
innar í gærmorgun. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins var
forsvarsmönnum viðskiptabank-
anna boðið í fyrradag að fresta því
þar til á morgun að tilkynna vaxta-
breytingar sínar, sem taka gildi á
mánudag, þann 1. nóvember, en
einungis Búnaðarbankinn var reiðu-
búinn til þess að taka ákvörðun um
stórfellda vaxtalækkun, þegar á
morgun, en íslandsbanki og Lands-
banki munu, samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins hafa ákveðið
að bíða og sjá hver þróunin verður
á eftirmarkaði. Almennt er búist
við að viðskiptabankamir taki
ákvarðanir um vemlegar vaxta-
lækkanir, fyrir næsta vaxtabreyt-
ingardag, sem er 11. nóvember
næstkomandi, en vaxtaákvörðun
verður tekin þann 10. nóvember.
Nafnvextir óverðtryggðra útlána
banka og sparisjóða lækka því nú
á mánudag um 2% að meðaltali.
Landsbankinn lækkar einnig inn-
lánsvexti um 1,5% á kjörbók Lands-
bankans, íslandsbanki hreyfír ekki
innlánsvexti sína, en lækkar vexti
á óverðtryggðum útlánum um 1 til
2% eftir lánaflokkum.
Sjá einnig miðopnu og bls. 24.
Hafnir neita frek-
ari kvótakaupum
Á ÁRSFUNDI Hafnasambands sveitarfélaga kom fram að hafnirnar
eru látnar taka þátt í kvótakaupum útgerðarmanna með því að
greiðslur fyrir kvótakaupin eru dregnar frá aflaverðmæti skipanna
áður en gjald til hafnanna er reiknað. f ályktun fundarins kemur
fram að hafnirnar geta ekki sætt sig við þetta.
Á ársfundinum, sem haldinn var
á Höfn í Hornafirði í gær og fyrra-
dag, var ákveðið að leggja til að
hafnirnar héldu gjaldskrám sínum
óbreyttum. Sturla Böðvarsson, for-
maður sambandsins, segir að þetta
hafi verið ákveðið þrátt fyrir að
útreikningar á afkomu þeirra sam-
■ícvæmt hefðbundnum aðferðum
sýndi að gjaldskráin hefði þurft að
hækka um 6,6%. Fiskihafnirnar
ætla að reyna að ná mn
tekjum með því að neita að taka
þátt í kvótakaupum. Sturla sagði
að hafnir yrðu einnig að draga úr
þjónustu sinni, viðhaldi hafnar-
mannvirkja og framkvæmdum.
Rafmagnsveitur ríkisins kynntu
á fundinum nýja gjaldskrá fyrir
rafmagn sem selt er til skipa í höfn-
um. Skiparafmagnið mun lækka í
verði um 25-30%.
Greitt fyrir vaxtalækkun
JÓHANNA Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra, Davið Oddsson,
forsætisráðherra, Sighvatur Björgvinsson, viðskiptaráðherra og Jón Sigurðsson, seðlabankastjóri, kynntu
samræmdar aðgerðir stjórnvalda og Seðlabanka til vaxtalækkunar á blaðamannafundi í gær.
Afkoma Landsbankans fyrstu níu mánuði ársins
Hagnaðurinn 260,5
milljónir eftir skatta
HAGNAÐUR Landsbanka Islands eftir fyrstu níu mánuði þessa árs,
var 260,5 milljónir króna eftir áætlaða skatta, samkvæmt níu mán-
aða bráðabirgðauppgjöri bankans. Rekstursafkoma Landsbankans
er þannig um 270 milljónum króna betri þessa fyrstu níu mánuði
ársins, borið saman við sama tímabil á liðnu ári. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins úr Landsbankanum, voru 1237 milljónir króna
lagðar í afskriftasjóð bankans fyrstu níu mánuðina, eða um 337
milljónum króna hærri upphæð, en áætlað var í upphafi árs að lagð-
ar yrðu fyrir á öllu árinu í afskriftasjóð.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins voru ýmsar tekjur
Landsbankans frá janúar til sept-
ember 104 milljónum króna hærri
en á sama tíma í fyrra, launakostn-
aður bankans hefur dregist saman
um 80 milljónir króna, eða 4,72%
fyrstu níu mánuðina, en í því sam-
bandi er rétt að geta þess að áhrifa
af uppsögnum 64ra starfsmanna
Landsbankans frá því í sumar er
enn ekki farið að gæta í afkomu-
tölum bankans, vegna áhrifa upp-
sagnarfrests.
Annar rekstrarkostnaður Lands-
bankans fyrstu níu mánuði ársins
reyndist vera 112 milljónum króna
lægri eða 9% lægri en fyrstu níu
mánuði ársins 1992. Vaxtamunur
Landsbankans þetta tímabil reynd-
ist vera 236 milljónum króna hærri
en í fyrra.
Greiðslur í afskriftasjóð
auknar
Landsbankinn greiddi 346 millj-
ónum króna hærri upphæð inn á
afskriftareikning bankans þetta
tímabil, en á sama tíma í fyrra.
Afskriftasjóður Landsbankans í
árslok í fyrra var 5,3 milljarðar
króna og samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins er áætlað að reikn-
ingurinn standi í um 6,7 milljörðum
króna í árslok í ár.
í upphafi þessa árs töldu endur-
skoðendur Landsbankans að nægi-
legt yrði að leggja 75 milljónir
króna á mánuði í afskriftasjóð, en
ákvörðun var tekin um mitt ár, um
að hafa greiðslurnar umtalsvert
hærri, eða um 140 milljónir króna
að meðaltali á mánuði. Þannig hafði
Landsbankinn lagt í afskriftasjóð
eftir fyrstu níu mánuði þessa árs
1237 milljónir króna. Landsbankinn
áætlar að auka greiðslur sínar í
afskriftasjóð, það sem eftir lifir
ársins í varúðarskyni, vegna þess
hversu áhrif kvótaskerðingar eigi
eftir að segja til sín og sýna sig í
versnandi fjárhagsstöðu sjávarút-
vegsfyrirtækja um land allt. Þannig
munu stjómendur bankans stefna
að því að 1600 til 1700 milljónir
króna. yerði á þessu ári lagðar í
afskriftasjóð Landsbankans, í stað
900 milljóna, eins og upphaflegar
áætlanir gerðu ráð fyrir.
Sigurður hiá
ÍA enÓlaf-
ur til ÍBK
SIGURÐUR
Jónsson, besti
leikmaður ný-
afstaðins Is-
landsmóts í
knattspyrnu,
undirritaði i
gær samning
til þriggja ára
við Iþrótta-
bandalag
Akraness. Talið er víst að
Ragnar Margeirsson, leik-
maður KR, muni á næstu dög-
um ganga til liðs við ÍBK.
Ragnar hóf feril sinn hjá ÍBK,
eins og Ólafur Gottskálksson
markvörður, sem ljóst er að ekki
leikur með_ áfram með KR. Er
talið að Ólafur muni einnig
semja við ÍBK og leika með lið-
inu í stað Ólafs Péturssonar
markvarðar sem mun næstu
daga fara norður til Akureyrar
að kynna sér aðstæður hjá Þór.
Sjá íþróttir, bls. 42 og 43.
Sigurður