Morgunblaðið - 12.12.1993, Síða 2
2 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1993
EFNI
Þorvaldur í Síld og fiski
Niðurstað-
an ráðgáta
„ÞETTA kemur okkur mjög á
óvart. Stafylokokkar hafa aldrei
fundist í nokkurri einustu vöru-
tegund frá okkur. Þetta hljóta að
vera mistök," sagði Þorvaldur
Guðmundsson hjá Síld og fiski, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Einnig var greint frá 17,3% hlut-
falli umframvatns í hryggjum frá
Goða í blaðinu í gær. Sagði fram-
kvæmdastjóri Goða það ekki sam-
rýmast gæðakröfum þeirra.
í niðurstöðu könnunar Rannsókn-
arstofnunar landbúnaðarins, sem
birtist í Morgunblaðinu í gær, kom
fram að hryggur með beini frá Síld
og fiski reyndist ekki söluhæfur
vegna fjölda stafylokokka sem rann-
sóknin leiddi í ljós. „Þetta kemur
okkur algerlega í opna skjöldu. Við
erum með fullkomnustu kjötvinnslu
á . landinu, það er okkur ráðgáta
hvernig þetta má vera. Þetta hljóta
að vera einhvers konar mistök,“
sagði Þorvaldur.
• Einnig reyndist hlutfall viðbótar-
vatns úr pækli í hryggjum frá Goða
17,5% samkvæmt niðurstöðu könn-
unarinnar. Helgi Ó. Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri Goða, sagði 1 samtali
við Morgunblaðið a^ð við vinnslu á
svínahryggjum fyrirtækisins væri
fylgt mjög nákvæmum gæðastöðlum
og þeir ættu því ekki að innihalda
mikið viðbótarvatn. Þetta tiltekna
sýni benti til fráviks og yrði skýringa
leitað á því hjá rannsóknarstofu fyr-
irtækisins, sem hefði eftirlit með
daglegri framleiðslu.
Ásgeir er
á óskalista
Stuttgart
Frá Bergljótu Friðriksdóttur, frétta-
ritara Morgunblaðsins í Stutgart.
ÁSGEIR Sigorvinsson hefur
verið nefndur sem líklegur
aðstoðarþjálfari Uli Stielike
hjá úrvalsdeildarliðinu Stuttg-
art í Þýskalandi, en Cristoph
Daum lét af störfum hjá liðinu
í fyrrakvöld. Samkvæmt upp-
lýsingum blaðsins er þó ólík-
legt að af þessu verði þar sem
Ásgeir er önnum kafinn við
að koma á fót drykkjarvöru-
markaði í Denkendorf, útborg
Stuttgart, þar sem hann býr
ásamt fjölskyldu sinni, og er
fyrirhugað að opna markaðinn
í marz.
Mjög mikið hefur verið skrifað
um þjálfaramál Stuttgart í þýsk
blöð undanfarið og Asgeir verið
ofarlega í þeirri umræðu. í hinu
víðlesna blaði Bild fyrir viku var
skrifað um þetta og Ásgeir
nefndur meðal átta líklegra eft-
irmanna Daums. Ásgeir hefur
dvalið í Þýskalandi í um áratug
og fyrir nokkrum árum var hann
valinn besti leikmaðurinn í þýsku
knattspymunni. Frá því að hann
lagði skóna á hilluna hefur hann
starfað fyrir Stuttgart þar til í
sumar að hann gerðist þjálfari
hjá Fram.
Jólainnkaup
Morgunblaðið/Ami Sæberg
MIKIÐ var að gera í verslunum víða um land í gær enda voru þær opnar lengur en venjulega. Margir
tóku daginn snemma, eins og þessir herramenn, sem voru að skoða í búðarglugga á Laugaveginum. Jóla-
skraut setur mikinn svip á verslanir og stræti þessa dagana og lýsir upp skammdegið.
Vextir af útlánum Iðn-
lánasjóðs í endurskoðun
STJÓRN Iðnlánasjóðs vinnur nú
að því að endurskoða vexti sjóðs-
ins af útlánum í íslenskum krón-
um. Þessi lán hafa verið óuppsegj-
anleg þannig að lántakendur hafa
ekki átt þess kost að endurfjár-
magna þau á lægri kjörum. Þau
bera að meðaltali 8,95% fasta
vexti eins og kom fram í blaðinu
í vikunni og eru til fimm ára að
jafnaði, að sögn Braga Hannes-
sonar, forstjóra Iðnlánasjóðs.
„Við tökum lán á markaðnum og
endurlánum þau,“ sagði Bragi í sam-
tali við Morgunblaðið. „Viðskiptavin-
ir okkar geta því ekki greitt upp
lánin nema við greiðum upp okkar
lán sjálfir. Við höfum nánast ein-
göngu fengið þetta fé að láni hjá
lífeyrissjóðunum og það er með
óuppsegjanlegum kjörum eins og slík
skuldabréf eru yfirleitt. Ef við fengj-
um að greiða upp okkar lán væri
ekkert því til fyrirstöðu að viðskipta-
vinir greiddu upp lánin. Þennan end-
urgreiðslumöguleika erum við að
skoða.“
Um fjórðungur af útlánum Iðn-
lánasjóðs er í íslenskum krónum, eða
um þrír milljarðar króna. „Sjóðurinn
hyggst afla sér fjármagns á innlend-
um markaði á næsta ári. Þar með
munu innlánskjör lækka úr 8,70%
niður í rúmlega 5% og möguleikar
opnast til að lækka veitt lán eða
veita ný lán með 6-7% kjörvöxt-
um,“ sagði Bragi. Hann benti hins
vegar á sjóðurinn hefði fengið mjög
hagstæð lán erlendis og dæmi væru
um lán í dollurum með 5,5% vexti.
Matthías Bjarnason fyrsti þingmaður Vestfjarða
Hafnaði stöðu
seðlabankastjóra
MATTHÍAS Bjarnason, fyrsti þingmaður Vestfjarðakjördæmis, greinir
frá því í samtali við Morgunblaðið í dag, að honum hafi verið boðin
staða seðlabankastjóra, þegar rýma þurfti einn ráðherrastól, svo að
þáverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, gæti fengið sæti í ríkisstjórn.
Hann kveðst hafa svarað boðinu
neitandi og enga löngun hafa haft
til þess starfs. Hann kveðst talsvert
áður hafa boðið Þorsteini Pálssyni
að víkja úr ríkisstjóm, en hann hafi
þá ekki kært sig um það.
„Þegar ég bauð Þorsteini að hætta,
var ekki minnst einu orði á Seðla-
bankann. Það var hins vegar gert
nokkru seinna, ári eða svo, en þá
var ég spurður hvort ég vildi fara í
Seðlabankann. Ég svaraði því neit-
andi, því ég hafði enga löngun til
þess,“ segir Matthías m.a. í samtal-
inu.
Matthías segist hafa verið kominn
á þann aldur þegar þetta var, að sér
hafi ekki fundist að hann hefði neina
ástæðu til þess að fara að taka við
slíku embætti. „Enda er ég þeirrar
skoðunar að þingmenn eigi að gera
eins lítið af því og hægt er, að hverfa
af þingi á kjörtímabilinu, fyrst þeir
eru valdir af kjósendum til þess að
sitja á þingi í ákveðinn tíma,“ segir
Matthías ennfremur.
Aðspurður hvort hann hafi aldrei
haft áhuga á að verða seðlabanka-
stjóri svaraði Matthías: „Nei, alls
ekki.“
Sjá viðtal við Matthías Bjama-
son: Vestfjarðagoðinn - milt
hörkutól? bls. 16.
Forsetí ASÍ um lækkun vírðisaukaskatts á matvæli
Forystumemi launþega ekki reiðu-
búnir að ræða aðrar breytingar
„ÉG HEF ekki heyrt neinn af okkar mönnum segja þetta. Það kæmi
mér mjög á óvart ef einhver hefur sagt þetta,“ segir Benedikt Dav-
iðsson, forseti ASÍ, um þá yfirlýsingu sem fram kemur í greinar-
gerð Kaupmannasamtakanna um fyrirhugaða breytingu á virðis-
aukaskattskerfinu að forystumenn samtaka launafólks hafi tjáð sig
reiðubúna til að leggja að jöfnu aðrar breytingar en lækkun vsk. á
matvæli. Aðspurður hvort forystumenn launþega væm reiðubúnir
til að ræða slíkar breytingar svaraði Benedikt því neitandi.
„Þessari hugmynd var varpað
fram þegar við vorum að meta það
hvort ætti að segja upp samningum
eða ekki og þá töldu menn það
ekki koma til greina og ennþá síður
núna,“ sagði Benedikt. Hann sagð-
ist ekki hafa átt viðræður við neina
fulltrúa Kaupmannasamtakanna
um þessi mál en hins vegar hefðu
prívatmenn talað við sig, eins og
hann orðaði það og sagðist Bene-
dikt einnig hafa heyrt ýmsa kaup-
menn segja að annmarkar væru á
að framkvæma lækkun skattsins.
Hins vegar væri framkvæmdin í
höndum fjarmálaráðuneytisins í
samráði við kaupmenn. Það væri
sérstakt mál hvemig ætti að fram-
kvæma verðbreytinguna þegar búið
væri að breyta lögunum um virðis-
aukaskattinn, sem mætti hugsan-
lega gera með ýmsu móti, en Bene-
dikt sagðist ekki hafa næga þekk-
ingu á því.
Sjónvarp og út-
varp skilin að?
ÓLAFUR G. Einarsson
menntamálaráðherra hefur
sent útvarpslaganefnd álit
Þr*ggja _ manna nefndar sem
hann skipaði til að skoða skipu-
lag Rikisútvarpsins. Ráðherra
sagðist við umræður á Alþingi
á föstudag hafa falið nefndinni
að skoða hvort heppilegt væri
að skilja á milli hljóðvarps og
sjónvarps Ríkisútvarpsins.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
þingmaður Kvennalista óskaði
eftir að fá álit nefndarinnar í
hendur þar sem henni hefðu bor-
ist fregnir um að nefndin legði
til aðskilnað hljóðvarpsins og
sjónvarpsins. Menntamálaráð-
herra greindi ekki frá hver niður-
staða nefndarinnar væri en sagði
að álitið yrði sent útvarpslaga-
nefnd sem vinnuplagg.
Framsókn á
krossgötum
►Hverfur Steingrímur Her-
mannsson úr formannsstólnum
yfir í Seðlabankann næsta vor?./10
Vestfjarðagoðinn
— milt hörkutól
►Matthías Bjamason segir bókina
um lífshlaup sitt aldrei hafa átt
að verða neitt halelúja./16
Bannlög og tíðarandi
►Ákvæði laga um fánanotkun og
áfengisauglýsingar eru dæmi um
lög sem tíðarandinn leitast nú við
að feykja um koll./20
Fyrsta sólóverkef nið
►Það eru tímamót hjá Sigríði
Beinteinsdóttur./22
Sálin er ung
►Teiknimiðillinn Coral Polge
teiknar látið fólk til að sanna að
það sé líf eftir dauðann./24
B
►1-36
Gangverk tímans
►Jóhann Þorsteinsson frá Sanda-
seli í Meðallandi er nú á 97. aldurs-
ári. Hann brýtur allar regiur nú-
tíma næringarfræði, hefur löngum
verið laginn við klukkur og föndur
hans við biluð úrverk hafa Ieitt
hugann að gangverkinu sem aldrei
stöðvast./l og 8-9
Zappa
►Furðufugl popptónlistarinnar er
látinn langt um aldur fram./2
Brynja hans Bubba
►Hver er hún þessi kona sem.
hefur mýkt hjarta gamla gúanó-
rokkarans?/14
Jólakort
►Það eru liðin 150 ár frá því
fyrsta jólakortið kom út í Bret-
landi./16
c
BILAR
► 1-4
£
Spói rúmlc
mnflutningi '94
Sala á nýjum bílum
►Spáð rúmlega fimm þúsund bíla
innflutningi 1994./1
Reynsluakstur
►Toyota 4runner er lipur og afl-
mikill dísilbíll./4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Kvikmyndir 22b
Leiðari 28 Fólk í fréttum 26b
Helgispjall 28 Myndasögur 28b
Reykjavíkurbréf 28 Brids 28b
Menning 30 Syömuspá 28b
Minningar 38 Skák 28b
íþróttir 60 Bíó/dans 29b
Útvarp/sjónvarp 52 Bréftil blaðsins 32b
Gárur 65 Velvakandi 32b
Mannlffsstr. 12b Samsafnið 34b
Dægurtónlist 20b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2_6—BAK
ERLENDARFRÉTTIR:
1-4 —