Morgunblaðið - 12.12.1993, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1993
27
Hafsteinn Jóhannsson kafari og siglingakappi er maður sem lifir lífinu
eins og hann vill og lætur engan segja sér fyrir verkum, stendur fastur á
sínu og óttast hvorki ofsa úthafsins né átök við yfirvöld. Hann var
fyrirferðarmikill villingur í bernsku en lærði síðar köfun og gat sér slðar
frægðarorð sem helsti bjargvættur fiskiskipa á íslandsmiðum og var
ætíð skjótur á vettvang á Eldingunni.
Hafsteinn hefur siglt víða um úfin höf á nýrri Eldingu og vann fyrir
nokkru það fáheyrða afrek að sigla einn umhverfis hnöttinn á
heimasmíðaðri skútu án þess að hafa nokkurs staðar viðkomu á
leiðinni. í nærri fimm mánuði sá hann hvergi til lands og hafði
ekki samskipti við nokkra lifandi veru, nema sævardýr og fugla
himinsins.
Hafsteinn á Eldingunni er fjörmikil og ógleymanleg lýsing af sterkum
og sérstæðum einstaklingi sem mætir hverri mannraun af djörfung og
siglir ótrauður sinn sjó - einn á báti umhverfis hnöttinn.
ÍÐUNN
Hafsteinn á Eldingunni
-Einn á báti umhverfis hnöttinn
rít m
4*
/
Astin fiskanna
„Ástin fiskanna er ljúfsár og tregafull saga um ást í
meinum sem kviknar og brennur á elskendum ... úr
verður óvenju sterkt og áhrifamikið verk/‘ (Gísli
Sigurðsson, DV)
„Hrífandi stíll, margræður og magnaður.“
(Soffía Auður Birgisdóttir, Mbl.)
„... það er gaman að lesa þessa bók í annað sinn
og jafnvel oftar ... hefur Steinunn unnið stóran
sigur með þessari sögu. ..."
(Ingunn Ásdísardóttir, Rás 1)
„... angurvær ástarsaga sem ég hef grun
um að margar konur telji sig hafa lifað....
Verkið snart mig á þann veg að í huganum
hóf ég það yfir stað og stund.“ (Kolbrún
Bergþórsdóttir, Pressunni)
IÐUNN