Morgunblaðið - 12.12.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 12.12.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1993 + Biblía sem börnin geta lesið sjálf. Fæst í næstu bókaverslun. tlöföar til i i fólks í öllum starfsgreinum! RÚRSNFSKU KOSNINGARNAR ÞRETTÁN flokkar bjóða fram í rússnesku þingkosningunum ídag. Fæstir eiga sér langa sögu en margir leiðtoga þeirra eru gamalreyndir stjórnmálamenn. Til hagræð- is hefur flokkunum verið skipt niður eftir afstöðu þeirra til umbótastef nunnar. Fylgjandi umbötum Valkostur Rússlands Sá flokkur sem stendur næst Jeltsín. Leiðtoginn er Jegor Gajdar aðstoðarforsætisráðherra og einn aðalhöfundur umbótastefnunnar en auk hans má nefna Andrej Kozyrev, ut- anríkisráð- herra, og Ana- tólíj Tjúbaís, sem stýrt hef- ur einkavæð- ingaráformum stjórnarinnar. Flokkurinn er hlynntur markaðsbú- skap en mikil verðbólga og áfram- haldandi samdráttur í framleiðslu hefur orðið til þess að Gajdar segist nú hlynntur því að iðnaðurinn njóti ákveðinnar vemdar. Valkostur Rússlands hefur notið góðs af því að vera stjómarflokkur en hefur einnig verið harðlega gagnrýndur vegna þess. Javlínskíj-Boldíjrev-Lúkín- bandalagiö Nafn flokksins gjaman stytt í Jabloko (epli). Kenndur við þijá af leiðtogunum, Grígoríj Javlínskíj, umbótasinnaðan hagfræðing sem starfaði meðal annars fyrir Míkhail Gorbatsjov, Júrí Boldíjrev, fyrrver- andi ráðgjafa Jeltsíns, og Vladimír Lúkín, sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum. Javlínskíj er vinsæl- astur frambjóðenda í kosningunum samkvæmt skoðanakönnunum. Hann er fyrr- verandi hnefa- leikakappi og þykir harður í horn að taka í kosningarbar- áttunni. Hagar máli sínu eftir því hveijir Grígoríj JavlínskQ. áheyrendur hans eru og hefur góð tök á þeim. Javlínskíj stefnir á framboð í næstu forsetakosningum. Hann setti fram þijár byltingarkenndar áætlanir í efnahagsmálum í valdatíð Gorbatsj- ovs og Jeltsíns en þeim var öllum hafnað. Hugmyndir sínar sækir Javl- inskíj m.a. til þess tíma er hann var við Harvard-háskóla. Jabloko boðar umbætur og kapítalisma en segir að fara verði hægar í sakimar en Vaikostur Rússlands boði. Flokkurrússneskrar einingar og sáttar Leiðtogi flokksins er Sergej Shakhraj, aðstoðarforsætisráð- herra. Hann boðar umbæt- ur „með rriann- legu yfir- bragði" og leggur áherslu á aukið sjálf- stæði hérað- anna. Shak- hraj hætti við framboð fyrir Valkost Rússlands þar sem hann var ósáttur við þátt Jelts- íns í uppreisn afturhaldsaflanna á þingi í október síðastliðnum. Samtök um lýðræðisumbætur Borgarstjórinn í Pétursborg, Ana- tóly Sobtsjak, og Gavrfl Popov, fýrrverandi borgarstjóri í Moskvu, leiða flokkinn. Sækja þeir fylgi sitt fyrst og fremst til þeirra sem hlynntir eru lýðræðisum- bótum en falla ekki einræðis- tilhneigingar Jeltsíns. Beina þeir orðum sínum sér í lagi að menntamönnum enda boðar flokkurinn bætta aðstöðu skóla og menntastofnana. Miðjuflokkar Borgarasambandið (samtök um stöðugleika, réttlæti og framfarir) Arkady Volsky, formaður sam- taka iðnrekenda og sjálfstæðra at- vinnurekenda, er leiðtogi flokksins. Hann er tals- maður öflugra samtaka í her- gagnasmíði og þeirra sem gæta vilja hagsmuna fyr- irtækja frá sovéttímanum. Arkadíj Volskíj. Volskíj vill hægfara umbætur, hann er mótfall- inn ströngu eftirliti stjórnarinnar með fjármálum og vill að hátekju- menn verði skattlagðir. Lýðræðísflokkur Rússlands Leiðtogi flokksins er Níkolaj Travkín, fyrrverandi hugmynda- smiður Borgarasambandsins, sem átti í illvígum deilum við Volskíj. Travk- ín er lýðskr- umari, vill að lögð verði áhersla á allt það sem rúss- neskt er í flóð- bylgju vest- rænna áhrifa. Hann beitir sér eink- um á landsbyggðinni þar sem hann nýtir sér það hversu umbótastefnan hefur verið nátengd stórborgunum. Franratíð Rússlands, ný nöfn Leiðtoginn Vjatsjeslav Lastsjevsky fer fyrir hópi manna sem sagðir eru pólitískir framagos- ar. Flokkurinn er skipaður miðju- mönnum sem veðjuðu á rangan hest í uppreisn afturhaldsaflanna í októ- ber. Samtök um reisn og kærleika Ljóðræn lýsing flokksmanna á samtökunum segir meira en þúsund orð: „Skjól lítilla báta á stórri á sem vegna mikilla og þungra strauma tekst ekki að ná landfestum." Sam- tök fyrrverandi hermanna, fatlaðra og fórnalamba Tsjernobyl-slyssins. Reiðubúin til samvinnu með hveijum þeim sem styður mikinn félagslegan stuðning við þá sem minna mega sín. Jegor Gajdar. Sergej Shakhraj. AnatólQ Sobtsjak. h ddur á Reykjalundi var enginn venjulegur maður. Hagsmunir sjukra og öryrkja urðu honum óþrjótandi œvistarf Hann beitti sér víða og mótaði brautina: Styðjum sjúka til sjálfsbjargar. Það var gœfa íslendinga að eiga slíkan mann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.