Morgunblaðið - 12.12.1993, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBBR 1993
Kærðir fyrir leign-
akstur á sendibflum
ÞRÍR sendibílstjórar hafa verið
staðnir að og játað að hafa flutt
farþega gegn gjaldi og þar með
farið inn á starfssvið leigubíl-
sfjóra. Nokkrir sendiferðabílar
Vextir líf-
eyrissjóða
lækka um 1
prósentustig
FLESTIR stærstu lífeyrissjóðir
landsins hafa lækkað vexti á lán-
um til sjóðfélaga um eitt pró-
sentustig, úr 7% í 6%, eða eru í
þann veginn að taka ákvörðun um
lækkun í kjölfar þess að raunvext-
ir á markaði hafa lækkað að und-
anfömu.
Á aðalfundi Sambands almennra
lífeyrissjóða sem haldinn var 19.
fyrra mánaðar voru samþykkt til-
mæli til lífeyrissjóðanna um að
lækka vextina í 6%. Hrafn Magnús-
son, framkvæmdastjóri SAL, segir
að allir sjóðir innan sambandsins
hafi verið með 7% vexti á lánum til
sjóðfélaga en séu nú annaðhvort
búnir að lækka vextina eða um það
bil að taka ákvörðun um það. Innan
sambandsins eru 27 sjóðir.
Meðal þeirra lífeyrissjóða sem
lækkað hafa vextina í 6% er Lífeyr-
issjóður verslunarmanna, stærsti líf-
eyrissjóður landsins, Lífeyrissjóður
Dagsbrúnar og Framsóknar og Líf-
eyrissjóður sjómanna.
Allir lífeyrissjóður voru ekki með
7% vexti á lífeyrissjóðslánum fyrir
vaxtalækkun, heldur fylgdu nokkrir
sjóðir meðalvöxtum banka og spari-
sjóða, sem voru kringum 9% fyrir
vaxtalækkun. Þá hafa sjóðir ríkis-
starfsmanna, bæjarfélaga og banka
margir hveijir verið með lægri vexti,
eða á bilinu 5-6%.
eru skráðir sem hópferða- eða
fólksbílar en það er brot á reglu-
gerð. Leigubílstjórar segja það
hafa færst I vöxt að undanförnu
að sendibílstjórar stundi fólks-
flutninga gegn gjaldi og mun
lögregla fylgjast sérstaklega
með þessum málum á næstunni.
Að sögn Ómars Smára Ármanns-
sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns er
málið tvíþætt. Komið hefur í ljós að
allmargir sendiferðabílar eru skráðir
sem hópferða- eða fólksbílar en sam-
kvæmt reglugerð eiga allir sendi-
ferðabílar að vera skráðir sem vöru-
flutningabílar. Ómar sagði að for-
svarsmenn sendibílastöðvanna væru
ábyrgir fyrir þessu þar sem þeim
bæri að sjá til þess að bílarnir væru
rétt skráðir og hefði þetta mál verið
tekið til athugunar.
Þrír sendiferðabílstjórar hafa ver-
ið staðnir að því að flytja fólk gegn
gjaldi og liggur játning fyrir. Mál
þeirra eru nú til athugunar. Ómar
sagði að nokkur brögð virtust að
því að sendibílar stunduðu fólks-
flutninga gegn gjaldi en skýrt er
kveðið á í reglugerð að sendibifreið-
ir megi aðeins flytja vörur og vörslu-
menn þeirra.
Eftirlit hert
Ómar sagði að eftirlit með þessum
málum hefði verið hert verulega og
hefðu lögreglumenn fengið fyrir-
mæli um að fylgjast sérstaklega
með ólöglegum leiguakstri. Hann
sagði að í einu kærumálinu hefði
bílstjóri sendiferðabílsins ekki haft
ökuréttindi til að aka fólki gegn
gjaldi og auk þess hefði bíllinn að-
eins verið skráður fyrir einn farþega
auk ökumanns, en fleiri farþegar
voru í bflnum. Réttur farþega til
bóta hefði því enginn verið ef slys
hefði orðið. Ómar vildi hvetja fólk
til að þiggja ekki far hjá þeim sem
stunduðu ólöglega stafsemi og jafn-
fram vildi hann beina því til leigubíl-
stjóra og sendibflstjóra að fara ekki
inn á starfssvið hvorra annarra.
Morgunblaðið/Þorkell
Vinningarnir og- nýir eigendur
HJÓNIN Ragnhildur Guðmundsdóttir og Bragi Bragason ásamt
starfsmönnum happdrættis DAS og Toyota-umboðsins. í sleðanum
eru synir þeirra Elvar og Brynjar.
Aðalvinningxir í vetrarpotti DAS
Vinningshafinn hélt að
verið væri að grínast
DREGIÐ var í vetrarpotti Happdrættis DAS á miðvikudag. Aðalvinn-
ingurinn, 4Runnner-jeppi ásamt Ski-doo vélsleða og kerru að verð-
mæti 3.750.000 króna, féll á miða í eigu fjögurra manna fjölskyldu
i Hafnarfirði.
Fjölskyldufaðirinn, Bragi Braga-
son, segist varla vera búinn að átta
sig á þessu ennþá. Hann hafi verið
búinn að fara yfir vinningaskrá
DAS og séð að hann hefði ekki
unnið neitt og því hafi þau hjón
ekki trúað því þegar hringt var í
þau á miðvikudagskvöld og þeim
færð tíðindin. Þeirra vinningur var
aðalvinningur í vetrarpotti DAS
sem dregið var í degi síðar en aðal-
útdrátturinn fór fram.
„Þetta var alveg meiriháttur.
Maður hefur oft velt fyrir sér þegar
maður les um fólk sem fær svona
vinning hvernig tilfínning það sé.
Þegar þetta hendir mann sjálfan
þá veit maður varla hvernig maður
á að lýsa því. Ég á tvo miða í
DAS, hef átt annan í 25 ár og hinn,
sem vinningurinn kom á, í 10 ár.
Maður á aldrei von á að fá svona
sjálfur. Nú verður gamli bíllinn seld-
ur. Það er stórkostlegt að fá þetta
því svona bfl getur maður ekki
keypt á þeim launum sem maður
hefur," sagði Bragi Bragason.
Morgunblaðið/Þorkell
Frá blaðamannafundi þar sem niðurstöður rannsóknarinnar voru kynntar. Frá vinstri: Kristín
Magnúsdóttir, rannsóknastofu í Iyfjafræði, prófessor Þorkell Jóhannesson, rannsóknastofu í lyfja-
fræði, Örn Þorvarðarson, Umferðarráði, Jafet E. Ingvason, lögreglunni í Hafnarfirði, Þorvaldur
Sigmarsson, Iögreglunni í Kópavogi, og Magnús Einarsson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík.
Kannabis fannst í
10% blóðsýnanna
MERKI um kannabisneyslu fannst í 19 af 200 blóðsýnum sem
Rannsóknastofa Háskóla íslands í lyfjafræði rannsakaði sérstak-
lega í samvinnu við Umferðarráð og lögregluna í Reykjavík. Um
var að ræða blóðsýni manna sem grunaðir höfðu verið um akstur
undir áfengisáhrifum árið 1992 og fyrri hluta árs 1993. Upphaf-
lega höfðu blóðsýnin 200 aðeins verið rannsökuð með tilliti til
áfengismagns. Við þá rannsókn hafði komið í ljós að í 171 af
þessum 200 blóðsýnunum var áfengismagn undir refsimörkum
umferðarlaga og þar sem ekki var sérstaklega leitað að kannab-
isi við frumrannsóknina kom ekki til þess að þeim 17 úr þessum
171 manna hópi, sem nú er komið í ljós að höfðu neytt kannabis-
efna, væri refsað fyrir að aka undir áhrifum kannabisefna.
Á blaðamannafundi þar sem
niðurstöður rannsóknarinnar voru
kynntar voru Þorkell Jóhannesson
prófessor, sem gerði rannsóknina,
og Böðvar Bragason lögreglu-
stjóri sammála um að þær gæfu
tilefni til að gera frekari rann-
sóknir, ekki síst á amfetamín-
magni í blóðsýnum sem tekin
hefðu verið vegna gruns um
áfengisneyslu við akstur.
Árlega eru að jafnaði 2.000-
2.400 ökumenn grunaðir um að
aka undir áhrifum áfengis hér á
landi. Að jafnaði valda um 50 ölv-
aðir ökumenn slysi í umferðinni á
ári hverju og eru um 10% að jafn-
aði undir refsimörkum. Sá hópur
sem er undir refsimörkum var
rannsakaður sérstaklega í könnun
rannsóknarstofu í lyfjafræði eins
og að framan greinir en helming-
ur hinna er að sögn Þorkels mikið
drukkið fólk sem er hátt yfir refsi-
mörkum hvað varðar áfengis-
magn í blóði.
Talið er að amfetamínneysla
hafi fest í sessi hér á landi og
kváðust Þorkell og Böðvar telja
tilefni til að kanna umfang henn-
ar sem svipuðum hætti. Leiði slík
könnun í ljós að amfetamín finn-
ist í 5-7% sýna kvaðst Þorkell
telja trétt að íhuga alvarlega að
breyta almennt aðferðum við blóð-
rannsóknir í refsimálum með það
í huga t.d. að skima sýni með til-
liti til kannabis- eða amfetamín-
innihalds.
í máli Böðvars Bragasonar kom
fram að niðurstöður sams konar
rannsókna lægju ekki fyrir í ná-
grannalöndunum en Böðvar
kvaðst mundu leggja til við dóms-
málaráðuneyti að ýtt verði undir
framhaldsrannsóknir á þessu
sviði.
Eins o g ef mjólk væri bara
niðurgreidd í kaupfélaginu
- segir lögmaður Líkkistuvinnustofu Eyvindar
Ámasonar um túlkun biskups á dómi Héraðsdóms
„ÓLAFUR Skúlason er að blekkja sjálfan sig og aðra þegar Ólögmæt meðferð
hann túlkar niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur á þá leið að skattpeninga
málið hafi snúist um réttmæti niðurgreiðslna á útförum. Það
hefur enginn neitt á móti ódýrum útförum,“ sagði Hreinn Lofts-
son lögmaður Líkkistuvinnustofu Eyvindar Árnasonar um um-
mæli Ölafs Skúlasonar biskups íslands vegna úrslita í dóms-
máli Líkkistuvinnustofunnar gegn Kirkjugörðum Reykjavíkur-
prófastsdæma. „Málið snerist um mismunun og um ólögmæta
meðferð kirkjugarðsgjalda sem fólst í því að aðeins þeir sem
notfærðu sér þjónustu Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma
fengu ókeypis þjónustu. Hinir sem leituðu til Líkkistuvinnustofu
Eyvindar Arnasonar fengu engar niðurgreiðslur. Til samanburð-
ar væri ef aðeins þeir sem versluðu hjá kaupfélaginu fengju
mjólkina sína niðurgreidda en ekki þeir sem versluðu hjá Hag-
kaupum,“ sagði Hreinn.
„Staðreyndin er sú að sam-
kvæmt lögum er kirkjugarðsgjöld-
um ætlað að standa straum af
rekstri og viðhaldi kirkjugarða.
Þetta gjald greiða allir — en hvers
vegna eiga þá bara sumir að njóta
þeirra en ekki aðrir? Ef Olafi
Skúlasyni er umhugað að tryggja
ódýrar útfarir handa öllum þá
verður hann að gæta þess að fá
samþykki Alþingis fyrir því með
lagabreytingu og þá verða allir
að njóta niðurgreiðslnanna — ekki
aðeins þeir sem skipta við Ólaf.
Við búum í réttarríki og það þýð-
ir að allir eru jafnir fyrir lögunum
og það þýðir líka að lagaheimild
þarf að vera fyrir þeim sköttum
sem okkur er gert að greiða og
það þýðir líka að lagaheimild þarf
að vera fyrir ráðstöfun þeirra
sömu skattpeninga. Niðurstaða
Héraðsdóms Reykjavíkur stað-
festir sem betur fer að við erum
öll jöfn fyrir iögunum,“ sagði
Hreinn.
„Ólafur Skúlason hefur í tví-
gang í fjölmiðlum tekið dæmi af
Strætisvögnum Reykjavíkur og
hefur sagt að niðurstaða málsins
leiði til þess að leigubílstjórar
gætu þá farið í mál og heimtað
bætur frá Strætisvögnum Reykja-
víkur vegna þess að þjónusta
strætisvagnanria sé niðurgreidd.
Samlíkingin við mál Líkkistu-
vinnustofunnar væri hins vegar
réttari sú ef SVR opnaði bifreiða-
verkstæði sitt fyrir almenning og
veitti þar ókeypis viðgerðir á bíl-
um. Einstakir bifreiðavirkjar með
eigin rekstur gætu ekki keppt við
slíka þjónustu. Málið snýst því
ekki um niðurgreiðslur sem slíkar
eða ódýrar jarðarfarir. Það snýst
um ólögmæta mismunun og ólög-
mæta meðferð skattpeninga sem
Kirkjugörðum Reykjavíkurpróf-
astsdæma hefur verið treyst fyr-
ir,“ sagði Hreinn Loftsson.