Morgunblaðið - 12.12.1993, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1993
at giæsuegum soiasettum
frá NANTELLESSI, Ítalíu
Litir: Dökkbrúnn, Ijósbrúnn og svartur.
1/erð aðeins kr. 230.000 stgr.
fyrir 3ja sæta sófa og tvo stóia.
Opið í dag, sunnudag, frá kl. 14-17
S • •
ARMULA 8, SIMAR 812275, 685375
Amerísku
LURA FLEX
RÚMIN
• Gæði í gegn © Betri svefn
c Stressið burt!
Venjuleg emerísk dýne
Geríð góð kaup strax í dag
”15% afsláttur
c§3Nýborg
ÁRMÚLA 23 -SÍMI812470
SKIÐAFATN AÐU R
í miklu úrvali
LUHTA
kortatímabil
Opið sunnudag kl.12 - 17
SPORTBÚÐIN
Ármúla 40 • Símar 813555 og 813655
Sigurður J. Stef-
ánsson - Minning
Fæddur 20. ágúst 1927
Dáinn 6. desember 1993
Hinn 6. desember sl. lést í
Reykjavík Sigurður J. Stefánsson
starfsmaður Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands. Sigurður og eftir-
lifandi eiginkona hans Margrét
Jóna Jónasdóttir eru meðal þeirra
starfsmanna sem hvað lengst hafa
þjónað stofnuninni af stakri trú-
mennsku og dyggð, vel á þriðja
áratug. Ótalin eru sporin og erfið-
ið sem þau hafa á sig lagt til að
allt stæði heima og uppfylltar
væru þær óskir er fram voru born-
ar hveiju sinni. Þau hjón hafa
áratugum saman séð um ræsting-
ar í erfiðum húsakynnum stofnun-
arinnar og leyst þau verkefni óað-
fínnanlega og með sérstökum
ágætum. Eftir stórhreingerningar
gljáðu gólf sem speglar og nánast
var varasamt að ganga um sali
þótt gólfefni væru slitnir dúkar.
Þessi vanþakklátu störf eru sjaldn-
ast. metin sem skyldi, en ef eitt-
hvað bregður út af varðandi ræst-
ingar er svo sannarlega eftir því
tekið.
Sigurður var einstakt snyrti-
menni og umhyggjusamur í allri
framgöngu. Hann hafði brennandi
áhuga á málefnum skólans og vildi
veg hans sem mestan og bestan
og taldi aldrei eftir sér sporin um
borg og bý til að leysa verkefni á
vegum skólans.
Sigurður var menntaður kjöt-
iðnaðarmaður og um skeið sáu þau
hjón um mötuneyti nemenda og
kennara í MHÍ við afar erfíðar
aðstæður. A sex til átta fermetrum
átti að matreiða handa á þriðja
hundrað manns og kaffistofan
sjálf var þá á að giska tuttugu
fermetrar. Þar ætlaði allur þessi
fjöldi að matast, helst á um það
bil hálfri klukkustund. Allt þetta
leystu Siggi og Magga, ætíð nefnd
saman, af stakri þolinmæði og ljúf-
mennsku. Fjölmargir voru í reikn-
ingi og stundum gekk illa að inn-
heimta, námsmenn félitlir eins og
gengur og góðmennskan í fyrir-
rúmi.
Annað eins „smörrebröd" sem
Siggi og Magga töfruðu fram
hafði ekki sést norðan Alpaíjalla
og æði oft sáust mjög frumlegar
samsetningar, þess utan var farið
að óskum hvers og eins, svo
frændur vorir Danir máttu vara
sig.
Það var stíll yfír Sigurði í eld-
húsinu, í hvítri skyrtu með upp-
brettar ermarnar, þverslaufuna,
ítalska svuntu, kátur, með „rett-
una“, sveiflandi diskum og visku-
stykkjum. Unnið var hratt og af
öryggi, öllum er honum kynntust
er hann minnisstæður.
Umhyggja Sigurðar var einstök
og gekk m.a. svo langt að sjá til
þess að kennarar og starfsfólk
skólans fengi „almennilegt"
hangikjöt í jólamatinn.
Hann tók að sér að láta sér-
reykja fyrir starfsliðið og úrbeina
sjálfur, gott ef hann sá ekki um
að koma kjötinu heim. Loks sáu
þau hjón sér ekki fært að starf-
rækja mötuneytið lengur, vöfflu-
ilmur barst þá eigi lengur að vitum
okkar og margur saknaði þá
brauðsneiðanna góðu sem enn eru
PEZA 1
HUT
í Mjóddinni er komið
í jólabúning
Nú bjóðum við pizzuhlaðborð
1 hádeginu og á kvöldin
í desember.
Gerðu vel við þig og þína í g
jólaannríkinu, komdu í Pizza Hut J
hlaðborðið í Mjóddinni... «
í Mjódd • Sími 682208
• - '