Morgunblaðið - 12.12.1993, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MININIINGAR »®f2. DESEMBER 1993
Nuddskóli Rafus Qeirdals
NUDDNÁM
1V2 árs nám hefst 10. janúar nk.
Hægt er að velja um dagnám eða kvöldnám.
Upplýsingar og skráning í
símum 676612/686612
alla virka daga.
Smiðshöfða 10, 112 Reykjavík.
*
Ovína Anne Margrét
Amljóts Bjömsson
Fædd 4. mars 1900
Dáin 3. desember 1994
í kvæði sínu Sonatorreki líkir
Egill Skallagrímsson ætt sinni við
sjóvarnargarð þar sem steinar
standa þétt saman til vamar ágjöf.
Þessi mynd verður mér hugstæðari
eftir því sem skörðin verða fleiri í
frændgarðinum sem veitti okkur
systkinum skjól í uppvextinum.
Hver steinn í þeim garði bar sín
sérkenni — sumir vom breiðir og
sléttir, aðrir dálítið hvassir og hmf-
óttir. Sumir vom stærri en aðrir
og sumir myndrænni. Ekki er ólík-
legt að einn og einn hafi virst
traustari en hinir en allir stóðu þeir
þétt saman þar til tíminn og al-
mættið tóku að rjúfa sín skörð.
Fyrst dó amma, svo afi, en lengi
eftir stóðu böm þeirra og tengda-
börn þar til þau fóm að kveðja eitt
af öðm — Amljótur, Hólmfríður,
pabbi, Hjalti og Stella og nú Mar-
grét, á 94. aldursári — tvímæla-
laust einn prúðasti steinninn í
frændgarðinum.
Það er furðulegt hversu margir
gátu rúmast í litlu stofunum á
Skólavörðustíg 13 hjá afa og ömmu,
en þegar mikið lá við þurfti að
færa veisluhöldin í stóm stofurnar
hjá Möggu og Hjalta á Hagamel
8. Þaðan em til myndir af öllum
hópnum, Davíð og Halldóm sem
komu að norðan í kreppunni, böm-
um þeirra sem flestum tókst að
afla sér mennta á mölinni, mökum
þeirra og okkur krökkunum, fyrstu
kynslóð borgarbarna í þessari ætt.
Og þarna var líka vísir að næstu
kynslóð en það vom elstu barna-
bömin hennar Möggu frænku, sem
urðu alls 15 og hafa dreifst út um
lönd og álfur og eignast böm og
bum og hafa fæst augum litið litla
sjávarplássið á hjara veraldar þar
sem amma þeirra steig sín fyrstu
spor.
Margrét bar þess raunar lítil
merki að hafa alist upp norðan við
Dumbshaf því að hún var heims-
kona fram í fingurgóma, glæsileg
í fasi og vel lesin. Hún bjó alltaf
yfir einstakri skapstillingu og aldrei
heyrði ég hana hækka róminn en
það var stutt í dillandi hlátur þegar
eitthvað skemmtilegt var á seyði.
Hún breyttist eiginlega aldrei neitt
og hélt andlegri reisn sinni og minni
með svo miklum áægtum að ég var
viss um að alltaf væri nægur tími
til að setjast með henni stundarkorn
og ræða eilífðarmálin, fá hana til
að segja mér frá gömlum minning-
um frá Þórshöfn á Langanesi,
gömlu Reykjavík og merkilegu fólki
sem hún hafði kynnst á lífsleiðinni,
en þegar hún veiktist alvarlega
síðastliðið haust urðu þau áform
að engu og nú er skarð fyrir skildi.
í huga mínum geymast fallegar
myndir af hlýlegri móðursystur sem
Hörður Áskelsson leikur á
IsíÝJA KLAIS'ORGELIÐ
ifttAlBr “
| Falleg og merk gjöf til vina, -heima
jHI f/ og erlendis, og um leiö stuöningur
W viö Orgelsjóö Hallgrímskirkju.
tíérerfyrsta útgáfa hljóöritunar
hins nýja orge/s Hallgrímskirkjir ~
Okkur er ánægja aö geta boöiö
þennan vandaöa hljómdisk á
einstöku veröi - aöeins kr. 1.200
Komib í Hallgrímskirkju eða hafið samband
í símum : 7 0745og 621475.
Við sendum í póstkröfu og bjóðum einnig
greiðslukortaþjónustu.
Opið alla daga frá kl. 10:00-17:00,
nerma mánudaga frá kl. 13:30-17:30.
hafði gaman af því að spjalla við
forvitna og málgefna stelpu, konu
sem aldrei varð gömul og prýddi
hvarvetna umhverfi sitt. Og þótt
aldraðir ættingjar safnist til feðra
sinna rofnar aldrei sá garður sem
eitt sinn veitti skjól.
Guðrún Egilson.
Sofnaðan svanna
sjúkdómsptrum leystan
faðma þú mjúklega, móðir jörð.
Hlýtt við þitt hjarta
hana þú geymir
þótt yfir dynji hretin hörð.
Þetta minningarljóð Hannesar
Hafsteins sem hann orti um Óvínu
Arnljótsdóttur móðursystur Mar-
grétar tengdamóður minnar, kom
upp í huga minn nú við andlát henn-'
ar.
í 32 ár höfum við Margrét búið
í sama húsi, deilt saman gleði og
sorg og þótt árin væru mörg á
milli okkar urðum við miklar vin-
konur og lét ég hana oft heyra það
að hún væri besta vinkona mín og
trúnaðarvinur. Þegar ég hugsa um
ævi hennar þá kemur alltaf sú
mynd upp sem hún gaf mér af
æskuheimili sínu. Það virtist sem
æskan hennar hafi liðið í eintómri
fegurð því hún var óþreytandi að
segja mér frá móðurfjölskyldu sinni
og fannst manni allt þetta fólk vera
lifandi og í kringum hana.
Hún var umvafin myndum af
fólkinu sínu og minningum frá þess-
um yndislega tíma. Það uppeldi og
umhverfi sem hún bjó við mótaði
hana svo sterkt og voru ræturnar
svo fastar að ekkert fékk haggað
þeim.
Hún fæddist 4. marz 1900 á
Sauðanesi, dóttir Halldóru Amljóts-
dóttur og Williams Velschow arki-
tekts og var skírð Óvína Anne
Margrét Arnljóts. Þótt Sauðanes
væri á einum afskekktasta stað
landsins var mikill heimsborgara-
bragur yfir þessu heimili. Afi Mar-
grétar, sr. Arnljótur Ólafsson, bjó
þar ásamt konu sinni, frú Hólmfríði
Þorsteinsdóttur. ' Persónuleiki sr.
Arnljóts hefur verið mikill því hún
minntist hans af einstaklegri hlýju
og lotningu og mundi vel eftir hon-
um þótt hún væri aðeins fjögurra
ára er hann lést. Af skrifum samtíð-
armanna sr. Amljóts má ráða að
hann hefur verið mikilmenni og
segir sr. Matthías Jochumsson um
hann á einum stað: „Flestum varstu
fremri að listum, fræðibaldur þinnar
aldar“ o.s.frv. Þar ríkti mikil menn-
ing og sagt var að bókahillurnar
hafí svignað undan bókakostinum
og þar engar lélegar bækur, heldur
eingöngu úrvalsrit og því auðvelt
að svala andlegum þorsta og full-
nægja fegurðarlöngun sinni við
lestur slíkra bóka. Ég tel fullvíst
að ef Margrét hefði farið í lang-
skólanám hefði hún stundað ein-
hveija fagurfræðilega menntun, en
í þá daga nam kvenfólk frekar
ýmsar hannyrðir og heimilisstörf
og vom hæg heimatökin að læra
þær listir af móður sinni og móður-
systmm og varð Margrét einnig
þekkt fyrir listasaum, sem kom sér
Georgf í íiiaiiiilieimiitii
EFTIR )ÓN 0G JÓN
Þessi bók er sko ekkert „rusladrasl" heldur ein vandabasta
teiknimyndasaga sem gerb hefur verib á íslandi.
Slalaboáaskjóá
EFTIR ÞORVALD ÞORSTEINSSON
an
Eitt albesta ævintýri síbustu ára.
Spennandi og margslungib. Þab
gerist í ævintýraskóginum og
núna líka í Þjóbleikhúsinu.
Mál IMI og menning
LAUGAVEGI 18, SÍMI (91) 24240 & SÍDUMÚLA 7-9, SÍMI (91) 688577