Morgunblaðið - 12.12.1993, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 12.12.1993, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNL'DAGUIi 1,2. DESKMHKti 1993 11 ar rætt er við þá um tilvistarkrísu foringja þeirra. Þeir benda réttilega á, að Steingrím- ur varð 65 ára í júní, í sumar, þannig að hann verður rétt tæplega 67 ára gamall, þegar gengið verður til alþingiskosninga eftir hálft annað ár. Það sé í sjálfu sér ekki hár aldur, en ekki verði framhjá því horft, að Steingrímur hafi á næsta ári Ieitt Framsóknarflokkinn í 15 ár, og bara af þeirri einföldu ástæðu hljóti að vera eðlilegt að umræða um endurnýjun í forystuliði flokksins kvikni af krafti, nú þegar þetta kjörtímabil sé meira en hálfnað. Framsókn hafi dalað verulega í síðustu skoðanakönnunum, og kenna þeir ekki síst því um, að Steingrímur sjáist ekki í þeim mæli og heyrist, sem stjórnarandstöðuleið- togi þurfi að sjást. Þögn Framsóknarflokks- ins í stjórnarandstöðu framan af kjörtíma- bilinu hafi skilað sér í fylgisaukningu sam- kvæmt skoðanakönnunum, en sé nú orðin vandræðaleg fyrir flokkinn og farin að hafa þveröfug áhrif, samkvæmt skoðanakönnun- um. Of seint er að þeirra mati að bíða flokksþings Framsóknar næsta haust, með að skipta um formann, eigi formannsskipti á annað borð að eiga sér stað. Steingrímur mun túlka minnkandi fylgi Framsóknar með öðrum hætti, eða á þann veg að Sjálfstæðisflokknum hafi tekist að ná til sín aftur ákveðnum hluta þess fylgis, sem Framsókn hafi unnið til sín framan af kjörtímabilinu, auk þess sem hann mun fúslega viðurkenna að Tímamálið hafi reynst Framsóknarflokknum nokkuð þungt í skauti. Ekki lengur sameiningartákn Framsóknar Steingrímur er sagður hafa átt minna og verra samband við flokksfólk sitt undan- farið hálft annað til tvö ár, en áður. Hann sýni ekki lengur sama sveigjanleikann og samvinnulipurð, og hann hafi gert, þannig að hann sé ekki lengur það sameiningar- tákn Framsóknar, sem hann hafi löngum verið. Rétt er þó að geta þess, að hér er Til höfuðs Páli Guðmundur Bjarnason, þingmaður Fram- sóknar í Norðurlandi eystra, guggnaði á því að fara í slag við Pál Pétursson, um þingfiokksformennskuna í haust, og uppskar reiði flokkssystur sinnar úr sama kjördæmi, Valgerðar Sverrisdóttur. Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsóknar hefur samið um að draga sig í hlé frá formennskunni, eftir þetta þing. Hann virðist eiga pólitískt líf sitt undir Steingrími Hermannssyni. einkum vísað til viðhorfa framsóknarmanna sem eru mjög virkir í flokksstarfinu, svo og ýmissa þingmanna flokksins, en ekki hins almenna framsóknarmanns, sem enn virðist vera allt frá því að vera nokkuð ánægður, upp í það að vera hæstánægður með foringja sinn, Steingrím Hermannsson. Talsamband þeirra Steingríms Her- mannssonar og Halldórs Ásgrímssonar, varaformanns Framsóknarflokksins, er sagt hafa stórminnkað upp á síðkastið, og því er raunar haldið fram að þeir 'eigi tals- vert erfitt með að ræðast við um þessar mundir. Halldór er sagður orðinn mjög þreyttur í váraformannshlutverkinu - sem hann hafi gegnt dyggilega frá árinu 1981. Halldór er fæddur árið 1947, þannig að hann verður rétt tæplega 48 ára næst þegar kosið verður til Alþingis. Hann mun í grundvallaratriðum ætíð hafa sætt sig við það hlutverk að vera einskonar vara- skeifa formannsins. Nú er því á hinn bóginn haldið fram, að þrátt fyrir lang- lundargeð Halldórs, sé lítið eftir af slíku geði, og verði niður- staðan sú að Stein- grímur hugsi sér ekki til hreyfings fyrir næstu kosningar, og það talsvert fyrir þær, muni Halldór sjálfur geta hugsað sér að hætta afskiptum af stjórnmálum og snúa sér að einhveiju öðru, svo sem kennslu við Háskóla Islands. Talsverðra efasemda mun gæta í huga Steingríms um að það væri rétt að skila af sér flokknum í hendur Halldórs einmitt nú. Hann mun líta á sig og Halldór, sem fulltrúa sitt hvorrar fylkingarinnar innan Framsóknar, þar sem Steingrímur táknar vinstri og Halldór hægri, og því ríki ákveð- ið jafnvægi í forystuliði Framsóknar. Jafn- framt er því haldið fram, af þeim sem þekkja Steingrím hvað best, að hann hafi ekki nokkra trú á því að Halldór tæki þá ákvörð- Meirihluti þingflokks Framsóknar telur að Steingrími beri að víkja fyrir Halldóri. un að hætta afskiptum af stjórnmálum, þótt Steingrímur byði sig fram til formanns enn á ný á flokksþinginu næsta haust. Hann hafi þekkt Halldór svo lengi, og viti að hann hafi oft sagst vera þreyttur á vara- formannsembættinu á undanförnum árum, án þess að nokkur alvara hafi verið í því fólgin hjá honum, að láta verða af því að söðla um og hætta afskiptum af stjórnmál- um. Vildu Halldór sem þingflokksformann Ágreiningur á milli formanns og varafor- manns mun hafa orðið deginum ljósari við upphaf þings nú í haust, þegar umræður um það urðu háværar innan þingflokks Framsóknar, að nú væri kominn tími til þess að skipta um þingflokksformann. Umræður af því tagi eru ekki nýjar af nálinni innan Framsóknarflokksins, því tvisvar áður hefur slegið í brýnu innan þingflokksins, þegar yngri þingmenn létu í ljós þá skoðun að tímabært væri að breyta til, að því er varðaði þingflokks-. formanninn. Aldrei munu átökin þó hafa verið jafn heiftúðug og í haust. Raunar munu flestir þingmenn Framsóknar sem vildu skipta um þing- flokksformann hafa viljað að Halldór tæki við þingflokksformennskunni, þar sem hann sé óumdeildur krónprins flokksins. Hann mun á hinn bóginn ekki hafa viljað taka við því hlutverki í átökum við Steingrím og Pál. Páll Pétursson sóttist eftir endurkjöri, og Steingrímur studdi hann fullkomlega í því. Halldóri mun framan af hafa fundist eðlilegt að skipt væri um þingflokksform- ann, væri það vilji meirihluta þingflokksins, og látið þá skoðun sína í ljós. Þessu tók Steingrímur afar illa. Báðir munu þeir þó SJÁ NÆSTU SÍÐU FIRÐ Rís úr hafi, ljós, sem stöðug stjarna. Stefnir ofar, hægt upp himininn. Mér finnst ég sjái andlit eigra þarna, óljóst, en þó ber það svipinn þinn. Ég man þú straukst um votan, rjóðan, vangann. Þú vissir ekki að ég færi né heldur hvert. I mér geymdi ég áhrif þín og angan. Án þess yrði líf mitt einskisvert. Ouppgert var allt. Einskisverð mín fór. Vinur minn, vindurinn, veitti engin svör. Ekki vil ég kveina eða kvarta. Kænska er ekki sterka vopnið mitt. Ég stanslaust var í huga mér og hjarta hrópandi í víddir nafnið þitt. Mér fannst ég vera fangi í þínu neti. Fyrirgefðu glappaskotin mín. Hvíslandi í vindinn, vona'aö ég geti, í vor, komið aftur heim til þín. LJÓÐSÖGUR f TÓNLIST Um angurværð draumanno, hreinleika og mátt ástarinnar og óumbeðna nálægð dauðans. Um Ififfið. **** SMS í DV GULL MEÐ HERÐI TORFA - HLUSTAÐU! Pöntunarsími: 91 - 625200 - 625088

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.