Morgunblaðið - 12.12.1993, Side 30

Morgunblaðið - 12.12.1993, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1993 HUÓMPISKAR Oddur Björnsson íslensk kammertónlist („Five Commissioned Works“) eftir Jónas Tómasson, Áskel Másson, Atla Ingólfsson, Karólínu Eiríks- dóttur og Hilmar Þórðarson. Kammersveitin Ýmir (Auður Hafsteinsdóttir, fiðla, Einar Jó- hannesson, klarinet, Maarten van der Valk, slagverk, Bryndís Halla Gylfadóttir, selló, Einar St. Jónsson, trompet, og Örn Magnússon, pianó). íslensk tónverkamiðstöð — RÚV. Maður heitir Michio Nakajima og býr í Japan. Áhugi hans fyrir Íslandi, menningu landsins og list- um, vaknaði fyrir mörgum árum. Tónlistin hreif hann, en í henni fannst honum hann finna þann hreinleika og tærleika sem hann þráði að heyra, svo vitnað sé í bæklinginn sem fyigir þessum hljómdiski. Og enn tilvitnun: Árið 1992 pantaði N. tónverk hjá fímm íslenskum tónskáldum sem hann hafði valið til verka. Öll höfðu þau sýnt áhuga á Japan í fyrri verkum sínum — verið undir japönskum áhrifum. Hann valdi hljóðfærasam- setninguna og fimmmenningamir hófust handa. Og hér höfum við afraksturinn, „Music for Iceland & Japan“: fímm fersk og fín kammer- verk, frábærlega leikin af Kammer- sveitinni Ými (stofnuð 1992), sem frumflutti verkin á Myrkum músík- dögum í febrúar sl. Skal engan undra að flutningur þessara verka var með stærri viðburðum í ís- lensku músiklífi í vetur leið. Japönsku „áhrifin" em svo sem augljós — en einnig afar fersk og skemmtileg og falla einstaklega vel í þann íslenska tónvemleika, sem hér birtist (hann hefur trúlega haft rétt fyrir sér, umræddur Japani — sá góði maður!). Það liggur við að manni fínnist „íslensk tónhugsun" eða ölluheldur heym hafí — að vissu leyti — verið leyst úr læð- ingi, og skyldi þó enginn misskilja þau orð og allrasíst íslensk tón- skáld af yngri kynslóð. Eg leyfí mér að efast um að íslensk list rísi hærra nú um stundir en í músík, gildir jafnt um höfunda og flytjend- ur. Þrátt fyrir „hið japanska inn- legg“ em verkin fjölbreytt og ólík innbyrðis, enda hafa tónskáldin gefíð sér mismunandi forsendur. í stuttri umsögn gefst ekki rúm fyr- ir ítarlega umfjöllun verkanna, Jón- as Tómasson „slær tóninn" í fyrsta verkinu (Sónötu XXI) — ákaflega skýrri og vel heppnaðri tónsmíð, sem grípur mann strax með upp- hafshljómum sínum og skemmti- legum skírskotunum í gamlar hefð- ir. Verk Áskels (Snjór) er fínlegt í „birtingarformum" sínum. „Musubi" Atla Ingólfssonar „bygg- ir á nótnaneti, sem margvíslegir hnútar em hertir á í von um að kvikni í þeim líf“ — hvað og ger- ist. Karólína leitast við í tónsmíð sinni að láta íslenskan vísnaleik kveðast á við japanskt ljóðform (Renku), sem verður einsog gmnn- ur fyrir form verksins og fram- vindu. Hilmar Þórðarson á svo lokaorðið með mögnuðum mynd- um, byggðum á reynslu tónskálds- ins á ferðalagi um Japan. Loks er að endurtaka þakklæti til Ýmis-hópsins fyrir frábæran flutning. Kammersveitin Ýmir. Kammersveitin Ymir leikur ís- lensk nútímaverk Nýjar bækur Sjósókn og sjávarfang eftir Þórð Tómasson -JJT ER komin bók eftir Þórð Tóm- asson í Skógum sem hann nefnir Sjósókn og sjávarfang, yfir- gripsmikið rit prýtt fjölda gamalla Ijós- mynda. í formála segir Þór Magnússon þjóðminjavörður m.a.: „Hér segir ekki aðeins frá sjósókn, skipum og fárviðri, fískveiðum og aflabrögðum, heldur ekki síður frá því fólki, sem sjóinn stundaði og átti allt sitt undir því, sem það gat aflað með höndum sínum af sjó og landi. Hér er sagt frá feng og fiskisæld og áföllum, -•sfysum og baráttu, sem oft lyktaði svo að enginn var til frásagnar. Mest gildi hefur ritið þó sem ná- kvæmt heimildarrit þjóðháttafræð- innar, þó í senn frásögn við almenn- ingshæfí og fræðilegt rannsóknar- rit.“ Meginkaflar bókarinnar eru fimm og skiptast þeir í 118 undirkafla. IJtgefandi er Örn og Örlygur. Myndaritstjóri verksins var ívar Þórður Tómasson Gissurarson. Filmuvinnu annaðist Litróf hf. en Prentstofa G. Ben. sá um prentun og bókband. Bókin kost- ar 7.900 krónur. Saga um hetju- listamann Bókmenntir Matthías Viðar Sæmundsson Björn Th. Björnsson. Falsarinn. Heimildaskáldsaga. Mál og menning 1993. Orð gilda orð, sagði hann við prestinn, seðill er seðill! Með þeim orðum er örlagaríkri framvindu hrundið af stað. Listhneigður sveitapiltur teiknar upp ríxdalsseðil af fádæma hagleik og selur hann í verslun til að geta eignast pappír, allt í einskonar ósjálfræði sem varð ættarfylgja niðja hans síðarmeir. Stundum er einsog ætlun manns grói fyrir utan vilja og skynsemi, segir söguhöfundur; listnáttúran ber dómgreindina ofurliði, það er einsog bresti eitthvað í höfðinu og bijóstinu, allt annað hættir að skipta máli. Þetta stef er endurtek- ið í mörgum tilbrigðum innan sög- unnar; og það sýnir að sagan er iðulega sett saman úr óvæntum augnablikum, skyndiákvörðunum, tilfínningalegum uppákomum og óljósum hræringum sem vita ekki á neitt en verða samt upptök mik- illa sviptinga. Falsarinn er breið heimildaskáld- saga um ævintýralegt lífshlaup ís- lensks sveitapilts sem dæmdur var til dauða fýrir peningafals á 9. ára- tug 18. aldar, en sætti síðan þrælk- unarvist í Krónborgarkastala um fimm ára skeið áður en hann fékk náðun. Þorvaldur hét hann Þor- valdsson frá Skógum í Þelamörk. Sögu þessa manns er fléttað saman við sögu afkomenda hans sem enn eru kenndir við Skóga þótt þeir hafí dreifst útum veröldina. Sumir þeirra komust til ótrúlegra metorða í Danmörku en aðrir freistuðu gæf- unnar í Chile þarsem sagan gerist að nokkru leyti. Sögunni víkur því fram og aftur í tíma og á milli meginlanda í rúmi, enda ber hún vott um sérstæða söguvitund er felur í sér að öll saga sé samtíð, eða með orðum söguhöfundar: „Við stöndum við hlið atburðanna, já, í atburðunum sjálfum, hvenær svo sem þeir hafa gerzt. Örlög fyrri manna eru örlög okkar sjálfra. Við erum tímalaus þjóð.“ Þessi sögu- skilningur liggur byggingu sögunn- ar til grundvallar. Atburðir sem gerast eiga um 1800 standa við hlið atburða frá lokum 19. aldar rétt einsog hvorir um sig séu endur- tekning hinna að breyttu breyt- anda, aldirnar speglast hvor í ann- arri auk þess sem vísað er í tíma skrifanna er tekur völdin í söguauka þar sem segir frá skiptum höfundar við núlifandi ættingja falsarans. Öll þessi saga á sér hljómgrunn í sérstakri tegund af kaldhæðni, kaldhæðni sögunnar: Sonarsynir dauðadæmds peningafalsara norð- an af hjara hefjast til æðstu tignar í Danmörku, annar verður konung- legur hirðmálari en hinn tekur að sér stjórn danskra ríkisfjármála. Líf þeirra hið ytra er á allan hátt gjörólíkt ævi hins dæmda sem vart taldist til manna á ómildri öld þeg- ar skorður stéttanna voru óhaggan- legar. Þessir voldugu menn, niðjar hins valdalausa, standa líka á „eilít- íð holri skum“ að mati söguhöfund- ar, með einhverja „vöntun innan um sig, beyg eða uggun“. Ljóminn sem leikur um þá, auðlegðin og virð- ingin dylur skugga harðneskju, ör- birgðar og hungurs, enda eru'þeir afkomendur öskuársins mikla 1782 þá glæpurinn mikli var framinn. Þeir bera þaraðauki svip uppruna síns, lífshlaup þeirra er ofið úr sömu þráðum og skópu Þorvaldi örlög. Niðjar hans allir eru einsog tveir ólíkir menn hið innra, annar er jarð- bundinn og raunsær, maður vinnu og viðskipta, en hinn ljóðrænn nautnaseggur, gæddur draumlyndi listamannsins; einn erfír það sem að peningum lýtur, annar þiggur listfengið, en sá þriðji hvorttveggja. Falsarinn er mikil og efnisrík saga en nokkuð misjöfn að gæðum. Þannig ber þáttur hetjulistamanns- ins af lýsingu afkomenda hans að mínum dómi. Orðin eru þaraðauki full mörg á stundum. Hér getur engu að síður að líta frábærar mann- og þjóðlífslýsingar einsog vænta mátti, skrifaðar á óviðjafn- anlegu máli þegar best lætur. Höf- undur hefur viðað að sér miklum heimildum úr ýmsum áttum en tví- nónar ekki við að skálda í eyður þarsem þurfa þykir. Að því leyti gengur hann mun lengra en í „heimildasögu" sinni Haustskipum (1975) sem saga þessi er að vissu leyti kviknuð uppaf. Bjöm lætur ekki heimildaskort aftra sér frekar en endranær og verður oft matar- hola úr hörðum steini; fáein orð- skrípi í djúptgröfnu kirkjuskjali ummyndast í kröftuga örlagafrá- sögn þarsem skáldskap og sann- fræði er fléttað saman á áhrifamik- inn hátt. SNODDARNIR Bókmenntir Sigrún Klara Hannesdóttir Jón Hjartarson. Snoðhausar. Iðunn. 1993. Körfuboltahetjur nútímans bland- ast saman við kvikmyndahetjuna Kaftein Krók og niðurstaða Týra verður sú að hann vill láta raka af sér allt hárið. Hinir vinirnir vilja þá allir verða sköllóttir líka. Systkinin Matthildur og Óli eldri systkini Anga- Týra koma mjög við sögu, en einnig Elfar, Dalla, Simbi, Jón og Dóri. Aðeins Dalla og Dóri sleppa við snoð- unina. Stígur, pabbi Týra, þarf að fá sér rafmagnsraksköfu til að vinna verkið! Við erum einhvers staðar í Reykja- vík — í nýbyggðu hverfi þar sem fullorðna fólkið glímir við fjárhags- örðugleika en krakkarnir leita uppi ævintýrin í hversdagslífínu, á hjóli, í Drullulandi eða á steini sem hlýtur að vera byggður huldufólki. Það er rappað og skáldað milli þess sem farið er og leitað að mannætuhákörl- um í mýrinni. Foreldrarnir í sögunni hafa ekki miklu hlutvérki að gegna en þau eru þama og þurfa stundum að taka í taumana. Uppátæki bam- anna endurspeglast stundum I skelf- ingu fullorðna fólksins. Amma Pálína fær sérstaka at- hygli höfundar. Þetta er ein af þess- um frábæru ömmum sem eru farnar að skjóta upp kollinum í íslenskum barnabókum. Amma Pálína er grall- ari ekki síður en krakkarnir. Ég held hún hljóti að vera skyld Ömmu Dreka sem Guðrún Helgadóttir gerði ódauð- lega í sínum bókum. Þegar Pálína fer með krökkunum í siglinguna og borgar þeim fyrir hana þrátt fyrir óvæntan endi verða jafnvel krakk- amir undrandi á þessari einstöku ömmu. Hún er líka sáttasemjari í Jón Hjartarson deilu krakkanna við Ámunda leigu- bílstjóra sem vill afgirða steininn Hafliða og meina krökkunum aðgang að eftirlætis leiksvæði sínu. Amma Pálína veit'upp á hár hvað hún er að gera og hefur gaman af. Sagan um Snoðinkollana er bráð- skemmtileg frá upphafí til enda. Höfundur hefur gott vald á sögu- þræðinum og stýrir sögu sinni milli gamans og alvöra og fyllir hana af sniðugum smáatvikum sem hljóta að gleðja lesandann. Málfar er ríkt og laust við alla tilgerð. Ég hef aldrei fyrr séð orðið rafmagnsrakskafa þótt augljóst sé við hvaða tæki er átt. Hann notar líka atvik til að auðga orðaforða lesendanna. Útskýrir án þess að predika. Myndir Brians Pilkingtons eru gamansamar en bömin eru of lík hvert öðra og öll með sama sauða- svipinn. Amma Pálína er ekki neitt sjálfri sér lík á myndum hans. Hún er engin venjuleg kerling. Aðventu- tónleikar Selkórsins AÐVENTUTÓNLEIKAR Selkórs- ins verða haldnir sunnudaginn 12. desember í Seltjarnarneskirkju og hefjast þeir kl. 17. Selkórinn er sjálfstætt söngfélag, blandaður kór, sem starfað hefur á Seltjamamesi í tuttugu og fímm ár eða frá árinu 1968. I kórnum era nú u.þ.b. 50 söngvarar. Kórinn held- ur að jafnaði tvenna tónleika á hveiju starfsári þ.e. á jólaföstu og á vorin. Efnisskráin á tónleikunum er tví- þætt. Fyrri hlutinn era þekkt íslensk og erlend jólalög, en seinni hlutinn er fímm radda mótetta, Jesu Meine Freude eftir Johann Sebastian Bach, sem flutt verður við undirleik orgels og kontrabassa. Stjómandi kórsins er Jón Karl Einarsson. ----» ♦ ♦--- Seltjarnarnes Upplestur á aðventu UPPLESTUR úr nýútkomnum bókum í Bókasafni Selljarnarness verður á morgun, mánudaginn 13. desember, kl. 20.30. Þrír höfuudar koma og kynna verk sín. Höfundamir sem lesa eru: Birgir Sigurðsson sem les úr skáldsögunni Hengiflugið, Símon Jón Jóhannsson les úr bókinni Sjö, níu, þrettán en hún fjallar um hjátrú íslendinga og Steinunn Sigurðardóttir, en hún les úr skáldsögunni Ástin fiskanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.