Morgunblaðið - 12.12.1993, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 12.12.1993, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1993 HANDKNATTLEIKUR Gunnlaugur Hjálmarsson bregður tommustokk að hári Ás- Ijjöms Siguijónssonar, formanns HSI, í HM 1961, en þá voru Asbjöm og Hannes Þ. Sigurðsson (fyrir aftan Ásbjöm) bursta- klipptir. Karl Jóhannsson er einnig á myndinni og þýsk hár- greiðslustúlka. Eins og sprengju væri kastað á áhorfendabekkina Rúmenar sækja að marki íslendinga í HM í A-Þýskalandi 1958. Þá dæmdi einn dómari leikinn, en honum til aðstoðar vom tveir markadómarar sem stóðu með fána á kössum við endamörk, eins og sést á myndinni. Islendingar sýndu það besta sem hefur sést í heimsmeistarakeppn- inni, skrifaði handknattleiksprófess- orinn Knud Lundberg, sem skrifaði greinar fyrir danska blaðið Aktuelt, eftir að Island hafði náð jafntefli, 15:15, við Tékkóslóvakíu [á HM 1961]. 6.000 áhorfendur urðu vitni að lokaspretti íslendinga, sem unnu upp þriggja marka forskot, 12:15, Tékka á ævintýralegan hátt. Þegar Gunnlaugur Hjálmarsson skoraði jöfn- unarmarkið örfáum sekúndum fyrir leikslok með hörkuskoti, var eins og sprengju væri kastað á áhorfenda- bekkina - áhorfendur, sem nær allir vom á bandi „litlu" þjóðarinnar, risu úr sætum, stigu stríðsdans og fögnuðu ákaft. íslensku leikmennimir höfðu algjörlega unnið hug áhorfenda, þrátt fyrir hörkulegan leik á köflum. Leikurinn byijaði ekki vel fyrir ís- lendinga því að Tékkar náðu góðu forskoti, 1:4, strax i byijun, en þegar staðan var 3:7 náðu íslensku leik- mennimir góðum spretti og minnkuðu muninn í 7:8, en Tékkar skomðu tvö síðustu mörk fýrri hálfleiksins, 7:10. íslendingar breyta um vamarleik í seinni hálfleik og léku flata vöm, sem setti Tékka út af laginu. Sóknarleikur- inn varð hraður og ákveðinn. Fyrr en varir er staðan orðin jöfn, 11:11, og spennan mikil í íþróttahöllinni í Stuttgart. Tékkar bmgðust hart við og þegar flórar mínútur em til leiks- loka var staðan 12:15. Það var þá sem íslendingar ná stórglæsilegum endaspretti, sem ein- kenndist af hörku, hraða og keppnis- vilja. Það vom góð ráð dýr - fjórar mínútur eftir og Tékkar þremur mörk- um yfir. Það varð að sækja á Tékkana og gefa þeim ekki færi á að halda knettinum og tefja þannig leikinn. Fyrirskipun kom frá Hallsteini á bekknum - hann blés til orrustu og gaf skipun: Maður gegn manni, strák- ar! Leikurinn varð gífurlega harður og erfítt fyrir áhorfendur að henda reiður á því, sem fram fór á vellinum, enda allt í einni hringiðu. En áhorfendur æstust upp; hrópuðu, klöppuðu og stöppuðu. Állir vildu vera með í loka- dansinum. Gunnlaugur skorar úr víta- 'kasti, 13:15, og Birgir Bjömsson bæt- ir öðra við á glæsilegan hátt, 14:15. Spennan var komin í hámark og þeg- ar Gunnlaugur náði að jafna rétt fyr- ir leikslok, 15:15, urðu fagnaðarlætin svo mikil, að þakið ætlaði af húsinu. Áhorfendur hylltu leikmenn íslenska Iiðsins lengi eftir að leik lauk. Svíar veittu Ung- vevjum aðstoð Funduðu með þeim fyrir leik gegn íslendingum í Bratislava Sigurleiksins 12:10 gegn Svíum í Bratislava 1964 mun um ókomna framtíð verða minnst sem eins besta leiks sem landslið Islands hefur leikið - og sigurinn varð stærri þegar að því var gáð, að Svíar vom með eitt sterkasta landslið heims, sem varð heimsmeistari 1954 og 1958. íslendingar máttu síðan tapa með fimm marka mun fyrir Ungveijum, til að komast með tvö stig í millirið- il. Landsliðið fékk stóran skell - Ungveijar unnu með níu marka mun, 12:21, og ísland var úr leik. Hvað gerðist? Karl G. Benediktsson lands- liðsþjálfari svarar þeirri spumingu í bókinni og segir m.a.: „Þegar á hólminn var komið kom í ljós að okkur skorti reynslu til að leika við þann hávaða sem var í íþróttahöllinni í Bratislava. Við höfð- um æft ákveðnar leikfléttur, sem síð- an fengu nafnið „Rúllettan" - keðju- verkandi ógnun, sem skapaði góða opnun í vörn andstæðingsins. Við voram með mjög góða skotmenn, sem vom nánast í dauðafæri ef ekki væri farið út gegn þeim. Það sem gerist eftir Svíaleikinn, var að Svíamir sáu sína sæng nánast uppreidda ef við myndum leggja Ungveija að velli - við fæmm áfram í milliriðil með tvö stig, en Svfar ekk- ert. Þar með vomm við komnir nokk- uð langt í keppninni. Þetta var ekk- ert grín fyrir Svía og þeir taka þá ákvörðun að ganga til liðs við Ung- veija fyrir leikinn gegn okkur - sett- ust niður með þeim og tóku þá í kennslustund; og útbjuggu sérstakt æfingaplan til vamar leikfléttum okkar. Þegar út í leikinn kom, vantar okkur raunvemlega leikþjálfunina - höfðum aðeins leikið tvo landsleiki á ámnum 1962 fram til 1964. íjiag era leiknir þetta og þetta margir landsleikir fyrir stórmót og við það fæst geysileg samæfing við góðar aðstæður og þjálfun. Við vomm að sjálfsögðu búnir að æfa mótleik gegn því að menn færðu sig í vöminni á móti þeim sem keyrði frá vinstri væng yfír á hægri væng á línunni, en þegar við komum út í harða keppni og allt varð vitlaust á áhorfendapöll- unum, vomm við komnir í nýjan heim. Þama vom lætin og lúðrablásturinn svo mikill að menn heyrðu ekki f manni sem stóð í eins metra fjar- lægð. Okkur vantaði einfaldlega reynslu til að framkvæma mótleikinn við þessar aðstæður - það er sagt í dag að menn missi áttir.“ Bókin Strákarnir okkar eftir Sigmund Ó. Steinarsson, blaðamann, er komin út. Bókin hefur að geyma stórbrotna sögu íslenska lands- liðsins íhandknattleik 1950-1993. Sagt erfrá sögufrægum leikjum og atburðum í máli og myndum'. Leikmenn segja sjálfir frá og þá segja þrír landsliðsþjálfarar álit sitt á leikmönnum. Fyrir utan f rá- sagnir má finna 1.100 fróðleikspunkta í bókinni um ýmislegt sem hefur gerst á leikvelli og utan hans. Úrslit allra leikja eru birt og leikmannaskrá. Hér á síðunni má sjá fjórar glefsur úr bókinni. Landsliðshópurinn kominn til Bratislava í Tékkóslóvakíu 1964 eftir 20 tíma lestarferð frá Kaupmannahöfn. Bogdan for á taugum fyrir ÓL í Seoul IJjaitsýni hefur alltaf verið ís- lendingum í blóð borin - við emm bestir og mestir. Þegar ísiand lagði Sovétríkin að velli, 23:21, síð- sumars 1988, vom allir á þvf að strákamir okkar myndu standa uppi á verðlaunapalli á Ólympíuleik- unum f Seoul. Það varð ekki, en aftur á móti gekk ailt á afturfótun- um þegar á hólminn var komið. Hvað gerðist? Sú spurning blundar enn í mönnum. Til að fá svar við þeirri spumingu, er best að gefa Alfreð Gíslasyni orðið: „Það er að- eins til eitt svar við þessari spum- ingu - Bogdan fór á taugum. Við vomm búnir að æfa eins og villi- menn - alltof mikið, en þegar allt virtist verða á góðri leið, komu mistökin. Það var þegar við lögðum Sovétmenn að velli, 23:21, í Laug- ardalshöllinni. Bogdan fór þá ein- faldlega á taugum - hann óttaðist að við væram komnir á toppinn á röngum tíma. Eftir ieikinn byijar hann að láta okkur æfa þrek og aftur þrek, til að slá á mannskapinn - þannig að hann kæmi síðan aftur upp í Seoul. Bogdan gerði það svo hressilega, að leikmenn komu aldrei upp aftur. Hann kláraði algjörlega viljastyrk leikmanna. Ég fann það í Seoul að leikmenn vom andlega búnir, þannig að leikmenn vom hug- myndasnauðir. Þá urðu menn pirrað- ir og mikið bar á smámeiðslum." Heimsmet í klaufaskap Íslenska landsliðið tók þátt í móti í Frakklandi 1985, þar sem Ungveijar vam lagðir að velli 28:24. Islenska Iiðið lék úrslitaleik síðan gegn Tékkum og um leikinn má lesa þetta í bókinni: íslenska liðið lék sinn síðasta leik gegn Tékkóslóvakíu í Lyon og mátti þolatap, 16:17. Lokaþáttur leiksins var ævintýralegur, en það var Barda, markvörður Tékka, sem skoraði sigurmarkið á lokasekúnd- um leiksins - með því að kasta knettinum yfir endilangan völlinn, yfír Einar Þorvarðarson, í mark Islands. Islensku leikmennirnir, sem höfðu skorað tvö mörk í röð og jafn- að, 16:16, sýndu mikinn klaufaskap undir lokin, sem kostaði þá tap. Þar sem Tékkum nægði jafntefli til að tryggja sér sigur í mótinu, léku þeir fast í vörninni og bmtu hvað eftir annað af sér og sekúndumar liðu. Þegar sjö sekúndur vora eftir reyndi Kristján Arason svifbolta inn í vítateig - ætlaðist til að Páll Ólafs- son kastaði sér inn í vítateiginn. Páll hreyfði sig ekki og knötturinn hafnaði beint í höndum tékkneska markvarðarins Barda. Hann sá að Einar Þorvarðarson var kominn langt út á völlinn og kastaði knett- inum yfír endilangan völlinn - og í netinu hafnaði hann. Barda steig stríðsdans, en íslensku leikmennim- ir vom niðurbrotnir. Páll kastaði sér niður á gólfið og lamdi það. Hvað sögðu leikmennirnir um þennan lokaþátt? Einar Þorvarðarson: „Ég hafði farið fram á völlinn til að kalla á strákana - að leika upp á jafntefli. Þá sá ég Kristján kasta knettinum inn í vítateiginn. Ég sá Barda hand- sama knöttinn og kasta honum yfir endilangan völlinn. Ég hljóp þegar í stað afturábak, en misreiknaði bæði hraða og hæð knattarins. Ég reyndi að slá knöttinn, en náði ekki að koma við hann.“ Kristján Arason: „Þegar allt var á suðupunkti og ekkert mátti út af bregða, kallaði Páll til mín - mér heyrðist hann biðja um svif- bolta inn í vítateig, þannig að ég kastaði knettinum inn í vítateig - hélt að Páll myndi stökkva inn og reyna að grípa knöttinn á lofti og skora. Páll var hins vegar að biðja um línusendingu, en ég átti ekki möguleika á að koma knettinum inn á línuna, þar sem Tékkarnir komu svo langt út á móti mér.“ Páll Ólafsson: „Ég var frír inni á línunni - bjóst við línusendingu. Þess vegna átti ég ekki von á svif- sendingunni og reyndi ekki við hana.“ íslensku leikmennirnir voru sárir eftir leikinn og Þorbjörn Jensson fyrirliði sagði: „Maður er alltaf að læra eitthvað nýtt - ég hélt að þetta væri ekki hægt.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.