Morgunblaðið - 09.01.1994, Blaðsíða 26
26 B
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1994
16500
Daniel Day-Levvis Míchelle Pfeiffer Winona Ryder
MAlíitf JC0fc$im«0$T iON.«i AKO WWtlíöl MOTiON fiCTtfcl
nm m mnm nm. ’mmx. mn
rMmmnaxm<™
* amm. hs* w > juunw ýcoísbt**.
PAsm day ir.uíi «:CHfiu fft-ffw wxm nm
rm.tM o» ftmiNU' *simt fiixsmsjasoaömA ?bci:ccí »,mmfŒmn
yzWXjt nwm xzmAitti fAUiuciut. &&mm cocss * «Aims scotsrn
tmæá *m* “ílAHAMOtfWA ^fTWSCOfcSBí ™__________________*xmv<
Stórmyndin
Öld
sakleysisins
gerð eftir Pulitzer-verðlauna-
skáldsögu Edith Wharton.
„ ★ ★ ★ ★ Besta mynd ársins. “
A.I. MBL. ★★★ H.K. DV.
★ ★★ RÚV.
Tilnefnd til 4 Golden
Globe-verðlauna.
DANIEL DAY-LEWIS, MICHELLE PFEIFFER
OG WINONA RYÐER í STÓRMYND MART-
INS SCORSESE. EINSTÖK STÓRMYND SEM
SPÁÐ ER ÓSKARSVERÐLAUNUM.
Sýnd kl. 4.45, 9 og 11.30
í Í NÝJU OG STÓRGLÆSILEGU STJÖRNUBÍÓI
SVEFN-
LAUS
I
Sýnd TA-sal kl. 7.10.
Wl
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
EVROPUFRUMSÝNING Á
GEGGJUÐUSTU GRÍNMYND
ÁRSINS
Hvcr annar en Mel Brooks
gæti tekið að sér að gera grín
að hetju Skírisskógar? Um leið
gerir hann grín að mörgum
þekktustu myndum síðari ára,
s.s. The Godfather, Indecent
Proposal og Dirty Harry.
Skelltu þér á Hróa; hún er tví-
mælalaust þess virði.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
Forsýning
KRYDDLEGIN HJÖRTU
Aðsóknarmesta erlenda myndin í USA frá upphafi
Bragðmikil latínó ástarsaga í orðsins fyllstu merkingu, krydduð
með kímni, hita, svita og tárum.
Aðalhl. Marco Leonardi (Cinema Paradiso) og LUmi Cavazos.
Leikstjóri Alfonso Arau.
Sýnd kl. 11.00
Félag- íslenskra háskólakvenna
Þremur konum veitt-
ar viðurkenningar
Morgunblaðið/Sverrir
Viðurkenningar afhentar
FRÁ afhendingu viðurkenninga Félags íslenskra háskóla-
kvenna. Á myndinni eru talið frá vinstri: Geirlaug Þor-
valdsdóttir, ritari félagsins, Kristín Huld Sigurðardóttir,
Oddfríður Halla Þorsteinsdóttir, Sigríður Þormar, sem
veitti viðurkenningu Ingi bjargar A. Þormar viðtöku,
og lengst til hægri er Kristín A. Árnadóttir, formaður
Félags íslenskra háskólakvenna.
ÚTHLUTAÐ hefur verið
úr styrktarsjóði Félags ís-
lenskra háskólakvenna, og
að þessu sinni hlutu þrjár
félagskonur viðurkenn-
ingu í formi styrks að upp-
hæð 50 þúsund krónur
hver.
Afhending viðurkenning-
anna fór fram á þrettándan-
um, 6. janúar, en konurnar
sem þær hlutu eru Ingibjörg
A. Þormar, sem stundar
meistaranám í sérkennslu-
fræðum við University of
Oregon í Bandaríkjunum,
Kristín Huld Sigurðardóttir
sem er við rannsóknir á dokt-
orsstigi í málmrannsóknum
og forvörslu forngripa við
Institute of Archaeology, Uni-
versity College í London og
Oddfríður Halla Þorsteins-
dóttir, sem stundar doktors-
nám á sviði rannsókna á vís-
inda- og tæknistefnu við Sci-
ence Policy Research Unit við
University of Sussex í Bret-
landi.
Félag íslenskra háskóla-
kvenna var stofnað 7. apríl
1928 og átti dr. Björg C.
Þorláksson hugmyndina að
stofnun félagsins. Tilgangur-
inn var meðal annars að taka
upp samband við menntakon-
ur annars staðar í heiminum.
Fljótlega var kvenstúdentum
boðið að vera með í félags-
starfinu og varð þá nafn fé-
lagsins Kvenstúdentafélag ís-
lands og Félag íslenskra há-
skólakvenna. Fjáröflun hefur
verið stór þáttur í starfsemi
félagsins. Árið 1956 bauð fé-
lagið í fyrsta sinn fram styrk
á alþjóðaþingi IFUW, Al-
þjóðasambands háskóla-
kvenna, og hlaut hann ensk
kona sem vann að þýðingu
Eddukvæða.
Fé safnað
Áður hafði félagið safnað
fé og gefið andvirði eins her-
bergis á nýja stúdentagarðin-
um til að tryggja rétt kven-
stúdenta þar til búsetu. Styrk-
veitingin braut blað í sögu
félagsins og varð eitt af aðal-
markmiðum þess að styrkja
eða veita viðurkenningu kon-
um í framhaldsnámi. Félag
íslenskra háskólakvenna er
aðili að Alþjóðasambandi há-
skólakvenna og hefur á
undanförnum árum haft milli-
göngu um náms- eða rann-
óknastyrki erlendis frá til fé-
lagskvenna sinna í fram-
haldsnámi.
Hvanneyringar skemmta
sér saman á nýársnótt
Hvannatúni í Andakíl.
HEIMILISFÓLK á Hvann-
eyri hefur komið saman
sl. fimm áramót í leikfimi-
sal staðarins og skemmt
sér í tilefni af áramótum.
Áberandi ér að allir koma
saman, ungir sem aldnir.
Unglingar og böm dansa
saman og fullorðnir dansa
við börnin. Áfengisneysla er
ætíð hófleg og aldrei til
vandræða. Heimamenn hafa
alltaf séð um hljómlist —
allt upp í fjögurra manna
hljómsveit með harmoniku,
gítar, hljómborð og tromm-
ur.
Það er ein Qölskylda í
hvert sinn sem sér um
skreytingu salarins og frá-
gang með aðstoð annarra.
Bændaskólinn lánar borð og
stóla. Myndarleg brenna á
gamlárskvöld er löngu orðin
föst hefð.
- D.J.
Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson
Ingimar Einarsson sá einn um hljómlistina að þessu sinni
og var hann vel búinn tækjum.
Börnin tóku þátt í dansinum af miklum áhuga.