Morgunblaðið - 09.01.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1994
B 15
Hart
RAPP
HARÐA rappið fór
stórum á siðasta ári, þar
fremstir forðura félagar
í brautryðjendasveitinni
NWA Dr. Dre, Eazy-E og
Ice Cube. Seint á árinu
kom út plata frá þeim
síðasttalda, Lethal
Injection, og var ein af
bestu plötum ársins 1993.
Það segir sitt um hve
NWA var áhrifamikil í
harða rappinu hvað liðs-
menn sveitarinnar hafa náð
góðum árangri einir síns
liðs. Plata Dr. Dre er ein
mest selda plata rappsög-
unnar, aukinheldur sem
flestar rappplötur sem kom-
ið hafa út síðan hafa dregið
af henni dám, Eazy-E náði
einnig langt, þó ekki væri
það eins langt og Dre og
loks kom plata Ice Cube,
eins og áður er rakið, og
selst hefur í bílförmum.
Reyndar hefur samkomu-
lagið ekki verið upp á marga
fiska hjá þessum forðum
fóstbræðrum og eftirminni-
legt er í því sambandi þegar
Ice Cube jarðaði þá sem eft-
ir voru í sveitinni í laginu
No Vaseline og bannað var
í Bretlandi.
Ice Cube hefur alltaf ver-
ið með forvitnilegri röppur-
um fyrir skemmtilegar laga-
smíðar og er við sama hey-
garðshornið á plötunni nýju,
þó alltaf sé hann jafn óbil-
gjarn og hrár í textagerð.
Skemmtilegt innskot á plöt-
unni á funkafínn George
Clinton, sem rappar með Ice
Cube í endurgerð af gömlum
Funkadelic-slagara.
Forvltnilegur Ice Cube.
FOLK
WkEKKI hefur mikið farið
fyrir SSSól síðustu mánuði,
þó sveitin hafi átt merkilega
útsetningu á gömlum slagara
á safnplötunni Heyrðu 2
fyrir síðustu jól. Fyrir
skemmstu gerðust þó þau
tíðindi að Jakob Magnús-
sou, bassaleikari sveitarinn-
ar frá örófi, sagði skilið við
hana. SSSól-liðar sem eftir
eru láta þó ekki hugfallast
og eru um þessar mundir að
prófa bassaleikara og eru
ýmsir í sigtinu. Nokkuð ligg-
ur á, því taka á upp næstu
breiðskífu sveitarinnar í
mánuðinum og stendur til
að sú komi út með vorinu.
Jakob hefur jvo verið orðað-
ur við Pláhnetuna,
en bassaleikari henn-
ar, Friðrik
Sturluson, er á Stjarna
förum utan til Evan
náms. Dando.
n Vf1 VTD>PAIVT vcip
U/lvUK 1 UNLla 1
Hver er besturf
Stjörnuhrap Daníel Nýdanskur í Þjóðleikhúsinu.
rri • r
Tveira
toppnum
PLÖTUÚTGÁFA var með fjörlegra móti fyrir síð-
ustu jól, bæði vegna þess að fleiri plötur voru gefnar
út en oftast áður og svo að barist var af meiri ákafa
og minni fyrirhyggju en dæmi eru um. Þrátt fyrir
það virðast flestir una vel við sitt eftir slaginn, en
ólíkt síðustu tveimur plötujólum, þegar nokkrar plöt-
ur voru á tcppnum, stungu tvær plötur af og seldust
mun meira en þær sem næstar komu.
Ljúsmynd/Björg Sveinsdóttir
eftir Ámo
Motthíasson
Síðustu ár hefur piötu-
salan orðið dreifðari,
þ.e. fleiri plötur hafa borið
sig, en aftur á móti hafa
færri skilað milljónagróða.
Þannig
voru
nokkrar
plötur á
toppnum
jólin 1991
og 92, en
að þessu
sinni
stinga
þeir Kristján Jóhannsson
og Bubbi Morthens aðra
rækilega af, því plata
Bubba, sem lenti í öðru
sæti, seldist nær tvöfalt
meira en platan í þriðja
sætinu.
Kristján Jóhannsson sló
öllum við með plötu sinni,
sem seldist I rúmum 15.000
eintökum, en fast á hæla
honum kom Bubbi Morth-
ens með plötuna Lífið er
ljúft sem seldist í rúmum
13.000 eintökum og gaf
þeim langt nef sem spáð
höfðu því að Bubbi væri
búinn að syngja sitt síð-
asta. Nokkuð á eftir var
plata Todmobile, Spillt,
sem seldist í um 7.000 ein-
tökum, sem er það besta
sem sveitin hefur náð.
Plata Bjarkar Guðmunds-
dóttur náði 7.000 eintaka
sölu fyrir jól, en þess ber
að geta að hún kom
snemma út á árinu. Einnig
seldist plata Bogomils og
milljónara hans í 7.000 ein-
tökum, en það er líka plata
sem kom út nokkru fyrir
jól. Ekki langt undan var
KK Band með plötuna Hót-
el Föroyar, sem seldist í
rúmum 6.000 eintökum,
töluvert minna en síðasta
plata sveitarinnar, Bein
leið, sem hefur reyndar
selst í 4.000 eintökum á
árinu. Sigga Beinteins kom
verulega á óvart með sína
fyrstu sólóskífu, sem hún
gaf sjálf út og seldist í um
7.000 eintökum, og Stefán
Hilmarsson, sem gaf
einnig sjálfur út sína
Morgunblaðið/Sverrir
Metsala Bubbi Morthens.
fyrstu sólóskífu, getur vel
við unað með 4.000 eintök
seld. Aftur á móti hallar
undan fæti hjá Nýdönsk,
sem seldist í innan við
4.000 eintökum, en hljóm-
sveitin hefur stöðugt sótt í
sig veðrið síðustu ár og síð-
asta plata hennar seldist
tvöfalt meira. Önnur sveit
sem sígur hressilega niður
á við er Jet Black Joe, en
plata sveitarinnar seldist í
um 3.000 eintökum sem
er minna en helmingur af
sölu síðasta árs. Plata
Rafns Jónssonar seldist í
vel á sjötta þúsund eintaka
og platan Kom heim, sem
var með ýmsum flytjend-
um, seldist í rúmum 4.000
eintökum. Borgardætur.
komu á óvart og þó plata
þeirra hafi komið út rétt
fyrir jól seldist hún í rúm-
um 2.500 eintökum. Safn-
plötur hafa selst vel á árinu
og svo var og fyrir jól;
Transdans skrejð yfir
3.000 eintök og Ýkt stöff
Ljósmynd/Marcol Leilenhof
Efstur Kristján Jóhansson.
I á þriðja þúsund, en
Heyrðu 2 seldist í rúmum
2.000 eintökum og þar
skammt undan var Reif á
sveimi. Piata Páls Óskars
Hjálmtýssonar seldist í um
2.000 eintökum og plötur
Bubbleflies og Geirmundar
Valtýssonar í álíka upplagi.
Þúsundkallar
Allmargar plötur náðu að
seþast yfir 1.000 eintök, en
ekki er gott að gera sér grein
fyrir því hveijum það hefur
dugað fyrir kostnaði. Þannig
voru þau á svipuðu róii innan
við 1.600 eintök Orri Harð-
arson, Haraldur Reynisson,
Ómar Ragnarsson, og Súkk-
at, en Móeiður Júníusdóttir
var rétt yfir 1.000 eintökum
og Rokk i Reykjavík sömu-
leiðis. Safnplata Megasar
seldist í um 1.500 eintökum
og Stuðmannasafnið var þar
ekki langt undan. Rómantík,
safiiplata Skífunnar, seldist
líka í rúmum 1.000 eintök-
um.
KOMIN
á kortið
ÞAÐ kemur iðulega
hljómsveit á kortið þegar
frægari kollegar láta
lofsamleg orð falla um
hana, þó það sé reyndar
ekki oft, því margir
popparar eru svo
uppteknir af sjálfum sér
að þeir sjá ekkert annað.
Þannig vildu allir fá viðtal
við Grant Lee Buffalo
þegar Michael Stipe úr
R.E.M. bar sveitina lofi.
Grant Lee Buffalo, sem
snýst um gítarleikar-
ann, söngvarann og laga-
smiðinn Grant Lee Phillips,
er á líkan hátt og R.E.M.
að vinna úr bandarískum
tónlistararfi og skapa eitt-
hvað nýtt. Sveitin varð til
upp úr Los Angeles-hljóm-
sveitinni Shiva Burlesque,
sem fjaraði út og að lokum
voru það bara þrír sem
mættu á æfíngar. Gamla
nafninu var snimhendis
kastað og nýtt tekið upp og
sveitin þróaði sig í nýjar átt-
ir, þar sem niðurrif var aðal.
Niðurstaðan varð svo breið-
skífan Fuzzy, sem kom Stipe
á bragðið og áður er rakið.
Gagnrýnendur hafa líkt
frábærri frumraun Grant
Lee Buffalo, sem dregur
nafn sitt af leiðtoga sveitar-
innar og um leið skepnu sem
nánast er útdauð, við eins-
konar úttekt á Bandaríkjun-
um, ýmist súrrealíska eða
miskunnarlausa í raunsæi.
Þar skiptir ef til vill máli að
Phillips nam kvikmyndagerð
og segist vilja koma mynd-
rænni hlið innblásturs síns á
framfæri. Ekki er gott að
segja hvort velvild Stipes sé
nóg til að velta heimsfrægð-
arhlassinu, en þó ljóst að
tónlist sveitarinnar veldur
því að Fuzzy er jafnan talin
með því besta sem út kom
á liðnu ári.
Uttekf Grant Lee Buffalo,
DÆGILEGT SVEITAROKK
EIN þeirra sveita sem slógu óforvarandis
í gegn á síðasta ári var sú bandariska
Lemonheads. Helst var það fyrir
Simon og Garfunkel-stemmuna um
frú Robinson, en þegar að var gáð
var meira í sveitina spunnið.
emonheads er hljómsveit Evans
jDandos, sem hefur flest með sér;
'er laglegur, vinmargur og af auðugum.
Til viðbótar er hann ijbtækur lagasmið-
ur og söngvari, einfag heyra mátti á
plötunni sem frú RoBmSon skreytti, en
þó helst á nýlegri þíStu sveitarinnar,
Come Feel the Lemonheads, sem var litið vart í jólaflóðinu
hér á landi.
Lemonheads á rætur í groddarokki, en hefur með tíma
um þróast í átt að dægilegu feveitarokki að bandavísktim
hætti. Á plötunni nýju eru fj*Biörg dæmi þess að sWitin
hefur stigið enn lengra frá gtfkldanum og Dando notar
færri hljóma og færri orð til aðAjá sig, með eftit*minnileg-
ur árangri.
J'lýliðið ár var erilsamt fyrir Dando og félaga, því sveit-
in þijrfti að leggja á sig mikið stúss í kjölfar aukinna vin-
safeldá. Lögin á plötunni eru og obbinn af tónleikadagskrá
sv'eitnrinnar og reyndar var platan hljóðrituð í hlutum, lag
og íag á milli tónleikaferða. Ekki er það þó að heyra á
gP?nni; allt er á sínum stað, enginn að flýta sér og fyrir
vikið er þar komin ein af eftirminnilegri plötum liðins árs.