Morgunblaðið - 12.01.1994, Side 1
64 SIÐURB/C
STOFNAÐ 1913
8. tbl. 82. árg.
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Skipvetjinn sem fórst við strand björgunarskipsins Goðans
Missti takið á stýrinu er
seinna brotið reið yfir
Endurfundir
SKIPBROTSMENNIRNIR sex
af björgunarskipinu Goðanum
komu til Reykjavíkur í gær-
kvöldi. Ingileif Arngrímsdóttir
kona Sigmars Ægis Björgvins-
sonar og dætur þeirra fögnuðu
Sigmari innilega. Engar líkur
eru taldar á því að unnt verði
að bjarga Goðanum af strand-
stað í Vöðlavík, en áfram verð-
ur reynt að ná Bergvíkinni á
flot.
KRISTBJÖRN Guðlaugsson háseti á björgunarskipinu Goð-
anum segir í samtali við Morgunblaðið að við fyrsta brotið
sem reið yfir hafi skipið lagst á bakborða og gríðarlegur
halli komið á það. Þá hafi ljósavélin, öll sljórntæki og fjar-
skiptabúnaður skipsins dottið út. Rúðurnar í brúnni og
hurð bakborðsmegin í henni ásamt karmi og öðru hafi
mölbrotnað. „Stuttu síðar skall annað brotið á skipinu. Ég
komst ekki fram í stýrishúsið en gægðist inn og sá að stýri-
maðurinn hélt sér í stýrið og reyndi að stýra uppí. Síðan
kom fylla og þá missti hann takið og féll niður í átt að
tómri dyragættinni. Matsveinninn og hinn hásetinn reyndu
að teygja sig eftir honum. Hann sagði „ég er fastur“ og
síðan ekki meir,“ segir Kristbjörn.
Hann kveðst aldrei hafa fyllst
ótta þá rúmu níu klukkutíma sem
áhöfnin beið björgunar upp á von
og óvon, en það hafi samt sem
áður verið ólýsanlegur léttir að sjá
þyrlurnar birtast fyrir víkurmynn-
ið. „Þeir unnu hratt og af stórkost-
legu öryggi, slökuðu sínum mönn-
um niður með hraði og ákváðu í
hvaða röð við værum hífðir um
borð. Þeir unnu frábært verk sem
maður fær aldrei fullþakkað með
öflugum verkfærum sem við verð-
um að eignast,“ segir Kristbjörn.
Hann segir þessa reynslu hafa
breytt lífsmati sínu. „Eg lít lífið
allt öðrum augum í dag en fyrir
tveimur dögum,“ segir Kristbjörn.
Móttökuathöfn í flugstöðinni
Mennirnir sex sem björguðust
af Goðanum komu til Reykjavíkur
í gærkvöldi með kistu hins látna
félaga síns. Eftir að vinir og ætt-
ingjar höfðu tekið á móti mönnun-
um var stutt athöfn í flugstöð-
inni. Viðstaddir voru vinir og
vandamenn skipveijanna sjö auk
fulltrúa útgerðarfélagsins. Var
lesin bæn og flutt ritningarorð við
kistu hins látna, en að ósk ætt-
ingja er að svo stöddu ekki unnt
að birta nafn hans.
Björgunarmönnunum tíu var vel
fagnað er þeir lentu á Keflavíkur-
flugvelli. Fjölskyldur og sam-
starfsmenn, auk yfirmanns varn-
arliðsins og sendiherra Bandaríkj-
anna, tóku á móti mönnunum og
var m.a. lesið úr þakkarbréfi frá
dómsmálaráðherra. I dag mun for-
stjóri Landhelgisgæslunnar af-
henda áhöfnum þyrlnanna heið-
ursskjal.
Sjá forystugrein blaðsins í
dag, fréttir og frásagnir á
bls. 18-21 og baksíðu.
Forseti Póllands hefur efasemdir um „Samstarf í þágu friðar“
Leiðtogar NATO hóta
sprengjuárásum á Serba
Brussel. Reuter, The Daily Telegraph.
EMBÆTTISMENN hjá Atlantshafsbandalaginu (NATO) sögðu
í gær að til greina kæmi að hefja loftárásir innan nokkurra
daga á sveitir Serba, sun sitja um borgina Srebrenica í Bosn-
íu og flugvöllinn í Tuzla. Á leiðtogafundi ríkja Atlantshafs-
bandalagsins, sem lauk í Brussel í gær, var samþykkt að ítreka
hótun um loftárásir ef Serbar leyfðu ekki kanadískum friðar-
gæsluliðum, sem hafa hafst við í Srebrenica í sjö mánuði, að
yfirgefa borgina. Serbar hafa hindrað hollenskar sveitir, sem
áttu að leysa Kanadamennina af fyrir jól, í að komast til
Srebrenica.
Reuter
Róstursöm
þingsetning
FYRSTI fundur nýkjörins þings
Rússlands var haldinn í gær.
Strax kom til harðra deilna milli
stuðningsmanna Borís Jeltsíns
forseta og þjóðemissinnans
Vladímírs Zhírínovskíj og á köfl-
um munaði litlu að þingið leyst-
ist upp. Á myndinni má sjá einn
stuðningsmanna Zhírinovskíjs
reyna að koma í veg fyrir að
Vasílíj Seljúnín, þingmaður fyrir
Valkost Rússlands, geti tekið til
máls.
Sjá nánar bls. 24.
Var hótunin um sprengjuárásir
samþykkt eftir mikinn þrýsting frá
Bill Clinton Bandaríkjaforseta og
Francois Mitterrand Frakklands-
forseta, sem sögðu að NATO ætti
að hætta að hafa uppi marklausar
hótanir. „Hvort að gripið verður
tii loftárása eða ekki fer eftir því
hvernig Bosníu-Serbar haga sér,“
sagði Clinton eftir fundinn. For-
seti Kanada sagðist telja að
sprengjuárásir væru neyðarúrræði
og hefði hann tekið það skýrt fram
á fundinum.
Nokkrir leiðtoganna sögðu
fundinn hafa verið sögulegan og
Manfred Wörner, framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins,
sagði að hann markaði söguleg
tímamót þar sem bandalagið hefði
tekið stórt skref inn í tuttugustu
og fyrstu öldina. Á fundinum var
ákveðið að bjóða ríkjum Austur-
Evrópu til friðarsamvinnu undir
yfirskriftinni „Samstarf í þágu
friðar“. „Dyrnar hafa verið opnað-
ar. Eg hvet samstarfsaðila okkar
til að grípa þetta tækifæri,“ sagði
Wörner.
Að loknum fundinum flaug
Clinton til Tékklands en það er
fyrsti áfangi hans í ferð um aust-
urhluta Evrópu til að kynna hina
nýju friðarsamvinnu. í dag mun
hann eiga fund með leiðtogum
Tékklands, Póllands, Ungveija-
lands og Slóvakíu.
Lech Walesa, forseti Póllands,
sagði í viðtali við pólska sjónvarp-
ið í gær að hann myndi leggja
mikla áhersla á framtíðaraðild
Pólveija að NATO er hann hittir
Clinton. Hann sagðist búast við
erfiðum fundi þar sem hann ætti
von á að Bandaríkjamenn myndu
verja þá afstöðu að bjóða þessum
þjóðum friðarsamvinnu í stað að-
ildar. Walesa sagðist vera þeirrar
skoðunar að þetta hefðu verið
mistök og að ganga hefði þurft
lengra.
I kvöld heldur Clinton áleiðis til
Moskvu með viðkomu í Kiev, höf-
uðborg Úkraínu. í Moskvu mun
hann eiga tveggja daga fund með
Borís Jeltsín Rússlandsforeta.
Sjá viðtal við Davíð Oddsson
forsætisráðherra á bls. 24.