Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994 Anna Krisljmm Karls- dóttir - Minning Fædd 2. janúar 1932 Dáin 5. janúar 1994 Hinn 5. janúar sl. lést á heimili sínu á Birkigrund 53, Kópavogi, kær nágrannakona og Soroptim- istasystir, Anna Kristjana Karls- dóttir, langt um aldur fram. Elsku Anna mín, ég kveð þig með söknuði og trega og þakklæti fyrir samfylgdina, vináttuna og trúnaðinn í hartnær 18 ár, fyrst sem nágranna, síðar sem Soroptimista. Það var lærdómsríkt að vera í návist þinni, aldrei var sagt styggð- aryrði um nokkurn mann, enda varst þú snillingur í því að grafa upp jákvæðu hliðarnar á mönnum og málefnum og veija þá, sem lágu fyrir höggi. Þú varst gædd einstök- um viljastyrk, sem sýndi sig best í veikindum þínum, ekki síst síðustu vikurnar. Alltaf var stutt í brosið, þó þú værir sárþjáð. Þér féll sjaldan verk úr hendi, enda stórt heimili að sjá um. Þegar þú gekkst í Soroptimistaklúbb Kópavogs árið 1986 og við fórum að starfa saman á þeim vettvangi, kynntist ég því hvílík hamhleypa þú varst. Það sem meira er, já- kvæðni þín, vilji og glaðlyndi hlaut að hafa áhrif á okkur hinar. Það má með sanni segja, að það fylgdi hugur máli i öllu sem þú tókst þér fyrir hendur. Áður en við vissum af varst þú orðin forystumanneskja í uppbyggingu verslunarinnar Sunnukots, sem klúbburinn okkar í Kópavogi rekur í Sunnuhlíð, hjúkr- unarheimili aldraðra í Kópavogi. Ótaldir voru snúningarnir hjá þér vegna þessa verslunarreksturs, sem er einn liður af mörgum í þjónustu við aldraða á vegum Sunnuhlíðar- samtakanna. Þetta er ógleymanleg- ur tími fyrir okkur, sem störfuðum með þér við að koma versluninni á réttan kjöl. Bókhald Sunnukots var einnig í þínum höndum, þangað tii þú varst orðin það veik, að þú gast ekki meira. Við systurnar í Soroptimista- klúbbi Kópavogs munum sakna þín sárt úr starfí og leik. Það var kraftaverk að þú skyldir geta setið jólafundinn með okkur 13. desem- ber sl. og verður það okkur öllum ógleymanlegt. Minningarnar streyma fram hver af annarri, al- vörustundirnar, hlátur þinn, græskulaust grín og gaman. Við þökkum þér fyrir allar góðu sam- verustundirnar, sem við áttum sam- an. Margs er að minriast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Þú kvaddir þessa tilvist í faðmi ijölskyldu þinnar, sem var þér allt, og þú varst svo hreykin af, enda máttu vera það. Þú hefur svo sann- arlega skilað miklu lífsverki. Við systurnar í Soroptimista- klúbbi Kópavogs sendum Wemer, börnum, tengdabörnum og barna- bömum innilegustu samúðarkveðj- Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð íiillegir síilir og mjög gpð þjóniista. lipplýsingar ísíma22322 FLUOLEIDIR EOm LIFTLEIIIR ur. Missir ykkar er mikill, en minn- ingarnar munu lifa. Blessuð sé minning Önnu. Anna Dýrfjörð. Nú sit ég í rökkrinu og rísla mér við að raða brotunum saman. Ég særi mig á þeim en samt er það gaman. (Fr. G.) Vinkona mín Anna Karlsdóttir er látin. Hún lést á heimili sínu hinn 5. janúar sl. Þó ég og við öll höfum vitað í nokkuð langan tíma að hverju stefndi er maður samt aldrei tilbúinn að taka við því óhjá- kvæmilega — ekki tilbúinn til þess að horfast í augu við að vinur manns er horfínn af sjónarsviðinu og eftir lifír aðeins minningin ein um það sem var. Hún var fædd og uppalin í Reykjavík. Fjórða í röð níu barna foreldra sinna, þeirra Margrétar Tómasdóttur og Karls Guðmunds- sonar frá Rauðasandi. Hún giftist 17. október 1953 eftirlifandi eigin- manni sínum, Wemer Rasmussyni, þá lyfjafræðinema og síðar lyfsala í Ingólfsapóteki. Anna og Werner eignuðust fimm börn sem öll_ eru komin vel til manns. Þau eru Ólaf- ur, tæknifræðingur, Anna Margrét, kennari, Karl, viðskiptafræðingur, Ingunn, hjúkrunarfræðingur, og Steingrímur, lyfjafræðingur. Barnabörnin eru fimm. Leiðir okkar Önnu lágu saman fyrir rúmum aldarfjórðungi, þegar við urðum nágrannar í Kópavogin- um. Ungar dætur okkar urðu strax óaðskiljanlegar vinkonur og til þess að bæta aðgengi þeirra að heimilum hvorrar annarrar var rofíð skarð í limgerði milli húsanna. En það urðu fleiri sem notfærðu sér þetta skarð á milli húsanna, þar á meðal undir- rituð, sem hljóp þarna yfir daglega og kunningsskapur okkar Önnu varð brátt að traustri vináttu. Ég dáðist oft að dugnaði og elju- semi þessarar nýju og glæsilegu vinkonu minnar, sem aldrei féll verk úr hendi og allt lék í höndunum á enda í mörgu að snúast á stóru heimili með fimm ung börn. En til hennar var alltaf hægt að leita ráða og tilsagnar og hún gaf sér alltaf tíma til að leiðbeina og hjálpa með hin margvíslegustu verk. í þá daga unnu ekki allar konur utan heimilis og Anna átti svo sann- arlega ekki heimangengt og var meira en fús til að líta eftir börnum mínum, ef ég þurfti á því að halda. Sem betur fer gat ég stundum end- urgoldið það þá sjaldan hún fór að heiman. Við töluðum oft í gamni um stórfjölskylduna og það, að sum börnin vissu varla í hvoru húsinu þau byggju. En mikið voru þetta ánægjulegir dagar. Það var oft ærin ástæða til þess að koma saman og gleðjast saman yfir áföngum og árangri barna okkar — afmælum, ferming- um, skólaútskriftum og loks gift- ingum. Og mikil var gleði okkar, þegar „litlu stelpurnar" okkar gáfu okkar fyrstu barnabörnin í sömu vikunni. Þá má segja að „stórfjöl- skyldan“ hafi lagt undir sig fæðing- ardeildina í heila viku. Við þessi tvenn hjón höfðum þann sið, þegar börnin okkar voru Iítil, að hittast á nýársnótt og héld- um þeim sið lengi þó börnin stækk- uðu og við byggjum ekki lengur í nágrenni hvert við annað. Þá fórum við einnig á þriðja áratug saman í leikhúsin og þeim ferðum vildi ekk- ert okkar missa af og héldust þær fram á þennan vetur. Á hið hlýja og glæsilega heimili Önnu og Wern- ers var alltaf jafn gaman að koma og þau hjónin samtaka í því að láta gestum líða vel. Samheldni þeirra Önnu og Wern- ers var einstök. Hún studdi hann með ráðum og dáð í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Og til þess að geta orðið að enn meira liði fór hún í tölvuskóla og lærði þar bók- hald og fleira. Þarna kom glöggt fram það óbilandi viljaþrek, sem vinkona mín bjó yfir. Ef hún ekki kunni hlutinn þá var nokkuð sem hét að læra hann. Hún þorði, gat og vildi. Og árangurinn lét aldrei á sér standa. Fyrir rúmum tveimur árum dró ský fyrir sólu þegar Anna veiktist af krabbameini. En þá kom fram sami dugnaðurinn og baráttuviljinn sem ávallt áður. Hún sýndi þá undraverðan styrk og æðruleysi og veitti okkur hinum kjark til þess að horfast í augu við hið óhjá- kvæmilega. Werner hefur staðið við hlið hennar eins og sá klettur, sem hann hefur verið alla þeirra tíð, og gert allt sem í hans valdi hefur stað- ið til þess að gera henni lífið léttara. Lengi vel vonuðum við og trúðum að hún myndi sigra í þessari bar- áttu en á nýliðnu hausti kom í ljós að svo myndi ekki verða. Hún sagði við mig að hún væri ákveðin í að lifa jólin og það gerði hún og naut helgihaldsins með sínum nánustu. Hún naut einstakrar umönnunar heimahlynningar Krabbameinsfé- lagsins og það gerði Werner og bömum hennar kleift að annast hana heima og hún var vafin um- hyggju þeirra og kærleika þar til yfir lauk. Og nú er komið að leiðarlokum og aðeins eftir að þakka áratuga vináttu, sem aldrei bar skugga á. Við Torfi, Sigga Maja, Tommi og Sigríður amma söknum Önnu okkar og þökkum henni allar góðu stund- imar. Werner vini okkar, börnunum öllum og þeirra skylduliði sendum við okkar dýpstu og innilegustu samúðarkveðjur. Þeirra er söknuð- urinn mestur. En bjartar og góðar minningar lifa í hjörtum þeirra og munu létta þeim söknuðinn. Guð blessi minningu Önnu Karls- dóttur. Anna Ingvarsdóttir. Kveðja frá Inner Wheel klúbbi Kópavogs Látin er ein af stofnendum Inner Wheel klúbbsins í Kópavogi, Anna Kristjana Karlsdóttir. í ekki fjöl- mennari klúbbi en okkar munar um hveija og eina og það munaði svo sannarlega um Önnu. Hún var alla tíð virk í félagsstarfinu og ræktar- leg í garð félagsins okkar. Hún var mikil ágætis manneskja og skemmtileg í allri viðkynningu. Hún kunni að segja skemmtilega frá og fengum við félagskonur að njóta þess þegar hún sagði frá ferðalög- um sínum erlendis. Inner Wheel klúbburinn kveður nú eina af sínum bestu félögum og sendir eiginmanni hennar og bömum innilegustu sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning Önnu Kristjönu Karlsdóttur. Guðrún Ragnarsdóttir. Um það bil er hversdagslífið var að færast í venjulegt horf eftir jól og áramót lauk glímu tengdamóður minnar, Önnu Kristjönu Karlsdótt- ur, við erfið veikindi. Nýliðin jólahá- tíð verður fjölskyldu hennar trúlega minnisstæðust sem síðustu jólin hennar. „Það vinnur aldrei neinn sitt dauðastríð", sagði skáldið Steinn Steinarr einhvern tíma. Þetta vissi Anna mætavel og háði sína lokabaráttu af æðruleysi, naut þeirra stunda sem hún átti í sam- vistum við elskandi eiginmann, börn og barnabörn. Hennar verður sárt saknað, en jafnframt minnst með hlýhug og þakklæti fyrir allt það sem hún gaf. Þó lífdagar Önnu séu taldir lifir hún áfram í hugum þeirra sem eftir lifa, eða eins og Hannes Pétursson sagði: Sá sem eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn látni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Ég man að þegar ég og Anna Margrét giftum okkur sagðist ég hafa fundið góða tengdamóður. Árin sem síðan eru liðin staðfestu það. Haukur Svavars. Hún „Kútta“ systir er dáin. Þessi orð komu í hugann þegar systur- dóttir mín Ingunn Gyða tilkynnti mér lát móður sinnar Önnu Krist- jönu Karlsdóttur. Þó að vitað væri að hveiju stefndi kom fregnin sem reiðarslag yfir mig. Þó við vitum að þetta er gangur lífsins og dauð- inn eini fasti punkturinn i tilver- unni, þá viljum við ekki sætta okk- ur við hann. En dauðinn er vís og kemur þó alltaf að óvörum. í æsku var gælunafn Önnu „Kútta“ en það hefur ekki verið notað síðan hún var unglingur. En nafnið hefur alltaf lifað í minning- um mínum og það kom ósjálfrátt upp í huga minn við þessa harma- fregn. Anna var fjórða í röð níu systk- ina og þriðja fjögurra systra, barna Karls Guðmundssonar rafvélavirkja og sýningarstjóra í kvikmyndahús- um og konu hans Margrétar Tómas- dóttur ljósmóður sem lengst af bjuggu á Nönnugötu 1 og síðan Grettisgötu 58b í Reykjavík. Æskuár okkar voru kreppu- og stríðsárin, tímabil hafta og skömmtunar. Fram að stríði var mikið atvinnuleysi í landinu og af- koma margra bágborin. Þó fátækt og jafnvel örbirgð væri landlæg á þeim tímum og þröngt í búi hjá mörgum, ekki síst barnmörgum fjölskyldum, liðum við aldrei skort miðað við marga aðra. Hjá foreldr- um okkar hafði það forgang að börnin fengju nóg að borða og hlý föt. Efni stóðu ekki til arinars, enda ekki gerðar aðrar kröfur í þá daga en að hafa í sig og á. Þessar aðstæður voru eðlilegar í hugum okkar barnanna, enda þekktum við ekki annað og höfðum enga aðra viðmiðun. Þrátt fyrir aðstæður voru þetta skemmtilegir tímar hjá okkur systkinunum, enda nóg að gera og við að vera í svo stórum barnahópi. Oft var glatt á hjalla á Nönnugötunni, ekki síst þegar frænkur okkar af Bergstaða- strætinu, níu hláturmildar dætur Einars Tómassonar kolakaup- manns, móðurbróður okkar, komu í heimsókn, en milli heimila okkar var mikill kærleikur. Margar þulur og kvæði lærðum við af mömmu og pabbi sá um að allir væru læsir áður en skólaganga hófst. Ég minnist æsku okkar með gleði, allra þeirra ánægjustunda sem við áttum saman og samheldni hópsins í bliðu og stríðu. Þó að Anna væri ekki nema þremur árum eldri en ég var hún alltaf stóra syst- ir. Anna var góðum gáfum gædd og mjög verklagin. Hún var ekki há í loftinu þegar hún lærði að pijóna, aðeins nokkurra ára gömul. Svo áköf var hún við pijónaskapinn að það þurfti að fela pijónana svo hún væri ekki sípijónandi og svo voru odd- og eggjárn bönnuð barns- höndum án eftirlits. Önnu gekk vel að læra og lauk gagnfræðaprófi með ágætum. Hún fór snemma að vinna, passaði börn, fór í sveit og passaði yngri bræður sína. Svo gerðist hún afgreiðslu- stúlka í vefnaðarvörudeild Kron á Skólavörðustíg 12 og vann þar í mörg ár. Svo gripu örlögin í taumana. Anna kynntist ungum glæsilegum manni, Werner Rasmussyni verð- andi lyfjafræðingi, og þau felldu hugi saman og urðu lífsförunautar upp frá því. Anna og Werner gengu í hjóna- band hinn 17. október 1953. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu þau í Kaup- mannahöfn þar sem Werner stund- aði sitt lyfjafræðinám. Við heim- komuna að loknu námi stofnuðu þau heimili sitt við Laufásveginn. Þaðan fluttu þau í eigin íbúð við Kleppsveginn. Næst fluttu þau í einbýlishús við Hrauntungu í Kópa- vogi. Að lokum byggðu þau veglegt einbýlishús við Birkigrund í Kópa- vogi. Ónnu og Venna varð fímm barna auðið. Þau eru: Ólafur Ivan, vél- tæknifræðingur; Anna Margrét, kennari; Karl Emil, viðskiptafræð- ingur, Ingunn Gyða, skurðstofu- hjúkrunarfræðingur, og Steingrím- ur, lyijafræðingur. Barnabörnin eru fimm. Anna og Werner hafa alla tíð verið mjög samhent, hagsýn og reglusöm. Milli þeirra ríkti gagn- kvæm virðing og kærleikur. Anna var mjög sterk kona, skaprík og sjálfstæð. Hún var tryggur vinur vina sinna og mjög umhugað um framtíð barna sinna. Við Anna vor- um tengd sterkum böndum sem aldrei rofnuðu. Ég gleymi aldrei umhyggju hennar, þá á bjátaði hjá mér og aðrir sáu ekki ástæðu til afskipta. Þó að Anna systir sé nú horfin okkur mun hún lifa í börnum sínum og barnabörnum. Kæri mág- ur, sorg þín er stór, en huggun og styrkur býr í minningunni um ást- kæra eiginkonu og góðan vin. Guð styrki þig og börn þín í sorginni. Anna barðist hetjulegri baráttu við ofureflið, hinn illvíga sjúkdóm krabbameinið. Nú eru þijár af tjór- um glæsilegum systrum farnar úr sama sjúkdómi, langt um aldur fram. Kæra systir, nú þegar ég kveð þig vil ég þakka hlýju þína í minn garð og minna. Ég veit að nú líður þér vel, laus við þreytu og þjáning- ar. Ég er þess fullviss að við hitt- umst aftur. Þegar þar að kemur taktu þá á móti mér og leiddu mig og passaðu eins og þú gerðir í æsku. Stína, Elfa og Kalli biðja að heilsa. Guð geymi þig. Þinn bróðir, Kristinn Karlsson. Miðvikudaginn 5. janúar sl. lést á heimili sínu Anna K. Karlsdóttir eftir langa og hetjulega baráttu við alvarlegan sjúkdóm. Þótt hún gerði sér grein fyrir hvert stefndi gafst hún aldrei upp, enda sjálfsmeðaumkun og uppgjöf ætíð fjarri hennar huga og allt fram á hið síðasta töluðum við ekki svo við hana, að hún gleymdi að spyrja um líðan annarra sameiginlegra vina okkar, sem eiga við veikindi að stríða, í stað þess að tíunda sín eigin. Anna fékk þá ósk sína uppfyllta að fá að dveljast með fjölskyldu sinni um jólin, en sú ósk lýsir vel raunsæi hennar og skynsemi. Kynni okkar Önnu hófust þegar hún og Werner, bekkjarbróðir minn úr Menntaskólanum í Reykjavík, fóru að vera saman og við fráfall Önnu hefur myndast stórt skarð í þann vinahóp, sem haldið hefur saman að loknu stúdentsprófi árið 1950. Anna var ákaflega traust og trygg. Hún var opinská, hreinskilin og heiðarleg, enda lék aldrei neinn vafi á skoðunum hennar. Skapstór var hún og hvessti oft kringum hana, en frá henni blésu ávallt hreinir vindar. Anna var úrræðagóð og myndar- leg í höndunum, ekki síst við að sauma og pijóna á börnin, sem nýttist vel á fyrstu búskaparárun- um þegar ná þurfti endum saman með litlum tekjum. Þegar börnin voru farin að heiman hóf hún rekst- ur eigin fyrirtækis, auk þess að aðstoða eiginmanninn við um- fangsmikinn rekstur fyrirtækis hans. Auðvitað fór Anna fyrir aldur fram, en sé litið yfir farinn veg kemur í ljós að hún hefur skilað miklu og góðu dagsverki, sem end- urspeglast í hlýlegu og myndarlegu heimili þeirra hjóna, þar sem fímm mannvænleg börn þeirra hafa alist upp. Vissulega er missirinn mikill við fráfall Önnu, aðallega fyrir Werner og börnin, en hún skilur einnig mikið eftir ekki síst minninguna um heilsteypta persónu, sem þroskandi var fyrir okkur Dóru að kynnast. Magnús R. Gíslason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.