Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994 31 hryssur séu skoðaðar með slíkri taskni þegar þær koma frá stóð- hesti en með því móti sést óyggj- andi hvort dvölin hjá hestinum hef- ur borið þann ávöxt sem til var sáð. Með þessari tækni er einnig oft hægt að greina ef bólgur eru í móðurlífi hryssunnar, sem komið geta í veg fyrir fyljun. Eftir slíka skoðun ætti því að vera hægt að meta hvort hryssueigandi má koma aftur með hryssuna eða hvort hann fær endurgreitt og þar fram eftir götum. Ekki er ólíklegt, að í fram- tíðinni muni allar hryssur sem verið hafa hjá dýrari stóðhestunum verða sónarskoðaðar. Á síðustu árum hefur færst í vöxt, að hryssur séu leiddar undir hesta á húsi en með þeim hætti hefur tekist að auka nýtingu vin- sælla hesta. Árangur úr húshaldi, eins og það er gjarnan kallað, þyk- ir heldur lakari en séu hryssurnar hafðar í girðingu hjá hestinum. Ástæður fyrir því má meðal annars rekja til þess að hryssurnar hitta hestana í' mörgum tilvika aðeins tvisvar og jafnvel einu sinni. Miklu skiptir að hryssueigandinn þekki gangferil hryssunnar til hlítar þann- ig að hægt sé að koma stefnumót- inu á á réttum dögum, þ.e. þegar egglos á sér örugglega stað. Al- gengt er að menn rjúki með hryss- urnar um leið og þær sjást ganga án þess að vita nokkuð á hvaða degi þær eru, sem að sjálfsögðu skiptir höfuðmáli þegar þannig er staðið að málum. Oft láta menn sprauta hryssurnar til að stilla gangmálið og gefur það visst ör- yggi en óneitanlega er þar verið að taka fram fyrir hendur náttúr- unnar og geta menn sjálfsagt haft skiptar skoðanir á því hvort æski- legt sé að gera slíkt. Það er rrieð nokkuð misjöfnum hætti hvernig tekið hefur verið á beiðnum hryssueigenda um sára- Með því að setja blautar spænir reglulega undir framhófa má tryggja að hófurinn og hóftunga haldist eðlilega rök og vellíðan hjá hestinum. þrýsti á svampinn. En til þess að hafa jafnan og góðan raka undir framfótum er best að bera reglu- lega spænir undir hrossið sem síð- an blotna yfir nóttina. í stað þess að sópa þessum blautu spónum í flórinn og moka út er upplagt að sópa þeim undir framfætur. Einnig má að sjálfsögðu bleyta spænir og setja undir framfæturna. Með því að gera það reglulega má tryggja eðlilegt rakastig hófanna og þar með vellíðan hrossanna. Sumir velja þann kostinn að setja ein- göngu hrossaskít undir framfætur sem vissulega breytir rakastiginu til hins betra en það er heldur hvimleitt að sjá hross standa í jafn- vel nokkurra daga gömlum skít og ætti ekki að sjást. bætur þegar- þeir hafa setið uppi með tómar hryssur. Allt frá því að þeir séu hreinlega látnir sitja uppi með skaðann allan yfir í að menn hafi fengið endurgreiddan helming folatollsins og allt þar á milli. Eins og hér að framan getur hefur tækn- inni fleygt fram á síðustu árum og því spurningin hvort ekki sé orðið tímabært í ljósi þeirrar þekkingar og möguleika sem fyrir liggja, að hagsmunaaðilar semji vinnureglur sem hægt sé að styðjast við þegar gera skal upp dæmið hafi hryssur ekki fengið fyl frá stóðhesti. Það er tæpast sanngjarnt að eigandi alheilbrigðrar hryssu sé látinn gjalda fyrir lélegt sæði í stóðhesti sem hann leiðir hryssu sína undir frekar en að eigandi fullkomlega heilbrigðs stóðhests með sæði í hæsta gæðaflokki sé látinn gjalda fyrir ófijóa hryssu eða hryssu sem lætur fóstri í slæmu hausthreti. Cterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! Mislrvft 2ja st. par . ílKiú-/4 Doppur 7 st. Borðar 14. nnn 18.000 Húfuprjónar 4.300 Skyrtuhnappar 5.800 Skúfhólkur 6.800 Barna 2ja st. par 12.500 ■ Millusett 6.900 Doppur 5 st. 5.500 ||ÍÍ|§|Íy’7 \ X ? Borðar 6.600 ■BLM'v Hólkur 5.900 ML." ° z^dm\XSSl3 Krækjur par 6.000 fjmllsmiðurínn Mjódd - Breiðholti sími 74511 1 Auglýsing ............ Hárlos Kæri Velvakandi! Ég er fullorðinn maður sem I langar til að segja frá jákvæðum hlut, er kom fyrir mig, svona bara til að jafna dálítið það neikvæða, sem dynur yfir mann allan ársins hring. Það eru nú annars meiri ósköpin. En þetta með mig var að ég var kominn langleiðina að missa hárið. Hvern einasta dag fylltist greið- an og ég fylltist sífellt meiri og meiri áhyggjum. Þá var það að mér var bent á Weleda-hárvatn- ið. Ég tölti af stað og fann loks- ins Þumalínu á Leifsgötunni, en þar fékkst það. Ég hafði nú ósköp litla trú á þessu en sagði við sjálfan mig að varla skaðaði að reyna, ég væri svo sem búinn að reyna margt, án nokkurs árangurs. Það þarf ekki að orð- lengja það að á örfáum dögum gerðist hreinlega kraftaverk á mér; það var alveg ótrúlegt. Þess vegna er ég svo þakklátur og get ekki orða bundist. Ég tel 1 dag að ég hafi aldrei haft betra hár, nú tveim mánuðum eftir að ég byrjaði að nota hárvatnið. Ég verð að geta þess í leiðinni að ég hef þjáðst af miklum fóta- kulda og nefndi það svona í „forbyfarten“ við stúlkurnar. Þær voru ekkert nema elskuleg- heitin og hjálpusemin og út fór ég með nuddolíu með arnikunni góðu og fleiru og munurinn er mikill, fótakuldinn er horfinn eins og dögg fyrir sólu. Mér finnst ég verða að segja frá þessu. j H J Lesandabrét úr Velvakanda Weleda vörurnar fóst i: Þumalínu (einkaumboð), Heilsu- húsinu, Rakarast. Suðurlandsbraut 10 og Hofnarstræti 5, Sjúkrast. Silju, Hótel Örk, Heilsubúðinni Hveragerði, Hárskerastofu Sveinlaugar Neskaupstað, ísmáfi og versl. Marín Egilsstöðum, Laufinu Hallormsstað, Heilsu- rækt Sólrúnar Djúpavogi, Vallarkoti Laugum, Ninju Vestmannaeyjum, Hafnarfjarðarapóteki og i apótekum úti á landi. ÞUMALINA Leifsgötu 32. Póstsendum, s. 12136. DEKRM)UVDÐ SJÁLEVÞIG rir konur vellíðan m xml 1 XTKj iji| m S Ixoél B Námskeiðió skiptist í þrjá hiuta: Líkanuircekt allt að 4 sinnum í viku þar sem áhersla er lögð á vaxtar- mótun, brennslu, teygjur og þrek. Fyrirlejtrar og nÁnukeixf verða eitt kvöid í mánuði þar sem við fáum í heimsókn sérfræðinga á hinum ýmsu sviðum er snúa að ræktun líkama og sálar. M.a. umfjöllun um íslensk jurtakrem, ilmolíunudd og sáifræði. Ennfremur fræðumst við um skartgripi og fleira sem við kemur okkur konum. Dekurdagar er rúsínan í pylsuendanum. Þá hugúm við að ræktun húðarinnar og innri vellíðan. Þetta felst í guíúböðum, þörunga- og leirböðum, ilmolíunuddi og njótum samvista við tedrykkju og slökun. Þátttakendur á námskeiðunum fá að auki afsláttarkort í sérvöldum gjafa- og snyrtivöruverslunum. Námskeiðið verður haldið að Engjateigi 1. Sími 687801 Vertu inecf í jpennandi nánu*kei3i fyrir konur jem vilja jér vel. 1. tiL 3. niánaða nánukeuf hefdt 17. janúar. Innritun /jafin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.