Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994 Frábær grínmynd þar sem uppá- tækin eiga sér engin takmörk. Sýndkl.5, 7,9og11. Stórskemmtileg gamanmynd með islensku tali fyrir alla fjölskylduna. Sýndkl.5og7. UNGU A ME RÍKA NA RNIR Nýjasta stórmynd leikstjórans Kenneths Branaghs, sem m.a. gerði myndirnar „HENRY V“ og „PETER’S FRIENDS". Myndin hefur fengið frábæra dóma bæði erlendis og hérlendis. „Ys og þys Branaghs er fyrirtaks skemmtun, ærslafullt og hressi- legt bíó sem svíkur engan." ★ ★ ★ A.l. Mbl. Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.15. Ný hörkugóð spennumynd frá Tony Scott sem leikstýrði „Top Gun“. „...skondið sambland af „The Getaway" og ,,Wild at Heart", mergjuð ogeldheitástarsaga...söbriásteródrepandi.11 ★ ★ ★ A.l. Mbl. Sýnd kl. 5, 7.05, 9 og 11.15. B.i. 16 ára. Allra síðustu sýningar. Sýnd kl. 9 og 11.05. B.i. 16ára. KENNETH BRANAGH ROBERT SEAN LEONARD EMMA THOMPSON MICHAEL KEATON KEANU REEVES DENZEL WASHINGTON ★ POST ★ ★ ★ ★ EMPIRE ★★★:★★★ Rás 2 MBL. CHRISTiAN PATRÍCIA AROUiTTl Dennis HOPPER Val KHMER Gory OLDMAN Brod PITT Chrisfopher WALKEN Mtl. riEYIEM ■IIUE romonce HASKOLABIO SÍMI 22140 Háskólabíó STÆRSTA BÍÓIÐ. ALLIR SALIR ERU FYRSTA FLOKKS. SÖNN AST YS OC ÞYS UT AF ENGU KRUMMA RNIR Athugasemd við yfir- lýsingar um undirbún ing lækkunar á vsk. Benendikt Ragnarsson sparisjóðsstjóri afhendir Amar Signrmundsson, formaður sljórnar spari- Eðvarð Matthíassyni styrkinn. sjóðsins, afhendir Þorsteini Sigurðssyni og Guðjóni Olafssyni styrkinn. V estmannaeyjar Sparisjóðurinn veitir styrki Vestmannaeyjum. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja ásamt þeim er tóku við styrkjum úr styrktarsjóðnum. EFTIRFARANDI athugasemd hefur borist Morgunblaðinu frá fjármálaráðuneytinu: „í viðtali við Morgunblaðið 30. desember sl. vitna forystumenn ASÍ um trú sína á ágæti þess að lækka virðisaukaskatt á matvæli. Sá vitn- isburður verður þó ekki gerður að umfjöllunarefni hér. Tilefni til at- hugasemda eru hins vegar tilhæfu- lausar ásakanir þessara forystu- manna í sama viðtali í garð þeirra sem unnið hafa að undirbúningi þessara breytinga. Fullyrða þeir að ekkert hafi verið gert til að und- irbúa þær og láta að því liggja að embættismenn, sem leyfi sér að hafa önnur sjónarmið en forystu ASÍ eru þóknanleg, muni spilla fyr- ir framkvæmdinni og sjá til þess að illa takist til. Staðreyndir málsins eru allt aðr- ar en þeir láta í veðri vaka. Strax eftir að samningar höfðu verið gerð- ir í maí á síðasta ári hófst undirbún- ingur að breytingu á löggjöf og framkvæmd í fjármálaráðuneytinu og hjá embætti Ríkisskattstjóra. Fyrir samningi lagafrumvarps var tekin saman ítarleg greinargerð þar sem gerð var grein fyrir hinum fjöl- breytilegu efnum og vandamálum sem taka þurfti á í löggjöfinni og við framkvæmdina. Tillögur frum- varpsins um hvernig breytingin skyldi útfærð eru byggðar á þess- ari skýrslu, sem afhent var fjár- málaráðherra um leið og lagafrum- varpið. Samhliða þessu var unnið að undirbúningi reglugerðar og ann- arra gagna. Skattyfirvöld fóru ásamt tollayfirvöldum yfir allar vörutegundir tollskrár með tilliti til nýrra skattþrepa. Þurfti m.a. að kljúfa upp og búa til ný tollnúmer og breyta tollskrá í því skyni. Þá var og unnið að upplýs- ingabæklingi, sem ætlaður er þeim sem framkvæma breytingarnar, þ.e. verslunum og starfsmönnum skattsins. Ennfremur var í gangi samvinna við samtök kaupmanna. Vörulisti frá þeim með um 10.000 vöruheitum var yfirfarinn og rétt skattþrep sett við vörumar. Er sá listi í tölvutæku formi til staðar hjá þeim samtökum og á skattstofum landsins. Upplýsingabæklingurinn var afhentur í handriti um sama leyti. Vinnu þessari var að mestu lokið um svipað leyti og Alþingi afgreiddi lagabreytingarnar. Reglugerðin var birt sama dag og lögin. Þeir sem gera sér grein fyrir þeim kvöðum og kostnaði, sem reglugerðin leggur á herðar þeim sem eftir henni þurfa að fara er ljóst að ekki var unnt að gefa hana út fyrr en lagaheimild- ir væm til staðar. Sérstökum starfshópi, skipuðum starfsmönnum ráðuneytisins, emb- ættis ríkisskattstjóra, skattstofa og embættis ríkistollstjóra, var falið að hafa yfirumsjón með breytingun- um, móta nánari framkvæmdaregl- ur eftir því sem þörf er á, gera til- lögur um lausn vandamála sem upp koma og vera vettvangur upplýs- ingamiðlunar til starfsmanna skatt- kerfisins, hagsmunasamtaka og einstakra viðskiptaaðila. Af framangreindu má sjá að unnið hefur verið að undirbúningn- um með eðlilegum hætti og í hann lögð öll sú vinna sem tök var á. Með það í huga að á sama tíma var og unnið að öðrum tímafrekum breytingum á VSK-kerfinu, sem koma áttu til framkvæmda um þessi áramót en fallið var frá á síðustu stundu svo og að samningu laga- frumvarpa um fjölmargar aðrar breytingar á skattalögum, er ljóst að fullyrðingar forystumanna ASI um að slegið hafi verið slöku við eru bæði rangar og tilhæfulausar. Til að koma breytingunum í framkvæmd hefur verið lögð fram mikil og flókin vinna á skömmum tíma af skattyfirvöldum, verslunar- eigendum og starfsfólki þeirra. Snurðulítil framkvæmd hingað til bendir til þess að góður undirbún- ingur og gott samstarf þessara að- ila hafi skilað sér. Það þarf ekki að efa að starfsfólk skattkerfisins mun leggja sitt af mörkum til að framkvæmdin verði með sem best- um hætti og verður því ekki kennt um þó ekki náist sá árangur af breytingunum sem sumir kunna að vænta. Allar aðdróttanir í þess garð er talsmönnum ábyrgra samtaka sem ASÍ ekki sæmandi." STYRKIR úr Styrktar- og menn- ingarsjóði Sparisjóðs Vestmanna- eyja, til minningar um Þorstein Þ. Víglundsson, voru veittir fyrir skömmu. Að þessu sinni voru veittar 270 þúsundir króna úr sjóðnum og skiptist upphæðin á milli þriggja aðila. Sjóðurinn sem nú var veitt úr var stofnaður til minningar um Þorstein Þ. Víglundsson, einn af frumkvöðl- um stofnunar Sparisjóðsins og spari- sjóðsstjóra frá stofnun til ársins 1974. Veitt er úr sjóðnum árlega og var veitingin nú sú sjötta frá stofnun sjóðsins. Þrír aðilar hlutu nú styrk úr sjóðnum og hlaut hver um sig 90 þúsund krónur. Nokkrir áhugamenn í Eyjum und- ir forystu Þorsteins Sigurðssonar frá Blátindi, sem hafa haft forgöngu um að merkja örnefni og sögufræga staði í Eyjum, fengu styrk til að gera þeim kleift að halda sínu merka Á ráðstefnunni flytur Halldór Blöndal samgönguráðherra ávarp, en að því loknu fjallar Jón Rögn- valdsson aðstoðarvegamálastjóri um umferð, forsögu og framtíð. Þá ræð- ir Trausti Valsson arkitekt um líkleg áhrif á byggðaþróun, Pétur Stefáns- son formaður Rannsóknarráðs ríkis- ins fjallar um mismunandi kosti veg- starfi áfram. Eðvarð Matthíasson, íslandsmeistari karla í snóker 1993, hlaut styrk til að geta sem best stundað íþrótt sína og Þorsteinn tengingar, Hreinn Haraldsson yfir- jarðfræðingur Vegagerðarinnar fjallar um jarðfræðirannsóknir og Hjörtur Torfason hæstaréttarlög- maður ræðir um samninga og áhættuþætti. Erlendur Magnússon framkvæmdastjóri Nomura Bank Int. ræðir um fjármögnun fram- kvæmda, Björn Kielland verkefna- Hallgrímsson, íslandsmeistari karla í golfi 1993, fékk styrk til að geta sem best stundað íþrótt sína. Grímur stjóri Selmer Anlegg greinir frá reynslu frá gangagerð, Guðlaugur Hjörleifsson verkefnisstjóri Spalar hf. ræðir um undirbúning jarðganga og Sigursteinn Hjartarson umdæm- isverkfræðingur Vegagerðarinnar flytur samantekt efnis ráðstefnunn- ar. Að loknum flutningi erindanna verða umræður. Þátttöku í ráðstefnunni ber að til- kynna fyrir 15. janúar á skrifstofu Verkfræðingafélags íslands og Tæknifræðingafélags Islands, Engjategi 9, Reykjavík, en skráning- argjald er 5.000 krónur. Þátttaka er öllum heimil. Ráðstefna um Hvalfjarðargöng RÁÐSTEFNA um Hvalfjarðargöng verður haldin á vegum Verkfræð- ingafélags íslands og Tæknifræðingafélags íslands 21. janúar næst- komandi í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, og verður þar rætt um fyrirhugaða vegtengingu yfir Hvalfjörð. Fjallað verður um áhrif henn- ar á byggðaþróun, hvaða kostir eru fyrir hendi, stöðu undirbúnings jarðganga, reynslu frá gangagerð og áhættu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.