Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994 21 Morgunblaðið/Agúst Blöndal Björgunartækið skoðað FJÖLDI fólks fékk að skoða björgunarþyrlurnar á Neskaupstað í gær, meðal annars þessi barnahópur úr grunnskólanum og börnin fengu að setjast upp í þyrlurnar eins og sést á þessari mynd. Óvænt lending á Neskaupstað Fjöldi fólks skoð- aði þyrlurnar ^ Neskaupstað. ÁHAFNIR varnarliðsþyrlnanna sem voru á Neskaupstað í fyrri- nótt og fram að hádegi í gær leyfðu fólki að skoða þyrlurnar þar sem þær stóðu á bílaplaninu við kaupfélagið. Fjöldi fólks, meðal annars hópur ungra grunnskólabarna, kom að skoða þyrlurnar og fengu allir sem vildu að setjast upp í þær. Þegar þyrlurnar tóku sig á loft um hádegið veifaði fólkið til áhafnanna. þangað líka og bakkaði inn á plan- ið við hlið hinnar. Bletturinn sem þær lentu á er mjög lítill. Voru aðeins 5-7 metrar á milli endanna á skrúfublöðum þeirra og annað eins í hús báðum megin. Vegfarendur lokuðu svæðið af og drifu skipbrotsmennina tvo og skipstjórann af Bergvíkinni upp í bíla og óku þeim á sjúkrahúsið til aðhlynningar. Flugmennirnir vildu koma mönnunum sem fyrst undir læknis- hendur og virtust hafa komist í einhveijar ógöngur. Þeir voru samt mjög ánægðir að hafa getað lent hérna. Ágúst Komu varnarliðsþyrlnanna bar mjög brátt að síðdegis í fyrradag. Enginn vissi að þeirra væri von, þær ætluðu fyrst, til Egilsstaða og síðan til Hornafjarðar, en komu svo skyndilega niður úr sortanum hér. Mætti þyrlu Fólk heyrði í þyrlum en sá þær ekki vegna lélegs skyggnis og reiknuðu menn með að þær lentu á flugvellinum. Á leiðinni þangað mætti fréttaritari hins vegar ann- arri þyrlunni þar sem hún hékk í loftinu skammt frá götunni og beið eftir að hin lenti á eina staðn- um sem þeim leist á, bílaplaninu við kaupfélagið. Hún flaug síðan Yfirflugstjóri Landhelgisgæslunnar Erfitt að þurfa að snúa til baka „ÞAÐ þurfti mikið harðfylgi til að klára þessa björgunaraðgerð og það er mat mitt að mjög vel hafi verið að verki staðið. Eg óska varnarliðsmönnunum til hamingu," sagði Páll Halldórsson, yfirflug- stjóri Landhelgisgæslunnar, í samtali við Morgunblaðið um björgun- arafrek áhafna varnarliðsþyrlnanna í Vöðlavík í fyrradag. Páll var flugsljóri á þyrlu Landhelgisgæslunnar sem einnig reyndi að fljúga austur en varð fljótlega að snúa við vegna veðurs. „Það sýndi sig enn einu sinni að það var allt of vont veður fyrir okkur. Við reyndum að fara austur en það var mjög hvasst, úrkoma og lélegt skyggni og við hreinlega réðum ekki við aðstæðurnar á okkar þyrlu. Það hefði verið óðs manns æði að reyna frekar og urðum við fljótlega að snúa við, þó allir sem slíkt hafa reynt viti að það var mjög erfið ákvörðun þar sem við vissum hvað var í húfi,“ sagði Páll. Þrisvar sinnum stærri Páll og félagar voru skaiTunt á eftir vamarliðsþyrlunum, á svipaðri leið þegar þeir þurftu að snúa við yfir Þjórsá. Spurður að því af hveiju varnarliðsþyrlurnar hefðu komist en ekki íslenska þyrlan sagði Páll að því réði stærðar- og aflsmunur. Vamarliðsþyrlurnar væru þrisvar sinnum öflugri en þyrla Landhelgis- gæslunnar. „Við fylgdumst með þeim úr stjórnstöð okkar og ég tel að björgunin hafi verið frábær. Þeir sýndu mikið harðfylgi að fara þetta við mjög erfíðar aðstæður og það mæddi mikið á þeim í þessari ferð,“ sagði Páll. „Mér finnst þessir atburðir sýna enn einu sinni að við eigum ekki nógu öfluga þyrlu til að takast á við náttúruöflin á Islandi," sagði Páll Halldórsson. Tillögur til að jafna hlut innleiids skipasmíðaiðnaðar lagðar fram Ríkisstyrkir ytra or- sök slæmrar stöðu SIGHVATUR Björgvinsson, iðnaðarráðherra, mun á föstudag leggja til við ríkisstjórnina að tekin verði upp jöfnunargjöld og jöfnunartoll- ar til hjálpar skipasmíðaiðnaði hérlendis. Þetta kom fram á blaða- mannafundi í gær þar sem ný skýrsla, unnin af nefnd á vegum iðnað- ar- og viðskiptaráðuneytisins, var kynnt. I skýrslunni eru kynntar aðgerðir til að rétta við samkeppnisstöðu hans og mælt með 13% niðurgreiðslum. Þar keinur einnig fram að vandi skipasmíðaiðnaðar- ins sé mikill, samdráttur hafi verið gífurlegur á undanförnum árum og eiginfjárstaða fyrirtækjanna í greininni slæm. Helstu ástáeður vandans eru raktar og kemur fram að íslenskur skipasmíðaiðnaður væri fyllilega samkeppnisfær ef ríkisstyrkja nyti ekki við í sam- keppnislöndunum. I skýrslunni er lagt til að jöfn- unargjöld komi til hér á landi til þess að rétta hlut iðnaðarins og rétta samkeppnisstöðu hans gagn- vart erlendum skipasmíðafyrirtækj- um. í helstu samkeppnislöndum ís- lands á þessu sviði tíðkast ríkis- styrkir og jöfnunartollar og álítur nefndin það vera eina helstu ástæðu þess að illa sé komið fyrir skipa- smíðastöðvum hérlendis. í Noregi eru ríkisstyrkir um 13% og 11,25% í Efnahagsbandalaginu. í skýrslunni segir að tekjur skipa- smíðaiðnaðar hér á landi hafi minnkað um 83% síðan 1987 og velta fyrirtækjanna um 52%. Þessi samdráttur er meiri en samdráttur á botnfiskafla gefur tilefni til að mati nefndarinnar, en fram til 1987 hafi verið samræmi milli þessara tveggja þátta. Samdrátturinn hefur leitt af sér versnandi eiginfjárstöðu skipa- smíðaiðnaðarins, sem hefur minnk- að úr 35% árið 1988 í 3,9% árið 1992. Ársverkum í greininni hefur fækkað úr 1.011 árið 1987 í 566 árið 1993, eða um 44%. Innlend verðmætasköpun í skipasmíðaiðnað- inum hefur tapast í hagkerfinu og hefur fyrirtækjum i greininni fækk- að út 19 árið 1990 í 12 árið 1993 eða um 40%. Næsta verkefni að rétta hlut fyrirtækjanna Ingólfur Sverrisson, fram- kvæmdastjóri Málms, samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði, sagði að félagið hefði síðastliðin 2-3 ár verið að beijast fyrir því að eitt- hvað væri gert til að jafna sam- keppnisstöðuna, nú væri búið að því og hitt verkefnið eftir að rétta hlut einstakra fyrirtækja. „Nú þarf að fara að endurskipuleggja greinina," segir hann. Órn Friðriksson, varaformaður Samiðnar, Samtaka iðnfélaga, segir að skýrslan staðfesti slæma stöðu skipaiðnaðarins og að þjóðhagslega hagkvæmt sé að vinna verkefnin hér heima. Tollar á nýsmíði skipa stærri en 10 tonn Breska ráðgjafarfyrirtækið Appledore gerði úttekt á íslenskum skipasmíðaiðnaði og komst að þeirri niðúrstöðu að skipasmíðastöðvarnar hér á landi væru fyllilega samkeppn- isfærar við stöðvar erlendis ef ríkis- styrkja nyti ekki við. Ólíkt Sighvati mælir nefndin frekar með niðurgreiðslum og telur að ýmsir annmarkar séu á því að taka upp jöfnunartolla. Sighvatur vill hins vega setja tolla á nýsmíði en greiða niður viðgerðir og breyt- ingar. í þessu sambandi er verið að tala um skip stærri en tíu tonn og breytingar og viðgerðir sem kosta meira en tíu millj. kr. Nefndin telur að ýmislegt mæli með að aðstoða íslenskan skipa- smíðaiðnað og segir í skýrslunni að aukning verkefna leiði til þess að tekjur hins opinbera muni aukast um allt að 22% og atvinnuleysisbæt- ur lækka um allt að 16%. Ef nýsmíð- ar fara fram erlendis tapi ríkið hins vegar 20 millj. Fleiri atriði en ríkisstyrkir erlend- is eru nefnd sem ástæða slæms gengis en þó segir í skýrslunni að almenn efnahagskilyrði skýri ekki slæmt gengi skipasmíðaiðnaðarins, sem að einhveiju leyti má einnig rekja til að útgerðarfélög hérlendis hafi ekki gefið íslenskum fyrirtækj- um kost á að bjóða í verkefni. Bent er á í skýrslunni að þrátt fyrir aflasamdrátt á síðustu árum hafi orðið talsverð fjárfesting í nýj- um skipum og reikna megi með ein- hverri endurnýjun fiskiskipa m.a. vegna aldurs fískiskipaflotans. Tilkynning um prófkjör sjálfstæðis- manna í Reykjavík Prófkjör um skipan framboðslista Sjálfstæðisflokksins við næstu borgarstjórnarkosningar fer fram 30. og 31. janúar næstkomandi. Atkvæðisrétt eiga allir félagsbundnir sjálfstæðismenn í Reykjavík, sem þar eru búsettir og náð hafa 16 ára aldri prófkjörsdagana. Einnig þeir, sem skrá sig í Sjálfstæðisflokkinn prófkjörsdagana, en þeir þurfa að hafa náð 18 ára aldri við borgarstjórnarkosningarnar 28. maí 1994. Eftirtaldir frambjóðendur eru í kjöri: Sigríður Sigurðardóttir, fóstra. Sigurjón Á. Fjeldsted, skólastjóri. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, lögfræðingur. Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari. Þórhallur Jósepsson, aðstoðarmaður samgönguráðherra. Þorleifur Hinrik Fjeldsted, sölumaður. Amal Rún Qase, stjórnmálafræðinemi. Anna K. Jónsdóttir, lyfjafræðingur. Árni Sigfússon, framkvæmdastjóri. Axel Eiríksson, úrsmíðameistari. Björgólfur Guðmundsson, framkvæmdastjóri. Einar G. Guðjónsson, verslunarmaður. Guðrún Zoéga, verkfræðingur. Gunnar Jóhann Birgisson, lögmaður. Haraidur Blöndal, hrl. Heiga Jóhannsdóttir, húsmóðir. Hilmar Guðlaugsson, múrari. Inga Jóna Þórðardóttir, viðskiptafræðingur. , Jóna Gróa Sigurðardóttir. Júlíus Hafstein, framkvæmdastjóri. Katrín Gunnarsdóttir, húsmóðir. Markús Örn Antonsson, borgarstjóri. Ólafur F. Magnússon, læknir. Páll Gíslason, læknir. Kjósa skal fæst 10 frambjóðendur og flest 12. Skal það gert með því að setja tölustaf fyrir framan nöfn frambjóðenda í þeirri röð, sem óskað er að þeir skipi endanlega á framboðslista. Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla fer fram í Valhöll, Háaleitisbraut 1, alla virka daga frá kl. 9.00-17.00 og laugardaga frá kl. 10.00-12.00. Nánari upplýsingar um prófkjörið prófkjörsdagana 30. og 31. janúar verða birtar innan skamms. Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.