Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANUAR 1994 ANNA MJÖLL ÓLAFSDÓTTIR Ferillinn ekki enn hafinn Ekkert töff Ég var ekki í neinum gagn- fræðaskólaklíkum, var aldrei tekin inn í þær, reykti ekki og drakk ekki og var ekki með í sjoppunum. Ég var nátt- úrlega með komplexa yfir því að komast ekki inn í neina klíku. í gagnfræðaskóla fær maður að finna fyrir því ef maður er ekki „inn“. Og ég var bara ekkert töff eða neitt svoleiðis. Að vissu leyti held ég að einmitt það hafi hjálp- að mér seinna meir. Það að vera ekki „inn“, ekki töff og ekki í klíku hjálpar manni til að standa á eigin fótum, .naður verður pá að treysta á sjálfan sig því það er ekki hægt að treysta á hóp- inn. Og um leið fer maður líka að sanna sig fyrir krökkunum sem eru í klíkun- um. Ég held að ég sé ennþá svolítið að sanna mig fyrir þessum krökkum og ég kem líklega alltaf til með að gera það. Á rúntinum um helgar Eftir að ég byijaði í MR var eins og ýtt væri á „on takkann" og hjólin byijuðu að snúast. Þá fór maður á kaf í félagslífið, kynntist nýju fólki og fékk bílpróf. En ég byijaði aldrei að reykja -og drekka og það er ekki vegna þess að ég hafi verið svona mikill engill, heldur einfaldlega vegna þess að mér fínnst vín bara svo vont á bragðið. Aðal sportið hjá okkur stelpunum var að fara á rúntinn á föstudags- og laugardags- kvöldum. Yfirleitt lögðum við þá bílnum ein- hvers staðar á miðjum Laugaveginum þar sem við höfðum gott útsýni yfir alla bílana og biðum eftir að það kæmi bíll fullur af sætum strákum. Og urn leið og hann kom þutum við af stað, beint fyrir aftan og byijuð- um að flauta, gefa ljósmerki og vinka allt þangað til við æstum þá svo mikið upp að það byijaði eltingaleikur. Það voru margir þrusu eltingaleikir út um allan bæ sem voru sko upp Laugaveginn og niður Hverfisgöt- una; þetta voru svoleiðis eltingaleikir. Og við gáfumst aldrei upp og urðum alltaf að hafa yfirhöndina. Svo einu sinni þegar við biðum æðislega spenntar sáum við þessa tvo sætu stráka koma keyrandi niður Laugaveginn. Og við brunuðum af stað, byrjuðum að gefa ljósmerki og allt það, en það var eins og þetta hefði bara engin áhrif á þá, þeir bara keyrðu áfram sallaróleg- ir. Þetta hafði aldrei gerst áður og við skildum ekki hvað var að gerast og lögðum okkur enn meira fram við að vinka og flauta. Þegar við vor- um búnar að elta þá út um allan bæ án árang- urs í svona tuttugu mínútur ákváðum við að gera eitthvað í þessu og keyrðum upp að hliðinni á þeim. Þá öskraði ein stelpan aftur í: „Þetta er löggan!" Þetta var þá ómerktur lögreglubíll með lítilli stjörnu á hliðinni. Þeir brostu bara sínu blíðasta brosi, en við vinkuðum, gáfum í og vorum horfnar á methraða. Ferillinn í rauninni finnst mér ferill minn ekki enn vera hafinn. Ég er eiginlega enn í startholun- um. En opinberlega söng ég fyrst á barna- balli hjá mömmu og pabba. Þá fengu allir krakkarnir að syngja og ég var svo móðguð yfir því að fá ekki að syngja ein að ég var borin burtu hágrenjandi. Svo tók ég þátt í Látúnsbarkakeppninni í Atlavík 1988 og eft- ir það byijuðu hjólin að snúast. Að lokum Ég held að allir þurfi að eiga sér draum. En til þess að draumurinn rætist þurfum við að hjálpa svolítið til. Það eru ekki miklar lík- ur á því að draumurinn rætist ef maður sit- ur bara heima í stofu, nema náttúrlega ef draumurinn er, að skjóta rótum í sófanum ... STÖRFISKAR Nýtísku hárgreiðsl Eg var nú ekkert sér- staklega spennandi unglingur. Allavega ekki til að byija með. Ég var bara í mínum gallabuxum og strigaskóm á meðan bekkjarsystur mínar mættu uppstrílaðar í skólann. Og þegar krakkarnir voru á Hallærisplaninu eða einhvers staðar niðri í bæ var ég bara úti í fótbolta með krökkunum í hverfinu. Ég var bara á ann- arri bylgjulengd en flestir á mínum aldri og kannski var ég svolítið sein af stað. Reyndar er ég ekki viss um að ég sé ennþá orðin ungling- ur, ætli ég hafi ekki stöðvað einhvers staðar um fímm ára aldurinn. Ég var alltaf svolít- ill strákur í mér og til dæmis var það eitt aðalmarkmiðið hjá mér að hlaupa hraðar en einn strákurinn sem hljóp hraðast. Mér tókst það einu sinni og ég gleymi því aldrei. Hér koma nokkrar hugmýndir fyrir þá sem vilja breyta um hár- greiðslu og fá sér afgerandi og persónulegri greiðslu. Hár- greiðslumaðurinn Michael Barnes er höfundur þessara listaverka, en hann segist ekki eiga von á að almenningur hópist á hárgreiðslu- stofur til að fá sér svona greiðslur, það sé bæði dýrt og taki óratíma. Og ekki má gleyma þeirri einföldu staðreynd að mjög óþægilegt er að vera með flókna og fýrirferðarmikla hár- greiðslu á almannafæri, ekki síst hér á landi þar '3 *oS KO Sh áfe wmmá cö *o <U g o 0> fl; Sh cc “43 • pH Cm U 0) '3 KO 03 XO ^ Bjössi 13 ára Nei, ekkert sem ég man í fljótu bragði. Arnheiður 14 ára Ég man ekki eftir neinu sérstöku. Arnhildur 14 ára Nei... ja, ég var kannski stundum svolítið leiðinleg við mömmu og pabba. Margrét 17 ára Það getur verið, en ég ætla ekki að fara að segja frá því.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.