Morgunblaðið - 12.01.1994, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Sjaldséður í janúar
Vetrarklæddi lundinn sem
náðist í Eyjum í gær.
Vetrarbú-
inn lundi
fannst í
Eyjum
V estmannaeyju m.
LUNDI, sem líklega hefur
hrakist til iands undan óveðri,
fannst um borð í bát í slippn-
um í Eyjum í gær. Mjög fátítt
er að lundi sjáist hér á þessum
árstíma en fuglinn var tals-
vert slæptur en tók þó æti er
það var borið fyrir hann.
Starfsmenn í slippnum urðu
lundans varir þar sem hann hafði
leitað vars í spilhúsi báts í siippn-
um. Lundinn er í vetrarbúningi
og að sögn Kristjáns Egilssonar,
forstöðumanns Náttúrugripa-
safnsins, er mjög fátítt að lundi
sjáist í Eyjum á þessum tíma
árs. Hann sagði að einn og einn
dauður fugl í vetrarbúningi hefði
fundist hér sjórekinn en að þeir
hefðu sést lifandi væri mjög
sjaldgæft.
Lundinn fer í vetrarbúninginn
í september og klæðist ekki aft-
ur sumarskrúðanum fyrr en und-
ir varptímann. Í vetrarbúningn-
um er hann talsvert frábrugðinn
sumarlundanum og ekki eins lit-
skrúðugur. Nefíð verður Ijósara
áuk þess spm það linast. Lit-
sterkar húðflögur við nef og
augu falla af og hann verður
dekkri á hausnum auk þess sem
lappimar verða ljósgular á lit.
Kristján tók lundann í fóstur
á Náttúrugripasafninu og sagði
hann að fuglinn hefði verið tals-
vert slappur og átt erfitt með
að ganga en hann hefði tekið
æti og vonaðist Kristján til að
hann næði sér því ætlunin væri
að merkja hann og sleppa síðan
til hafs á ný eftir nokkra daga.
Grímur
Gagnabanki
Morgimblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu verður framvegis varð-
veitt í upplýsingabanka þess.
Morgunblaðið áskilur sér rétt til
að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á
annan hátt. Þeir sem afhenda
blaðinu efni til birtingar teljast
samþykkja þetta, ef ekki fylgir
fyrirvari hér að lútandi.
í dag
Seðlabanki íslands
Skynsamlegast að viðhalda jafn-
vægi 4
Akureyri
Bærinn telur sig eiga inni 12
millj. 22
Rússland
Fyrsti fundur nýkjörins þings 24
Ingibjörg Sólrún______________
Vill hafa atkvæðisrétt í borgar-
stjóm 29
Leiðari
Hetjudáð í Vöðlavík 26
Fé drapst í krapaflóði á bæ við Dýrafjörð - rafmagnstruflanir á Vestfjörðum
Víða foktjón á Vest-
fjörðum í ofsaveðri
Ekkert skip á Vestfjarðamiðum þar sem áfram er spáð ofsaveðri
UM 20 fjár drapst í snjóflóði sem féll á hlöðu og fjárhús við bæinn
Fremstuhús í Dýrafirði í fyrrinótt. Rafmagnstruflanir voru um alla
Vestflrði í gær vegna línurofs og seltu á tengivirkjum. í norðaustan
ofsaroki sem náði mestri hæð um sunnanverða Vestfirði og á Barða-
strönd hlaust víða af foktjón, meðal annars á þremur bæjum á Barða-
strönd. Á bænum Krossholti brotnuðu 12 rúður undan gijóti sem skóf
á þær en jörð var auð og frostlaust. I Tungumúla fauk hluti af hlöðu-
þaki og gömlu fjósi. Ruslagámur við Krossholt fauk um 200 metra leið
til sjávar og yfír 1 metra háa girðingu. Vegna veðursins gat Baldur
ekki lagst að á Bijánslæk. Samkvæmt spá veðurstofunnar er reiknað
með stormi vestanlands og vestantil á Norðurlandi og á Vestfjörðum
og sennilega verður ofsaveður á Vestfjarðamiðum fram á kvöld. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Tilkynningarskyldunni voru engir bátar á veið-
um þar í gær.
Heimilisfólkið á Fremstuhúsum
vaknaði um kl. 3 í fyrrinótt við að
krapaflóð hafði fallið úr fjallinu fyrir
ofan bæinn og á hlöðu, brotist. þar
í gegn og inn í fjárhús þar sem voru
120 fjár. Um 20 kindur drápust strax
og aflífa þurfti fleiri í gær auk þess
sem ekki var útséð um hvemig sum-
um hinna mundi réiða af, að sögn
Sigmundar Þórðarsonar smiðs á
Þingeyri sem vann í rafmagnsleysi
við björgunar- og smíðastörf á bæn-
um. Hjálparlið kom á staðinn frá
Þingeyri í gærmorgun og aðstoðaði
hjónin Hermann Drengsson og Maríu
Vagnsdóttur við að loka húsinu og
veijast frekara tjóni.
Vindhæð við flugvöllinn á Patreks-
firði komst í 87 hnúta í gær, að sögn
lögreglu. Þar og á Barðaströnd voru
björgunarsveitir á ferð að negla fyrir
glugga og hefta þakplötur og annað
lauslegt. Það tjón sem af hlaust var
minniháttar, að sögn, mest á Kross-
holti á Barðaströnd. Á Bíldudal var
einnig versta veður en varð ekki telj-
andi tjón. Þar vora björgunarmenn
á ferð fyrir hádegi og festu lausar
þakplötur og heftu fok.
Aftakaveður var á heiðum um
norðanverða Vestfírði og hvergi
ferðaveður. Þar var rafmagn
skammtað og talið að skemmdir
hefðu orðið á línum en ekki var unnt
að kanna það vegna veðurs. Mikill
sjór var við Hnífsdal og braut meðal
annars á húsi rækjuverksmiðjunnar
Bakka þannig að tjón varð á hurð.
r
t
Morgunblaðið/Alfons
VÉLBÁTURINN Vísir SH 343, sem er rúm 80 tonn, slitnaði frá bryggju í hvassviðrinu í Ólafsvík í
gærmorgun og rak hann upp í fjöru. Báturinn var dreginn á flot aftur um kl. 14.30 með vír úr spili
framan á togaranum Má. Engar skemmdir urðu á þessum slóðum vegna veðurs, en á tímabili var tví-
sýnt með þök á íbúðarhúsum á Hellissandi.
EB hafnar kröfum Norðmanna
um yfirráð yfir fiskistofnum
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgfunblaðsins.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópubandalagsins (EB) hefur alfarið hafn-
að því í samningaviðræðum um hugsanlega aðild Norðmanna að EB
að stjórn fiskveiða norðan 62. breiddargráðu verði í höndum Norð-
manna sjálfra.
Framkvæmdastjóm EB neitar
ennfremur að samþykkja að Norð-
menn fari með samninga við Rússa
um skiptingu fískveiðikvóta í Bar-
entshafí. Jan Henry T. Olsen sjávar-
útvegsráðherra segir að þrátt fyrir
að tekist hafí í samningaviðræðunum
að fá undanþágur í mikilvægum
málum er varða veiðar og vinnslu
sé árangurinn af samningum um
sjávarútvegskafla væntanlegra að-
ildarsamninga enn sem komið er allt-
of slakur. Krafan um sjálfsforræði
yfír hinum mikilvægu hafsvæðum
norðan 62. gráðu er §ú mikilvægasta
af hálfu Norðmanna.
„Þetta er óaðgengilegt. Framhald
samninganna verður afar erfítt,“
segir Olsen sjávarútvegsráðherra.
Einar Hepsoe, formaður samtaka
sjávarútvegsins í Noregi, Norges
Fiskarlag, sagði við fjölmiðla í Nor-
egi, að fengist framkvæmdastjómin
ekki til að skipta um skoðun bæri
að slíta samningaviðræðunum strax.
Þá greindi norska dagblaðið Nord-
lys frá því í gær að Spánveijar færu
fram á 11 til 15 þúsund tonn í norskri
landhelgi ef Norðmenn gerðust aðilar
að EB. Kemur þetta fram í bréfi sem
Spánveijar sendu framkvæmda-
stjóm EB fyrir jól. Blaðið Aftenpost-
en hefur einnig heimildir fyrir því
að írar og Frakkar séu ekki allt of
hrifnir af því að sjávarútvegsþjóð á
borð við Norðmenn sé fyrirvaralaust
tekin inn í bandalagið og að búast
megi við að þessi ríki muni þá fara
fram á undanþágur fyrir eigin sjávar-
útveg vegna breyttra aðstæðna.
r
Ur verinu
► Hátt verð á fiskmörkuðum -
Bretar hverfa frá banndagakerfi
- Kvótinn í Barentshafí aukinn -
Rækjan hefur skilað miklu - Afla-
kóngur togaranna.
Myndasögur
► Gæludýr vikunnar - Þráutir -
Vinningshafar í íþróttagetraun -
Ljóð - Myndir frá ungum lesend-
um - Hvemig varð vélhjólið til?
- Kristín Svava og fótboltinn.
Samningar um skiptingu loðnukvótans
Deilan um Smuguna
hefur ekki bein áhrif
SAMNINGAVIÐRÆÐUR íslendinga, Norðmanna og Grænlendinga/D-
ana um framlengingu á samningi um skiptingu loðnukvótans, sem renn-
ur út í apríl, hófust í gær í Reykjavík. Islendingar leggja til að samn-
ingurinn verði framlengdur í meginatriðum óbreyttur, þannig að íslend-
ingar hafi rétt til 78% kvótans en 22% skiptist jafnt milli Norðmanna
og Grænlendinga, að sögn Guðmundar Eiríkssonar, formanns íslensku
viðræðunefndarinnar.
Fulltrúar útgerðarmanna í Noregi
sitja fundinn þótt fram hafí komið í
fréttum að norskir útvegsmenn og
sjómenn vildu ekki samstarf við Is-
lendinga vegna veiða íslenskra skipa
í Smugunni. Guðmundur sagði að
Smugudeilan hefði áhrif á öll sam-
skipti landanna þótt hún hefði ekki
haft bein áhrif á viðræðumar. Menn
vissu af þessum bakgrunni og hann
hefði e.t.v. áhrif á samningsvilja.
Norðmenn og Grænlendingar
munu vilja framlengja samninginn
með ákveðnum breytingum og hafa
bent á að þeim hafí ekki tekist að
veiða allan sinn hlut og vilja rýmka
takmarkanir.