Morgunblaðið - 12.01.1994, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANUAR 1994
5
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur
Samið við verk-
taka um 57 íbúðir
Tillögur til
úrbóta
fyrir hjól-
reiðamenn
Heildarkaupverð íbúðanna 340 millj.
HUSNÆÐISNEFND
Reykjavíkur undirritaði í
gær samning við fjóra verk-
taka um kaup á 57 íbúðum
í Grafarvogi sem úthlutað
verður á félagslegum
grunni. Verktakarnir sem
samið var við eru Mótás hf.,
Byggingarfélag Gylfa og
Gunnars hf., Trésmiðga
Snorra Hjaltasonar hf. og
Húsvirki hf., en heildar-
kaupverð íbúðanna er 340
milljónir króna. Kaupin á
íbúðunum voru boðin út
síðastliðið haust og bárust
tilboð í 323 íbúðir.
Á blaðamannafundi sem boðað
var til vegna undirritunar samn-
ingsins kom m.a. fram að Hús-
næðisnefnd Reykjavíkur hefur í
seinni tíð breytt nokkuð stefnunni
í sambandi við framkvæmdir íbúð-
arbygginga, en þegar þrengir að
á vinnumarkaði vill hún með út-
boðum um kaup á fullbúnum íbúð-
um skapa fleiri atvinnutækifæri í
byggingariðnaðinum, samhliða því
sem samkeppni verktaka getur
lækkað íbúðarverð. Á undanförn-
um árum hefur Húsnæðisnefnd
aukið starfsemi sína verulega,
m.a. með stórauknum kaupum á
íbúðum af byggingaiverktökum
og þannig hafa að undangengnum
útboðum verið keyptar 192 íbúðir
að verðmæti um 1.300 milljónir
króna á síðastliðnum þrem árum.
Á þessu ári hefur verið keypt
251 félagsleg íbúð og þar af eru
77 íbúðir keyptar vegna skipta
innan kerfisins, en 174 íbúðir eru
kéyptar af öðrum orsökum. Nú eru
innan félagslega íbúðakerfisins,
sem Húsnæðisnefnd Reykjavíkur
sér um, um 3.250 félagslegar eign-
aríbúðir, en rösklega 100 slíkar
íbúðir eru í byggingu, 20 félags-
legar kaupleiguíbúðir og 38 í smíð-
um og 40 almennar kaupleiguíbúð-
ir.
Árlega eru keyptar og endur-
seldar 150-180 félagslegar íbúðir
hjá Húsnæðisnefnd, en áður en
íbúðirnar eru endurseldar eru þær
Vilja reka
rafstræt-
isvagna
FYRIRTÆKIÐ Pólar hf.
hefur í hyggju að stofna til
reksturs fyrirtækis, sem
myndi eiga og reka raf-
strætisvagna til notkunar í
iniðborg Reykjavíkur.
Borgarráð hefur vísað er-
indinu til Stjórnarnefndar
um almenningssamgöngur.
í bréfi Gríms Valdimarsson-
ar, framkvæmdastjóra Póla
hf., segir að fyrirtæki um
rekstur rafstrætisvagna verði
stofnað í þeim tilgangi að
minnka mengun og spara er-
lenda orku. „Án efa muni slík-
ur rekstur verða skemmtilega
myndrænn og bæta ímynd
Reykjavíkur í umhverfismál-
um. Einnig er vert íhugunar
að aka nýjar eða öðruvísi leið-
ir, t.d. að bílageymsluhúsum
í þeim tilgangi að auka nýt-
ingu þeirra,“ segir í erindinu.
yfirfarnar og lagfærðar eða endur-
nýjaðar áður en nýr kaupandi tek-
ur við þeim. í október á síðastliðnu
ári var auglýst eftir umnsóknum
um 229 íbúðir og bárust 860 um-
sóknir. Húsnæðisnefnd hefur þeg-
ar úthlutað 40 íbúðum sem voru
lausar, m.a. vegna þess að fólk
hefur fallið frá úthlutun. Að öðru
leyti er 'gert ráð fyrir að úthlutun
ljúki í mars á þessu ári.
Undirritun
Morgunblaðið/Kristinn
HÚSNÆÐISNEFND Reykjavíkur undirritaði í gær samning við fjóra
verktaka um kaup á 57 íbúðum í Grafarvogi. Ibúðunum verður út-
hlutað á félagslegum grunni
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
skipa nefnd er geri tillögu til úr-
bóta fyrir hjólreiðamenn í Reykja-
vík.
Á fundi borgarráðs 4. janúar síð-
astliðinn var samþykkt að tilnefna
Katrínu Fjeldsted, Vilhjálm Þ. Vil-
hjálmsson og Þór Jakobsson í nefnd-
ina. Er henni ætlað að hafa samráð
við samtök hjólreiðamanna auk þess
sem fulltrúi frá borgarskipulagi mun
starfa með nefndinni. Gert er ráð
fyrir að tillögurnar verði lagðar fyrir
borgarráð eigi síðar en 1. apríl.
r
———————■■■—■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■—
Skandia
m
VAKNAÐU!
Þriðjungur íslenskra heiniila er ótryggður. *
Býr Jjölskylda þín við slíkt óöryggi ?
Óhöpp gera ekki boð á undan sér og erfitt er að
varast þau. Litil óhöpp sem stór geta hæglega
sett varanlegt strik í íjárhag heimilisins. Á tímum
samdráttiir og erfiðrar fjárhagsstöðu heimilanna
koma slík átöll verr við eldhúsbuddumar en
nokkru sinni.
Skandia býður heimilis- og húseigendatryggingar
á verði og kjömm sem flest heimili ættu að ráða við.
Heimilistryggingin veitir ijölskyldum heilsteypta
vemd. Hún er þríþætt og skiptist í innbústryggingu,
ábyrgðartryggingu gegn skaðabótaábyrgð og
slysatryggingu í irítíma.
Húseigendatryggingin vemdttr eigendur iýnr
skakkaiollum vegna tjóna á húseignum.
TILBOD
Öryggisráðgjafar Skandia heimsækja flesta þá
sem panta húseigendatryggingu og leiðbeina
um öryggismál á staðnum, eigend-
unum að kostnaðarlausu.
Ef þú kaupir bæði heimilis- og
húseigendatryggingarfyrir 1. mars
n.k. færðu vandaðan reykskynjara í bónus.
Pantaðu strax - þín og [jölskyUíu þinnar vegna!
Skandia
Vátryggingarfélagið Skandia hf.
Laugavegi 170, sími 61 97 00 • Akureyri, sími 1 22 22
l
kn
* Samkvœnit iqyplýsingum Scavbands íslenskra tryggingarfélaga eru 33%
íslenskm lieimila án heimilistryggingarog 48% án húseigendatryggingar.
Váíryggingarfélagið Skandia hf er alfarið í eigu Skandia-samsteypunnar.