Morgunblaðið - 12.01.1994, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994
h
Ég þakka innilega þá vináttu og hlýhug sem
mér var sýnd á áttrœðisafmœlisdegi mínum
þann 27. desember sl.
Bergþóra Baldvinsdóttir,
Grandavegi 47.
Að banna fjárlagahalla
er ekki ný hugmynd
m m mwmnm
ELFA-LVI
Einfaldir eða tvöfaldir olíufylltir
rafmagnsofnar350 - 2000w.
Hæð 30, 50 eða 59 cm.
ELFA-OSO
Hitakútar úr ryðfríu stáli. Stærðir
30- 300 lítra, útvegum aðrar stærðir
frá 400-10.000 lítra.
HAGSTÆTT VERÐ OG
GREIÐSLUSKILMÁLAR.
Rafmagnsþilofnar, 600 - 2000w.
Elfa rafhitunarbúnaðurinn er þraut-
reyndurvið íslenskaraðstæður.
Einar Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28 - S 622901 og 622900
eftir Ásgeir Hannes
Eiríksson
í ágætri forystugrein Morgun-
blaðsins sunnudaginn 9. janúar er
fjallað um að banna fjárlagahall-
ann með lögum sem blaðið kallar
„athyglisverða hugmynd Ragnars
Arnalds". Leiðarahöfundi finnst
„hugmyndin“ koma úr hörðustu
átt og frekar mætti vænta ráð-
deildar hjá Sjálfstæðisflokki en
Alþýðubandalagi. Morgunblaðinu
sést þarna yfir fortíðarvanda Sjálf-
stæðismanna á borð við Kröflu,
Flugstöðina, Ráðhúsið, Perluna og
nýjar æfingar á Korpúlfsstöðum.
En það er nú önnur Ella.
Oft er erfitt að finna upphafið
að góðri hugmynd en nær eru
menn upphafinu eftir því sem
lengra er liðið frá málflutningi
þeirra. í desember 1990 lagði ég
fram frumvarp á Alþingi um að
ekki megi taka til meðferðar laga-
frumvörp sem hafa í för með sér
kostnað fyrir ríkissjóð nema einnig
sé í þeim ákvæði um samsvarandi
tekjur handa ríkissjóði. Því miður
talaði ég þá fyrir daufum eyrum
þingmanna og ráðherra. Líka
þeirra sem nú hafa gert þennan
málflutning að sínum og hjóta
fyrir lof Morgunblaðsins.
Hins vegar hlaut frumvarpið
góða umfjöllun í fjölmiðlum og
ramsbonÉi
Tilboö lyrir hópa:
2.000 kr. afsláttur á
mann ef í hópnum eru
15 manns eða fleiri.
40.000 kr. spamadur
fyrir 20 manna hóp.
í’c’h/r u/n 5 til 6 nœíur
kr.*
á vnnninn í tvíbýli
í 3 ruetur og 4 daga á
Hotel Sheraton Towson.
Brottfarir á
miðviku-, fimmtu-
og föstudögum.
Heimflug á
sunnu-, mánu-
og miðvikudögum.
Veittur er 5% staðgreiðsluaísláttur
Í Baltimore bjóðum við gistingu á
eftirtöldum garðahótelum:
Holiday Inn Inner Harfoor, Sheraton Towson,
Hyatt Rogency, Days Inn Inner Harfoor og
Tho Latham.
*M.v. að greitt sé með minnst 14 daga fyrirvara.
Innifalið er flug og gisting og flugvallarskattar. Börn,
2ja - 11 ára, fá 15.500 kr. í afslátt. Börn að 2ja ára aldri
greiða 3.500 kr. Enginn bókunarfyrirvari.
Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn
um allt land, ferðaskrifstofurnar eða í síma 690300
(svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8-18).
C3IA1%A5í« d)S
Frábært tækifæri til þess að gera hagstæð
innkaup; m.a. stærsta verslunarmiðstöð á
austurströnd Bandaríkjanna, Towson Town
Center. Heillandi miðbær með aragrúa
veitingastaða, verslana, leikhúsa og skemmti-
staða. Einstök söfn. Örstutt til höfuðborgar
Bandaríkjanna, Washington D.C.
FLUGLEIÐIR
Traustur íslenskur ferðafélagi
bæði í Þingfréttum Morgunblaðs-
ins og forystugrein DV og í aðs-
endu efni lesenda. Á sama tíma
lagði ég til að banna með lögum
afgreiðslu íjárlaga með halla og
síðan hef ég oft viðrað þá hug-
mynd í ræðu og riti. Meðal annars
í DV 9. mars 1992, í Tímanum
19. mars 1993 og á fundi BSRB
með fjármálaráðherra á Hótel
Borg síðastliðið haust.
Ég leyfí mér því að þakka Morg-
unblaðinu góð orð um hugmyndina
og tek þau hiklaust til mín. Ekki
sakar að geta þess að ég las í
bandarísku blaði að sjálfur Iacocca
forstjóri er á sama máli. Fyrrum
sessunautur minn á Alþingi, Ragn-
ar Arnalds, er því ekki í slæmum
félagsskap þó Morgunbiaðið sakni
að vonum Sjálfstæðismanna í þeim
hópi.
Lesendum Morgunblaðsins til
fróðleiks leyfi ég mér að birta
niðurlag blaðagreinar minnar um
bann við fjárlagahalla:
„Alþingi verður að banna fjár-
lagahallann með lögum. Það er
engin spurning. Þingmenn verða
að þora að standa við útgjöld sín
jafnóðum og til þeirra er stofnað
en vísa þeim ekki stöðugt til næstu
kynslóða. Sama gildir um ríkis-
skuldabréf og happdrættislán, það
verður að hækka tekjuskattinn
hveiju sinni svo að endar nái sam-
an á fjárlögum.
Ekki svo að skilja að undirrituð-
um þyki skattar of lágir hér á landi
í dag og vilji bæta við þá. Síður
en svo. En þjóðfélagið er á fjár-
hagsiegum krossgötum. Þetta er
sjálfsvörn tii að forða landinu frá
gjaldþroti og börnum þess frá því
að erfa óbærilegan skuldabagg-
ann. Og viti menn:
Staðan breyttist um leið og fjár-
lagahallinn er orðin áþreifanleg
útgjöld. Fólkið finnur þá fyrir hon-
um í pyngju sinni og segir hingað
ESSO starfsmönnum þakka ég fyrir sýnda vin-
áttu í sambandi við 70 ára afmœli mitt.
Guðmundur Bergsson,
Sogavegi 178.
Hjartans þakkir okkar Svövu til allra, sem áttu
með okkur ógleymanlega samverustund á
Hótel Selfossi á sjötugsafmœli mínu þann 2.
janúar sl.
SömuleiÖis þökkum viÖ allar heillaóskir, sem
okkur hafa borist af sama tilefni. Einnig þökk-
um viÖ góÖar gjafir fyrr og nú, og góÖan stuÖn-
ing við bókasöfnin á Ljósafossi og í Sólvalla-
skóla.
LifiÖ heil!
Böðvar Stefánsson.
Ásgeir Hannes Eiríksson
„Ég leyfi mér því að
þakka Morgunblaðinu
góð orð um hugmynd-
ina og tek þau hiklaust
til mín.“
og ekki lengra. Þingheimi verður
þannig þröngvað tii að halda út-
gjöldum ríkissjóðs í skefjum og
þingmenn munu brátt venjast því
að spara peninga. Það gæti jafn-
vel orðið að kæk hjá þeim. Þá
fyrst er hægt að leggja peninga
til hliðar og borga smám saman
upp barnavíxilinn.“
Höfundur er varnborgurfuíltrúi
ogfyrrum þingnuiður
Reykvíkinga.
Á MORGUN BERST l>ÉR
ÓTRÚLEGT TILBOÐ: