Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994
23
46% húsa óvátryggð
utan skyldutryggingar
SAMBAND íslenskra tryggingafélaga kannaði nýlega hversu vel
húsnæði og innbú íslendinga sé vátryggt samanborið við nágranna-
lönd okkar. Ef við berum okkur saman við hin Norðurlöndin kemur
í ljós að við stöndum mun lakar. Niðurstöður könnunarinnar voru á
þá leið að um 67% heimilanna væru með einhverskonar innbústrygg-
ingar (heimilistryggingar), en aðeins um 54% þeirra hefðu vátrygg-
ingar sem taka til húseignarinnar sjálfrar (húseigendatryggingar,
fasteignatryggingar), en þá er átt við aðrar vátryggingar en lögboðn-
ar brunatryggingar.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem fengust frá hinum Norður-
löndunum má segja að innbú og
húsnæði í þessum löndum sé vá-
tryggt í rúmlega 90% tilfella. Ef
greiddar bætur vátryggingafélag-
anna fyrir árið 1992 eru skoðaðar
í einstaklingstryggingum þá kem-
ur í ljós að bætur vegna heimilis-
trygginga voru rúmlega 300 millj-
ónir og vegna húseigendatrygg-
inga tæplega 600 milljónir eða
samtals um 900 milljónir. Því má
gera ráð fyrir að fólk sem ekki
hafði innbú eða húseignir sínar
vátryggðar hafi sjálft þurft að bera
tæplega 400 milljónir króna, ef
áðurnefndar tölur eru lagðar til
grundvallar.
Til viðbótar áðurnefndum 900
milljónum greiddu vátryggingafé-
lögin tæpar 400 milljónir í bætur
vegna lögboðinna brunatrygginga
fasteigna þetta sama ár. Til upp-
lýsinga má geta þess að verð á
innbústryggingu sem bætir bruna-
tjón, vatnstjón og innbrotstjón
kostar á bilinu 6-7 þúsund krónur
fyrir innbú að verðmæti kr. 3 millj-
ónir. Að auki bætist stimpilgjald
við iðgjaldið fyrsta árið. Mikilvægt
er að vátryggingarfjárhæðin sé
sem næst raunvirði innbúsins
vegna þess að hún á að duga til
að bæta það innbú, sem skemmist
í tjóninu. Það skal undirstrikað að
verð vátryggingarinnar er háð vá-
tryggingarfjárhæð innbúsins. Með
hærra verðmæti hækkar iðgjaldið.
Þá er þess að geta, að þessar vá-
tryggingar eru iðulega samsettar,
og eftir því sem vátryggingartaki
kaupir sér yíðtækari og fjölbreytt-
ari vernd, háðkkar iðgjaldið.
Umræðan að undanförnu hefur
mjög snúist um vantryggingu inn-
bús vegna eldsvoða. Ekki má þó
gleyma því að nú fer sá tími í
hönd þar sem mestar líkur eru á
ofviðrum, sem leitt geta til stór-
fellds tjóns á húseignum vegna
foks og vatns. Samkvæmt könnun-
inni höfðu aðeins rúmlega helm-
ingur landsmanna vátryggingar,
sem taka til slíkra skemmda á
sjálfum fasteignunum.
Ástæða er til að riija upp að
samkvæmt könnun opinberrar
nefndar, sem skipuð var eftir
óveðrið sem gekk -yfir landið 3.
febrúar 1991, nam heildartjón í
þeim eina „hvelli" um milljarð kr.
í rúmlega 5.000 tjónum. Um helm-
ingur tjónanna var vátryggður og
greiddu vátryggingafélögin tæpan
hálfan milljarð í bætur vegna óveð-
ursins.
Þegar efnahagslegur samdrátt-
ur og minnkandi ráðstöfunartekjur
heimilanna er staðreynd, er venju
fremur mikilvægt að eignir fólks
séu vátryggðar. Hafi fólk ekki hirt
um að vátryggja eigur sínar gæti
eignatjón endanlega riðið fjárhag
þess að fullu.
Kosningaskrifstofa
Stuðningsmenn Sveins Andra
Sveinssonar borgarfulltrúa hafa
opnað kosningaskrifstofu á Suður-
götu 7 (áður Ferðaskrifstofan
Saga). Símar 17260 og 17214.
Skrifstofan er opin alla daga fram
að prófkjöri, frá kl. 9.00 til 24.00.
Allirsjálfstæðismenn eru hvattirtil
að líta inn og ræða málin við fram-
bjóðandann yfir kaffibolla.
Stuðningsmenn.
Útsalan
hefst í dag
Polarn&Pyret*
KRINGLUNNI 8 - 12 "
NETTÓDAGAR
HEFJAST Á MORGUN FIMMTUD. (Lokað í dag.)
MIKIÐ ÚRVAL OG EINSTAKT
VERÐ Á DÖMU-, HERRA- OG
BARNAFATNAÐI.
NÆRFÖT, NÁTTFÖT, SLOPPAR,
SOKKAR OGM. FL.
LOU, Calida
NÝTT KORTATÍMABIL
LAUGAVEGI 30 • SÍMI 624225
7E& '7E0 TEl) 7E& 7E& '7E& 7E& '7EE>
pony
Rúmgóður fjölskyldubíll á verði smábíls -
914000»« kr!
^°RRt4áöNUS!
HYunoni
... til framtíðar
Bílarnir fást til afliendingar strax!
Verið velkomin - Gerið verðsamanburð og reynsluakið
HYUNDAI PONY árgerð '94.
ÁRMÚLA 13, SÍMI: 68 12 OO
BEINN SÍMI: 3 12 36
m
'TR)
&