Morgunblaðið - 12.01.1994, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994
33
Hjörtur Pjeturs-
son — Minning
Fæddur 21. febrúar 1922
Dáinn 29. desember 1993
Mig langar að minnast vinar
míns Hjartar Pjeturssonar, sem nú
hefur kvatt þetta líf og lagt upp í
hina miklu ferð. Það er ekki ætlun
mín að rekja æviferil Hjartar. Hér
verða aðeins skráð stutt kveðjuorð
frá gömlum vini, æskufélaga og
skólabróður. Með þessum fátæk-
legu kveðjuorðum langar mig til
þess að þakka Hirti persónulega
góða samfylgd í lífsbaráttunni og
þakka allar liðnar ánægjustundir á
lífsleiðinni.
Hjörtur Pjetursson var fæddur
21. febrúar í Reykjavík og því 71
árs að aldri er dauða hans bar að.
Hann andaðist eftir stutta sjúk-
dómslegu í Frakklandi 29. desem-
ber sl., en þar höfðu hann og eigin-
kona hans Laura Claessen búið í
um tvö ár. Þegar Laura var stödd
hér á landi fyrir stuttu kom hún í
heimsókn til okkar hjónanna. Feng-
um við þá fréttir af dvöl þeirra
ytra. Sýndi hún okkur ljósmyndir
af húsnæði þeirra úti og inni, ásamt
myndum af þorpinu sem þau
bjuggu í. Meðal annars þess vegna
bað ég Hjört í jólakorti að skrifa
okkur bréf við næsta tækifæri og
segja okkur nánar frá öllum högum
þeirra í þessu fjarlæga landi. Mikið
er ég þakklátur að degi áður en
Hjörtur fór á sjúkrahús póstlagði
hann fjögurra síðna bréf með ýms-
um persónulegum fréttum. Viku
síðar var Hjörtur allur. Bréfið er
mér því dýrmætt.
Menn eignast yfirleitt vini á þeim
árum sem þeir eru að mótast í
skóla. Síðan er menn fara hver í
sína áttina, eignast heimili og missa
hver af öðrum í ys lífsins. Einstaka
sinnum hittir maður þó menn sem
maður laðast að sökum viðmóts
þeirra og mannkosta. Þessa menn
vill maður öðrum fremur kalla vini
sína. Einn þessara manna var
Hjörtur Pjetursson.
Já, það er margs að minnast
eftir langa vináttu, eða allt frá því
að fundum okkar bar fyrst saman
fyrir meira en hálfri öld. Við Hjört-
ur vorum jafnaldrar. Fæddir á
sama ári, ég 12. febrúar, en hann
21. febrúar. Strax eftir fyrstu
kynni okkar, fékk ég hringingu á
afmælisdaginn. Það var Hjörtur að
óska mér til hamingju. Þegar ég
forviða spurði hvernig hann myndi
eftir þessum degi, svaraði hann:
Enginn vandi, ég sný bara mínum
afmælisdegi við. Alla tíð síðan, á
hverju ári hef ég fengið upphring-
ingu frá Hirti. Slík var vinátta
hans og hlýja.
Við vorum 13 ára þegar við hitt-
umst fyrst. Settumst þá báðir í 1.
bekk Gagnfræðaskóla Reykvíkinga
(Ágústarskólans). Við vorum síðan
sambekkingar alla okkar skólatíð.
Eftir gagnfræðaskóla í Mennta-
skólanum í Reykjavík og að síðustu
í viðskiptadeild Háskóla íslands.
Það er margs að minnast þegar
litið er um öxl eftir langa ferð.
Fyrsta minningin og sú elsta sem
stendur upp úr, er þegar við fórum
tveir saman í heimsókn til vinar
okkar í mjólkurbúinu í Hveragerði.
Við fórum hjólandi báðar leiðir og
gistum þar tvær nætur. Þetta var
ógleymanleg ævintýraferð fyrir
óharðnaða unglinga. Já, minning-
arnar hrannast upp í huganum.
Eg minnist þess að við hlustuðum
á allar þær jazz-plötur sem við
komumst yfir. Fórum í andaglas,
spiluðum l’hombre, póker og brids.
Stofnuðum fjórir BB-klúbbinn
(Brids og badminton) þegar við
vorum í Háskólanum. Tókum þátt
í alls konar íþróttum. Ég held að
ég hafi verið meiri æringi en Hjört-
ur og betri í íþróttum, en Hjörtur
var frábær teiknari og síðast en
ekki síst afar músíkalskur. Ég vil
nota þetta tækifæri til þess að
þakka Hirti fyrir það hvernig hann
auðgaði líf mitt með því að veita
mér innsýn í heim hljómlistarinnar.
Já, það er margs að minnast
eftir langa vináttu. Þegar ég hugsa
til baka er það þó ein minning sem
kemur oftast upp í hugann. í mörg
ár var ég heimagangur á heimili
foreldra Hjartar. Eg man enn eftir
móttökunum í fyrstu skiptin sem
ég kom þar. Það að vera gestur á
því heimili, vera tekinn alvarlega
og þar að auki meðhöndlaður sem
fullorðin manneskja og jafningi,
var ekki svo lítill styrkur fyrir þá
vanmáttarkennd sem oft leynist
með ungu fólki á vissu aldurs-
skeiði. Foreldrar Hjartar, Svanfríð-
ur og Pétur, tóku mér strax ein-
dæma vel og þá ekki síður systkini
Hjartar, Sigríður, Hjördís og Gunn-
ar. Þegar ég lít til baka og hygg
að kynnum mínum við þessa góðu
fjölskyldu eru mér efst í huga fjöl-
margar ángæjustundir á þessu
heimili. Glettni og skemmtilegt við-
mót allra og það hlýja andrúmsloft
sem lék um húsið. Þar voru mín
fyrstu kynni af píanói því öll fjöl-
skyldan spilaði á það hljóðfæri.
Þegar Laura og Hjörtur stofnuðu
sitt eigið heimili varð það sama
uppi á teningnum og hafði verið í
hans foreldrahúsum. Ég minnist
ótal samverustunda á heimili þeirra
þar sem gestrisni og glaðværð réðu
ríkjum. Eins og áður sagði var
Hjörtur með afbrigðum músíkalsk-
ur og hrókur alls fagnaðar í vina-
hópi og naut þess að taka á móti
gestum. Allir sem þekktu Hjört
fundu hlýju þá og vingjarnlegheit
sem af honum stafaði. Heimili hans
og Lauru var öllum vinum þeirra
opið og þau voru alltaf reiðubúin
að stækka vinahópinn.
Eftir stúdentspróf höfum við
bekkjarSýstkinin hist á fímm ára
fresti. Við höfum þá sjálf haft allan
veg og vanda af þessum samkom-
um. Skemmtikraftar sem minnst
aðfengnir. Við höfum verið sam-
hent og sjálfum okkur nóg og í því
átti Hörtur ekki minnsta þáttinn.
Kæri vinur, nú að leiðarlokum
vil ég þakka þér allt gott sem ég
á þér upp að unna eftir áralanga
vináttu. Mig langar að enda þessi
kveðjuorð með tilvitnun í framan-
greint bréf þitt til mín, sem ég
móttók daginn sem þú hvarfst á
braut. Mér finnst niðurlag bréfsins
lýsa þér svo vel:
„Við Laura þökkum ykkur vinar-
þelið og hlýjuna á því ári sem er
að líða. Ekki gleymum við þessari
hálfu öld, sem vináttubönd okkar
hafa ekki brostið. Þökkum þau ár.
Jæja Benni minn. Þetta bréf er víst
nóg fyrir árið. Þótt þú svarir ekki
í síma 12- febrúar, þá ætla ég að
hringja samt aftur!
Þinn eldamli vinur
Hjörtur Pjetursson."
Góði vinur, líklega fæ ég engar
afmælisóskir frá þér á þessu ný-
byijaða ári, d'n ég trúi því að leiðir
okkar eigi eftir að liggja saman á
ný og ég vona að þér farnist vel á
þeim leiðum sem þú nú hefur lagt
út á.
Laura mín, ég og Stella sendum
þér og allri fjölskyldunni okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Endurminningin um góðan dreng
er besti minnisvarði hans.
Blessuð sé minning Hjartar Pjet-
urssonar.
Benedikt Antonsson.
Afi Hjörtur er dáinn eftir stutta
sjúkrahúslegu í Frakklandi.
Hjá afa í Reynisnesi, eins og ég
kallaði hann flest þau ár sem ég
þekkti hann, kynntist ég fyrst spila-
mennsku hans sem ég tel mig búa
að í dag vegna þess hve mikið ég
dvaldist í Reynisnesi. Afi spilaði
mikið á orgel og píanó og vegna
þess hve greiður aðgangur var að
hljóðfæri náði ég fljótt að setja
saman tóna sem oft voru slípaðir
af afa. Þótt fáir ef nokkrir í fjöl-
skyldunni hafi komið heim á nýjum
bílum eins oft og afi snertir það
mig þó ekki eins mikið og þegar
hann endurnýjaði orgelin sín á
nokkurra ára fresti. Ég man að hjá
honum var það nýja alltaf það besta
og sem var komið til að vera, þótt
flygill og píanó hafi orðið ofan á
síðustu árin, kannski var það eins
með bílana.
Alltaf þegar ég kom í Hvassaleit-
ið til þeirar, var sest niður og gætti
amma þess að veitingar væru nóg-
ar. Oftast fræddu hann og amma
mig um frændur mína og frænkur,
skyldleika þeirra við mig og aðra
ættfræði, en á henni hafði afi mik-
inn áhuga. Þegar svo loks var kom-
ist til botns í ættfræðinni settist
afí yfirleitt við hljóðfærið og spilaði
fyrir mig tilbrigði af sínum uppá-
haldslögum sem hann kryddaði oft
með djassi.
í október síðastliðnum fæddist
dóttir mín, hans fyrsta langafa-
barn, og fyrir okkur afa var það
ánægjulegt að hann næði að sjá
einn lið úr sinni. eigin ætt áður en
hann dó.
Innilegustu samúðarkveðjur,
amma mín.
Þórður Vilberg.
Fallandi haustlauf á foldu svífa,
fölna þar og verða aftur mold.
Þannig mun dauðinn þjökuðum hlífa,
sem þreytt hafa bæði sinni og hold.
Kveðja frá barnabörnum
og barnabarnabarni.
í dag verður til moldar borinn
góður vinur og vinnufélagi í 15 ár,
Hjörtur Pjetursson, viðskiptafræð-
ingur og löggiltur endurskoðandi.
Hjörtur réðst til Seðlabankans á
miðju ári 1975 og starfaði hann
fyrst sem sérfræðingur í lánadeild,
en seinni helming starfstímans
vann hann við rekstrardeild bank-
ans, eða þar til hann hætti störfum
í árslok 1989 sökum heilsubrests.
Hjörtur var vel menntaður og
hafði öðlast dýrmæta starfsreynslu
þegar hann hóf störf við bankann.
Hann lauk kandidatsprófi í við-
skiptafræði við Háskóla íslands
árið 1945 og fór þá til náms í Sví-
þjóð þar sem hann lagði einkum
stund á reikningsskil og vélabók-
hald. Þegar hann kom heim ári síð-
ar setti hann upp eigin endurskoð-
unarskrifstofu og löggildingu í end-
urskoðun fékk hann í ársbyijun
1950. Síðar fór hann til Bandaríkj-
anna og kynnti sér kerfissetningar
á bókhaldsvélum hjá Burroughs og
vann hann við það jafnhliða endur-
koðunarstörfum í mörg ár.
Með þetta góða veganesti kom
Hjörtur í Seðlabankann þar sem
hann miðlaði okkur hinum af þekk-
ingu sinni og hæfni. Okkur í rekstr-
ardeild bættist því góður liðsstyrk-
ur þegar Hjörtur kom til starfa þar
um það leyti sem framkvæmdir við
Seðlabankabygginguna voru að
hefjast. Sá hann m.a. að miklu leyti
um allt byggingarbókhaldið, yfir-
ferð reikninga og verksamninga og
fórst honum það allt fagmannlega
úr hendi eins og vænta mátti. Minn-
ist ég ekki að endurskoðendur
bankans hafi nokkurn tímann gert
athugasemdir við neitt sem að
byggingarbókhaldinu laut né önnur
bókhaldsverkefni sem Hjörtur ann-
aðist. Auk fyrrgreindra starfa voru
Hirti einnig falin ýmis trúnaðar-
störf fyrir bankann. Má þar nefna
setu hans í gjaldmiðilsnefnd, sem
undirbjó gjaldmiðiisbreytinguna í
janúar 1981, en þar naut sín vel
góð bókhaldsþekking Hjartar og
skipulagshæfileikar.
Hjörtur var mikill fagurkeri og
hafði unun af myndlist og sjálfur
var hann vel liðtækur í píanóleik
þótt sjálflærður væri á því sviði.
Mun hann hafa leikið talsvert á
dansleikjum á yngri árum og kunni
fjöldann allan af léttum dans- og
djasslögum. Á þetta er minnst hér
því ekki alls fyrir löngu var hann
fenginn til þess að spila viðstöðu-
laust inn á segulband eins mörg lög
og hann myndi eftir. Leyfði hann
mér að hlusta á upptökuna þar sem
hann lék af fingrum fram hvert
lagið af öðru með miklum tilþrifum
og af ótrúlegri leikni svo minnti á
köflum á nafnkunna píanista í
djassheiminum.
Eftir að Hjörtur lét af starfí í
bankanum fylgdist hann áfram vel
með öllu sem þar gerðist. Þegar
fundum bar saman spurði hann
margs um menn og málefni og jafn-
vel eftir að þau hjónin fluttu til
Frakklands fyrir liðlega ári var
hringt og aflað frétta. Þannig bar
Hjörtur hag bankans fyrir brjósti
og fann til samkenndar með starfs-
mönnum hans.
Við vinir Hjartar og samstarfs-
menn í Seðlabankanum sendum
eiginkonu hans, frú Lauru F. Claes-
sen, börnum þeirra og öðrum ætt-
ingjum innilegar samúðarkveðjur.
Góðs félaga er minnst með hlýhug
og þakklæti.
Stefán Þórarinsson.
Kveðja frá
Lionsklúbbnum Fjölni
Lionsbróðir okkar, Hjörtur Pét-
ursson, er látinn, tæpra 72 ára,
fæddur 21. febrúar 1922. Hann
var borinn og barnfæddur Reyk-
víkingur, sonur hjónanna Svanfríð-
ar Hjartardóttur og Péturs Gunn-
arssonar, stórkaupmanns, sem oft
var kenndur við Landsstjömuna.
Hjörtur lauk stúdentsprófi 1941
frá MR og prófi í viðskiptafræðum
frá Háskóla íslands. Einnig var
hann löggiltur endurskoðandi og
rak eigin skrifstofu á því sviði í
mörg ár. Síðustu starfsárin var
hann endurskoðandi Seðlabank-
ans.
Leiðir okkar Hjartar lágu fyrst
saman í MR 1940, þegar við lékum
saman í Herranótt í leikritinu ■c'~
Frænka Charles, en þar lék Hjört-
ur þjóninn Brasset af mikilli snilld
og uppáhalds setningin hans var:
„Fljótt í snatri og undireins" og
fór sér síðan hægara en allt sem
hægt fer.
Árið 1954 gekkst Jón Gunnars-
son, foðurbróðir Hjartar, fyrir
stofnun Lionsklúbbsins Fjölnis og
vorum við Hjörtur báðir stofnfélag-
ar ásamt 10 öðrum, en þeir ero
allir látnir.
Hjörtur var ákaflega skemmti- -*
legur í allri umgengni. Hann var
sérstaklega músíkalskur og spilaði
mjög vel á píanó enda eftirsóttur
til að spila á dansæfingum á skóla-
árunum. Á bernskuárum Fjölnis
var oftsinnis gengist fyrir alls kon-
ar uppákomum og alltaf var Hjört-
ur boðinn og búinn til að skemmta
og það gerði hann af snilld.
Við Fjölnisbræður söknum
gengins vinar og sendum eftirlif-
andi konu hans, Lauro Claessen,
og allri fjölskyldu þeirra samúðar-
kveðjur og biðjum góðan Guð að
blessa þau.
F.h. formanns,
Viggó E. Maack.
ÞRUMU-UTS
ALLAR VORUR MEÐ
2LA LITi
15-60%
AFSLÆTTI
GOLFTEPPI 20-50%,
GÓLFDÚKAR 15-40%,
KERAMÍKFLÍSAR 20-% AFSLÁTTUR
DÆMI: FILT TEPPI FRA KR. 289.-
TANGO LYKKJUTEPPI FRÁ KR. 898.
GÓLFDÚKAR FRÁ KR. 795 -
MALNINGARDEILDIN ÞESSI EINA SANNA:
VEGGFÓÐUR - BORÐAR - VEGGDÚKAR -
VAXDUKAR 20-60% AFSLÁTTUR
TILBOÐSVERÐ A LIMI - SPARSLI -
MOTTUM OG DREGLUM
jtatí&l
KYNNIR INNIMALNINGU
MEÐ 15-20 % AFSLÆTTI
ASAMT ÞVÍ AÐ GEFA
LÍFINU LIT.
ÖLL ÖNNUR MÁLNING
MEÐ 15-20% AFSL.
GRENSASVEGI 18 S 812444
ERTU AÐ BYGGJA? - VILTU
BREYTA? - ÞARFTU AÐ BÆTA?
OPIÐ LAUGARDAG 10.00-13.00
VISA-EURO-SAMKORT RAÐVISA TIL ALLT AÐ 18 MÁNAÐA